Morgunblaðið - 27.04.1985, Side 50

Morgunblaðið - 27.04.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1985 ffclk í fréttum > „Rólegheitafrí“ Joan Collins gekk fram af fræga fólkinu Joan Collins og tilvonandi eigin- maður hennar, Peter Holm, brugðu sér eigi alls fyrir löngu í sól- arfrí, að sögn til þess að búa sig andlega undir nýjar vinnutarnir og bráðum upprennandi brúðkaup. Þau fóru til Antigua í Karabíska hafinu og dvöldu á hinu rándýra og vand- aða St. James-hóteli. Þau Johan og Peter tóku það rólega, Joan sprangaði um allt með barðastóran hatt og las bók meðan Peter sólbrann við segl- brettaiðkun. Eigi að síður fara þær sögur að þrátt fyrir „róleg- heitin" hafi gustað mjög af þeim og þau hafi farið í taugarnar á öðru frægu fólki, sem þarna um sömu mundir. Meðal annars frægs fólks á Antigua þessa sólríku daga má nefna Ann Margret, Michael York og Lizu Minelli og svo mjög fór dvöl þeirra fyrir brjóstið á þeim, að það sást til Lizu við hótelbarinn hermandi eftir Joan með miklum og fjörleg- um tilburðum. Náði hún enskum hreim Joan prýðilega og áheyr- endur kútveltust um af hlátri. Einnig má nefna, að er þau Joan og Peter fóru heim frá Antigua, létu þau þotuna bíða eftir sér. Um borð voru York-hjónin og var bið- in Pat York um megn. „Eg heimta að vélin haldi af stað þegar í stað, ég er búin að fá nóg af þessari konu og kenjum hennar og skil ekki af hverju það þarf að bitna á okkur blásaklausum," æpti hún. Þrátt fyrir það var þotan látin bíða... Linda ætlar að ættleiða Fregnir herma, að Linda Ev- ans, leikkona, ætli að skjótast til Asíu við fyrsta tækifæri og velja lítið stúlkubarn til ætt- leiðingar. Það mun ávalt hafa verið — Nú þegar viö erum trúlofuö get ég kynnt þig fyrir systur minni. Krystle Carrington með barn sitt í Dynasty. draumur hennar að eignast barn, en hún er nú komin vel á fertugs- aldurinn og tvö barnlaus hjóna- bönd hafa farið í vaskinn. Vel- gengni hennar í Dynasty-þáttun- um sem ekkert lát er á veldur því einnig, að hún gæti ekki gengið með í níu mánuði án þess að stofna framanum í hættu. Linda tók þessa ákvörðun eftir samtal við góðvin sinn Richard Chamberlain fyrir nokkru, „Anjin san“ hafði sjálfur verið í Asíu og blöskrað fjöldi foreldralausra barna og þar sá Linda möguleika sinn að eignast barn og skaða ekki feril sinn. Eftir mislukkuðu hjónaböndin hefur hún lengið ver- ið fylgikona George Santo Pietro veitingahúsaeiganda, en jafnvel nánustu vinir leikkonunnar vita ekki hvort það samband hennar endar við altarið. Linda og vinurinn Santo Pietro. Það sem vakti upp móðurlega náttúru Lindu á nýjan leik eftir að hún hafði þráð barn þegar hún var yngri, en ýtt lönguninni til hliðar eftir að frægð og frami varð að veruleika, var að Krystle Carring- ton, kona sem Linda leikur í Dyn- asty, eignast barn með Blake gamla olíukóngi. Vinir Lindu full- yrða að þá hafi Linda „vaknað til lífsins á ný og farið að langa sjálf í barn, ættleitt ef ekki eftir kúnst- arinnar reglum". smurt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.