Morgunblaðið - 27.04.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRlL 1985
Leiðrétting frá Póst-
og símamálastofnun
í FRÍMERKJAÞÆTTI 24. f.m.
ræddi ég nokkuð um frímerkjaút-
gáfu ísienzku póststjórnarinnar og
varpaði m.a. fram þeirri spurningu,
hvort hún gæti eitthvað iært af
færeysku póststjórninni í þessum
efnum. Nú hefur ísi. póststjórnin
séð ástæðu til að leiðrétta nokkra
missögn eða skekkju, sem í reynd
var höfð eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur alþm. frá umræðum á Alþingi í
nóvember um sölu íslenzkra frí-
merkja erlendis. Einsætt er, að
þessi leiðrétting og athugasemd
birtist hér í þættinum, þar sem hún
kemst þá beint til allra þeirra, sem
lásu þátt minn og það, sem þar var
sagt um þessi útgáfumál. Því fylgir
hún hér orðrétt og er á þessa leið:
Getur íslenska póststjórnin
lært eitthvað af færeysku póst-
stjórninni?
Þetta er yfirskrift frímerkja-
þáttar Jóns Aðalsteins Jónsson-
ar í Morgunblaðinu sunnudaginn
24. mars sl.
Eflaust geta íslendingar
margt lært af frændum sínum
Færeyingum á þessu sviði eins
og öðrum og skal ekki farið nán-
ar út í það að sinni.
Eitt verður þó ekki komist hjá
að leiðrétta, það er raunar reikn-
ingsskekkja og/eða misskilning-
ur og varðar heildarsðlu til safn-
ara á árunum 1980—1981, ann-
ars vegar hjá Færeyingum og
hins vegar íslendingum.
Jón Aðalsteinn hefur eftir
Guðrúnu Helgadóttur alþingis-
manni, sem gerði fyrirspurn á
Alþingi sl. haust um sölu ís-
lenskra frímerkja erlendis, að
Færeyingar hefðu á árunum
1980—1981 selt frímerki fyrir 90
milljónir íslenskra króna, en ís-
lendingar fyrir rúmar 14 millj-
ónir.
Þarna er vissulega rétt eftir
haft, sbr. Alþingistíðindi, um-
ræðuhluta, bls. 778,1984, en einu
er þó sleppt, nefnilega því hvern-
ig áðurnefndar 90 milljónir eru
fundnar út. Guðrún Helgadóttir
segir Færeyinga hafa selt frí-
merki til safnara fyrir 30 millj-
ónir danskra króna, sem séu 90
milljónir íslenskra króna. Sam-
kvæmt þessu hefur ein dönsk
króna þá jafngilt þremur ís-
lenskum og mun láta nærri að
vera í samræmi við gengisskrán-
ingu í nóvember 1984. Sé meðal-
gengi ársins 1980 0,8526, sjá
Hagtölur mánaðarins, febrúar
1981, lagt til grundvallar jafn-
gilda 30 milljómr danskra króna
25,5 milljónum íslenskra króna
og miðað við meðalgengi ársins
1981 1,0186, sjá Hagtölur febrú-
ar 1982, 30,5 milljónum íslenskra
króna.
Þegar framangreint er haft í
huga og samanburður gerður á
réttum grundvelli verður útkom-
an sú, að sala færeysku póst-
stjómarinnar þessi tiltekin ár
verður um 30 milljónir króna en
hinnar íslensku 14 milljónir.
Þessu til viðbótar skal svo tekið
fram, að skv. upplýsingum frá
(Knuth Wacher hjá) frímerkja-
sölunni í Færeyjum var sala
hennar sem hér segir árin
1980-1983:
1980 — 25,7 roío DKK eói 21,9 nio ISK
1981 — 28,9 mioDKKeAa 29,4 mio ISK
1982 — 27,5 mio DKK e4« 41,0 mio ISK
1983 — 41.5 mio DKK eOa 113,8 mioISK
Þá var ennfremur upplýst, að
50% söhinnar er til kaupenda í Danmörku,
25%sölunnar er til kaupenda á ödrum Norður-
löndum og 25% sölunnar er til kaupenda uUn
NorAurlandanna.
Að endingu má og geta þess,
að allmiklu fleiri starfsmenn
munu vinna við frímerkjasölu í
Færeyjum en hér.
Hér lýkur leiðréttingu póst-
stjórnarinnar. Að sjálfsögðu er
það réttmæt athugasemd, að
miða verður við gengi ísl. krónu
á sama tíma en ekki löngu síðar,
þegar hún hefur fallið verulega í
verði gagnvart öðrum gjaldmiðl-
um. Onnur aðferð er beinlínis
röng og skekkir allan saman-
burð, svo að hann verður mjög
óhagstæður ísl. póststjórninni.
Sök mín í þessum efnum er sú,
að hér fór ég athugasemdalaust
eftir þeim tölum, sem bornar
voru á borð fyrir háttvirta al-
þingismenn i téðum umræðum á
Alþingi. Nú hefur hið sanna hins
vegar komið í ljós, og þetta bið
ég lesendur að festa sér í minni.
Engu að síður er ljóst, að fær-
eyska póststjórnin hefur skotið
hinni íslenzku langt aftur fyrir
sig á undanförnum árum með
margs konar auglýsingastarf-
semi. Nokkuð hefur þetta verið
rætt á erlendum vettvangi, og
mun ég segja hér frá því að viku
liðinni.
Ný frímerki 3. maí nk.
Næstkomandi föstudag koma
út tvö Evrópufrímerki í sam-
bandi við svonefnt tónlistarár
Evrópu. Á þeim er hið opinbera
merki tónlistarársins. Verðgild-
in eru 650 og 750 (aurar). Á fyrra
merkinu er kona að leika á lang-
spil, og er hún í íslenzkum bún-
ingi frá 18. öld. Langspil var not-
að til undirleiks með söng, og er
þess fyrst getið í heimildum um
1700. Var það notað fram yfir
síðustu aldamót. Eru hljóðfæri
af þessari gerð þekkt víða í Evr-
ópu undir ýmsum nöfnum. Á 750
aura frímerkinu er karlmaður í
búning frá 18. öld að leika á ís-
lenzka fiðlu. Hún var alþýðu-
hljóðfæri, sem notað var fram á
19. öld. Uppruni hennar er óljós,
en skyldleiki er hugsanlegur við
forn erlend hljóðfæri. íslenzka
fiðlan hefur sennilega verið höfð
til undirleiks við söng. Þröstur
Magnússon hefur teiknað þessi
frímerki, en þau eru „sólprent-
uð“ í Sviss og marglit. Ég á von
á, að þau veki verðskuldaða at-
hygli meðal Evrópufrímerkja,
enda eru þau falleg og þjóðleg í
senn.
Lofsverð nýjung
Með tilkynningu íslenzku
póststjórnarinnar um væntanleg
Evrópufrímerki hefur hún brotið
blað í sögu sinni, að því er varð-
ar auglýsingu nýrra frímerkja.
Nú hefur hún látið gera sérstak-
an áttblöðung í stærð A5 og í lit,
þar sem hinni nýju útgáfu er
lýst nákvæmlega. Hér er um
mikla framför að ræða, og má
svo sannarlega óska póststjórn-
inni til hamingju með þetta
framtak. Menn hljóta að taka
miklu betur eftir þess konar
auglýsingablöðungi en þeim fá-
tæklegu tilkynningum, sem
hingað til hafa verið sendar út.
Þá eru frímerkin sjálf framan á
í lit, þótt það komi ekki fram á
meðfylgjandi mynd. Vonandi
heldur póststjórnin áfram á
þessari braut, enda hef ég
ástæðu til að ætla, að svo verði.
Auðvitað kostar þetta allt fé, en
ég held það muni samt skila sér í
aukinni sölu.
Smáathugasemd að lokum.
Merki pósts og síma er á bakhlið,
og eins er þar heimilisfang Frí-
merkjasölunnar. Hins vegar kem
ég hvergi auga á nafn stofnunar-
innar, en það á auðvitað að
standa fremst á blöðungnum.
Þessu má vitaskuld kippa í lið-
inn í næstu tilkynningu.
Kflóvara póst-
stjórnarinnar
Enda þótt seint sé, vil ég vekja
athygli á því, að póststjórnin
tekur á móti tilboðum í kílóvöru
(notuð íslenzk frímerki, aðallega
frá 1979) til 1. maí nk. Skulu til-
boðin send í ábyrgðarbréfi til
Frímerkjasölunnar, P.O. Box
8445, 128 Reykjavík. Á umslag-
inu skal standa: Tilboð í kíló-
vöru. Við síðustu úthlutun fyrir
ári var lægsta tilboð, sem tekið
var, 1.280 kr. fyrir 250 g. Einn
maður má bjóða mest i 12 slíka
pakka.
RALA hefur útgáfu
gróðurkorta af
byggðum landsins
— Stefnt að því að ljúka
verkinu um næstu aldamót
RANNSÓKNASTOFNUN landbúnaðarins (RALA) hefur harið útgáfu gróð-
ur- og jarðakorta af byggðum landsins sem byggð eru á nýjum grunnkortum
í mælikvarðanum 1:25.000 sem verkfræðistofan Hnit hf. hefur gert fyrir
RALA. Fyrstu kortin eru af byggðum Suður-Þingeyjarsýslu en stefnt er að
því að kortleggja allar byggðir landsins á næstu 10—15 árum.
Gródurkortagerð á hálendinu
langt komin
Gerð kortanna var kynnt á
blaðamannafundi sem landbúnað-
arráðuneytið, RALA og verk-
fræðistofan Hnit efndu nýlega til
og kom eftirfarandi þar m.a. fram:
Um 25 ára skeið hefur verið unnið
að gerð gróðurkorta á vegum
RALA í því skyni að afla vitneskju
um stærð, eðli, ástand og beitarþol
gróðurs í landinu. Þetta verk var
hafið á hálendinu, sem hefur um
aldaraðir verið nýtt til sumarbeit-
ar fyrir búfé landsmanna. Gróður
er hins vegar viðkvæmari á há-
lendi en láglendi með þeim afleið-
ingum, að þar hefur orðið, og á sér
enn víða stað, geysimikil gróður-
og jarðvegseyðing. Af þeim sökum
var talið eðlilegt að láta rannsókn-
ir á hálendinu sitja í fyrirrúmi
fyrst í stað. Lokið hefur verið við
að gróður- og landgreina mikinn
hluta hálendisins og gefin út um
80 gróðurkort. Enn er eftir að gefa
út kort af hluta þess hálendis sem
þegar hefur verið greint og veldur
því fjárskortur.
Gróðurkortin veita fjölþættar
upplýsingar um gróðurfar og
ýmsa aðra þætti í náttúrufari há-
lendisins. Hið beina, hagnýta gildi
þeirra er hins vegar fyrst og
fremst fólgið í því, að þau ásamt
öðrum rannsóknum, veita upplýs-
ingar um framleiðslugetu landsins
og eru grundvöllur að beitar-
stjórnun og þar með hóflegri nýt-
ingu hins viðkvæma gróðurs
landsins. Kortin sýna hvar gróð-
ureyðing á sér stað eða er yfirvof-
andi, þau sýna mismunandi gerðir
ógróins lands og hvar er fyrir
hendi land, sem hentar til upp-
græðslu. Gróðurkortin hafa haft
margvislegt annaö gildi og hafa til
dæmis verið notuð við mat á landi
á virkjanasvæðum, úttekt á land-
skemmdum af völdum eldvirkni og
fleira.
Undirstaða beitarstjórnunar
f beinu framhaldi af hálendis-
kortunum er nauðsynlegt að gera
einnig gróðurkort af byggðum
landsins til grundvallar við beit-
arstjórnun, skipulagningu búvöru-
framleiðslunnar og annarrar
landnýtingar. Stöðugt berast
RALA óskir um slík kort frá ýms-
um aðilum um land allt, en litið
hefur verið unnt að sinna þeim,
þrátt fyrir að RALA hafi lokið við
gróður- og landgreiningu víðáttu-
mikilla svæða í byggð, vegna þess
að ekki hafa verið til grunnkort af
landinu í nægilega stórum mæli-
kvarða, sem byggja mætti á.
Þar sem engin lausn virtist í
sjónmáli tók RALA það til bragðs,
í samráði við ýmsar aðrar stofn-
anir, að láta gera grunnkort af
Suður-Þingeyjarsýslu. Var það
MorgunblaAid/Júlíua
Gróðurkortin kynnt, f.v. Þorsteinn Tómasson forstjóri RALA, verkfræóingarnir Bjarni Gunnarsson, Guðmundur
Björnsson og Orn Ingólfsson hji Hnit hf., Ingvi Þorsteinsson deildarstjóri hjá RALA og Sveinbjörn Dagfinnsson
ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
gert í samvinnu við Orkustofnun,
sem lét góðfúslega í té landmæl-
ingagögn, og á grundvelli nýrra
loftmynda, teknum af Landmæl-
ingum íslands. Grunnkortin eru
unnin á Verkfræðistofunni Hnit
hf. með nýjustu og nákvæmustu
tækni, sem völ er á. Árangur þessa
starfs er sá, að nú eru að sjá dags-
ins ljós 9 gróður- og jarðakort,
sem byggð eru á hinum nýju
grunnkortum og talin eru hin
nákvæmustu, sem gefin hafa verið
út hér á landi í þessum mæli-
kvarða. Þetta er fyrsti áfangi að
því marki að kortleggja allar
byggðir landsins á næstu 10—15
árum, eða fyrir lok þessarar aldar.
Sett inn jarða- og eignamörk
Kortin eru í mælikvarða
1:25.000, og nær hvert kortblað yf-
ir svæði, sem er um 160 ferkíló-
metrar að flatarmáli. Láglendi er
með 5 metra hæðarlínum en há-
lendi með 25 metra hæðarlínum.
Á gróður- og jarðakortin eru, auk
sýslu- og hreppamarka, sett inn
jarða- og eignamörk. Innsetning
þeirra er fyrir löngu orðin brýn
nauðsyn fyrir landið í heild, því að
ýmis kennileiti, sem þau miðast
við, eru ýmist að breytast og
hverfa eða aö falla í gleymsku með
hverfandi kynslóðum. Af kortun-
um fást upplýsingar m.a. um
stærð hverrar jarðar, gróins og
ógróins lands, ræktanlegs lands og
hvers konar ræktunarland er um
að ræða, stærð og staðsetningu
túna og annars ræktaðs lands.
Kortin, ásamt öðrum gögnum,
sýna hve mikil fóðurframleiðsla
hverrar jarðar gæti verið af út-
haga og ræktuðu landi og þannig,
hve mikla áhöfn jörðin getur bor-
ið.
Gróður- og jarðakortin sýna
þannig þau landgæði, sem eru
fólgin í gróðri og jarðvegi og þau
eiga að geta haft ómetanlega þýð-
ingu fyrir skipulagningu landbún-
aðar og annarra landnytja. Þá má
nefna þá augljósu þýðingu, sem
kortin, og þær upplýsingar, sem
þau veita, hafa fyrir allt landmat.
Gróður- og jarðakortin geta
einnig haft víðtækt gildi fyrir
margs konar aðrar verklegar
framkvæmdir, m.a. vegna þess að
það gagnasafn, sem liggur fyrir
eftir grunnmælingar loftmynda,
má nýta til kortagerðar í stærri
mælikvörðum. Má þar til nefna að
Vegagerð ríkisins sá sér hag f því
á síðasta sumri að fullgera land-
mælingar sfnar á Snæfellsnesi til
þess að fá aðgang að þessu gagna-
safni. Á þeim landmælingum er
nú verið að byggja gerð grunn-
korta, sem verða á þessu ári nýtt
til útgáfu jarða- og gróðurkorta af
Snæfellsnesi.