Morgunblaðið - 27.04.1985, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRlL 1985
IÆM RBLAKAN FRI MSYM) HJA ISLENSKl OPERUNNI I KVOLD
„Gáskafull óperetta sem
stjórnast af kampavíni“
— segir Þórhildur
Þorleifsdóttir
leikstjóri um óperettuna
Leðurblökuna
Leðurbiakan eftir Johann
Strauss verður frumsýnd hjá
íslensku óperunni í kvöld.
Þetta er í þriðja sinn sem
Leðurblakan er sett upp hér
á landi en fyrst var hún sýnd
1952 og í annað skipti 1973,
báðar uppfærslurnar voru í
Þjóðleikhúsinu.
„Leðurblakan er hátt á
óskalistanum hjá íslenskum
óperuunnendum og það er
meðal annars ástæðan fyrir
því að við tökum hana til sýn-
inga nú,“ sagði Garðar Cortes
í samtali við blm. „Við byggj-
um okkar starfsemi á aðsókn
fyrst og fremst því við fáum
ekki mikla styrki frá því
opinbera, þess vegna verðum
við að hafa í huga að taka verk
sem fólk þekkir þegar við velj-
um verkefni. Þetta er mjög
létt og skemmtileg óperetta og
í henni eru mjög þekkt stef.
Þetta er toppstykki og er flutt
í flestum stóru óperuhúsunum
reglulega,“ sagði Garðar
ennfremur.
Með helstu hlutverk í upp-
færslu íslensku óperunnar að
þessu sinni fara þau ólöf
Kolbrún Harðardóttir sem
syngur hlutverk Rósalindu,
Sigurður Björnsson sem fer
með hlutverk Eisensteins,
Guðmundur Jónsson syngur
Falke, með önnur stór hlut-
verk fara Ásrún Davíðsdóttir,
Sigríður Gröndal, John
Speight, Júlíus Vífill Ingvars-
son, Elísabet Waage og Hrönn
Hafliðadóttir. Auk þess fara
tveir leikarar með hlutverk í
óperettunni, þeir Guðmundur
Ólafsson og Eggert Þorleifs-
son. Hljómsveitarstjóri er
Gherard Deckert, hann kemur
hingað frá ríkisóperunni í
Vínarborg, hann mun stjórna
á fyrstu þrem sýningunum en
síðan tekur Garðar Cortes við
stjórninni. Þórhildur Þorleifs-
dóttir er leikstjóri og leik-
mynd og búninga gerði Una
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri
Hhiti veislugesU hjá Orlofskí.
Guðmundur Jónsson, óperusöngvari, í hlutverki Falke í Leðurblökunni, en
hann hefur faríð með það hlutverk f öllum þremur uppferslum i Leðurblök-
unni hér i landi.
Collins, sem oft áður hefur
starfað fyrir Islensku óperuna.
„Þetta er í þriðja skipti sem
ég syng hlutverk Falkes, ég
hlýt að vera orðinn of gamall í
þetta,“ varð Guðmundi Jóns-
syni að orði þegar blm. talaði
við hann en hann söng einmitt
sama hlutverk í báðum upp-
færslum Þjóðleikhússins á
Leðurblökunni. „Það er
óskaplega gaman að syngja í
þessari óperu, hún er svo létt
og skemmtileg. Ég get ekki
borið þessar sýningar saman
því því er nú einu sinni þannig
farið að þegar sýningum er
lokið þá eru þær að mestu
gleymdar."
„Byggir
á léttúðugri
Iífsskoðun“
Þórhildur Þorleifsdóttir,
„FULL AF
LIFI OG GLEÐI“
— segir Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona
„AÐ FARA með hlutverk
Rósalindu gerir ekki síðri
kröfur til manns en önnur
sem ég hef farið með í óper-
unni,“ sagði Ólöf Kolbrún
Harðardóttir um sitt nýjasta
hlutverk á fjölum Gamla
bíós.
„Þetta er mjög ólíkt þeim hlut-
verkum sem ég hef farið með
hingað til, en ég hef mikið sungið
Ólöf Kolbrún Harðardóttir í hlut-
verki Rósalindu i sviðinu í Gamla
bíói. Á myndinni eru einnig Júlíus
Vífill Ingvarsson t.v. og John
Speight t.h.
dramatísk hlutverk, það var að
vissu leyti dálítið erfitt að breyta
um stíl. Þetta er mjög mikið leik-
hlutverk og uppsetningin hjá
Þórhildi er mjög hröð. Auðvitað
höfum við ekki mikla þjálfun í að
meðhöndla talaðan texta eins og
þyrfti en vonandi kemur það ekki
að sök. Þetta er mjög skemmti-
legt, enda er tónlistin yndisleg og
full af lífi og gleöi".
— Er þetta hlutverk kannski
auðveldara en önnur sem þú hef-
ur fengist við?
„Gagnvart hverju hlutverki
verður maður að gera ýtrustu
kröfur til sín, og það gildir jafnt