Morgunblaðið - 13.08.1985, Side 47

Morgunblaðið - 13.08.1985, Side 47
MQRGUNBLADIÐ-, ÞRIÐjyDAGUR 13. ÁGOST19&5 47 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MANUDEGI TIL FÖSTUDAGS UinJ-ll If Ofbeldishneigðir friðarsinnar Opið bréf til ráðherra Velvakandi hefur verið beðinn að birta eftirfarandi bréf frá Bergþóri Atlasyni, Siglufirði: Hr. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. Reykjavík. Fyrir nokkrum árum var ég beð- inn að koma um borð í bát til að líta á talstöð sem var í ólagi. Þegar ég kem um borð í bátinn var þar staddur ungur maður með mikla og staðgóða verkfræðimenntun. Að vísu var hún ekki á sviði rafmagns- eða radíóvirkja. Hinsvegar var þessi maður það sem kalla má ama- tör í radíófræðum. Nú vildi svo til að maðurinn hafði setið dágóða stund yfir bilaða tæk- inu áður en ég kom á staðinn. Hann byrjar á að segja mér að samkvæmt teoríunni eigi þetta tæki, sem ég var beðinn um að lagfæra, að vera í lagi. Ég spuröi hann hvort tækið væri þá ekki í lagi og ætlaði að yfir- gefa bátinn. Hann segir mér þá að það sé svo merkilegt að tækið virki bara ekki þrátt fyrir þetta. Tækið var tvískipt og var allur mæla-aflestur í neðri skápnum utan einn, sem var í þeim efri. Þeg- ar betur var að gáð kom í ljós að efri skápurinn var ekki í sambandi og var það eina bilunin. Þrátt fyrir alla teoríu gat þetta samt verið svona einfalt. Þessi dæmisaga liggur fyrir mér í dag á annan hátt. Það er að þetta tvískipta tæki gæti allt eins verið skipstjórarnir á fiskiskipunum í neðri skápnum en fiskifræðingarnir í þeim efri. Það er að, þrátt fyrir að fiskifræðingar eigi samkvæmt teoríunni að vera í lagi, þá eru þeir einfaldlega ekki í sambandi. Kveðjur, Bergþór Atlason, Siglufirði, amatör í fiskifræðum. Arngrímur Sigurðsson, Keilufelli 2, skrifar: Hr. Velvakandi: Hópur manna sem kennir sig við grænku og frið er enn á dagskrá. Ekki láta þessir menn friðsamlega. Þeir hafa skipað sjálfa sig til eftirlits með hval- veiðum. Aðferðin: Fyrirsiglingar og hótanir. Þó heyrist enginn tala Steinunn Pálsdóttir, Karlagötu 13, skrifar: Ágæti Velvakandi. Það smábætist við þuluna sem hún Þuríður bað um hinn 27. júlí. Aðeins endirinn er eftir og ætla ég að biðja þig fyrir hann, Velvak- andi góður. Síðast var komið: Nú er dauður Egill og Kegill í skógi. Framhaldið er svona: Horfi ég upp til hæðanna um atvinnuróg eða ólögmæta framkomu. Náttúruvernd er að sönnu góður málstaður, en of langt má ganga. Stjórnvöld mega ekki láta ofbeldi viðgangast hvort sem íslenskir eða erlendir aðilar eiga í hlut. fslend- ingar ættu ekkert að stjana við fólk sem hótar að leggja aðalat- vinnuveg þjóðarinnar í rúst. og se tólf hesta renna, tók ég þann blakka, og reið ofan í slakka. Kom þar að kveldi er kerling sat að eldi. Hún tók mína pyngju og hugði mig stinga. Þó tók ég lunkinn minn langa, og lagði undir kerlingar vanga og mælti svo um að aldrei skyldi hún gott við heyra í sitt bannsetta krókótta kerlingar eyra. Framhald þulu Öllum þeim sem sýndu mér vinsemd á marg- víslegan hátt á áttræöisafmæli mínu 1. ágúst sl. þakka ég innilega. LifiÖ heil, Gudmundur E. Guðjónsson. Nýtt — Nýtt Haustvörurnar eru komnar Glugginn Laugavegi 40, Kúnsthúsinu Sími 12854 hún um graskögglaverksmiðjur og ýmislegt sem þeim tengist. Meðal annars var rætt við Stef- án H. Sigfússon framkvæmda- stjóra um sölutregðu á gras- kögglum í vetur. Þar sagði hann að verðið hefði verið sett of hátt í fyrra. Vegna þeirra ummæla langar mig til að spyrja hlutað- eigandi málsaðila, hvort það að koma saman einn góðan veður- dag og ákveða í sameiningu verð á vöru til neytenda sé í fullu samræmi við lög um heilbrigða viðskiptahætti og samkeppni. Hvar er samkeppnin og metnað- urinn ef framleiðendur koma sér allir saman um fast verð á vör- um sínum? Auk þess virðist vera sama verð á kögglum án tillits til hráefnanna í þeim. Getur þetta talist eðlilegt ef þetta er ekki einu sinni sama vöruteg- undin? Verðlagning á klippingu Sigurpáll Grímsson, Kakarastof- unni Klapparstíg hringdi: Ég vil koma fram leiðréttingu við fyrirpsurn Á.D.Ó. í blaðinu á föstudaginn. Þar eru taldar upp nokkrar hárgreiðslustofur, þar á meðal Hárgreiðslustofan Klapp- arstíg. Á.D.Ó. segir klippingu kosta kr. 495, en það er rangt, hið rétta er að klipping hér kost- ar 395 kr. eða hundrað krónum minna. Varðandi fyrirspurnina get ég aðeins sagt það að verð- lagning á klippingu er nú frjáls, en var það ekki til skamms tíma. Því hækka ekki allar stofur verðið hjá sér á sama tíma eins og áður var og getur það þvi gef- ið mjög villandi upplýsingar. Einnig er gæðamunur á hár- greiðslustofum og getur það haft eitthvað að segja. Gleraugu Jóns fundin Stefanía Baldursdóttir hringdi: Dóttir mín var á ferð á Laug- arvatni um verslunarmanna- helgina. Þar var ungur piltur að Kristján Hafliðason, Æsufelli 2, hringdi: Ég hlustaði á fréttir útvarps- ins á fimmtudagskvöldið þar sem m.a. var fjallað um komu svonefndra grænfriðunga hingað. Einnig var greint frá því að íslenskir ráðamenn hefðu veitt þeim áheyrn og rætt hefði verið saman af hreinskilni og vinsemd. Grænfriðungar hefðu skilning á afstöðu okkar íslend- inga til hvalveiða. En svo var nákvæmlega í sömu frétt haft eftir þeim að ef við hættum ekki hvalveiðum þegar í stað, myndu þeir með öllum tiltækum ráðum grafa undan sölu á íslenskum leita gleraugna sinna sem hann hafði tapað. Hann heitir Jón Eg- ill og býr í Kópavogi. Skömmu síðar fann dóttir min gleraugun hans en okkur hefur ekki tekist að hafa upp á piltinum. Jón Egill er því hér með beðinn um að hringja í síma 72902 og fá nánari upplýsingar. físki erlendis. Sem sagt: Gera okkur ókleift að lifa í landinu og eyðileggja aðalatvinnuveg lands- manna. Svona mönnum á að visa umsvifalaust úr landi. Hvar er þor og karlmennska íslenskra ráðamanna? Er hjartað komið ofan í buxur? Ég er hræddur um að afi minn, Snæbjörn í Hergils- ey, hefði velt sér við í gröfinni ef hann hefði heyrt froðusnakkið í grænfrióungum enda reyndi hann á sínum tíma að verja landhelgina með járnkarl einan að vopni. Því segi ég að lokum við íslensk stjórnvöld: Látið skina í tennurnar. Skip grænfriðunga, Rainbow Warrior, er forðum sigldi um lslandsmið og truflaði hvalveiðar íslendinga. Látið skína í tennurnar Dómkirkjan Sumarferð aldraðra Efnt verður til sumarferðar eldri borgara í Dóm- kirkjusókninni miðvikudaginn 14. ágúst nk. kl. 13.00 frá Dómkirkjunni. Þátttaka er bundin viö fólk 65 ára og eldra. Farið verður fyrir Hvalfjörð og til Akraness. Aö venju verður gefiö kaffi í ferðinni. Þátttökugjald er kr. 200,- Þátttaka óskast tilkynnt í síma 12113, þriðjudaginn 13. ágúst milli kl. 13 og 16. Sóknarnefnd TELEXFORTHEFUTURE l Tölvutelex i með einkatölvum = Tugir íslenskra fyrirtækja treysta EASYLINK best = fyrir öllum telexsamskiptum sínum viö umheiminn, = enda vita stjórnendur þeirra og meira en 100000 annarra fyrirtækja í heiminum, aö fyrirtækin sem standa aö EASYLINK, WESTERN UNION USA og CABLE AND WIRELESS UK, eru ein stærstu og —— virtustu fyrirtæki heimsins á þessu sviöi. = = Gerið samanburö á þeim kostum sem til greina koma. = EASYLINK — Framtíöarlausn á tölvuöld 1 Símtækni sf. 1 Ármúla 5, 108 Reykjavík, sími 686077. Easylink (UK): 19005265 = Telex: 946240 Cweasy G, quoting 19005265. =

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.