Morgunblaðið - 13.08.1985, Síða 37

Morgunblaðið - 13.08.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1985 37 Minning: Claus Bryde mjólkur- frœðingur Fæddur 20. febrúar 1909 Dáinn 30. júlí 1985 Með nokkrum orðum langar mig til að kveðja góðan vin. Claus Bryde fæddist á Halsted á Jótlandi. Kynni okkar hófust árið 1933 þar sem við vorum nemendur á átta mánaða námskeiði á Lade- lund Mælkeriskole. Síðan hefur haldist góður kunningsskapur alla tíð. Ég minnist Claus Bryde sem góðs og tryggs vinar. Alltaf var hann hógvær en hafði þó skemmtilega kímnigáfu. Claus Bryde réðst til Mjólkur- bús Flóamanna árið 1934 og það var fyrir hans milligöngu að leið mín lá til íslands 1935. Claus Bryde réðst mjólkurbús- stjóri á MBF 1936 og var það til 1942. Eftir það gerðist hann mjólkurbússtjóri við Mjólkurbúið í Hafnarfirði þangað til búið var lagt undir Mjólkurstöðina í Reykjavík. Eftir það vann hann við Mjólkurstöðina í Reykjavík þangað til hann komst á eftirlaun. Ég er sannfærður um að störf sín hefur hann alltaf reynt að leysa vel af hendi. Nú þegar vegi okkar skilur, vil ég þakka honum fyrir trygga vin- áttu og góð kynni þau ár sem við áttum samleið og þeim hjónum báðum gestrisnina. Eftirlifandi konu hans, Karen og fjölskyldu sendi ég bestu sam- úðarkveðjur. Hermann 0sterby stoð á erfiðum tíma. Það má kannpki segja að það er fyrst þarna í Suður-Bár sem afi fær að njóta sín sem bóndi, enda tók hann miklu ástfóstri við jörðina. Það er líka á þessum árum sem við barnabörnin erum að vaxa úr grasi og áttum vísa sumardvöl hjá afa og ömmu. Notfærðum við okkur það sum meira en önnur minna eins og gengur. Eitt er víst að öll eigum við hlýjar minningar tengdar afa og ömmu og Suður- Bár. Þar gerðust mörg ævintýrin niðri í fjöru eða upp við foss og hvergi voru lummurnar bragð- betri en í eldhúsinu hjá ömmu á kvöldin eftir langan dag við leik og störf. Árið 1964 brugðu þau búi afi og amma og fluttu inn í Grundar- fjörð. Njáll sonur þeirra, sem búið hafði í sambýli við föður sinn um árabil, tók þá við búinu svo afi átti auðvelt um vik að skreppa þangað þegar hann langaði til. Afi missti mikið þegar amma féll frá árið 1971. Þau fjórtán ár sem hann átti þá eftir ólifuð, átti hann sitt aðalathvarf hjá Þórdísi dóttur sinni og Ragnari manni hennar. Afi var hógvær maður og hefði ógjarnan viljað sjá hól um sig á prenti. Það er heldur ekki ætlunin hér að skrifa neina lofrollu um hann, einungis minnast lífshlaups hans í sem fæstum orðum. Afi hafði bjartan svip, var léttur í lund, ræðinn og spaugsamur. Hann var hagleiksmaður við smíð- ar og annað það er hann tók sér fyrir hendur. Hann var vinur vina sinna. Með afa er horfinn góður mað- ur. Við afkomendur hans, börnin sex, barnabörnin tuttugu og sjö og barnabarnabörnin sem orðin eru tuttugu og fimm, þökkum honum samfylgdina. Megi hann hvíla í friði. Hulda Minning: Gunnar Njálsson frá Suður-Bár Fæddur 2. febrúar 1901 Dáinn 6. júlí 1985 Mig langar að minnast í fáum orðum afa míns, Gunnars Njáls- sonar, sem lést þann 6. júlí síðast- liðinn í sjúkrahúsinu í Stykkis- hólmi. Afi fæddist á Krossnesi á Ströndum 2. febrúar 1901 og voru foreldrar hans þau Njáll Guð- mundsson og Súsanna Margrét Þorleifsdóttir. Bjuggu þau hjón ásamt börnum sínum í Krossnesi fram til ársins 1913 en þá fluttu þau inn í Norðurfjörð þar sem þau reistu nýbýli sem þau nefndu Njálsstaði. Þar bjó afi til ársins 1952. Ekki þurfti afi langt að leita konuefnisins því að á næsta bæ bjuggu sæmdarhjónin Sesselja Gísladóttir og Valgeir Jónsson og áttu þau fjölda barna. Þeirra á meðal var amma mín, Valgerður Guðrún, og gengu þau afi í heilagt hjónaband þann 18. júlí 1925. Var hjónaband þeirra farsælt og eign- uðust þau sex börn sem öll lifa foreldra sína. Eins og allir vita, var lffsbarátt- an hörð á þessum árum, ekki síst fyrir smábónda í afskekktri sveit. Því hagaði líka þannig til á Njálsstöðum að ekki var hægt að hafa nema lítið bú. Afi þurfti því oft að sækja vinnu utan heimilis og var þá oft fjarverandi langtím- um saman. Naut heimilið þá góðr- ar aðstoðar Njáls langafa, sem þar bjó til dauðadags árið 1941 eftir að hafa þá verið ekkjumaður í 13 ár. Að taka sig upp og flytja burt úr heimahögum er erfið ákvörðun og þung. Saga afa er ekkert eins- dæmi. Mörg fjölskyldan hefur mátt gera það sama. Sést það best í þeim fjöldamörgu sveitum lands- ins, þar sem rústir einar bera vitni því mannlífi sem þar var á árum áður. Eftir 27 ára búskap á Njálsstöð- um eða nánar tiltekið um sólstöð- ur 1952, fluttu þau afi og amma burtu úr sveitinni sinni að Suður- Bár í Grundarfirði. Kunnu þau strax vel við sig í þessu nýja um- hverfi og hófust þegar handa við ræktun og uppbyggingu á jörð- inni. Nutu þau þess þá afi og voru enn í föðurhúsum og veittu amma, að fjögur barna þeirra þau foreldrum sínum ómælda að-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.