Morgunblaðið - 27.04.1985, Side 2
2 o
MOBfiUNBLADID, LAUGARDAGUR 27. APRÍL1985
Forsætis- og fjármálaráðherrar um vanda húsbyggjenda:
Skattaafsláttur kemur
ekki til greina í ár
Niðurstaða fengin í vidræðum við ASÍ um greiðslujöfnun lána
FORSÆTISRÁÐHERRA, Steingrímur Hermannsson, og fjármála-
ráðherra, Albert Guðmundsson, segja að það sé útilokað að skatta-
afsláttur til húsbyggjenda geti komið til á skattaálögum þessa árs,
þ.e. af tekjum sem unnið var fyrir á síðasta ári. Forsætisráðherra
segir, að niðurstaða sé fengin í viðræðum stjórnvalda við fulltrúa
Alþýðusarabands íslands varðandi húsnæðismál og sé hún mjög
jákvæð hvað varðar greiðslujöfnun lána. Þá segir forsætisráðherra
að hann reikni með að meginhluta ríkisstjórnarfundar nk. þriðjudag
verði varið til að fjalla um húsnæðismálin.
Forsætisráðherra sagði í viðtali hvort skattaafsláttur tæki gildi á
við blaðamann Mbl., að það hlyti
að vera á misskilningi byggt, að
skattaafsláttur gæti tekið gildi á
þessu ári, því það væri útilokað.
Fjármálaráðherra sagði aðspurð-
ur „Frekari skattaafsláttur kem-
ur ekki til greina í ár þar sem
þegar hefur verið ákveðin 600
millj. kr. skattaniðurfelling." For-
sætisráðherra var þá spurður,
næsta ári. „Það er ekki búið að
samþykkja neitt. Það hafa aðeins
verið lagðar fram hugmyndir. Það
liggja engar ákvarðanir fyrir
nema ef vera kynni í þessari sam-
starfsnefnd flokkanna."
Þórður Friðjónsson hagfræð-
ingur ríkisstjórnarinnar er for-
maður þeirrar nefndar sem átt
hefur viðræður við fulltrúa ASÍ.
Klakksmáliö:
Ómögulegt að menn gjaldi
mistaka verði þau sönnuð
— segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
„ÞAÐ er í sjálfu sér ómögulegt
að menn gjaldi slíkra mistaka
verði það sannað, en eins og
menn vita eru landhelgislögin
mjög afdráttarlaus. Þetta er
atriði, sem dómstólar verða að
skera úr um, en okkur ber
skylda til að upplýsa öll máls-
6 játa þjófn-
að á áfengi
SEX starfsmenn Hafskips hafa við-
urkennt að hafa stolið um 190 flösk-
um af vodka úr vörugeymslum fyrir-
tækisins. Áfengið tóku þeir á nokk-
urra mánaða tímabili. Hafskip fór
síðastliðinn föstudag fram á rann-
sókn á óeðlilegri rýrnun á áfengi í
vörugeymslum fyrirtækisins, en ekki
er fulljóst hve mikið hvarf úr
geymslum. Rannsóknarlögregla
ríkisins hóf rannsókn málsins á
þriðjudag og voru nokkrir starfs-
menn í vörugeymslu fyrirtækisins
teknir til yfirheyrslu.
Sex starfsmenn fyrirtækisins
játuðu þjófnaðinn. Þeim hefur öll-
um verið sleppt úr haldi.
atvik og við munum leggja
okkur fram um að gera það,“
sagði Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra, er
Morgunblaðið innti hann álits
á því, hvort hann teldi að um
mistök hefði verið að ræða, er
skipstjórinn á Klakki VE var
tekinn og dæmdur vegna
meintra ólöglegra veiða á
„Tómasarhaga“.
„Við munum taka þessi mál til
sérstakrar athugunar. Að sjálf-
sögðu geta alltaf átt sér stað ein-
hver mistök. Við munum því taka
saman greinargerð um þetta mál
og koma því til dómstólanna.
Hvort reka má þessi landhelg-
isbrot til mistaka skal ég ekkert
fullyrða um. Að sjálfsögðu er það
aðalatriðið að hafa þessa hluti
sem skýrasta og ég hef þá trú, að
menn vilji almennt virða reglur
okkar. Við höfum orðið varir við
það, að slíkur andi ríkir á miðun-
um. Það má því vel vera að þetta
brot megi rekja til mistaka og
það verður að sjálfsögðu að leiða
það í ljós. Ég held að það sé alveg
ljóst að mistök eins og prentvilla
Morgunblaðsins geta auðvitað
komið fram með öðrum hætti.
Þau geta alveg eins komið fram í
auglýsingu þannig að við getum
aldrei girt fyrir það að eitthvað
slíkt gerist. Þessi háttur hefur
verið hafður á í að minnsta kosti
einn áratug. Það hefur aldrei
komið upp neitt slíkt á þeim
tíma. Þessi samskipti hafa því
reynzt vel, þannig að ég er þeirr-
ar skoðunar að ekki sé þörf á
breytingu á birtingarhætti
reglna og reglugerða. Hins vegar
verður að leiða það í ljós hvað
þarna hefur gerzt,“ sagði Halldór
Ásgrímsson.
Hann sagði í viðtali við Mbl., að
nefndin hefði komist að niður-
stöðu hvað varðar greiðslujöfnuð
á lánum tii húsbyggjenda og hefði
hún verið send ríkisstjórninni.
Niðurstaðan fæli í sér, að meira
tiUit yrði tekið til þess hvernig
laun og verðlag þróuðust.
Ekki tókst að ná sambandi við
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra vegna máls þessa.
'O
INNLENT
Horgunblaðia/Július
Víöavangshlaup ÍR
Þátttakendur í 70. víðavangshlaupi ÍR bíða í ofvæni eftir merki ræsis
um að hlaupið sé hafið. Hlaupið fór fram á sumardaginn fyrsta og luku
keppni 94 hlauparar. Víðavangshlaup ÍR hefur alltaf utan tvisvar farið
fram á fyrsta degi sumars. Sagt er frá hlaupinu og öðrum íþróttavið-
burðum sumardaginn fyrsta á íþróttasíðum, bls. 60 og 61.
Vandræði í Svartsengi
þegar rafmagnið fór af
NOKKUR vandræði urðu hjá Hita-
veitu Suðurnesja aðfaranótt föstu-
dagsins 18. þ.m. vegna þess að raf-
magnið fór af dælum veitunnar.
Tókst að gera við bilanir án þess að
notendur veitunnar yrðu þess varir.
Albert Albertsson, yfirverk-
fræðingur Hitaveitu Suðurnesja,
sagði í samtali við Mbl. að þrýst-
ingurinn hefði farið af vatninu í
aðveituæðinni frá Svartsengi til
Fitja og við það hefðu dælurnar
dottið út og þá hefði vatnið farið
að snöggsjóða. Við það hefðu kom-
ið högg og þrýstipúlsar á vatnið
sem brotið hefði þenslustykki á
aðveituæðinni. Albert sagði að í
Svartsengisstöðinni sjálfri hefði
ekkert gerst, en sprengidiskur far-
ið við eina holuna og hitarar hefðu
farið að leka við suðuna.
Albert sagði að viðgerð hefði
verið lokið innan sólarhrings og
hún hefði verið gerð án þess að til
vantsskorts hefði komið hjá not-
endum. Hann sagði aðspurður að
engin sprengihætta væri í stöðinni
þó rafmagnið færi af, stöðin væri
algerlega varin fyrir slíku. Sagði
hann að vanstilling hefði verið í
öryggiskerfinu sem gerði það að
verkum að til þessa óhappa hefði
komið nú.
Töluverðum
verðmætum
stolið úr íbúð
TVEIMUR myndbandstækjum, lita-
sjónvarpstæki, myndböndum, 9
flöskum af áfengi og einum kassa af
bjór var stolið úr íbúð við tiyðufell
aðfaranótt sumardagsins fyrsta.
Húsráðandi brá sér frá í nokkrar
klukkustundir um nóttina og á með-
an hafði mununum verið stolið.
Þá var brotizt inn í benzínaf-
greiðslu Olís við Ánanaust og 10
Dallas-myndböndum stolið auk
tóbaks. Einnig var brotizt inn í
söluturn í Skaftahlíð og tóbaki
stolið. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins rannsakar þjófnaði þessa.
Kjararannsóknarnefnd vítir
vinnubrögð launamálaráðs
— og persónulega árás á forseta ASÍ
EFTIR *ð Kjaradómur hafði kveðið
upp úrskurð sinn um laun ríkisstarfs-
manna í Bandalagi háskólamanna
(BHMR) sagði Stefán Ólafsson, for-
maður launamálaráðs BHM, að af-
skipti Kjararannsóknarnefndar af
málflutningi fyrir Kjaradómi hefðu
spillt málstað BHMR. Nú hafa allir
sem sitja í Kjararannsóknarnefnd rit-
að launamálaráði BHMR bréf vegna
þessa máls og sent það fjölmiðlum til
birtingar og fer það hér á eftir í heild:
„Vegna ummæla formanns launa-
málaráðs BHMR vill Kjararann-
sóknarnefnd taka fram eftirfarandi:
Kjararannsóknarnefnd telur ekki
í sínum verkahring að hafa afskipti
af samningamálum. Nefndin aflar
upplýsinga og birtir án tillits til
þess hvernig niðurstöður hennar
kunna að blandast í umræður um
kjaramál. Nefndin hefur alltaf leit-
ast við að vanda sem best gagnaöfl-
un og koma þeim upplýsingum sem
safnað er sem skilvislegast á fram-
færi.
Væri það rétt hjá formanni launa-
málaráðs BHMR að I nýjasta
Fréttabréfi Kjararannsóknarnefnd-
ar séu gagnlegar upplýsingar fyrir
háskólamenn sem Kjararannsókn-
arnefnd hafi viljað hindra að nýtt-
ust háskólamönnum fyrir Kjara-
dómi hefði einfaldasta leiðin verið
að draga útgáfu Fréttabréfsins fram
yfir úrskurð Kjaradóms. Nefndin
hefur hins vegar nú eins og endra-
nær haft þau faglegu sjónarmið i
heiðri að skila niðurstöðum sem
fyrst óháð því hvað er að gerast í
samninga- og kjaramálum hverju
sinni. Fréttabréfið er raunar fyrr á
ferðinni nú en samsvarandi bréf á
síðasta ári.
Þegar um grófa rangtúlkun á upp-
lýsingum nefndarinnar er að ræða
telur hún það skyldu sína að koma
leiðréttingum á framfæri. Sama á
við um aðrar tölfræðistofnanir. 1 þvi
efni er skemmst að minnast athuga-
semdar Hagstofu íslands vegna
túlkunar launamálaráðs BHMR á
niðurstöðum launakönnunar Hag-
stofunnar.
1 Kjararannsóknarnefnd sitjaþrfr
fulltrúar ASÍ, þeir Ásmundur Stef-
ánsson, Guðmundur J. Guðmunds-
son og Magnús L. Sveinsson, tveir
fulltrúar VSl, Vilhjálmur Egilsson
og Hjörtur Hjartar, og einn frá
VMS, Júlíus Kr. Valdimarsson.
Nefndin stóð einróma að hinni
óhjákvæmilegu leiðréttingu á rang-
túlkun BHMR á þeim upplýsingum
sem liggja fyrir í gögnum Kjara-
rannsóknarnefndar. Þessi leiörétt-
ing grundvallaðist á þvi að þær upp-
lýsingar sem Kjararannsóknar-
nefnd hefur undir höndum um þá
starfshópa sem um er að ræða eru of
takmarkaðar til þess að hægt sé að
draga af þeim afdráttarlausar
ályktanir. Nefndin hefir hins vegar
ekki tekið neina afstöðu til samn-
ingamála BHMR. Efnisleg athuga-
semd hefur ekki komið fram við
leiðréttingar Kjararannsóknar-
nefndar en í staðinn valdi formaður
launamálaráðs BHMR þann kostinn
að ráðast persónulega á forseta ASl,
Ásmund Stefánsson. Nefndin harm-
ar slík vinnubrögð.
Ásmundur Stefánsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Hjört
ur Hjartar, Júlíus Kr. Valdimars-
son, Magnús L Sveinsson (er-
lendis en samþ.), Vilhjálmur Eg-
ilsson formaður.