Morgunblaðið - 27.04.1985, Síða 45

Morgunblaðið - 27.04.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRlL 1985 45 Reyðarfjörður: Rúmfastir af sólbruna Keyöarfirði, 24. aprfl. JÖKULFELL, hið nýja skip Sam- bandsins, kom í fyrsta skipti til heimahafnar hér síðdegis í gær. Nemendur grunnskólans voru boðnir um borð til að skoða skipið milli sex og sjö og var þeim boðið upp á gosdrykki og sælgæti. Klukkan átta var svo tekið á móti öðrum gestum um borð, verkafólki frystihúss Kaupfélags Héraðsbúa og fyrirmðnnum af stöðunum hér í kring. Þorsteinn Sveinsson, kaupfélagsstjóri, bauð .. skip og áhöfn velkomin og færði skipinu málverk af Reyðarfirði eftir Ragnar Pál. Þá ávarpaði Sigfús Guðlaugsson oddviti áhöfnina og færði henni að gjöf nýju ensk-íslensku orðabókina frá Erni og Örlygi. Heiðar Krist- insson, skipstjóri, þakkaði góðar gjafir og lýsti skipinu fyrir gest- um, sem boðið var upp á öllu fjöl- breyttari veitingar en grunn- skólanemunum. Þegar Jökulfell fór héðan á miðnætti hafði verið skipað um borð 800 kössum af freðfiski, sem eiga að fara til Bandaríkjanna. Þótt kalt sé hér í dag í sólskin- inu hefur veður verið guðdómlegt að undanförnu. Um síðustu helgi var til dæmis 14 stiga hiti og flykktist fólk þá á skíði í Oddsskarð. Ekki áttuðu sig allir á því hve sólskinið var sterkt með þeim afleiðingum að margir lögð- ust í rúmið með brunasár af sól- inni. Togarinn Snæfugl sigldi inn um hádegið með rúmlega hundr- að tonn eftir tíu daga veiðiferð. — Gréta. Kalevala-kvöld í Norræna húsinu í dag, laugardaginn 27. apríl kl. 20.30, efnir Reykja- víkurdeild Norræna félagsins í samvinnu viö Norræna húsiö til Kalevala-kvölds í Norræna húsinu. Dagskrá: 1. Kvöldvakan sett; Haraldur Ólafsson, alþm. og stjórnarmaöur í NF-Reykjavík. 2. Ávarp; Knut Odegárd, forstjóri Norræna hússins. 3. Kalevala; Siguröur A. Magnússon flytur erindi. 4. Upplestur; Karl Guömundsson, leikari, les úr þýö- ingum Karls ísfeld úr Kalevala. Hallfreöur Örn Eiríksson flytur formálsorö. 5. Ljóðasöngur; finnski sönghópurinn Nelipolviset syngur. 6. Ferðir Lönnrots; Kaivola-Bregenhoj flytur fyrirlest- ur og sýnir litskyggnur. Aögangur er ókeypis og öllum heimill. Ert þú umsjónarmaður sparibauksins á vinnustaðnum, fjárhaldsmaður, fjármálastjóri, sparifjáreigandi, eða þarft þú að varðveita fé á góðan og öruggan hátt? Við gerum þér sérstakt tdboð: Reynist meðalinnstæða á Bónusreikningi, á árinu 1985, 500.000 kr. eða hærri verður 2% Vaxtabónus lagður við þann Bónusreikning. Vaxtabónus reiknast af samanlögðum áunnum verðbótum og vöxtum á árinu 1985 og verður lagður við þá Bónusreikninga, sem uppfylla ofangreind skilyrði, þann 20. jan. 1986. Tilboðið gildir fyrir alla þá sem eiga nú fé á Bónusreikningi eða stofna Bónusreikning fyrir 15. maí nk. Ársávöxtun á Bónusreikningi jan. - mars 1985 var = Með Vaxtabónus hefði hún orðið = lónaðarbankinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.