Morgunblaðið - 06.06.1985, Page 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
125. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afríka:
Neyðin vex þrátt
fyrir aðstoðina
Hungursneyð í 19 ríkjum álfunnar
Sameinuðu þjóAunum, New York, 5. júní. AP.
ÞRÁTT fyrir óhemjumikla alþjóðlega
aðstoð af öllu tagi hefur ástandið i
þurrkasvæðunum í ýmsum Afríku-
löndum versnað enn að því er segir í
skýrslu skrifstofu þeirrar sem fer
með neyðarhjálparmál við Afríku.
Ástandið er sagt alvarlegast víða
í norðurhluta Afríku. I Súdan er til
dæmis talið að um 11,5 milljónir
manna muni á einn eða annan hátt
verða óþyrmilega fyrir barðinu á
því að rigningin hefur látið á sér
standa. í Súdan búa um 20 milljón-
ir svo að hér er um að ræða meira
en helming þjóðarinnar.
1 skýrslunni er sagt að af öllu
verði ráðið að tala þeirra sem þurfi
á neyðarhjálp að halda muni því
stórhækka á næstu mánuðum og
samtals séu skortur og hungurs-
neyð í nítján Afríkuríkjum. Verst
er ástandið í Eþíópiu og Súdan, og
meðal annarra eru svo Chad,
Mosambik, Mali og Níger.
ítalía:
Þjóðaratkvæði um
fullar vísitölubætur
Róm, 5. júní. AP.
BETTINO Craxi, forsætisráðherra ít-
ala, sagði í dag, að stjórn hans myndi
tafarlaust segja af sér ef samþykkt
verður í þjóðaratkvæðagreiðslu um
helgina að taka aftur upp fulla vísi-
tölubindingu á laun en hún var af-
numin að nokkru á fyrra ári.
Þjóðaratkvæðagreiðslan verður á
sunnudag og mánudag og er til
hennar efnt að kröfu koinmúnista-
flokksins. Á blaðamannafundi í dag
sagði Craxi, forsætisráðherra, að
hann myndi biðjast lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt „mínútu eftir"
ósigur í atkvæðagreiðslunni en hins
vegar kvaðst hann viss um, að kjós-
endur létu skynsemina ráða og
segðu „nei“.
Takmarkanirnar við fullum vísi-
tölubótum, sem voru samþykktar í
fyrra eftir miklar og ákafar deilur á
þingi, hafa verið einn af hornstein-
unum í efnahagsmálastefnu stjórn-
arinnar og baráttu hennar við verð-
bólguna. Á sex mánaða tímabili í
fyrra voru launauppbæturnar
skornar niður um fjögur prósentu-
stig en það þýðir, að meðallaun eru
Nordfoto/Símamynd
Þjóðhátíðargjöfin var sigur á Sovétmönnum
Danska landsliðið í knattspymu hélt í gær upp á þjóðhátíðardaginn með því að vinna glæsilegan sigur á
Sovétmönnum á Idrætsparken í Kaupmannahöfn. Skoruðu Danir fjögur mörg gegn tveimur Rússanna og
deildu þeir með sér mörkunum Preben Elkjær Larsen og Michael Laudrup. Á myndinni er Elkjær að
skora fyrsta markið en Danir eru nú efstir í 6. riðli HM. Danir væntu sér mikils af sínum mönnum og svo
mikil var ásóknin í aðgöngumiðana að leiknum, að þeir voru keyptir á svörtum markaði fyrir allt að 5.000
kr. danskar. Sjá nánar á íþróttasíðu.
Bettino Craxi
nú um 540 ísl kr. lægri á mánuði en
þau ella hefðu verið. Talsmenn rík-
isstjórnarinnar segja, að ef tillaga
kommúnistaflokksins verður sam-
þykkt, muni árlegur launakostnað-
ur í landinu hækka um 170 millj-
arða ísl. kr.
Craxi sagði um þjóðaratkvæða-
greiðsluna, að hún væri ástæðulaus
og skaðleg og hefði nú þegar valdið
nokkurri óvissu i efnahagsmálun-
um. Á Ítalíu er verðbólgan nú 8,8%.
Utanríkisráðherrafundur NATO í Portúgal:
Geimvarnaáætlanir
og Salt II aðalmál
Utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í dag í Estoril í
Portúgal og stendur í tvo daga. Segir í AP-fréttum, að helstu umræðuefnin
verði afstaða Bandaríkjastjórnar til SALT II-samningsins, áætlanir um
geimvarnakerfið, samskipti austurs og vesturs og tillögur um stóraukna
aðstoð við Portúgali, Grikki og Tyrki. Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra,
situr fundinn fyrir fslands hönd.
George P. Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, ræddi í
gær við utanríkisráðherra aðild-
arlandanna um afstöðu þeirra til
SALT Il-samningsins en búist er
við, að Reagan, Bandaríkjaforseti,
ákveði nú um helgina hvort stjórn
hans muni áfram fara eftir hon-
um. Halda Bandaríkjamenn því
fram, að Sovétmenn hafi þver-
brotið samninginn, sem raunar
hefur aldrei verið staðfestur, með
smiði tveggja nýrra gerða lang-
drægra eldflauga. Bandamenn
Sovétríkin:
Ákveðið að veita í suður
vatni úr stórám Síberíu
Umhverfisverndarmenn óttast aÖ framkvæmdirnar valdi veðurfarsbreytingum
Maskvu, 5. júni. AP.
SOVÉSKUR ráðherra skýrði frá því í dag, að ákveðið hefði verið að
hrinda í framkvæmd gífurlega miklum áveituframkvæmdum, sem m.a.
eru fólgnar í því að veita í suður vatni úr ýmsum stórám, sem renna í
íshafið. Hafa umhverfisverndarmenn og veðurfræðingar lengi haft
áhyggjur af þessum fyrirætlunum og óttast þeir, að þær geti breytt
hitaflæði í andrúmsloftinu og haft veruleg áhrif á veðurfarið.
Nikolai F. Vasilyev, nýræktar-
málaráðherra, sagði á blaða-
mannafundi í dag, að brátt yrði
hafist handa við einhverjar
mestu áveituframkvæmdir, sem
um gæti, og vatni veitt úr síber-
ískum stórám á slétturnar i
suðri. Sagði Vasilyev, að ekki
væri um annað að velja ef takast
ætti að auka matvælafram-
leiðsluna í landinu. f Sovétríkj-
unum sjálfum hafa orðið nokkrar
deilur um þessa framkvæmd og
einkum þann hluta hennar, sem
snýst um að veita stórum hluta
Ob-fljótsins suður til Aral-vatns
eftir 2500 km löngum skurði.
Aral-vatn er nú að þorna upp
vegna þess, að árnar, sem í það
renna, hafa verið stemmdar að
ósi og vatnið notað til áveitu.
Þessi ákvörðun þykir ekki síst
merkileg fyrir þá sök, að talið
var, að Gorbachev, hinn nýi leið-
togi Sovétmanna, væri andvígur
þeirri stefnu forvera sinna að
brjóta sífellt nýtt og nýtt land til
ræktunar með óskaplegum til-
kostnaði. Hefur hann látið þau
orð falla, að réttara væri að auka
afrakstur þess lands, sem væri i
ræktun.
Umhverfisverndarmenn á
Vesturlöndum og í Sovétríkjun-
um líka hafa haft mikiar áhyggj-
ur af framkvæmdinni og telja
þeir, að ef vatni úr stóránum
verði veitt í suður muni það auka
ismyndun í íshafinu og Hvita-
hafi og hafa áhrif á veðurfar um
allan heim.
Bandaríkjamanna telja hins vegar
hyggilegast að virða samninginn
vegna afvopnunarviðræðna stór-
veldanna í Genf.
Shultz mun einnig fara fram á
stuðning utanríkisráöherranna
við geimvarnaáætlanir Banda-
ríkjamanna en búist er við, að
hann muni í því eiga á brattan að
sækja og einkum gagnvart Frökk-
um. Af öðrum málum má nefna
samskipti austurs og vesturs og
tillögur um tvöföldun fjárhags-
aðstoðar við þrjú fátækustu ríkin,
Portúgal, Grikkland og Tyrkland.
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, situr fundinn í Estoril
og sagði hann í viðtali við blm.
Morgunblaðsins, að ráðgerðar
væru viðræður við Shultz um skipa-
flutninga varnarliðsins. I gær
ræddi hann við utanríkisráðherra
og utanríkisviðskiptaráðherra
Portúgala og snerust viðræður
þeirra um 13% toil, sem settur
verður á íslenskan saltfisk þegar
Portúgal verður aðili að Evrópu-
bandalaginu um áramótin.
I x i
George P. Shultz