Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OiCTÓBER 1985
ÚTVARP/SJÓNVARP
Ýlustrá
Starfsmenn rásar II eru býsna
iðnir við að leita álits hlust-
enda og ber þar hæst leitina að
vinsælustu dægurflugunum. Und-
irritaður kemur ekki nálægt slíkri
fiðrildasöfnun enda poppskríbent-
arnir vafalaust léttari á fæti.
En gjarnan er hlustað þegar
Páll Þorsteinsson leitar álits
hlustenda morgunútvarps rásar-
innar á mönnum og málefnum.
Síðastliðinn þriðjudagsmorgun
leitaði Páll álits hlustenda á því
hvern þeir teldu best að kominn
sæmdarheitinu „maður mánaðar-
ins“. Náttúrulega var íþrótta-
maður sæmdur tignarheitinu enda
rás II óðum að breytast í eins-
konar músíkblandna íþróttarás,
og er sú þróun í fullu samræmi við
þá breytingu sem er að eiga sér
stað í hguarheimi ungs fólks að
manni virðist, en þar skipa víða
popp og íþróttir að viðbættum
nokkrum Rambóum heiðurssess.
Bera auglýsingar risafyrirtækja á
borð við Coke og Kellogg’s glöggt
vitni um þessa þróun, en þær aug-
lýsingar byggjast svo sannarlega
á víðtækum rannsóknum á hugar-
heimi neysluþegans. Þó eru nú
alltaf til frjálshuga einstaklingar
er láta ekki auramenninguna út-
vatna hugsunina, þannig hlaut til
dæmis í fyrrgreindum þætti Páls
hinn íslenski antisportisti eitt at-
kvæði og ... hinn almenni launa-
maður hlaut tvö atkvæði, fyrir að
standa af sér minnkandi kaup-
mátt og hækkandi vexti, þá hlaut
... séra Gunnar Björnsson þrjú
atkvæði og fylgdu hlýjar kveðjur
og Þorsteinn Pálsson hlaut eitt at-
kvæði, einnig forseti vor ástkær.
Ýmsum kann að finnast slík vin-
sældakosning harla ómerkileg, en
hafa menn hugsað út í það að víða
úti í hinum stóra heimi er vin-
sældalistinn ákveðinn af valdhöf-
unum?
En þótt ég hafi nú haft gaman
af vinsældakönnun Páls Þor-
steinssonar á þriðjudaginn, þá var
ég afar ósáttur við þá ákvörðun
yfirmanna rásar II að fylgja ekki
fordæmi kolleganna á rás I, er
spiluðu þann daginn eingöngu
upptökur með tónlist er ungt ís-
lenskt tónlistarfólk flutti, enda
þriðjudagurinn 1. október alþjóð-
legur tónlistardagur æskufólks.
Var hreint út sagt stórfenglegt að
hlusta á hina ungu tónlistarmenn
glíma við alþekkt klassisk verk, en
það er nú svo að stundum fara hin
margtuggðu meistaraverk fyrir
ofan garð og neðan hjá hinum rút-
ineraða útvarpshlustanda, sökum
þess hve gerilsneyddar upptökurn-
ar eru orðnar alla jafna. Máski
hefði Ríkisútvarpið okkar lifað
hér sinn fegursta tónlistardag ef á
rás II hefði ekki hljómað hin al-
þjóðlega, fjöldaframleidda, niður-
soðna, vinsældalistamúsík er ku
draga til stn hinn svokallaða „al-
menna neytanda".
Ekki stingandi strá
Á þriðjudagskveldið var svo
Ómar á dagskrá með klukkutíma
þátt um .. gróðureyðingu. gróð-
urvernd og landgræðslu á Islandi.
Sýndi Ómar fyrst sjónvarps-
áhorfendum myndir af ýmsum
skikum lands vors er hafa ýmist
orðið örfoka eða notið blessunar
gróðurverndar. Þá kvaddi Ómar í
sjónvarpssal vísa menn úr bænda-
stétt og úr hópi landgræðslu-
manna. Sýndist sitt hverjum um
ástæður uppblástursins. Fór ég
fróðari af fundi og þótti einkum
forvitnilegt að hlýða á lýsingu
Rangárvallasýslubóndans á land-
inu. Hversu miklu fátækari verður
ekki menning vor ef kjötheildsalar
taka við af gildum bændum? Að
vísu verða máski götur höfuðborg-
arinnar enn þéttsetnari af smá-
benzum, en andinn auðgast nú
ekki af blikkbeljunni einni saman.
Ólafur M.
Jóhannesson
Gísli Rúnar Jónsson er leik-
stjóri.
Steinunn Sigurðardóttir
þýddi leikritið.
„Það var
hundurinn
sem varð undir“
— útvarpsleikrit eftir Tom Stoppard
■HH Fimmtudags-
leikrit kvölds-
~ ins nefnist „Það
var hundurin sem varð
undir“ og er það eftir
breska leikritahöfundinn
Tom Stoppard. Þýðinguna
gerði Steinunn Sigurðar-
dóttir en leikstjóri er
Gísli Rúnar Jónsson.
í leikritinu fjallar
Stoppard af sinni sér-
stæðu gamansemi um hið
flókna net alþjóðanjósna.
Aðalpersónan, Purvis, er
búinn að starfa svo lengi
við njósnir og gagnnjósnir
að hann er ekki lengur
viss um fyrir hvern hann
njósnar í raun og veru. En
slík óvissa er að sjálf-
sögðu afar óheppileg í
þessari starfsgrein.
Leikendur eru: Steindór
Hjörleifsson, Pálmi
Gestsson, Örn Árnason,
Júlíus Brjánsson, Sigur-
veig Jónsdóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Ævar R.
Kvaran, Bríet Héðinsdótt-
ir, Randver Þorláksson,
Viðar Eggertsson, Flosi
Ólafsson og Árni Blandon.
Tæknimenn eru Friðrik
Stefánsson og Runólfur
Þorláksson.
Samtímaskáldkonur
— Helga Novak
■■■■ Þáttur er á
(y | 30 dagskrá rásar 1
& 1 “* í kvöld er nefn-
ist „Samtimaskáldkonur"
og er þátturinn í tengslum
við þáttaröð norrænu
sjónvarpsstöðvanna. Um-
sjón með dagskránni hef-
ur Jórunn Sigurðardóttir
og hefst hún kl. 21.30.
Fjallað verður um Helgu
Novak, en hún er þýskur
rithöfundur og hefur m.a.
búið á íslandi um árabil. I
sjónvarpi sl. sunnu-
dagskvöld var þáttur á
dagskránni tileinkaður
henni.
Helga býr nú í Vestur-
Berlín, en hún flýði á
skólaárum sínum frá
Austur-Berlín og var tek-
in í fóstur af fólki, sem
henni líkaði aldrei við, að
eigin sögn, og hefur hún
skorið á tengsl sín við
fósturforeldra sína.
Tónlistarkrossgátan
á rás 2 á sunnudag
■i^M Sunnudaginn 6.
i c;00 október verður
tónlistarkross-
gátan á dagskrá rásar 2
kl. 15.00 og birtist því hér
sú krossgáta sem lögð
verður fyrir.
Hlustendum er gefinn
kostur á að svara einföld-
um spurningum um tón-
list og tónlistarmenn og
ráða krossgátu um leið.
Stjórnandi er Jón
Gröndal. Lausnir sendist
til: Ríkisútvarpsins, rás 2,
Efstaleiti 1, 108 Reykja-
vík, merkt Tónlistarkross-
gátan.
Jón Gröndal, umsjónarmað-
ur Tónlistarkrossgátunnar.
I
UTVARP
FIMMTUDAGUR
3. október
7.00 Veöurfregnir. Fréftir.
Bæn. 7.15 Morgunvaktin.
7.20 Leikfimi. Tilkynningar.
8.00 Frétfir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Sætukoppur'' eftir Judy
Blume. Bryndis Vlglunds-
dóttir les þýöingu sina (6).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar, pulur velur og
kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Málræktarþáttur. Endur-
tekinn þáttur Sigrúnar
Helgadóttur frá kvöldinu áö-
ur.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.40 ,Ég man þá tlö“. Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.10 Úr atvinnullfinu — Vinnu-
staöir og verkafólk. Umsjón
Tryggvi Þór. Aðalsteinsson.
11.30 Morguntónleikar.
a. Þrjár ballöður eftir Carl
Loewe. Verner Hollweg
syngur. Roman Ortner leikur
á planó.
b. Rondó í A-dúr fyrir fiölu
og hljómsveit eftir Franz
Schubert. Josef Suk leikur
meö St.
Martin-in-the-Fields-hljóm-
sveitinni. Neville Marriner
stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 „A ströndinni" eftir Nevil
Shute. Njörður P. Njarðvlk
les þýöingu slna (10).
14.30 A frlvaktinni. Sigrún Sig-
urðardóttir kynnir óskalðg
sjómanna. RÚVAK.
15.15 Af landsbyggöinni —
Spjallaö viö Snæfellinga. Eö-
varö Ingólfsson ræöir viö Jó-
hann Hjálmarsson skáld.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16„Fagurt galaði fuglinn
sá". Umsjón Siguröur Ein-
arsson.
17.05 Barnaútvarpið. Sfjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
19.55 Frá Kaprl.
Sveinn Einarsson segir frá.
Siöari hluti.
20.30 Tónleikar Sinfóni-
uhljómsveitar Islands I Há-
skólabiói. Fyrri hluti. Stjórn-
andi: Militiades Caridis. Flutt
verður Sinfónla nr. 6 I F-dúr
op. 68 eftir Ludwig van
Beethoven, Pastoral-hljóm-
kviðan.
21.30 Samtlmaskáldkonur —
Helga Novak. Dagskrá I
tengslum við þáttaröö nor-
rænu sjónvarpsstöðvanna.
Umsjón: Jórunn Siguröar-
dóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veöurfregnir. Orð
kvötdsins.
22.25 Fimmtudagsumræðan.
Fiskeldi. Fjármögnun, flutn-
ingur, markaðir. Umsjón
Gissur Sigurösson.
23.25 Kammertónlist. Oktett
fyrir strengjahljóöfæri op. 3
eftir Johan Svendsen. Arve
Tellefsen, Leif Jörgensen.
Trond öyen og Peter Hindar
leika á fiðlur, Jóhannes
Hindar og Sven Nyhus á lág-
fiölur, Levi Hindar og Hans
Christian Nyhus á selló.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
/á
SJÓNVARP
19.15 A döfinni.
19.25 Svona byggjum við hús.
(Sá gör man — Bygge).
Annar hluti. Sænsk fræðslu-
mynd fyrir börn. Þýöandi og
þulur Bogi Arnar Finn-
bogason.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpiö).
19.35 Klnverskir skuggasjón-
leikir.
(Chinesische Schatten-
spiele). 2. Skjaldbakan og
tranan.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20J0 Auglýsingar og dagskrá.
FOSTUDAGUR
4. október
20.40 Saga Bftlanna.
(The Complete Beatles). Ný
bandarisk heimildamynd I
tveimur hlutum um fjórnvenn-
ingana frá Liverpool og litrik-
an starfsferil þeirra. Slðari
hluti myndarinnar verður
sýndur laugardaginn 5.
október. Þýðandi Björn
Baldursson.
21.40 Börn tveggja landa.
(Children of Two Countries).
Aströlsk heimildamynd I
tveimur hlutum um börn i
Kina og Astrallu. I fyrri hluta
myndarinnar segir frá ferö
ástralskra barna til Klna.
Þýðandi Reynir Harðarson.
22.30 Fjall á tunglinu.
(Berget pá mánens bak-
sida). Sænsk blómynd frá
árinu 1984. Leikstjóri Lenn-
ert Hjulström. Aöalhlutverk
Gunilla Nyroos, Thommy
Berggren og Bibi Anders-
?on.
Myndin gerist i Stokkhólmi
um 1890 og segir frá rússn-
eska stæröfræðingnum Son-
yu Kovalevsky og örlagarlku
ástarsambandi hennar viö
róttækan vlsindamann. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
00.05 Fréttir I dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Asgeir Tómas-
son og Kristján Sigurjóns-
son.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Magnús Krist-
jánsson.
15.00—16.00 i gegnum tlðina
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áður
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Gestagangur
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
lösdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Norðurrokk
Stjórnandi: Ólafur Þóröar-