Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985
Egilsstaðir:
Kappkostum að færa
þjónustuna til fólksins
— samstarfsnefnd landssamtaka fatlaðra
efnir til námskeiða fyrir foreldra
Kgibwtöóum, 29. september.
í DAG lauk í Hússtjórnarskólanum
í Hallormsstað tveggja daga nám-
skeiði fyrir aðstandendur fatlaðra
barna er sérstök samstarfsnefnd
fjögurra landssamtaka fatiaðra
gekkst fyrir, I>andssamtökin þroska-
hjálp, Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra og Styrktarfélag vangef-
inna. Slík námskeið hafa áður verið
haldin í Ölfusborgum við Hver-
agerði fyrir réttu ári og Reykjan-
esskóla við ísafjarðardjúp fyrir hálf-
um mánuði.
Að sögn þeirra Ástu Baldvins-
dóttur, félagsráðgjafa Styrktarfé-
lags vangefinna og Láru ólafs-
dóttur Burgess, tannlæknis, sem
er fulltrúi foreldra í undirbún-
ingsnefnd námskeiðanna, er ætl-
unin að efna til slíkra námskeiða í
öllum kjördæmum landsins i sam-
vinnu og samráði við svæðis-
stjórnir á hverju starfssvæði.
Á námskeiðum þessum eru
haldnir fyrirlestrar um ýmsa
þætti fötlunar, greint frá hjálp-
artækjum, tryggingamálum og
öðrum réttindamálum fatiaðra, en
að sögn þeirra Ástu og Láru eru
mikil brögð að því að aðstandend-
ur séu ekki nægilega vel upplýstir
um rétt sinn. Þá er fjallað um fjöl-
skyldu fatlaða barnsins, einkum
hvað tekur til félagslegra og sál-
fræðilegra þátta.
Upphaflega kom hugmyndin að
námskeiðum þessum frá Sjálfs-
björgu, landssambandi fatlaðra,
og var sérstök samstarfsnefnd
iandssamtakanna fjögurra kosin
til að annast framkvæmd og und-
Hjartans þakkir fœrum vid börnum okkar og
fjölskyldum þeirra, ættingjum og vinum sem
minntust okkar með heimsóknum, gjöfum og
hlýjum kveðjum á merkisafmælum okkar í
sumar.
Ingibjörg og Jóhannes
frá Flóðatanga.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Leifsgata
Barónsstígur
Morgunblaðið/ólafur
Starfsmenn og nokkrir fyrirlesarar á námskeiðinu, talid frá hægri: Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, starfsmadur sam-
starfsnefndar Landssamtaka fatlaðra, Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur, Sigríður Þorvaldsdóttir, starfsmaður Svæð-
isstjórnar á Austurlandi, Einar Hjörleifsson, sálfræðingur, Asta Baldvinsdóttir, félagsráðgjafi og Sveinn Már
Gunnarsson, barnalæknir.
irbúning. Samstarfsnefndin fékk
síðan fjárveitingu hins opinbera
til að ráða sér starfsmann í 30%
starf og var Sigurlaug Gunn-
laugsdóttir ráðin til starfans.
Námskeiðin miðast við það að
öll fjölskyldan taki þátt og því er
skipulögð dagskrá á námskeiðs-
stað fyrir börnin meðan foreldr-
arnir taka þátt í námskeiðshaid-
inu.
Þær Ásta og Lára kváðust mjög
ánægðar með framgang nám-
skeiðsins á Hallormsstað. Þátt-
taka hefði verið dágóð, 15 manns
tóku þátt í öllu námskeiðinu víðs
vegar af Austurlandi og í einu til-
fellinu hefði ekki aðeins nánasta
fjölskylda fatlaða barnsins tekið
þátt heldur einnig afi og amma.
Fjórtán börn fylgdu foreldrum
sínum til námskeiðsins þar af átta
fötluð.
„Það er afskaplega nauðsynlegt
að foreldrar fatlaðra barna kynn-
ist innbyrðis," sagði Lára ólafs-
dóttir Burgess, „og þessi námskeið
stuðla að því. Framhaldsnámskeið
eru því bráðnauðsynleg til að auka
enn frekar þau tengsl og koma í
veg fyrir að þau rofni," sagði Lára.
„Námskeiðin glæða líka skilning
innan fjölskyldunnar," sagði Ásta.
„Og á framhaldsnámskeiðum væri
æskilegt að fjalla sérstaklega um
efnið „hvernig er að vera systkini
fatlaðs barns“.“
Á námskeiðinu á Hallromsstað
kynnti Sigríður Þorvaldsdóttir
starf svæðisstjórnar á Austur-
landi, Kristín Jónsdóttir kynnti
rétt fatlaöra gagnvart tryggingum
og sálfræðingarnir Jóhann Thor-
oddsen og Einar Hjörleifsson
fluttu erindi auk Sveins Más
Gunnarssonar barnalæknis og
Snæfríðar Egilson iðjuþjálfa.
— Ólafur
Formannaskipti í Sjálf-
stæðisfélagi Fljótsdalshéraðs
K^il.sNtöóum, 29. september.
Á AÐALFUNDI Sjálfstæðisfélags
Fljótsdalshéraðs er haldinn var nú í
vikunni var Einar Rafn Haraldsson,
framkvæmdastjóri, einróma kjörinn
formaður félagsins — en fráfarandi
formaður, Páll Pétursson, baðst
eindregið undan endurkjöri.
Nýkjörinn formaður kvaðst
bjartsýnn á framtíðina enda stór-
hugur ríkjandi meðal félagsmanna
að hans mati. í deiglunni er undir-
búningur sveitarstjórnarkosninga
svo að verkefnaskortur mun ekki
hrjá hina nýju stjórn að sögn
formanns. Þá eru útgáfumál og
félagsaðstaða sjálfstæðismanna á
Héraði í gagngerðri athugun.
Aðrir í stjórn Sjálfstæðisfélags
Fljótsdalshéraðs eru: Páll Péturs-
son, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Guðmundur Steingrímsson og
Ingunn Jónasdóttir.
Um næstu helgi verður aðal-
fundur Kjördæmisráðs Sjálfstæð-
Morgunblaðift/ólafur
Einar Rafn Haraldsson, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisfélags Fljótsdals-
héraðs, og Páll Pétursson, fráfarandi formaður.
isflokksins á Austurlandi haldinn stæðismanna verður á Eskifirði
á Fáskrúðsfirði og haustmót sjálf- að aðalfundi loknum. — Ólafur.
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar J
XFélagsstorf \Sjálfstœðisflokksins\ Akurnesingar Framhaldsskóla- Fundur um bæjarmálefni veröur haldinn í Sjálfstæöishúslnu v/Heiðar- — — m —J . . _ braut sunnudaginn 6. október kl. 10.30. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- ■ 1 111 bllUU1 flokksins mæta á fundinn. Skólanefnd Heimdallar stendur fyrir opnu húsi í kjallara Valhallar föstu- Sjálfstæöisfélögin Akranesi. daginn 4. október kl.21.00. Léttar veitingar og tónlist. Mætiö á staöinn og eigiö huggulega kvöldstund meö skemmtilegu fólki.
Frá Félagi sjálfstæöismanna í Nes- og Melahverfi Nú fer aö styttast i aöalfund félagsins og því hvetur gjaldkerinn alla þá félagsmenn sem ekki hafa greitt útsendan gíróseöil fyr>r félags- gjaldiársins 1984-1985 kr. 200,00 aö gera skil hiö allrafyrsta. Greiösluna má inna af hendi i öllum bönkum og sparisjóöum, svo og i öllum útibúum bankanna. Ennfremur á aöalpósthúsinu og útibúum þess. TAKMARKIDER — VERDUM SKULDLAUS FYRIR ADALFUND. Stjórnin. Nefndin. Sjálfstæðisfélag Skagfirdingar D essastaöahrepps Aöalfundur Víkings FUS i Skagafiröi verður haldinn í Sæborg föstudag- ■ “ inn 4. október kl. 20.30. Sjálfstæöisfélag Bessastaöahrepps heldur félagsfund í dag fimmtu- Dagskrá: daginn 3. október kl. 20.30 að Bjarnastööum. 1. Venjuleg aöalfundarstörf. Dagskrá: 2. Inntakanýrrafélaga. Almennar umræöur um málefni hreppsins og félagsstarfiö i vetur. 3. önnur mál. Gestur fundarins veröur Ölafur G. Einarsson, alþingismaöur. Ungt fólk hvatt til aö f jölmenna. Stjórnin. Stjórnin.