Morgunblaðið - 02.04.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
Um að vera eins-
dæmi í veröldinni
— eftir Guðstein
Þengilsson
Hjá ölsölufólki og öðrum vímu-
vinum er ekki mikið til siðs að
rökstyðja kröfur um aukið frjáls-
ræði á áfengismarkaðinum. Helst
er látið við það sitja að veitast
með leiðinlegum munnsöfnuði að
þeim, sem vilja koma í veg fyrir
heilsutjón og annan skaða af völd-
um vímuefna, einkum ef um
áfengi er að ræða. Þeir fá að
heyra, að þeir séu öfgamenn, of-
stækismenn og þykist vera sjálf-
kjörnir til að hafa vit fyrir öðrum.
Lengra ná röksemdirnar alla
jafna ekki, nema ef sú einstaklega
frumlega yfirlýsing skyldi fylgja
með frá viðkomandi vímusinna, að
hann sé á móti öllum boðum og
bönnum.
Þótt yfirlýsingin sé ekki greind-
arlegri en þetta hefur hún fallið
sérlega vel inn í þann margradda
samsöng um frelsi, sem nú er upp-
hafinn. Þar syngja þeir vafalaust
hæst, sem minnsta hugmynd hafa
um, hvað frelsi í rauninni er. Það
ber a.m.k. eki mikið á, að það
flögri að þessu fólki og vímusinn-
um yfirleitt, að ægilegasta ófrelsi,
sem þjakað getur nokkurn mann
er að vera háður einhverjum
vímugjafa, þótt stigin í því ófrelsi
séu óneitanlega mörg. En eitt leið-
ir þar allajafna af öðru. Einnig
mætti nefna, að það er ófrelsi að
vera haldinn þeirri gróðafíkn, sem
Guðsteinn Þengilsson
„Draugur þessi ber
margt vopna, en eitt
hinna skædustu höfum
við Islendingar þó ekki
enn selt honum í hend-
ur, en þar á ég við sölu
áfengs öls.“
er aðaldriffjöðrin í sölu og dreif-
ingu vímuefna.
Það má samt ekki gleyma því,
að ein röksemd er til, ef röksemd
skyldi kalla, er vímuvinir hafa
mjög á oddinum. Hún er sú, að
varla séu þess dæmi, að það land
finnist í veröldinni þar sem bann-
að sé að selja sterkt öl, svo fram-
arlega sem áfengir drykkir eru
þar á boðstólum á annað borð.
Þannig er reynt að vekja blygðun
og ótta hjá vissum hluta fólks með
því að við séum að skera okkur úr
með þessum útúrboruhætti að
vilja ekki selja sterkt öl. Það er
alkunna, að þeir sem eru istöðu-
litlir og lausir í rásinni eiga erfitt
með að vera frábrugðnir öðrum í
hópnum. Og þetta með áfenga ölið
er því meira en flestir þeirra þola.
Þessari tegund sálfræði var eitt
sinn beitt við valdasjúka og met-
orðagjarna höfðingja hér á ís-
landi. Þá var það hvorki meira né
minna en kardínáli, Vilhjálmur
nokkur af Sabina, sem kominn var
alla leið frá páfanum í Róm að
krýna Noregskonung. Þegar þessi
umboðsmaður páfa hefur heyrt
fréttir af tslandi lætur hann þau
orð falla í viðurvist íslenskra
frammámanna, að það sé „ósann-
legt, að land það (þ.e. ísland) þjón-
aði eigi undir einhvern konung
sem öll önnur í veröldinni". Þarna
stóðu nú íslendingar uppi eins og
glópar, staðnir að því að vera
öðruvísi en allir aðrir. Þeir höfðu
asnast til að koma á fót lýðræðis-
legra stjórnarfari en annars stað-
ar þekktist og þinguðu meira að
segja árlega til að gera sameigin-
lega út um mál sín. Þeir voru því
eins og álfar út úr hól í hópi þjóða,
sem allar höfðu yfir sér kóng. Var
nú Hákoni hinum gamla svarin
tryggð og hollusta í snatri, svo við
gætum loks orðið eins og annað
fólk.
En það voru myrkar aldir
ófrelsis og kúgunar, sem yfir þjóð-
ina gengu, m.a. af því að okkur var
talin trú um að við værum eins-
dæmi í veröldinni. Eins og
mönnum er kunnugt náði ánauðin
hámarki eftir gerð og undirskrift
Kópavogssamningsins 1662.
Lengi hafa menn verið skatt-
skyldir öðrum einvalda, sem stýrir
af mikilli hörku og miskunnar-
leysi og á ríki sitt í sálum manna
og líkömum. Stundum hefur hon-
um verið gefið konungsnafn, en
miklu er hann þó líkari vofu eða
draug og mætti vel kalla hann
vímudrauginn. Draugur þessi ber
margt vopna, en eitt hinna skæð-
ustu höfum við íslendingar þó
ekki enn selt honum í hendur, en
þar á ég við sölu áfengs öls. Að
þessu leyti erum við að sögn eins-
dæmi meðal þjóða og megum
reyndar vel við una.
Nú er svo komið, að margir
frammámenn þessarar þjóðar
hafa ekki lengur skapstyrk til „að
vera einsdæmi í veröldinni". Þeir
vilja nú gera Kópavogssamning
við vímudrauginn og játast ein-
veldi hans til fulls. Takist þeim
ásamt vímusinnum að fá hinn
nýja Kópavogssamning samþykkt-
an er fyrirsjáanlegt, að geigvæn-
legur tollur verður tekinn af lífi og
hamingju ótalins fjölda æskufólks
og jafnvel óborinna kynslóða. Sá
sem gengur einveldinu á hönd öðl-
ast ekki frelsi sitt auðveldlega aft-
ur. En við munum ætíð muna
hverjir bera ábyrgðina.
Guósteinn l*engilsaon er læknir í
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldr-
aðra í Kópavogi.
21
Vandaðir bíl-
kranar í öllum
stærðum á
lægsta verði á
markaðnum
18 tonn/m
Lyftigeta 8.5 tonn, þyngd
2.3 — 2.5 tonn.
Hátt á 2. hundrað gerðir fáan-
legar frá 2.5 tonn/m til 180
tonn/m
Hafið samband við okkur og
fáið nánari upplýsingar.
iTSMXrDtöXSI
FUNAHOFÐA 1 - REYKJAVIK
S 91-685260
/\iglýsinga-
síminn er 2 24 80
RÍÓ er alveg ekta...
RÍÓkaffipakkinn er harður og lofttæmdur því þannig helst
RÍÓkaffið ferskt og bragðríkt alla leið í bollann þinn.
Rjúkandi RÍÓ - hörkugott kaffi
AUK hf. 93.3