Morgunblaðið - 06.06.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNl 1985
15
Myndlist
Valtýr Stefánsson
Á vesturgangi Kjarvalsstaða
hefur Bat-Yosef komið fyrir ein-
um 87 myndverkum. Þar kennir
margra grasa. Þar eru ljósmynd-
ir af gerningum, málverk á silki,
klippimyndir á pappír og svo
mætti lengi telja. Það er þröngt
á þessum verkum, og hefði verið
betra ráð að hafa ekki jafn mikið
til sýnis og raun ber vitni.
Fyrir um það bil 30 árum kom
Bat-Yosef fyrst til íslands og þá
sem kona Erros (Guðmundar
Guðmundssonar), og hefu hún
haldið sambandi við land og þjóð
síðan, en er nú búsett í París og
hefur haslað sér þar völl sem
myndlistarkona. Hún hefur ha-
ldið sýningar víðs vegar og er
alþekkt sem súrrealistísk listak-
ona. Og ekki verður annað sagt
en að hún hafi lagt gjörva hönd
á margt. Það er ekki langt líðið,
síðan hún var með sýningu á
verkum sínum í Gallerí Lækjart-
orgi, og er sú sýning í fersku
minni. Mörg verki á þessari sýn-
ingu er nátengd því, sem þar var
til sýnis, en hinir máluðu hlutir
(objects) eru nýir frá hennar
hendi fyrir okkur hér á landi.
Þar ber ýmislegt á góma: fiðluk-
assi og stóll, banjókassi, kúlur og
ýmiss konar aðrir hlutir, sem of
langt mál yrði að tína til hér. En
allt hefur þetta svip af listakon-
unni, og því persónulegt eins og
sagt er.
Bat-Yosef er ættuð frá botni
Miðjarðarhafs, og litir hennar
og form hafa nokkuð austrænan
blæ. Á sýningu hennar má finna
ýmis tákn og merki úr Austur-
löndum, og þjóðerni listakon-
unnar leynir sér ekki.
Bat-Yosef á sér nokkurn hóp
aðdáenda hér á landi, og hefur
hún valdið honum nokkrum
vonbrigðum. Hún er afar dugleg
við myndgerð sína og löngu full-
mótuð sem myndlistarkona,
enda bera verk hennar með sér
bæði kunnáttu og fastmótaðar
skoðanir. Ég verð að játa, að ég
er ekki sérlega inni á því sviði,
sem virðist henni svo eiginlegt,
en ég ber virðingu fyrir tækni og
dugnaði listakonunnar.
Það er dálítið skemmtilegt, að
um leið og Bat-Yosef kemur frá
París og sýnir verk sín, kemur
Örn Ingi frá Akureyri, einnig
með alls konar hluti, og svo eru í
báðum sölum staðarins sýningar
sem eiga sinn uppruna í Reykja-
vík.
Örn
Myndlist
Valtýr Stefánsson
Örn Ingi er listamaður, sem á
heima á Akureyri og kemur
stundum suður og sýnir okkur
sitt af hverju. Hann var á ferð
hér um árið og staldraði við á
Kjarvalsstöðum, og nú er hann
kominn aftur og með mikinn
farangur. Titill á sýningu hans
er Sviðsmyndir í tilveru lífs og
dauða, engin smá nafnbót, enda
kemur Örn Ingi víða við að
þessu sinni og ef til vill of víða.
Það er symbolismi, sem ræður
ferð að sinni, og eins og ætíð
þegar táknmál er notað, verður
skilningur nokkuð persónu-
bundinn og erfitt er að skilja og
skýra svo að viðunandi sé.
Þegar Örn Ingi var hér með
sína seinustu einkasýningu, en
hann hefur haldið hér tvær, ef
f Austursal á Kjarvalsstöðum
stendur nú yfir fyrsta einkasýn-
ing á grafík eftir Tryggva
Árnason. Hann hefur stundað
þessa listgrein að undanförnu
af miklu kappi eins og sýning
hans ber ótvírætt vitni. Tryggvi
nefnir sýningu sína KÆRA
REYKJAVÍK, og ekki er maður
lengi að uppgötva hvers vegna
þegar sýning hans er skoðuð.
Megnið af myndum hans eru
gerðar eftir fyrirmyndum af
gömlum og þreyttum húsum,
sem hafa að geyma þá þjóðar-
Ingi
ég man rétt var það handverk-
ið, sem einna mesta athygli
vakti og hvernig hann tengdi
það konsept-hugmyndum. Enn
er hann við sama heygarðsh-
ornið og enn er það handverkið,
sem fyrst og fremst vekur at-
hygli. Ég man að í eina tíð
spáði ég því að svo færi að Örn
Ingi ynni verk sín of vel til að
vera tekinn góður og gildur af
því fólki sem stundaði kons-
ept-list hér fyrir sunnan. Enn
er þessi spádómur að þvælast
fyrir mér og ekkert hefur
breyst, hvað þetta snertir,
nema hvað nú eru konsept-
meistararnir flestir farnir að
stunda málverk af miklum
móð, en Örn Ingi heldur sig við
gömlu hugmyndafræðina.
Það tekur með öðrum orðum
heldur lengri tíma að koma
tískunni norður yfir fjöll en að
festa hana við Faxaflóa.
Það liggur feikna mikil vinna
sögu, sem er okkar sameign og
það eru hinir lúnu húsgaflar og
litríku port, sem segja okkur
sögur þeirra einstaklinga, sem
þarna hafa lifað og hrærst alla
sína tíð. Það verður vart minnst
á þessi myndverk Tryggva
nema verða svolítið rómantísk-
ur í orðavali. Þannig er gamli
bærinn, og vonandi á það ekki
eftir að breytast.
Það er tæknileg nýjung á ferð
í þessum verkum Tryggva og
hann hefur náð afar sterkum
í þessari sýningu hjá Erni Inga,
og hann hefur margar flóknar
hugmyndir. Notar hrosshúðir,
amboð, hey og lifandi mús til að
koma sínu á framfæri, svo að
fátt eitt sé nefnt. Hann virðist
mjög upptekinn af leikhúsinu
sem slíku, og eru sum verka
hans auðsjáanlega tengd þvi
fremur en myndlist. Það eru
engar nýjungar á þessari sýn-
ingu, en verk sem þarna eru,
voru vissulega í eina tíð talin til
endurnýjunar dadaisma eða
eitthvað í þá áttina, en svo
hratt flýgur stund á listasvið-
inu á okkar tímum, að allt úr-
eldist, áður en það er fullgert.
Það er bæði erfitt og vanþakk-
látt verk að eltast við tískuna,
þótt það geti verið spennandi
stundarfróun, en það er líka
allt og sumt.
Það er ýmislegt gott hægt að
segja um þessa sýningu hjá
Erni Inga, sem er gott dæmi
um hvernig hlutirnir þróast í
þeirri einangrun sem hlýtur að
vera til staðar í ekki stærri bæ
en Akureyri er. Það ætti ekki
að vera til hins verra, og hver
veit nema einmitt á slíkum
stöðum eigi eftir að koma fram
það sem máli skiptir?
tökum á því, sem hann er að
fást við. Það eru skýringar á
þessum vinnubrögðum í sýn-
ingarskrá Tryggva, sem óþarft
er að endurtaka í þessum línum.
Það sem einna mest hafði áhrif
á mig á þessari sýningu er lita-
meðferð Tryggva. Hann hefur
auðsjáanlega næmt auga fyrir
litnum og nær í hann krafti,
sem vinnur eins og listamaður-
inn auðsjáanlega ætlast til í
hvert sinn. Það eru aðeins ör-
fáir, sem ná slíku valdi, og þá
liggur manni næst að vona, að
viðkomandi snúi sér meir að
sjálfu málverkinu, því þessir
hæfileikar eiga þar betur við en
í grafík að mínu mati. Ég verð
að játa að mezzotintur Tryggva
komust ekki eins inn í mitt
kerfi og silkiþrykk hans. Sum
þeirra eru hreinar gersemar, og
á litameðferð ekki minnstan
þátt í því.
Þarna er nýjung í íslenzkri
myndlist á ferð, og er það sann-
arlega fagnaðarefni. Warhole á
þarna ekkert erindi, enda nær-
vera hans óþörf að mínu áliti.
Tryggvi virðist standa algerlega
fyrir sínu, þegar best lætur, og
ég óska honum til hamingju
með þann áfanga sem hann sýn-
ir á þessari sýningu. Þar eru 51
verk og fylla algerlega Austur-
sal Kjarvalsstaða. Þarna liggur
mikil vinna að baki, og geri aðr-
ir betur. En það er sameiginlegt
þeim einkasýningum, sem nú
eru að Kjarvalstöðum, að allar
bera þær vitni um gríðarlegan
dugnað og áræði.
Bat-Yosef
Sýning Tryggva
Árnasonar
Þú finnur ánægjuna í Fríklúbbsferö meö Útsýn.
Megum viö bjóða þér
þaö besta á
Ítalíu —
Spáni og
Portúgai?
artilboð
Stórkostlegt tækífæri fyrir þig
í 6 manna hópi býöst þér 3000 kr.
kynningarafsláttur fyrir feröafélagana
og frítt fyrir þig í 2 vikur í sól
og sumaryl!
Gildir aöeins næstu daga fyrir nýjar
pantanir á fáum óseldum sætum til
Ítalíu, Spánar og Portúgal.
Austurstræli 17
•ímar
26611 — 23510