Morgunblaðið - 13.08.1985, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 13.08.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1985 51 Átthagasalurlnn Hótel Sögu er sniðinn fyrir öll hugsanleg mannamót. Hann hentar jafnt stórum sem smáum hópum, allt frá 20 tll 200 manns og starfsfólk okkar kappkostar að uppfylla hvers konar óskir um veitingar og þjónustu. • Smá og stór afmæli • Hádegisverðarboð • Útskriftarveislur • Fermlngarveislur • Kaffisamsæti • Fundir • Skírnarvelslur • Kvöldverðarboð • Ráðstefnur • Ættarrmót • Brúðkaup • Vinasamsæti • Erfldrykkjur • Árshátíðlr • o.fl. o.fi. Við veitum allar frekari upplýsingar um verð og þjónustu og gefum góð ráð. Hafðu samband við veitingadeildina í síma 29900. Við leysum málið. GILDIHF Göngubrú yfir Kaldaklofskvísl GÖNGULEIÐIN frá Landmanna laugum til l*órsmerkur er ein sú vinsælasta í óbyggðum. Feróafé- lag íslands hefur reist sæluhús á þessari leió og eru þau staðsett þannig að hæfileg dagleið er á milli þeirra. Ferðafélagið hefur einnig stikað þessa leið til öryggis fyrir ferðamenn. Göngubrýr hefur Ferðafélagið sett á erfið- ustu ár s.s. Emstruá, Ljósá og nú í sumar var sett göngubrú á Kaidaklofskvísl. Þessar brýr eru til öryggis fyrir ferðamenn á þessari leið og er það stefna Ferðafélagsins að auðvelda ferðafólki umgengni við landið. Er smíði slíkra göngubrúa yfir viðsjárverð vatnsföll liður í þeirri viðleitni félagsins. 17 myndbandstæki, 140 flöskur af vín- anda og 90 bjórkassar Ljósmynd/Jón ViÖar Sigurösson Hér sjást nokkrir brúarsmiðanna að störfum við smiði brúarínnar yftr Kakla- klofskvisi, en það var bygginganefhd FÍ ásamt sjálfboöaliöum sem sá um smiði göngubrúarinnar. Smygl í Breka og Sindra: „EKKI get ég sagt að tollgæslan úr Reykjavík hafi verið óvenju mikið á ferðinni í sumar vegna tíðra siglinga íslenskra skipa í söluferðir erlendis, en við höfunt reynt að sinna þessu eins og kostur hefur verið og erum að reyna að auka það,“ sagði Hermann Guðmundsson, aðstoðartollgæslu- stjóri, í samtali við Morgunblaðið. ÞÁ ER ÁTTHAGASALURINN SNJÖLL LAUSN „Við höfum farið um landið og tekið prufur þegar við vitum að skip er að koma frá útlöndum. Til dæmis komu um síðustu helgi tvö skip frá Vestmannaeyjum úr sigl- ingu, Breki og Sindri. í Breka fundust 11 myndbandstæki, nokkur hljómflutningstæki og myndbandsspólur. í Sindra fund- ust sex myndbandstæki. Einnig var talsverðu áfengi smyglað til landsins. Níutíu kassar af bjór fundust í Breka og 140 flöskur af sterkum vínanda.“ Hermann sagði að tollgæslan i Reykjavík hefði reynt að sinna landsbyggðinni eftir bestu getu, en fyrst og fremst væri það lög- regla viðkomandi byggðarlags sem sæi um tollgæsluna þar jafn- framt löggæslunni, en „við reyn- um að styrkja þá eftir bestu getu. Ég efast ekkert um að lögreglan úti á landi sinni skyldum sínum, en þrátt fyrir það næst aðeins hluti af toppnum. Stundum látum Otffaert sem tilefnid er við vita af okkur með góðum fyrirvara eða við birtumst á staðnum og bönkum upp á þegar skipin sigla í höfn. Það fer eftir aðstæðum hverju sinni. Árangurinn hefur verið ágætur hjá okkur undanfarið. Þetta er hinsvegar mikil vinna. Það er ekki bara að fara um borð og ná í vaminginn, öllu þarf að snúa við og felustaðirnir virðast óendan- legir. Ef menn vilja smygla, þá er það í sjálfu sér lítið mál,“ sagði Hermann að lokum. Hinir slösuöu fluttir af slysstað. Meiðsli þeirra reyndust ekki alvarleg. MorgunblaðiðiA/Július Árekstur á mótum Miklubrautar og Grensásvegar ALVARLEGUR árekstur varð á mót- um Miklubrautar og Grensásvegar í Reykjavík laust eftir klukkan 2 að- faranótt sunnudags. Þar rákust á Saab-bifreið sem ekið var suður Grensásveg og Sub- aru sem ekið var austur Miklu- braut. Fjórir voru fluttir á slysadeild, tveir úr hvorum bíl. Fengu þeir allir að fara heim að lokinni skoð- un nema ökumaður Saab-bilsins sem missti meðvitund við slysið en meiðsli hans munu þó ekki hafa reynst mjög alvarleg. Tildrög slyssins eru ekki fullljós en svo virðist sem hvorugur öku- maðurinn hafi veitt hinum bílnum athygli, fyrr en þeir skullu saman. Subaru-bíIIinn kastaðist á um- ferðarljós og braut þau niður. Báðir bilarnir eru mjög mikið skemmdir ef ekki ónýtir. „Mannleg mistök“ — segir Guttormur Þormar um umferð- armerkið við Mela- torg EINS og lesendur eflaust muna birtist í Morgunblaðinu nú fyrir skömmu mynd af umferðarskilti við Melatorg, sem skilja mátti svo að á torginu væri vinstri umferð enn í fullu gildi. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá Gutt- ormi Þormar, yfirmanni gatna- máladeildar borgarverkfræðings, er það þó hin mesta firra. „Hér er aðeins um mannleg mistök að ræða,“ sagði Guttorm- ur, „mistök, sem sakir skarp- skyggni starfsmanna Morgun- blaðsins hafa nú þegar verið leið- rétt. Strákarnir voru að vinna að því einn daginn að koma upp þessum alþjóðlegu aðvörunar- skiltum, en einhverra hluta vegna virðist sem eitt fornfálegt skilti hafi slæðst með og hafnað uppi á staur,“ bætti hann við. „En nú er þessi skondna skyssa sem sagt úr sögunni.“ Aðspurður kvað Guttormur skilti þessi sett upp að beiðni ökukennara meðal annarra og ættu þau að leiðbeina bæði utan- bæjarmönnum og erlendum ferðamönnum við akstur um hringtorgin. „Ekki hef ég þó frétt af neinum sem ekki er betur að sér en það að hann hafi ekið öfugan hring á torginu, hvorki fyrir uppsetningu merkisins né eftir,“ sagði Guttormur Þormar að lokum. Misritun nafns í FRÉTTATILKYNNINGU frá Félagi skipulagsfræðinga, sem birtist í blaðinu nýlega, misritað- ist nafn eins stjórnarmanna. Bjarka Jóhannessonar, sem nefndur var Bjarni í fréttinni. Er beðist velvirðingar á þessum mis- tökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.