Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985 18 LR frumsýnir söngleik- inn „Land míns fööuru eftir Kjartan Ragnarsson — ein viðamesta sýning sem leikfélagið hefur ráðist í frá stofnun þess 1897 LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýnir söngleikinn „Land míns fóður“ eftir Kjartan Ragnarsson í Iðnó annað kvöld, 4. október. Kjartan leikstýrir söngleiknum en tónlist er eftir Atla Heimi Sveinsson. Alls koma 32 fram í sýningunni, þar af sex manna hljómsveit Jóhanns G. Jóhannsson- ar. Með stærstu hlutverk fara Sig- rún Edda Björnsdóttir, Helgi Björnsson, Jón Sigurbjörnsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Steinunn ólína Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Bergdal, Ragnheiður Arnars og Guðmundur Pálsson. Með önnur veigamikil hlutverk fara Gísli Halldórsson, Kristján Franklín Magnús, Hallmar Sig- urðsson, Agúst Guðmundsson, Karl Guðmundsson, Karl Ágúst Úlfsson, Soffía Jakobsdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir. Steinþór Sigurðsson gerði leikmynd, Daníel Williams sér um lýsingu, Guðrún Erla Geirsdóttir hannaði búninga, ólafía Bjarnadóttir hefur samið dansa og hljómsveitarstjórn er í höndum Jóhanns G. Jóhannssonar. Runólfur Agústsson, blaðafull- trúi LR, sagði í samtali við Morg- unblaðið að söngleikurinn fjallaði um þá byltingu sem varð i íslensku þjóðlífi með komu breska hersins, 10. maí 1940, og á þeim misserum sem á eftir fylgdu. „Á örfáum árum stökk aldagamalt bænda- þjóðfélag inn í aðra veröld auðs og lífsgæða," sagði Runólfur. „Söngleikurinn segir á léttan og skemmtilegan hátt sögu einnar reykvískrar fjölskyldu, frá degin- um fyrir hernám Breta og allt fram til friðardagsins 1945. Fylgst er með því hvernig líf þesarar fjölskyldu breytist með tilkomu hersins, fyrst breska og síðar þess bandaríska. Fjallað er um njósnir Þjóðverja og sögð saga íslenskra stjórnmála sem leiddu til sjálfstæðis 17. júní 1944. Söng- leikurinn gerist í Reykjavík og á Þingvöllum og við sögu koma, auk áðurnefndrar fjölskyldu, margir þjóðkunnir menn þeirra tíma ásamt ótöldum fjölda hermanna og íslensku þjóðinni." Runólfur kvað „Land míns föð- ur“ vera eina viðamestu sýningu sem LR hefði ráðist í frá stofnun þess 1897. Tók það Kjartan þrjú ár að skrifa söngleikinn og hafa æf- ingar staðið yfir síðan í maíbyrjun. Atli Heimir Sveinsson, tónskáld, hefur sem fyrr segir samið tónlist við söngtexta Kjartans. Þetta er annað verkefnið sem þeir vinna saman, því Atli Heimir samdi tón- listina við leikgerð Kjartans Ragn- arssonar á Ofvitanum eftir Þór- berg Þórðarson. Morgunblaðið ræddi stuttlega Morgunblaðið/RAX Breskur hermaður býður sígarettur, f.v. Aðalsteinn Bergdal, Ragnheiður Arnardóttir, Hallmar Sigurðsson, Helgi Björnsson og Sigrún Edda Bjömsd- óttir. við Atla Heimi og spurði hann fyrst hvernig honum fyndist að semja tónlist svo ólíka þeirri sem hann hefði áður samið. „Ég kann því afskaplega vel. Vissulega er það sérgáfa að semja góðan slagara en ég hef lengi haft áhuga fyrir þess konar tónlist og alltaf langað til að skrifa söng- leik,“ sagði Atli Heimir. „Tónlistin dregur töluvert dám af tónlist stríðsáranna og blanda ég henni saman við þekkta slagara frá þeim tíma. Tveir kennarar mínir í Þýskalandi höfðu mikinn áhuga fyrir slagaratónlist og vaknaði þá áhugi minn. Á námsárum mínum útsetti ég því m.a. slagara fyrir útvarpið í Köln og hef svo verið að semja dálítið fyrir vini mína í gegnum árin. En það er nú meira í gríni." V/SA E EUROCARD Ný þiónusta Greiöslukortaviöskipti Nú geta auglýsendur Morgunblaösins greitt aug- lýsingar sínar meö greiöslukortum VISA og EUROCARD. Auglýsendur geta hringt inn auglýsingar, gefiö upp kortnúmer sitt og verður þá reikningurinn sendur korthafa frá VISA og EUROCARD. Um leiö og þessi þjónusta veröur tekin upp þá munum viö jafnframt veita þeim sem staögreiða auglýsingar 5% afslátt. iHiKgtiiiÞisfetfr Auglýsingadeild Doktor í félagssálfræði GUÐMUNDUR Bjarni Arnkelsson varði í júlí sl. doktorsritgerð í félags- sálfræði við sálfræðideild Vanderbilt University í Nashville í Tennessee- fylki í Bandaríkjunum. Ritgerðin nefnist „Ability Appraisal via Social ('omparison: The Impact of Perform- ance-Related Factors“, og fjallar um ályktanir á eigin hæfileikum með samanburði við aðra. Aðalkennari hans var dr. William P. Smith. Guðmundur fæddist í Reykjavík 6. janúar 1957, sonur Arnkels Jón- asar Einarssonar, vegaeftirlits- manns, sem er nýlátinn, og Elínar Ágústu Jóhannesdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Sund vorið 1977, BA-prófi í sálfræði með heimspeki sem aukagrein við Háskóla ts- lands vorið 1981 og meistaraprófi í Dr. Guðmundur Bjarni Arnkelsson félagssálfræði við Vanderbilt Uni- versity 1984. Guðmundur er kvæntur Hildi Þóru Hallbjörnsdóttur og eiga þau einn son. Guðmundur starfar við Fræðsluskrifstofu Reykjanesum- dæmis. Helsingfors: Fyrsta íslenska kvikmyndavikan haldin í Finnlandi WALHALLA og Islandia (vinátturfé- lag íslands og Finnlands í Finn- landi) efna í sameiningu til íslenskr- ar kvikmyndaviku í Helsingfors dag- ana 25. til 29. nóvember nk. Þetta er í fyrsta sinn, sem efnt er til kvik- myndaviku í Finnlandi með íslensk- um kvikmyndum cingöngu. Mark- mið hennar er að auka þekkingu manna í Finnlandi á íslenskum kvikmyndum og íslenskri menningu. tslenskar kvikmyndir verða sýndar virka daga kl. 16.30 í húsa- kynnum kvikmyndahússins Illus- ion í Helsingfors. Nokkur hluti dagskrárinnar verður einnig sýnd- ur í kvikmyndahúsinu Pirkka í Tammerfors. í Tammerfors mun kvikmyndamiðstöðin Pirkanmaa standa fyrir framkvæmd sýn- ingarinnar. Eftirtaldar myndir verða sýndar meðan á kvikmynda- vikunni stendur: Land og synir, Andra dansen, Atómstöðin, Hrafninn flýgur og irnar hafa ekki áður verið sýndar í Finnlandi. Hrafn Gunnlaugsson, sem hefur stjórnað gerð myndarinnar Hrafninn flýgur, mun verða í Finnlandi meðan kvikmyndavikan fer fram. Hann mun kynna áhorf- endum mynd sína. í tengslum við kvikmyndavik- una verður gefinn út bæklingur á finnsku og sænsku, sem fjallar um íslenskar kvikmyndir. Þar munu verða fræðilegar upplýsingar um þær leiknu íslensku myndir, sem framleiddar hafa verið til þessa í fullri lengd á íslandi. Jafnframt verður gefið yfirlit yfir íslenskar nútímamyndir, stuttar myndir og heimildarmyndir meðtaldar. Auk almennra sýninga ætlaðar kvikmyndahúsagestum munu skólanemendur á höfuðborgar- svæði Helsingfors eiga þess kost að panta sýningar á íslenskum kvikmyndum kl. 14.00 virka daga í kvikmyndahúsinu Illusion. TFrMtfltillrvnninf* I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.