Morgunblaðið - 27.04.1985, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1885
Bókun um afnám
dauðarefsingar
— undirrituð af íslands hálfu hjá Evrópuráðinu í gær
Njósnafiugvöllur í Nicaragua?
Bandaríska varnarmálaráAuneytið lét birta þessa mynd fyrir nokkrum dögum. Hún sýnir flugvöll, sem verid er
að koma upp við Punta Huete nærri Managua, höfuðborg Nicaragua. Með aðgangi að þessum flugvelli og
öðrum hernaðarmannvirkjum sem eru í smíðum í Nicaragua, munu Sovétríkin eiga miklu auðveldara með en
áður að safna hernaðarupplýsingum um Bandaríkin og önnur lönd í Vesturheimi.
Forseti hæstaréttar Afganistans flúinn land:
jcu lucsuticiuti mganiðuuið íiuiuii muu.
Ikýrir frá pyntingum Sovét-
lanna og mútustarfsemi
Oelhí, 2«. aprfl. AP.
Nýju Delhí, 2«. aprfl. AP.
MOHAMMAD Yusof Azim, forseti Hæstaréttar Afganistans, flúði land
og kom til Nýju Delhí á Indlandi fyrir tveimur mánuðum, ásamt konu
sinni og fjórum börnum þeirra. Hann skýrði frá flótta sínum á fundi með
blaðamönnum í dag og kvað líf sitt hafa verið í hættu vegna stuðnings
sem hann hefði veitt andstæðingum leppstjórnar Sovétmanna í Kabúl.
StraHHbourg, 24. aprfl.
í DAG var af hálfu íslands undir-
rituð í Strassbourg viðbótarbókun
við mannréttindasáttmála Evrópu
um afnám dauðarefsingar. Sam-
kvæmt þessari bókun er staðfest
grundvallarreglan um afnám
dauðarefsingar, en til þess að ger-
ast aðili að þessari bókun, verður
viðkomandi ríki að nema þessa
refsingu úr lögum hjá sér.
Hundur
í afbrýö-
iskasti
drap barn
lAindúnum, 24. aprfl. AP.
ENSKUR dýralæknir, Russel
Williams, hefur hvatt hundaeig-
endur til að athuga sinn gang ef
fjölgun verður í fjölskyldunni.
Benti hann á atvik frá því í byrj-
un ársins, er hundurinn Jock
beit til bana 3 vikna gamalt barn
eigenda sinna á heimili móður-
ömmunnar í Fulham í Lundún-
um. „Hundar og fleiri dýr búa
yfír ýms'jm mannlegum eigin-
leikum og einn þeirra er afbrýði-
semi,“ sagði Williams.
Jock mun ávallt hafa verið
blíðlyndur og hændur að eig-
endum sínum svo af bar. Það
varð því uppi fótur og fit er
hann réðst á barnið. Rannsókn
leiddi í ljós að hundurinn hafði
verið látinn algerlega afskipt-
ur eftir að barnið kom í heim-
inn, en fram að því hafði hann
notið ástar og umönnunar eig-
enda sinna. Williams sagði:
„Dýr hafa sínar tilfinningar og
þó það sé einstaklingsbundið
hversu nærri sér þau taka
áföllin þá er þetta ágætt dæmi
til að taka til athugunar.
Hunda verður að meðhöndla
varfærnislega meðan þeir
venjast hinum nýja fjölskyldu-
meðlimi og þeir þurfa meiri at-
hygli en venjulega meðan þeir
eru að ná áttum og gera sér
grein fyrir því að framvegis fái
fleiri athygli en þeir einir. Það
er nauðaeinfalt mál að kenna
hundinum um allt saman, en
sannast sagna er þetta þó á
ábyrgð eigandans sem má ekki
bregðast skyldu sinni í umönn-
un hundsins.
Skylda til þess að afnema
dauðarefsingu er hins vegar
takmörkuð við friðartíma. Þess
vegna geta ríki gerzt aðilar að
þessari bókun, ef lög þeirra gera
fyrirvara varðandi dauðarefs-
ingu, að því er varðar verknaði,
sem framdir eru á stríðstímum
eða þegar strið er yfirvofandi.
Bókun þessi felur í sér fyrsta
ákvæðið í alþjóðalögum um að
gera afnám dauðarefsingar að
lagaskyldu fyrir aðildarríki. Til
þessa hefur aðeins verið skír-
skotað til dauðarefsingar í texta
fáeinna alþjóðasamninga, svo
sem alþjóðasamþykktarinnar um
borgaraleg og pólitísk réttindi,
sem Sameinuðu þjóðirnar gerðu
með sér 1966.
Þorleifur Thorlacius, sendi-
herra íslands hjá Evrópuráðinu,
undirritaði þessa bókun að við-
stöddum Marcelino Oreja, fram-
kvæmdastjóra ráðsins.
ERLENT
Azim, sem er 45 ára að aldri,
sagði að leyniþjónusta Afganist-
an hefði ætlað að ráða sig af
dögum, eftir að hún komst að
því, að hann hefði með leynd
vakið athygli nokkurra andófs-
manna á því, að nöfn þeirra
væru á lista leyniþjónustunnar.
„Ég vildi búa í Afganistan vegna
þess að ég ann landi mínu og
vildi aðstoða þá sem berjast
gegn Sovétmönnum," sagði Az-
im. „Ég gat ekki verið þar lengur
eftir að mér varð ljóst að ég var
i lífshættu.“
Hann sagði að stjórn Babrak
Karmals hefði verið farin að
draga trúmennsku sína í efa,
vegna þess að hann hefði reynt
að beita áhrifum sínum til að
milda dóma, sem kveðnir höfðu
verið upp fyrir herdómstólum,
og koma í veg fyrir opinbera
upptöku eigna fólks.
Azim skýrði frá því, að sér
virtist sem þeir menn sem komið
hefðu fyrir herdómstólana í Afg-
anistan hefðu verið beittir al-
varlegum pyntingum af Sovét-
mönnum, sem yfirheyrðu þá.
„Spilling er víðtæk í Afganist-
an,“ sagði Azim. „Menn komast
ekkert áfram nema með því að
múta starfsmönnum leyniþjón-
ustunnar. Þeir eru valdamestu
menn í landinu. Fólk þarf jafn-
vel að greiða þeim undir borðið
til að geta skipt um atvinnu."
Sjálfur fékk Azim vegabréfsárit-
un stjórnarerindreka til Ind-
lands, eftir að hafa greitt leyni-
þjónustumanni mútufé.
1. Verðið á LADA LUX er aðeins 273 þúsund
krónur. Greiðsluskilmálar eru hagstæðir.
2. Ársábyrgð er á öllum hlutum LADA LUX
bifreioarmnar.
3. Sex ára ryðvarnarábyrgð er innifalin í verð-
inu, sé öllum skilmálum ryðvarnar framfylgt
af hálfu eiganda.
4. Ábyrgðarskoðun fer fram á LADA LUX,
kaupendum að kostnaðarlausu eftir 2000 og
5000 km akstur.
5. Varahlutaþjónusta við LADA eigendur er af
opinberum aðilum talin ein su besta hér-
lendis. Mikið úrval alls konar aukahluta
fáanlegt á hagstæðu verði.
6. LADA LUX er afhentur kaupendum með
sólarhrings fyrirvara.
7. Eldri gerðir LADA bifreiða eru teknar á
sanngjórnu verði sem greiðsla upp í verð
nýja Dílsins.
VERÐSKRÁ15/4 85
LADA 1200 199.500 137.000*
LADA 1200 station 217.800 151.200*
LADA 1500 station 238.900 160.100*
LADASafír 223.400 152.800*
LADA Sport 408.700 304.500*
LADALUX 273.000 184.500*
• Mrð tollaeftirgjof |
BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SÓLUDEILD: 31236