Morgunblaðið - 06.06.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. jUNl 1985
53
Þórður Jónsson hefur um ævina gert rúmlega 300 flugvélalíkön. Morgunbiai>i»/RAX
ÞórÖur Jónsson:
„Já, já, þú ert með „módeldellu“
segir fólk brosandi“ _____________
Þessi 30 „módel“ sem hann er aó vinna fvrir FLugleiðir eru af fyrstu
á já, þú ert með módeldellu,
segir fólk brosandi þegar það
lítur inn í skápinn hjá mér,
en svo er það búið og fólk spáir
lítið í vinnuna sem liggur að baki.
Þess vegna er mjög gaman að
vinna að þessu verkefni því þarna
er vinnan manns metin og líkönin,
er verða líklega þegar allt kemur
heim og saman um 30 talsins, fara
í stjórnarherbergi Flugleiða.
— Ertu búinn að hafa áhuga
fyrir þessu lengi?
„Alveg frá því að ég var strák-
patti og ég hef verið að þroskast í
smíðinni eftir því sem árin líða. í
þessum skáp sem ég var að tala
um eru um það bil 300 líkön sem
ég hef smíðað um ævina. Ein-
hverntíma var ég að telja saman
tímann sem hefur farið í þessi 300
módel mín og mér taldist til að ef
18 klukkustunda vinna hefði farið
í hvert væru þetta um 5490
klukkustundir af ævinni.
Eitt af þessum líkönum mínum
er nokkuð merkilegt og áreiðan-
lega ekki til annars staðar á ís-
landi. Það er Northorp-flugvélin
sem bjargað var í Þjórsá 1979.
Líkanið var ekki til af henni áður
þannig að hún er samsett úr hlut-
um hvaðanæva."
— Þessi líkön fyrir Flugleiðir.
flugvélum Flugfélagsins ug Loftleiða.
Hvað tekur þig langan tíma að
vinna við hvert þeirra?
„Það tekur svona 30 til 40
klukkustundir ef vel á að vera. Ég
fæ líkönin send erlendis frá og
byrja þá á því að líma saman hlut-
ana. Þá er vinnuteikningin á dag-
skrá og þar þarf ég að mála og
teikna ýmislegt inná sem þarf að
passa i stærðarhlutföllum. Það
tók mig t.d. fimm klukkustundir
að mála gamla Flugfélagsmerkið.
Þessi líkön eru af fyrstu flugvél-
um Flugfélags íslands og Loft-
leiða og eru gerð í sömu stærð-
arhlutföllum og málaðar í sömu
litum og þær voru upphaflega. Það
gat oft verið erfitt að finna hvaða
litir þetta voru og ég fór þá á fund
gamalreyndra flugmanna sem
höfðu flogið þessum vélum og bar
mig saman við þá. Þetta er gífur-
leg nostursvinna alltsaman."
— Pantarðu þessi líkön aðal-
lega frá Bandaríkjunum?
„Flest panta ég frá Bandaríkj-
unum já og Bretlandi í gegnum
póstverzlun. En svo eru auðvitað
vinir og vandamenn sendir með
langa tossamiða ef þeir leggja leið
sína út fyrir landsteinana. I
nokkrum tilfellum eru þessi plast-
flugvélalíkön mín heimasmíðuð
því þá hafa ekki verið til slík sem
hafa passað. Þá styðst ég við
teikningar og ljósmyndir til að
fara eftir og smíða þá eftir tilfinn-
ingunni sem ég hef fyrir viðkom-
andi flugvél."
— Þú ert búinn að gera 300
módel fyrir sjálfan þig og ert að
vinna að öðrum 30. Er þetta ekk-
ert leiðigjarnt til lengdar?
„Nei, alls ekki. Það er ekki
smuga að láta sér leiðast við þessa
vinnu því tíminn bókstaflega
hleypur frá manni."
— Flýgurðu ekki fyrst áhuginn
á flugvélum er svona mikill?
„Reyndar byrjaði ég að læra
flug 1974 en það varð of dýrt þá
fjárhagslega fyrir ungan strák
eins og mig. Núna undanfarið hef
ég verið að byrja í svifflugi og það
er óhemju gaman. Það mætti
reyndar segja mér að það ætti eft-
ir að verða tímafrekt tómstunda-
gaman í framtíðinni."
COSPER
— Fyrirgefðu, en hvað er klukkan?
Ódýrar og pottþéttar
pakkningar í bílvélar
Við eigum á lager pakkningar í ílestar
tegundir bílvéla - viðurkennd vara
sem notuð er aí mörgum biíreiðaíram-
leiðendum.
AMC, BMW, Buick, Chevrolet, Daihatsu,
Datsun, Dodge, Fiat, Ford, Land Rover,
Mazda, M. Benz, Mitsubishi, Moskvitch,
Opel, Perkins, Peugeot, Range Rover,
Renault, Saab, Scania, Subaru, Suzuki,
Nú í sumar munu þjónustu- og sölufulltrúar Bíla-
borgar h/f gera víðreist um landsbyggðina til
skrafs og ráðagerða við MAZDA eigendur og
þjónustuaðila.
3. júní verða þeir á Blönduósi hjá Bílaþjónustunni og á Sauðárkróki hjá Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga. 4. júní verða þeir á Siglufirði hjá Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar og á Dalvík hjá Bílaverkstæði Dalvíkur. 5. júní verða þeir á Akureyri hjá Bílasölunni h/f og á Húsavík hjá Bifreiðaverkstæðinu Fossi h/f. 6. júní verða þeir á Egilsstöðum hjá Bifreiðaþjónustu Borgþórs Gunnarssonar, á Neskaupstað hjá Sfldarvinnslunni h/f og á Eskifirði hjá Benna og Svenna h/f. 7. júní verða þeir á Hornafirði hjá Bifreiðadeild Vélsmiðju Hornafjarðar.
MAZDA eigendum og þeim sem eru í bílakaups-
hugleiðingum er bent á að hafa samband við
ofangreinda aðila varðandi nánari tímasetningar.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23, sími 812 99