Morgunblaðið - 02.04.1985, Side 67
67
því að þetta er líklegasta jarðhita-
svæðið hér í nágrenninu til virkj-
unar.
Þegar Nesjavellir voru keyptir
höfðu farið fram athuganir á
jarðhitasvæðum hér í nágrenni
Reykjavíkur, sem gætu komið til
greina í framtíðinni. Þar var aðal-
lega um að ræða Krísuvíkursvæð-
ið, Trölladyngjusvæðið, Suður-
Hengilssvæði eða Hveragerði,
Norður-Hengilssvæði eða Nesja-
velli. Af þessum fjórum svæðum
var Nesjavallasvæðið talið lang
líklegast. Það bar margt til þess,
fjarlægöin frá notkunarsvæðinu
var minnst og af öllum þessum
fjórum svæðum var þetta hið eina
þar sem góðir möguleikar voru á
öflun ferskvatns fyrir veituna, en
ferskvatn er nauðsynlegur milli-
liður við virkjun háhitasvæða
fyrir hitaveitur.
Ef byggingaframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu verða eitt-
hvað svipaðar og undanfarna ára-
tugi Þarf að virkja að minnsta
kosti 400 MW til aldamóta, og
þangað til eru ekki nema 15 ár. Ef
aftur á móti dregur úr byggingar-
framkvæmdum, til dæmis um
fjórðung, sem ekki er talið ólík-
legt, þá endist virkjun af þessari
stærð fjórum árum lengur. Gert
er ráð fyrir að virkjað verði í
þremur til fjórum áföngum."
Ódýr raforka
Nú hefur verið rætt um að reisa
þarna raforkuver, ef svæðið verð-
ur á annað borð virkjað, og sú
gagnrýni hefur komið fram, m.a. i
Þjóðviljanum, að slíkt sé bruðl,
þar sem umframfjárfesting hafi
átt sér stað í virkjunarfram-
kvæmdum. Hvað vilt þú segja um
þetta?
„Þessi gagnrýni er komin frá
Sigurði Tómassyni, fulltrúa Al-
þýðubandalagsins í veitustjórn.
Gagnrýnin er hins vegar byggð á
miklum misskilningi. Nesjavalla-
svæðið er háhitasvæði, og grunn-
hiti þar er yfir 300 stig, þannig að
þetta er eitt heitasta háhitasvæði
landsins. Nú vill svo til, að af
tæknilegum ástæðum, sem of
langt mál yrði að skýra hér í ein-
stökum atriðum, gefst kostur á
því, að fá mjög ódýra raforku
jafnframt hitaorkuvinnslunni.
Samhliða 400 megavatta virkjun
fyrir hitaveitu væri hægt að vinna
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
Eins og sjá mi i þessari mynd býr talsverður kraftur í iðrum jarðar i
Nesjavöllum.
að minnsta kosti 70 megavatta
raforku.
Hvenær þessi möguleiki verður
nýttur eða hver markaður verður
fyrir þessa raforku er ekkert vitað
nú annað en það, að virkjunin
sjálf þarf á um það bil 15 mega-
wöttum að halda, bæði á jarðhita-
svæðinu og eins til þess að dæla
vatninu yfir fjöllin til borgarinn-
ar. Það liggur í augum uppi að svo
mikið verður virkjað strax. Raf-
magn sem þannig fengist myndi
ekki kosta nema brot af því sem
við þyrftum að borga fyrir raforku
úr kerfi Landsvirkjunar.
Annars er fullsnemmt að ör-
vænta um frekari nýtingu raforku
frá Nesjavöllum, þar sem hún
stæði ekki til boða fyrr en eftir 5
til 10 ár. Raforkuvinnslan skiptir
því ekki sköpum fyrir hitaveituna,
en hún gæti gert virkjunina miklu
arðsamari en annars væri.
Sigurður Tómasson hefur gefið í
skyn í Þjóðviljanum, að auðvelt sé
að fá allt það vatn sem Hitaveitan
þarfnast á næstu áratugum úr nú-
verandi hitasvæðum. Auðvitað
væri það æskilegt, en þvi miður
bendir ekkert til þess, þrátt fyrir
ítarlegar rannsóknir jarðhita-
svæðanna. Þess vegna verðum við
að finna ný jarðhitasvæði fyrir
framtíðina. Að því miða þessar
rannsóknir á Nesjavallasvæðinu
og vonandi bera þær góðan árang-
ur í tæka tíð.“
Athugasemd í útvarpsráöi:
Of snemma
greint frá
Bervíkur-
slysinu
Á ÚTVARPSRÁÐSFUNDI sl. fóstu-
dag lét Eiður Guðnason bóka at-
hugasemd vegna fréttaflutnings
ríkisútvarpsins af hvarfi Bervíkur
SH frá Olafsvík sl. miðvikudags-
kvöld. Gerð var athugasemd við það
hversu fljótt ríkisútvarpið sagði fri
hvarfi bátsins, eða áður en niðst
hefði samband við alla aðstandend-
ur ihafnarinnar.
Að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur
formanns útvarpsráðs óskaði Eið-
ur Guðnason eftir bókun á at-
hugasemd við fréttaflutninginn,
en greint var frá því í síðustu
fréttum sl. miðvikudagskvöld, að
óttast væri um afdrif 36 tonna
báts frá Ólafsvík. Hún sagði að þó
báturinn hefði ekki verið nafn-
greindur hefðu þeir, sem til
þekktu, getað áttað sig á um hvaða
bát var að ræða. Hún sagði bókun-
ina byggða á því, að of oft gleymd-
ist að athuga, hvort búið væri að
hafa samband við alla aðstand-
endur.
Athugasemd
MBL. HEFUR borist athugasemd
vegna viðtals við Lilju Skarphéð-
insdóttur, ljósmóður á Húsavík. í
viðtalinu segir Lilja að það vanti
lækna á sjúkrahúsið en hún óskar
að fram komi að hér sé eingöngu
átt við barnalækni, að öðru leyti
sé gott læknalið á staðnum.
Leiðrétting
Undirfyrirsögnin, sem birtist
með grein Tómasar Inga Olrich í
blaðinu sl. laugardag, átti ekki að
vera þar. Á hinn bóginn átti milli-
fyrirsögnin „Byggðakjarnar Júlí-
usar Sólnes" að breytast í
„Hreppaflutningar Júlíusar Sól-
nes“. — Biðst blaðið velvirðingar á
þessum mistökum.
TEN
CATE
HERRA
NÆRBUXUR
Ten cate karlmannanærbuxurnar
eru úr 97% bómull og 3% teygju,
tvíofnar. litekta. þola suðu. og eru
alltaf eins.
Margar gerðir og litir.
Verzl. Georg, Austurstræti,
Sporið, Grímsbæ,
Kf. Hafnfirðinga, Miðvangi,
Verzl. Aldan, Sandgerði,
Verzlunarfél. Grund,
Grundarfirði,
Verzl. Chaplin, Akureyri,
Nafnlausa búðin Hafnarfirði
Magnþóra Magnúsdóttir sf.
heildverzlun
Brautarholti 16, sími 24460
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI
Dominova húsgögn
Með ótal möguleikum má byggja upp
að eigin vild
Smíöuð úr massívri furu
meö hvítlökkuöum hliö-
um og baki. Þessi hús-
gögn eru jafnvönduö og
þau eru glæsileg. Verðið
ótrúlega hagstætt. Hér á
vel viö aö segja: „Lengi
býr að fyrstu gerð“.