Morgunblaðið - 02.04.1985, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
41
} raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
ÚtboÓ
Eskifjörður
Ath.: Villa slæddist inn í auglýsingu tækni-
deildar Húsnæöisstofnunar ríkisins í Morgun-
blaðinu 31. mars og birtist hér leiöréttur kafl-
inn um útboö á Eskifiröi:
Stjórn verkamannabústaða Eskifjaröar óskar
eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúöa í
parhúsi, 123 m2 627 m3 Afhending útboös-
gagna er í bæjarskrifstofu Eskifjaröar og hjá
tæknideild Húsnæöisstofnunar ríkisins frá 2.
apríl 1985, gegn 10.000, kr. skilatryggingu.
Tilboöum skal skila á sömu staöi eigi síöar en
23. apríl nk. kl. 15.00 og veröa þau opnuð aö
viðstöddum bjóöendum.
f.h. Stjórna verkamanna-
bústaða, tæknideild
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Húsnaedisstofnun rákisins
Tæknideild Laugavegi 77 R. Sími 28500
Gódan daginn!
Húsafriðunarnefnd auglýsir hér meö eftir um-
sóknum tii húsafriöunarsjóös, sem stofnaöur
var með lögum nr. 42/1975, til aö styrkja
viðhald og endurbætur húsa, húshluta og
annarra mannvirkja, sem hafa menningar-
sögulegt eöa listrænt gildi.
Umsóknir skulu sendar fyrir 1. september nk.
til Húsafriöunarnefndar, Þjóöminjasafni ís-
lands, Box 1439, Reykjavík á eyöublöðum,
sem þar fást.
Húsafriðunarnefnd.
Áskorun til greiöenda fast-
eignagjalda í Kópavogi
Hér meö er skoraö á alla þá er eigi hafa greitt
gjaldfallin fasteignagjöld ársins 1985 aö gera
skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar
þessarar. Hinn 5. maí nk. veröur krafist
nauöungaruppboös samkv. lögum nr.
49/1951 á fasteignum þeirra er þá hafa eigi
gert skil.
Innheimta Kópavogskaupstaðar.
| nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
á eigninni Asbyrgi, Stokkseyri, eign Byggingafélags verkamanna, fer
fram á eigninni sjálfri þriöjudaglnn 9. april 1985 kl. 10.00, eflir kröfu
Veödeildar Landsbanka Islands. Sýslumaöur Arnessýslu.
Nauöungaruppboð
annaö og siöara á eigninni Brúarhvammur, Biskupstungu, þinglesinni
eign Jóns Guölaugssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaglnn 9.
april 1985 kl. 14.00, eftir kröfu lögmannanna Jóns Magnússonar hdl.
og Valgarðs Briem hdl.
Sýslumaður Arnessýslu.
Kópavogur - Kópavogur
Spilakvöld sjálfstæöisfólaga i Kópavogi veröur i sjálfstæöishúsinu
Hamraborg 1 þriöjudaginn 2. april kl. 21.00.
Mætum öll.
St/ómln.
Ðátar og skip
Höfum til sölu eftirtaldar stæröir skipa:
140 tonn, 150 tonn, 230 tonn, 250 tonn, 270
tonn, 100 tonna eikarbát.
Okkur vantar allar stæröir báta á söluskrá:
Fasteignamiðstööin
Hátúni 2 B,
Simi: 14120.
Fimmtugur:
Torfí Jónsson
EINN af þeim, er hófu auglýs-
ingateiknun á nýtt og hærra svið á
sjöunda áratuginum, er fimmtug-
ur í dag. Það var engin smáræðis
umbylting, er átti sér stað, er
deild auglýsingahönnunar var
stofnuð við Myndlista- og handíð-
arskóla íslands árið 1962, en þeir
voru þar aðalmenn fyrstu árin
Gísli B. Björnsson og Torfi Jóns-
son. Báðir voru nýkomnir til
starfa eftir langt og strangt nám
hér heima og í Þýskalandi.
Áður en þeir komu fram á svið-
ið, hafði öll auglýsingahönnun um
langt skeið verið í höndum örfárra
úrvalsmanna í faginu, þeirra Ás-
geirs Júlíussonar, Atla Más Árna-
sonar og Stefáns Jónssonar o.fl.
Allir ráku þeir sjálfstæðar auglýs-
ingastofur og lögðu grundvöllinn
að því, sem íslenzk auglýsinga-
hönnun er í dag. Að sjálfsögðu
urðu nokkrar sviptingar, er ný
kynslóð haslaði sér völl, því að öll
uppbygging byggist að nokkru á
niðurrifi fyrri gilda. Torfi Jónsson
var hér að vissu marki málamiðl-
unarmaður, og það féll í hans hlut
að taka við formennsku í Félagi
íslenzkra teiknara af mætum
frænda mínum, Ásgeiri Júlíussyni
árið 1964. Urðu þar um margt
táknræn kaflaskil, því að með nýj-
um mönnum og stofnun auglýs-
ingadeildar við MHÍ margfaldað-
ist tala auglýsingateiknara á fáum
árum. Með nýjum tímum, gjör-
byltingu í prentiðnaði og bókagerð
og síaukinni þörf á upplýsinga-
miðlun hefur þessi tala svo aftur
margfaldast.
Þrátt fyrir alla þessa gerjun,
grósku og umbyltingu standa þeir
enn í fremstu röð, er hér ruddu
veginn og munu vafalítið halda
áfram að gera um langa tíð.
Torfi Jónsson dró sig að vísu í
hlé frá almennri auglýsingateikn-
un fyrir nokkrum árum og helgaði
sig bókahönnun um árabil og gerir
enn. í þrjú ár vann hann í Osló hjá
einu virtasta fyrirtæki á því sviði í
Noregi og var þar vel metinn.
Torfi hefur bæði hlotið verðlaun
og viðurkenningar fyrir listræna
hönnun bóka. Hið listræna hefur
ávallt verið sterkasta hlið Torfa
Jónssonar, og hann mun einn af
snjöllustu mönnum þjóðarinnar <
meðferð vatnslita, svo sem marg-
ur veit. Torfi hefur þó aðeins hald-
ið eina litla sýningu hér í höfuð-
borginni, en mikla athygli vakti
hún og er mörgum minnisstæð. En
í tilefni afmælisins er önnur sýn-
ing væntanleg í anddyri Norræna
hússins, og er það trúa mín, að
hún muni ekki vekja minni athygli
en sú fyrri.
Hin síðustu ár hefur Torfi verið
skólastjóri Myndlista- og handíða-
skóla Islands og er einmitt þar í
forsvari, er skólinn stendur á af-
drifaríkum tímamótum. Megi hon-
um hér farnast vel, ekki síður en
er hann tók við formennsku í Fé-
lagi íslenzkra teiknara á sinum
tíma. Það er mín fróma ósk um
leið og ég árna honum allra heilla
í tilefni afmælisins.
Bragi Ásgeirsson
Torfi Jónsson tekur á móti gest-
um á heimili sínu á milli kl. 18 og 21
í dag.
Vorlína í
snyrtivörum
kynnt
NÝLEGA var Regina Lansley
stödd hér á landi til að kynna vor-
tískuna í förðun frá Margaret Ast-
or.
„Grace Kelly“-línan svokall-
aða var áberandi, en í henni eru
pastellitir s.s. ljósbleikt, fölgult,
melónugrænt, Ijósgrátt og föl-
blátt. Þá voru skærari litir einn-
ig kynntir undir línu sem nefnist
„Rock and Roll“-tískan og á hún
einkum að höfða til ungra
stúlkna.
Förðunin á að vera lífleg og
frjálsleg.
. •, sa"'"-í<'»*0''uA33<'
Þetta er verðlauna-
gripurinn sem stjarna
Hollywood, Úrvals og
Vikunnar fær í sumar.