Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985
25
AP/Símamynd
Heimsmet á reiðhjóli
Brezki íþróttagarpurinn Richard Crane setti í gær heimsmet er hann
hjólaði á svokölluðu Bluebird-hjóli, sem er á meðfylgjandi mynd, 41,2
mílu eða 66,3 kflómetra, á einni klukkustund. Metið var sett í nágrenni
Birmingham í Englandi. Gamla metið var í eigu Bandaríkjamanns og
var 37,5 mflur. Þess má geta að Richard Crane vann sér til frægðar
að hlaupa eftir Himalayafjöllunum þverum og endilöngum ásamt bróður
sínum fyrir þremur árum.
Deilt um framleiðslu-
kvótann á fundi OPEC
írakar krefjast aukinnar hlutdeildar
Vín, 2. október. AP.
ÞAÐ kom til mikillar deilu milli
íraks og frans á fundi OPEC, sam-
taka olíuútflutningsríkjanna, í Vínar-
borg í dag. Þessi tvö ríki eru sam-
herjar innan OPEC, enda þótt þau
eigi í grimmilegri styrjöld sín á milli.
Deilan nú á rót sína að rekja til
þess, að frakar, sem opnað hafa nýja
afkastamikla olíuleiðslu til Saudi-
Arabíu, krefjast nú aukinnar hlut-
deildar í framleiðslukvóta OPEC-
ríkjanna. Er talið, að þessi krafa eigi
eftir að draga mjög úr líkum á því,
að samkomulag náist á OPEC-fund-
inum nú.
Fulltrúar allra OPEC-ríkjanna
13 sitja þennan fund. Auk íraks
krefjast Equador, Gabon og Quat-
ar meiri hlutdeildar en áður í
framleiðslukvóta samtakanna.
Qassim Taki, olíumálaráðherra
írans sagði, að land hans myndi
ekki sætta sig við minni kvóta en
2 millj. tunnur á dag, en til þessa
hefur dagleg framleiðsla Iraks
ekki mátt vera meiri en 1,2 millj.
tunnur. Sagði Taki ennfremur, að
með nýju olíuleiðslunni til Saudi-
Arabíu ættu írakar auðvelt um vik
með að auka olíuframleiðslu sína
stórlega.
Samtímis því sem Taki gerði
frettamönnum grein fyrir þessu,
sat Mohamad Gharazi, olíumála-
ráðherra írans hinum megin við
fundarborðið ásamt hópi frétta-
manna. ítrekaði hann þar hvað
eftir annað, að stjórn sín myndi
aldrei leyfa það, að írakar fengju
að auka framleiðslumagnið.
Þrátt fyrir þá spennu, sem stríð-
ið milli írans og íraks hefur skap-
að innan OPEC, þá hefur stríðið
átt mikinn þátt í því, að olíuverðið
hefur ekki fallið. Olíuverðið hefur
þvert á móti hækkað að undan-
förnu og þá fyrst og fremst vegna
minnkandi olíuútflutnings írans.
Þessi samdráttur á rót sína að
rekja til stórfelldra loftárása Ir-
aka á aðalútflutningshöfn írana á
Kharg-eyju. Er talið, að olíufram-
leiðsla Irana hafi minnkað um
milljón tunnur á dag að undan-
förnu af þessum sökum og sé nú
aðeins um hálf millj. tunnur á dag
í staðinn fyrir 1,5 millj. tunnur
áður.
Nýtt lyf við ónæmis-
tæringu lofar góðu
Minneapolis, 2. okióber. AP.
GREINT var frá því í dag að tilraunir á nýju lyfi á tilraunastofum
sýndu að koma mætti í veg fyrir að ónæmistæringarvírusinn skipti sér
og réðist á blóðkorn. Sagði einnig, að tilraunir á byrjunarstigi gæfu til
kynna að hættulaust væri að gefa ónæmistæringarsjúklingum lyfið.
„Að minni hyggju lofar lyfið lyfið stöðvar efnahvarfið, sem fer
góðu. Þetta er eitt öflugasta lyfið
við ónæmistæringarvírusnum,"
sagði Dr. Hiroaki Mitsuya, sem
starfar við bandarísku krabba-
meinsstofnunina. „Kosturinn við
þetta lyf er sá, að það hefur ekki
virst jafn eitrað í tilraunum og
önnur lyf gegn ónæmistæringu,"
sagði Dr. Mitsuya ennfremur.
Lyfið hefur verið skýrt efna-
samband-S af framleiðanda,
lyfjafyrirtækinu Burroughs
Wellcome, en efnasambandið
heitir azidotymidin.
Það hefur valdið erfiðleikum
við að vinna bug á ónæmistær-
ingu hversu erfitt er að ráða við
vírusa almennt og sérstaklega
ónæmistæringarvírusinn. Nýja
fram þegar ónæmistæringarvír-
usinn skiptir sér inni í hvítum
blóðkornum.
Sérfræðingar hafa sagt að
mikilla rannsókna sé enn þörf,
áður en unnt er að segja til um
hvort lyfið muni skipta sköpum
í baráttunni gegn ónæmistær-
ingu.
Og Mitsuya sjálfur segist hóf-
lega bjartsýnn um að fullkomna
megi lyf þetta með þeim þannig
að önnur og háþróaðri lyf verði
reist á efnasambandi-S.
Skýrslur um rannsóknir á
efnasambandi-S voru kynntar á
ráðstefnu bandaríska örveru-
rannsóknarfélagsins.
f^NfAikinn
s «51*9