Morgunblaðið - 27.04.1985, Page 29
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 27. APR1L198?
Svíar reyndu að stytta
smíði kjarnorkusprengju
Stokkbólmi. 26. aprfl. Frá fréturiun MorgunbUteiiu.
FRÍXTIN um aö Svíar hafl fram til
ársins 1972 reynt að hanna kjarn-
orkusprengju í trássi við bann
sænska þingsins frá 1957, hefur
valdið miklum óróa heimafyrir.
Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa
krafizt skýringa og að spilin verði
lögð á borðið.
Olof Palme forsætisráðherra
neitaði því að Svíar, sem kenna sig
við hlutleysi, hafi á laun stundað
rannsóknir á smíði kjarnavopna
fram á árið 1972. Hann sagði þó að
stundum væri erfitt að skilgreina
hvar lyki rannsóknum, sem hefðu
þann tilgang að verja sænsku
þjóðina gegn kjarnorkuvá. Hefur
hann falið Anders Thunborg varn-
Endurfundir her-
manna við Elbu
Skora á stórveldin að búa saman í friði
Torgau, Auntur l'ýskuUiidi, 26. aprfl. AP.
BANDARÍSKIR og sovéskir upp-
gjafahermenn sendu í gær frá sér
sameiginlega yfirlýsingu þar sem
þeir skora á allar þjóðir að standa
vörð um friðinn. Hittust þeir í gær
við ána Elbu í Austur-Þýskalandi til
að minnast þess, að 40 ár eru frá
stríðslokum.
Rauðir fánar með hamri og sigð
og fjöldinn allur af borðum með
friðarslagorðum settu sinn svip á
samkomuna, sem talið er að um
20.000 manns hafi sótt, en hún fór
fram við Elbu, þar sem herir
Bandaríkjamanna og Rússa hitt-
ust fyrir 40 árum. f yfirlýsingu
uppgjafahermannanna eru stór-
veldin hvött til að búa saman í
friði og semja í alvöru um að
fækka kjarnorkuvopnunum.
Bandaríkjastjórn sendi ekki
fulltrúa sína til samkomunnar og
var það gert til að mótmæla því að
sovéskur hermaður skaut til bana
bandaríska majórinn Arthur
Nicholson, starfsmann bandarísku
hernaðareftirlitsnefndarinnar í
Austur-Þýskalandi.
Kommúnfskur áróður var mjög
fyrirferðarmikill við hátíðahöldin
og víða höfð uppi spjöld með
skömmum um Reagan og stjórn
hans. Bandarísku hermennirnir
létu þetta þó sem vind um eyru
þjóta og stilltu sig um að svara í
sömu mynt.
armálaráðherra að gera úttekt á
málinu.
Sænska tækniritið Ny teknik
skýrði frá því í gær að rannsókn-
irnar hefðu leitt til þess að Svíar
hefðu árið 1965 getað smíðað
kjarnorkusprengju. Lauk rann-
sóknunum með því að 10 litlar
plútóníumsprengjur voru
sprengdar neðanjarðar 1972.
Palme ber hins vegar á móti þessu
og segir kjarnorkusprengjur
hvorki hafa verið smíðaðar eða
sprengdar í Svíþjóð.
Tor Larsson, sem veitir forstöðu
stofnun sem fæst við rannsóknir á
sviði varnarmála, staðfesti hins
vegar fregnir Ny Teknik en segir
að tæpast sé hægt að segja að við
neðanjarðartilraunirnar 1972 hafi
„hernaðarlegar kjarnasprengjur"
verið sprengdar.
Sænski herinn hafði sínar
hugmyndir um tilraunirnar.
Fyrrverandi yfirmaður sænska
heraflans, Stig Synnergren, segir
að tilgangurinn með rannsóknun-
um hafi verið að stytta tímann
sem það tæki að smíða kjarnorku-
sprengju frá því ákvörðun væri
tekin í þá veru.
Tage Erlander, þáverandi for-
sætisráðherra, viðurkennir að
hafa veitt leyfi fyrir rannsóknun-
um á sínum tíma, en kveðst efast
um að þær brjóti í bága við bann
þingsins frá 1957.
Búist er við að uppljóstranir
tímaritsins verði notaðar í kosn-
ingabaráttunni í sumar. í gær-
kvöldi fór fram löngu ákveðinn
blaðamannafundur, sem talið var
að Palme hefði ætlað að nota sér
til framdráttar vegna kosning-
anna í haust. Fundurinn fór þó á
aðra leið, þar sem blaðamennirnir
höfðu lítinn áhuga á öðru en rann-
sóknunum, og notuðu 90% til að
spyrja Palme um þær.
Bandarfskir og sovéskir hermenn hittast við Elbu 25. aprfl árið 1945.
AP/Símamynd
Frú Hess í Spandau
Ilse Hess, kona Rudolfs Hess, fyrrum samstarfsmanns Adolfs Hitler,
yfirgefur Spandau-fangelsið í Vestur-Berlin í gær. Frúin heimsótti mann
sinn í fangelsið í tilefni 91 irs afmælis hans í gær. í fylgd hennar voru
herra og frú Wolf-Rudiger Hess, sonur hennar og tengdadóttir.
Perú:
Garcia sjálf-
kjörinn
Lima, Perá, 26. aprfl. AP.
FRAMBJÓÐANDI marxista I for-
setakosningunum í Perú skýrði frá
því í dag, að hann ætlaði ekki að
taka þátt í síðari umferð kosn-
inganna en þá átti að kjósa á milli
hans og frambjóðanda jafnaðar-
manna.
Alan Garcia Perez, frambjóð-
andi jafnaðarmanna, fékk nærri
helming atkvæða í fyrri umferð-
forseti
inni en samkvæmt stjórnar-
skránni verður forsetinn að hafa
meirihluta kjósenda á bakvið sig.
Þess vegna átti að kjósa aftur
milli Garcia og Alfonso Barrant-
es, frambjóðanda marxista, sem
fékk næstflest atkvæði. I dag
lýsti hann því yfir, að hann ætl-
aði ekki að taka þátt í annarri
umferð og að Garcia væri þar af
leiðandi rétt kjörinn forseti.
Átökin harðna í
Suður-Líbanon
Sidon, Líhanon, 26. aprfl. AP.
PALESTÍNSKIR skæruliðar og vopnaðar sveitir annarra múhameðstrú-
armanna fóru í dag inn í þorp sem kristnir menn höfðu yfirgefið og hafa
þar með umkringt stærsta svæði kristinna manna í Suður-Líbanon.
Utvarpsstöðvar kristinna
manna sögðu að tugþúsundir
hefðu flúið Jezzine, sem er 15 km
fyrir austan Sidon og öflugt vígi
kristinna manna. Antonie Lahd,
herforingi kristinna manna, hót-
aði i dag að hefja stórskotaliðs-
árásir á Sidon ef múhameðstrú-
armennirnir sæktu lengra fram.
í Jezzine búa 20.000 manns og
er borgin eins og eyja í hafinu,
umkringd múhameðstrúar-
mönnum á alla vegu. ísraelar
fóru frá henni sl. miðvikudag og
varð það til að auka ótta fólksins
við að nýtt borgarastríð brytist
út á milli trúflokkanna.
MMffl
m n 10 m
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Ðakkafoss 25. apr.
City of Perth 1. mai
Laxfoss 15. mai.
Bakkafoss 15. mai
NEW YORK
Bakkafoss 26. apr.
City of Perth 29. apr.
Laxfoss 15. maí
Bakkafoss 17.mai
HALIFAX
Bakkafoss 28. apr.
Bakkafoss 20. mai
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGH AM
Álafoss 5. mai
Eyrartoss 12. maí
Alafoss 19. mai
FEUXSTOWE
Eyrartoss 29. apr.
Álafoss 6. maí
Eyrartoss 13. mai
Alafoss 20. mai
ANTWERPEN
Eyrarfoss 30. apr.
Álafoss 7. maí
Eyrartoss 14. maí
Alafoss 21. mai.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 1. maí
Álafoss 8. mai
Eyrarfoss 15. mai
Álafoss 22. mai
HAMBORG
Eyrarfoss 2. maí
Álafoss 9. mai
Eyrarfoss 16. mai
Álafoss 23. mai
GARSTON
Fjallfoss 6. mai
LEIXOES
Skeiðsfoss 15. mai
BILBAO
Skeiösfoss 16. maí
NORÐURLÖND/•
EYSTRASALT
BERGEN
Skógafoss 26. apr.
Reykjafoss 3. mai
Skógafoss 10. mai
Reykjafoss 17. maí
KRISTIANSAND
Skógafoss 29. apr.
Reykjafoss 6. maí
Skógafoss 13. mai.
Reykjafoss 20. mai
MOSS
Skógafoss 29. apr.
Reykjafoss 7. mai
Skógafoss 13. maí
Reykjafoss 21. mai
HORSENS
Skógatoss 1. mai
Reykjafoss 29. maí
Skógafoss 15. maí
Reykjafoss 23. maí
GAUTABORG
Skógafoss 30. apr.
Reykjafoss 6. mai
Skógafoss 14. mai
Reykjafoss 22. mai
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 2. maí
Reykjafoss 10. mai
Skógafoss 16. mai
Reykjafoss 24. mai
HELSINGBORG
Skógafoss 3. maí
Reykjafoss 10. maí
Skógafoss 17. maí
Reykjafoss 24. mai
HELSINKI
Lagarfoss 15. mai
GDYNIA
Lagarfoss 19. maí .
ÞÖRSHÖFN
Skógafoss 6. mai
Reykjafoss 13. mai
UMEÁ
Lagarfoss 13. maí
RIGA
Lagarfoss 18. mai
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
fra REYKJAVIK
alla manudaga
fra ISAFIRÐI
alla þnðjudaga
fra AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
■f.