Morgunblaðið - 27.04.1985, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APR1L1985
Fnimvarp til breytinga á grunnskólalögum:
Fræðsluskylda 10 ár
— skólaskylda 7 ár
Kaflar úr fyrstu þingræöu Páls Dagbjartssonar
Páll Dagbjartsson, skólastjóri í
Varmahlíð, tók um tíma sæti á Al-
þingi í fjarveru Pálma Jónssonar
(S). Hann flutti þá frumvarp til
laga um breytingu á grunnskóla-
lögum, sem að meginefni gekk út
á að grunnskóli skuli vera 10 ára
skóli, hvað fræðsluskyldu varðar,
en skólaskylda aðeins 7 ár. Fram-
saga hans fyrir frumvarpi þessu,
sem jafnframt var hans fyrsta
þingræða, „jómfrúrræða", fer að
meginefni hér á eftir.
Lengd skólaskyldu
Það er sjálfsagt að bera í bakka-
fullan lækinn að leggja hér fram
frumvarp varðandi skólamál. Svo
mikil umræða hefur þegar farið
fram um þennan málaflokk nú í
vetur, bæði hér á hinu háa Al-
þingi, svo og úti í þjóðfélaginu.
Þessu fagna ég að sjálfsögðu
sem skólamaður. Það hlýtur að
’ vera af hinu góða að fram fari um-
fjöllun um menntunarmálin þar
sem æ fleirum er ljóst, að gæði
menntunar og farsældar í starf-
semi skólanna í landinu skipta
verulegu máli hvað varðar vax-
andi hagsæld og betri lífskjör hér
í náinni framtíð.
Eins og fram kemur í greinar-
gerð er þetta frumvarp fram borið
fyrst og fremst í þeim tilgangi að
hið háa Alþingi víki sér ekki leng-
ur undan því að taka ákvörðun um
'* iengd skólaskyldunnar. Öllum
kennurum og skólastjórum, á
grunnskólastigi og jafnvel fram-
haldsskólastigi líka, finnst í raun,
að of lengi hafi dregist að taka af
allan vafa um þetta atriði í lögun-
um, og reyndar fleiri. Við sam-
þykkt laganna 1974 var gert ráð
fyrir því að eftir 4 ár færi fram
gagngerð endurskoðun á öllum
bálkinum. Nú eru brátt 11 ár liðin
og komin haldgóð reynsla á hvern-
ig til hefur tekist í framkvæmd-
inni.
f þessu samhengi er vert að
minna á, að þjóðfélag okkar breyt-
ist mjög ört. Það sem þótti gott og
gilt fyrir ári er e.t.v. úrelt í dag, og
> sé horft til baka 10 eða 11 ár aftur
í tímann er augljóst að margt hef-
ur breyst í okkar þjóðlífi á þeim
tíma.
Allt skólastarf á hverjum tíma
tekur að sjálfsögðu mið af því
hvernig spáð er í nánustu framtíð,
hvernig menn sjá fyrir sér framtíð
þeirra ungmenna sem í skólunum
dvelja og hvernig megi sem best
búa þau undir að erfa landið.
I þessu efni þarf sífellt að vera á
varðbergi gagnvart því að skóla-
löggjöfin verki ekki beinlínis
hamlandi á að eðlilegar framfarir
geti átt sér stað í skólum og þeir
geti fylgt eftir þróun þjóðlífsins,
ekki síst hvað snertir atvinnu-
hætti.
Þvingun eða hvati
Margvísleg rök má tilgreina
gegn lengingu skólaskyldu. Skal
hér drepið á nokkur:
Það er staðreynd að nærri 100%
nemenda skila sér í gegn um
grunnskólann eins og hann er í
dag, þrátt fyrir að ekki sé um
skyldu að ræða í 9. bekk og að því
leyti er engin nauðsyn á að þvinga
nemendur inn með lagaboði. Þeir
fáu sem hverfa frá námi gera það
af ýmsum orsökum, m.a. þeim að
þeir fá ekki verk- og viðfangsefni
við sitt hæfi í skólanum og líður
þar bölvanlega. Slíkum nemend-
um er beinlínis skaði gerður með
því að þvinga þá til áframhaldandi
skólaveru gegn þeirra vilja.
Það fer ekki fram hjá okkur sem
í skólunum starfa að veruleg hug-
arfarsbreyting verður hjá nem-
endum þegar þeir koma til náms
að lokinni skyldu af fúsum og
frjálsum vilja. Þetta fullyrði ég að
er rétt og vil leggja á það mikla
áherslu, að þessi jákvæða hugar-
farsbreyting hefur ekki svo lítið
að segja gagnvart árangri í námi.
Þar sem allt framhaldsnám
miðar við að nemendur sem þang-
að sækja hafi áður lokið námi upp
úr 9. bekk grunnskóla, þá er þar
kominn verulegur þrýstingur, sem
í raun er nægilegur hvati fyrir
nemendur til að þeir ljúki námi
upp úr grunnskóla.
Talað er um að 9 eða jafnvel 10
ára skólaskylda sé lágmarks
grunnmenntun fyrir þjóðina. í því
sambandi skal ítreka að skóla-
skylda tryggir ekki gæði mennt-
unar. Þar þarf fleira að koma til.
Rétt er að taka fram í þessu sam-
bandi að ef 10 ára fræðsluskylda
kemst á er fyllilega komið til móts
við þessi sjónarmið.
Aukið svigrúm
Smiðum grunnskólalaganna
hefur á sínum tíma verið ljós sú
staðreynd að þátttaka unglinga á
grunnskólaaldri í atvinnulífi
landsmanna er mjög almenn, og er
það af hinu góða að mínu mati. í
42. gr. laganna er gert ráð fyrir
því að atvinnuþátttöku megi meta
til jafns við reglulega skólagöngu.
Hverfi nemandi frá námi í
grunnskóla af einhverjum orsök-
um og fari út á vinnumarkaðinn,
þá er greið leið fyrir hann að láta
meta stöðu sína, þegar — og ef
hann hyggst hefja nám að nýju.
Hér er því ekki verið að loka nein-
um leiðum.
í þessu sambandi vil ég svo taka
skýrt fram að það er veruleg and-
staða ríkjandi meðal skólamanna
gegn lengingu skólaskyldunnar.
Um það vitnar fjöldi samþykkta
og ályktana sem gerðar hafa verið
á undanförnum árum, og enn er
sífellt verið að hamra á.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum
að því hvaða hugmynd liggur á
bak við það ákvæði sem fram kem-
ur í frumvarpinu, að stytta skóla-
skyldu um 1 ár frá því sem nú er.
í greinargerðinni segir að skapa
þurfi aukið svigrúm í tveim efstu
bekkjum grunnskólans til að koma
til móts við þarfir og óskir hvers
einstaklings.
Rétt er að skýra þetta aðeins
nánar.
Það er mikið rætt um að auka
þurfi veg verkmennta í landinu og
það er fjálglega talað um aukin
tengsl skóla og atvinnulífs. Spurn-
ingin er sú, hvaða leiðir eru færar
til að nálgast þau markmið. Eg vil
segja að það sé hægt með því að
auka sveigjanleika í kerfinu sjálfu
og taka upp svipað fyrirkomulag
og var með landsprófinu gamla og
gagnfræðaprófinu. Það vil ég kalla
einhvers konar miðskólastig og
Páll Dagbjartsson
þar gætu nemendur valið mismun-
andi leiðir að lokaprófi upp úr
grunnskólum.
Meðalmennska —
sérgáfur
Æ fleirum er ljóst að við rekum
hér meðalmennskuskóla. Kerfið er
þannig upp byggt að allir skulu,
með illu ef ekki með góðu, inn-
byrða sama skammt í sömu náms-
greinum. Enginn má skara fram
úr. Enginn má njóta hæfileika
sinna umfram aðra. Enginn má
hljóta umbun fyrir ef hann hefur
staðið sig vel eða lagt sig fram.
Ég hef oft vel því fyrir mér,
hvað skólinn gerði fyrir nemendur
sem hafa hlotið sérgáfu af ein-
hverju tagi í vöggugjöf. Hér á ég
ekki síður við verkleg svið en bók-
leg. Ekki er vafi á því að þjóðfélag
okkar þarf á því að halda að sér-
gáfur allar fái að þroskast og
dafna í skólanum okkar allt frá
barnsaldri og hæfileikar hvers og
eins séu virkjaðir svo sem kostur
er. En það er ekki bara þessi hóp-
ur nemenda sem verður útundan.
Hinir eru ekki betur settir, nema
síður væri, þeir sem ýmissa
orsaka vegna eru seinfærir og
hverra hæfileikar meira liggja á
verklega sviðinu.
Þetta eru staðreyndir sem allir
viðurkenna sem eitthvað þekkja
til.
Ráðgjöf í skólum
Eitt vil ég nefna enn.
Með þróun þjóðfélagsins og
breyttum kröfum og þörfum þess
þarf sífellt að endurmeta vægi
einstakra námsgreina og nýjar
bætast við. Má þar m.a. nefna
heimilisfræði, fræðslu um ávana-
og fíkniefni og síðast en ekki síst
tölvukennslu. En getum við sífellt
bætt á nemendur námsefni án
þess að taka eitthvað af í staðinn?
Ég held ekki.
Þessu þarf að gefa gaum og taka
upp einhvers konar áfangakerfi
stax i efstu bekkjum grunnskól-
ans.
Ef þær breytingar yrðu að veru-
leika sem hér er lýst, og reyndar
hvort sem er, þarf stórfellda
ráðgjöf í skólunum, bæði til nem-
enda sjálfra og þeirra aðstand-
enda. Þetta þarf að hefjast strax í
7. bekk. Það þarf að fræða um at-
vinnu- og efnahagsmál líðandi
stundar, kröfur til náms í viðkom-
andi atvinnugrein, atvinnuhorf-
um, hvar hæfileikar og áhugi
hvers einstaklings fái best notið
sín, o.fl. o.fl. Á þessu atriði getur
oltið um hamingju og lífsfyllingu.
Það þarf trauðla að fara um það
mörgum orðum, að stuðla ber að
sem bestri nýtingu þeirra fjár-
muna sem til hinna ýmsu mála-
flokka fara í opinberum rekstri og
það er hægt að tala um arðsemi
fjárfestingar í sambandi við
menntunarmál.
Þau atriði sem ég hér hefi bent
á í ræðu minni stuðla öll að því að
bæta skólakerfið og menntunina
án aukinna útgjalda fyrir hið
opinbera.
Framkvæmd skólahalds
Ég vil leyfa mér að nefna eitt
atriði til viðbótar því sem ég hefi
áður sagt og bendir í sömu átt, en
það er að sveitarfélögum, skóla-
hverfum eða einstökum skóla-
stofnunum verði alfarið falið að
sjá um framkvæmd skólahaldsins
á sína ábyrgð. Vald og ákvörð-
unartaka öll flutt sem næst þeim
sem njóta eiga. Ríkissjóður ein-
ungis greiddi ákveðna upphæð á
hvern nemanda eða tryggði með
öðrum hætti að allir fái notið sem
jafnastrar aðstöðu til náms, óháð
búsetu, fjárhag, fötlun eða öðrum
breytilegum aðstæðum. Það er
ekki svo erfitt reikningsdæmi að
finna sanngjarna reglu til að fara
eftir, því allar upplýsingar um
hvað hver nemandi í skóla kostar
liggja fyrir í smáatriðum.
Eg ætla ekki hér og nú að fara
ítarlegar út í þetta mál, en vil til
gamans geta þess að ef slík kerf-
isbreyting kæmist á þá myndu
sveitarfélög eða einstaka skóla-
stofnanir sjálfar ráða til sín kenn-
ara og semja við þá beint um kaup
og kjör. Yrðu þá væntanlega úr
sögunni uppákomur þvilíkar og
átt hafa sér stað í tvígang á þess-
um annars einstaka vetri.
Herra forseti. Ég vænti góðra
undirtekta við þetta mál og leyfi
mér að leggja til að frumvarpinu
verði að lokinni umræðu vísað til
menntamálanefndar.
Akranes:
Viðbygging ris-
in við Brekku-
lækjarskóla
Akraoesi, 22. apríl.
LOKIÐ er við að reisa viðbygg-
ingu Brekkubæjarskóla og bauð
framkvæmdanefnd byggingarinn-
ar til samsætis í tilefni þessa
verkáfanga sl. föstudag.
Framkvæmdir við viðbygg-
inguna hófust að loknu skóla-
haldi vorið 1984 og var þá fyrsti
verkþátturinn boðinn út, þ.e.
jarðvegsskipti og grunnur. Til-
boði Trésmiðju Guðmundar
Magnússonar, tekið og lokaút-
tekt þess verks var tekin 30.
október sl. í september sl. var
síðan boðinn út sá verkþáttur
sem nú er unnið að en það er að
gera húsið fokhelt með pússuð-
um útveggjum og gólfum ásamt
gleri í gluggum og bráðabirgða-
lokun. Lægsta tilboð í þetta verk
kom frá Trésmiðjunni Fjölni og
var því tekið. Framkvæmdir
hófust i byrjun nóvember sl. og
hefur verið gengið samkvæmt
áætlun og mun því ljúka í lok
júní í sumar. Nú hafa einnig
verið opnuð tilboð í pípulögn og
mun vera áætlað að vinna við
það í sumar. Einnig standa von-
ir til að seinni hluta sumars
verði viðbyggingin einangruð og
klædd og þá verður komið það
útlit sem verður á byggingunni.
Heildarkostnaður við þessar
framkvæmdir nam um sl. mán-
aðamót röskum 10 milljónum
króna. Þar af var unnið við ýms-
ar endurbætur á eldri byggingu
sem nauðsynlegt var að fram-
kvæma fyrir 1,3 milljónir króna.
Fram kemur í yfirliti yfir
byggingarsögu þessarar við-
byggingar að bæjarsjóður Akra-
ness hafi frá byrjun þessa verks
Viðbygging Brekkulækjarskóla á Akranesi.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
staðið við allar greiðslur til
verktaka samkvæmt þeim
samningum sem gerðir höfðu
verið og er það afar mikils virði
fyrir alla aðila. Þar kemur til
góður vilji bæjaryfirvalda og
þeirra ráðuneyta sem um þessi
mál fjalla en þar er mikill skiln-
ingur á nauðsyn þess að við-
byggingin komist sem fyrst í
notkun. Aftur á móti virðast
þingmenn Vesturlandskjör-
dæmis ekki hafa komið fjárveit-
inganefnd Alþingis nægilega vel
í skilning um hversu alvarlegt
ástandið er hér á Akranesi í
húsnæðismálum grunnskólanna.
Á sl. fjórum árum munu hafa
verið byggðir á Akranesi 3.446
m2 af skólahúsnæði eða sem
svarar 2,5 m2 á dag. Þetta hús-
næði er þó ekki allt fullbúið en
líklegt verður að teljast að svo
verði á næstu 2—3 árum og hef-
ur þá verið gert stórátak í skóla-
málum á Akranesi sem okkur
ber að meta, enda hefur veru-
legur hluti af framkvæmdafé
bæjarfélagsins farið til þessara
framkvæmda.
Nýja viðbyggingin er alls um
1.350 m2 að heildarstærð og er
byggð á tveim hæðum. í þessari
viðbyggingu verða fjórar al-
mennar kennslustofur, einnig
kennslustofur fyrir tónmennt og
matreiðslu, kennarastofa og
skrifstofur skólans og setustofa
og félagsaðstaða fyrir nemendur
og stór samkomusalur.
Framkvæmdanefnd bygg-
ingarinnar skipa Þórður Björg-
vinsson form., Helga Höskulds-
dóttir, Halldór Jóhannsson,
Skúli Lýðsson og Viktor Guð-
laugsson, skólastjóri Brekku-
bæjarskóla. Framkvæmdastjóri
nefndarinnar er Baldur ólafs-
son.
JG