Morgunblaðið - 02.04.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
2000 grunn-
skólabörn taka
þátt í stöðl-
uðu þrekprófl
EUROFIT er samnefni yfir staðlað
þrekpróf sem nú stendur yfir í
nokkrum Evrópulöndum á vegum
Evrópuráósins. Hér á landi fer próf-
ið fram á vegum æskulýðs- og
íþróttamáladeildar menntamála-
ráðuneytisins undir forystu Reynis
Karlssonar. Grímur Sæmundsen,
læknir, hefur unnið að þessu verk-
efni í tvö ár á vegum menntamála-
ráðuneytisins og setið fundi hjá
íþróttaráði Evrópusambandsins
vegna undirbúnings verkefnisins.
Blaðamaður og ljósmyndari
Mbl. fóru í íþróttahús Hafnar-
fjarðar í vikunni þar sem verið var
að mæla þrek nokkurra krakka.
Grímur sagði að þúsund manna
úrtak grunnskólabarna, 9—16 ára,
hefði verið tekið af öllu landinu til
að mæla þrek þeirra og líkams-
þroska.
„íþróttakennaraskólanemar frá
Laugarvatni, 48 talsins, ásamt
kennurum þeirra vinna að prófun-
unum og fara þau um landið til
þess. Prófin eru í því fólgin að
annars vegar eru boðhlaup til að
athuga hæfni lungna og hjarta til
þess að starfa eðlilega undir álagi.
Um er að ræða sex mínútna hlaup
og eiga nemendur að hlaupa eins
langt og þeir komast á þeim tíma.
Hinsvegar eru átta mismunandi
æfingar til að mæla ákveðna þætti
í líkamsstarfseminni: samhæfni,
vöðvaafl, vöðvaþol, vöðvasig, lík-
amsstaða og mýkt,“ sagði Grímur.
„Tilgangurinn er sá að hafa eitt-
hvert meðalgildi yfir þessa
þroskaþætti hjá börnum á þessum
aldri. Þetta er gert eftir stöðluðu
prófi sem lífeðlisfræðingar á veg-
um Evrópuráðsins hafa sett upp
og tók sjö ár að hanna. Þessi sömu
próf fara einnig fram í fjölda ann-
arra Evrópulanda um þessar
mundir og er nú verið að prófa
prófið ef svo má að orði komast.
Haldin verður ráðstefna á næsta
ári í Róm á vegum Evrópuráðsins
þar sem þátttökuþjóðir í verkefn-
inu koma saman og er þar ætlunin
að bera saman niðurstöður og
árangur. Eflaust koma upp ein-
hver tæknvandamál í ljós eftir
prófunina sem ekki sáust fyrir svo
það verður að lagfæra prófið í
samræmi við niðurstöður próf-
unnar þeirrar sem nú fer fram. Á
ráðstefnunni verður þá ákveðið
nánar með framganginn hvort
menn séu ánægðir með tæknilegu
framkvæmdina og eins hvort próf-
in prófa það sem þau eiga að prófa
og hvort framhald verði á. Til
dæmis eru uppi hugmyndir um að
öll skólabörn verði þrekprófuð á
fjögurra ára fresti. Fyrst yrði
barnið prófað níu ára jamalt og
síðan aftur 13 ára. Þá e" hægt að
sjá hvaða framförum ba. nið hefur
tekið í sínum líkamsþroska og um
leið er hægt að nota niðurstöður
til að bera saman þrek níu ára
barna nú og níu ára barna fyrir
fjórum árum.
Sigurður Frosti Þórðarson
Nú er að reyna að halda jafnvæginu út tímann ...
Þetta var ein æfinganna á prófinu.
Nefnd á vegum Evrópuráðsins
sem fjallar um íþróttarannsóknir
stendur að verkefninu. Hvatinn er
sá að í hinum vestræna heimi er
alltaf að aukast hóglífið hjá æsk-
unni. Tómstundargaman æsku nú-
tímans er þannig að það krefst
ekki lengur líkamlegs álags, held-
ur er setið fyrir framan sjónvarp-
ið með kók og prins og erum við
íslendingar að renna inn í þessa
bylgju með myndbandaæðinu sér-
staklega. Hins vegar, hér áður
fyrr, fóru krakkarnir frekar í fót-
bolta eða eitthvað slíkt sem krafð-
ist líkamslegs álags. Mikilvægt er
að fylgjast með þessu í framtíð-
inni og helst að reyna að glæða
áhuga æslunnar á íþróttum og lík-
amlegri áreynslu," sagði Grímur.
Þórólfur Þórlindsson, prófessor
í félagsvísindum við Háskóla ís-
Halldóra Ólafsdóttir
lands, hjálpaði við að velja skóla-
úrtakið og í samráði við hann er
framkvæmd félagskönnun í leið-
inni. „Krakkar, 12—16 ára, eru
spurð hvaða álit þau hafa á sam-
bandi íþrótta og heilbrigðis —
hvort íþróttir stuðli að bættu
heilsufari eða ekki, hvort þau
stundi íþróttir og þá hvaða íþrótt-
ir og hversu oft, hvaða aðstöðu
þau helst vildu fá af því sem ekki
er fyrir hendi í viðkomandi byggð-
arlagi. Með félagskönnuninni er
hægt að bera saman viðhorf
krakkanna til íþrótta og árangurs
þeirra í þeim og fundið út hvaða
álit þau börn hafa á íþróttum sem
sýna lélegan árangur á prófunum.
Einnig er athyglisvert að sjá
hvernig árangur krakkar sýna þar
sem aðstaða er léleg og svo öfugt,"
sagði Grímur að lokum.
Sigurður Rútsson
„JC er félagsskapur sem þjálf-
ar ungt fólk upp í leiötogastöður“
— segir varaalheimsforseti JC, Sameen Isfahani frá Sri Lanka
„FÉLAGSSKAPUR eins og JC hefur því hlutverki að gegna að þjálfa ungt
fólk upp í betri einstaklinga og gera þá að leiðtogaefnum," sagði varaal-
heimsforseti JC -samtakanna, Sameen Isfahani frá Sri Lanka, en hann var
staddur hér á landi fyrir stuttu og átti þá blaðamaður Mbl. við hann viðtal.
Junior Chamber-samtökin eru
alþjóðleg félagasamtök fyrir kon-
ur og karla á aldrinum 18 til 40
ára. Félagafjöldi er 450.000 í 75
löndum. „Hlutverk JC er aðallega
þjálfun fólks til að gegna leiðtoga-
stöðum. Við trúum því að fólk
fæðist ekki með þennan hæfileika
heldur þarf að þjálfa fólk til þess.
Samtökin eru ekki beint þjón-
ustu-félagsskapur eins og Lion og
Rotary, þótt við gerum ýmislegt í
góðgerðarskyni eins og önnur fé-
lög. Við reynum að fara öðruvísi
að en önnur góðgerðarfélög. T.d. ef
einhverjir í heiminum eru svangir
myndi JC ekki senda matarbirgð-
ir, heldur myndum við frekar
kenna þeim að fiska svo þeir gætu
bjargað sér sjálfir.
Sterkasta hlið JC er á alþjóðleg-
um vetvangi. JC tekur ekki við
hvaða verkefni sem er, heldur
veljum við mjög vandlega áður en
við ráðumst í verkið. Byrjandi í
nýju fyrirtæki á það á hættu að
verða rekinn ef hann gerir vitleys-
ur, en í okkar samtökum er engin
rekinn, heldur læra JC-meðlimir á
mistökunum og gera betur næst.
Verkefni þau sem JC gæti tekið
fyrir eru til dæmis nemendaskipti
á milli tveggja landa og lista-
samkeppni milli landa. Kennarar
hafa verið sendir frá vestrænum
löndum til landa, þar sem mennta-
kerfið er styttra á veg komið. Um-
hverfisáhrif og hugsunarháttur
eru mjög mismunandi frá einu
landi til annars, svo við leggjum
mikla áherslu á að þjóðir kynnist
og umgangist. Við höfum meira að
segja sent dýr á milli landa. Við
sendum tvo litla fíla frá Sri Lanka
til Japans á alþjóðaári barnsins,
1979. Fílum fer nú mjög fækkandi
í Sri Lanka og það má ekki senda
fíla út úr landinu, en við komum
því fram við stjórnina að fá að
senda þessa fíla til Japans. Síðan
kynntum við Sri Lanka í Japan.
Félagsmenn JC borga félags-
gjald á hverju ári. Á íslandi er
gjaldið um 2.000 krónur á ári. En
félagsmenn fá miklu meira en
virði þessara peninga. Toyota og
Seiko eru þau fyrirtæki sem hafa
stutt okkur mest gegnum árin.
JC-klúbbarnir eru mismunandi
eftir því hvar þeir eru staðsettir.
JC á íslandi er mjög sterkur fé-
lagsskapur. Ég eiginlega vissi það
áður en ég kom hingað því að fé-
lagsmenn á landinu eru um 1.000,
en fólksfjöldi er aðeins 240.000. I
mínu heimalandi, hinsvegar, er
fólksfjöldinn 15 milljónir, en
JC-félagar þar eru eins margir og
á íslandi.
Ég kom hingað til að sjá hvern-
ig JC vinnur á íslandi og einnig
reyni ég að hitta eins marga fé-
lagsmenn og ég get. Ég vil forðast
að líta stórt á mig þó að ég gegni
embætti varaalheimsforseta sam-
takanna og einnig vil ég að með-
limir spyrji alls þess sem þeir
vilja vita. Ég er ekkert mikilvæg-
ur þó að ég gegni embættinu, held-
ur er einstaklingurinn, JC-með-
limurinn, mikilvægastur innan
heildarsamtakanna.
í Bandaríkjunum hófst JC-
starfið sem karlmannaklúbbur og
reyndar líka á íslandi. Fyrsta kon-
an kom inn árið 1977. „f Sri Lanka
hófst starfið fyrir karla og konur í
senn. Fyrsti kvenforsætisráðherr-
ann sat við völd í Sri Lanka, konur
Fri vinstri eru: Ragnheiður Karlsdóttir, varalandsforseti JC á íslandi, Sam-
een Isfahani, varaalheimsforseti JC, og Ingimar Sigurðsson, landsforseti JC
i íslandi
eru nokkuð áhrifamiklar þar í
landi, en ég verð að segja að konur
eru mjög sterkar á ýmsum svið-
um, en karlmenn eru bara sterk-
ari. ,
Á ferðum mínum nú hef ég ver-
ið spurður mikið um vandamálin í
minu heimalandi. Fjölmiðlar gefa
alls ekki rétta mynd af Sri Lanka.
Fólk hér á vesturlöndum heldur að