Morgunblaðið - 03.10.1985, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985
Eskifjörður:
• Bókasafnið í
nýtt húsnæði
Eskifirdi, 30. aeplcmber.
HÉRAÐSBÓKASAFN Eskifjarðar
flutti nýlega í glæsilegt húsnæði í
nýja grunnskólanum, en bókasafnið
var fram að því til húsa í félagsheim-
ilinu Valhöll og var þar löngu orðið
þröngt um safnið.
Á nýja staðnum er aðstaða mjög
góð, m.a. er þar lesstofa, sem er
nýjung hér. Skólabókasafnið hefur
nú verið sameinað héraðsbóka-
safninu og er að því mikið hag-
ræði. Hjónin Auður Valdemars-
dóttir og Guðjón Björnsson hafá
veitt bókasafninu forstöðu og hef-
ur Auður nú verið ráðin aðalbóka-
vörður safnsins.
Ævar
Auður Valdemarsdóttir, aðalbókavörður, og Guðjón Björnsson í nýja bókasafninu.
Morgunbladid/Ævar
Gavle
DIPLOM
DIPLOM — Einfalt, fallegt, ódýrt.
DIPLOM-þakefniö er frá Gavle Verken í Svíþjóó.
DIPLOM-þakefniö jafnast á vió tígulsteinsþak í
útliti, en hefur ótrúlega marga kosti umfram þau.
DIPLOM er létt og allir fylgihlutir eru fáanlegir og
því er DIPLOM auóvelt og einfalt í uppsetningu.
DIPLOM-þak hefur mikió veórunarþol og endist
því vel, jafnvel í okkar norölæga veóurfari.
Síóast en ekki síst er veróió á DIPLOM mjög
hagstætt.
Skemmuvegi 2, Kopavogi.
Sími 41000.
Dalshraun 15, Hafnarfirdi.
Sími 54411 — 52870.
BYKO
Útivist:
Fimm þúsund far-
þegar á tíu árum
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist hefur á
sínum 10 ára ferli haft það að
aðalmarkmiði að stuðla að útivist
almennings, einkum með því að
skipuleggja lengri og skemmri
ferðir um ísland. í þessum ferðum
hefur aðaláherslan verið lögð á
gönguferðir og útiveru. Einnig
gefur félagið út ársrit með fjöl-
breyttu ferðaefni til hvatningar á
ferðalögum innanlands.
Útivistarferðir skiptast í
dags-, helgar- og lengri ferðir.
Dagsferðir eru í nágrenni höfuð-
borgarinnar og í Þórsmörk.
Helgarferðir eru 'ýmsa staði
sumar sem vetur, en af þeim eru
Þórsmerkurferðir langvinsæl-
astar. í Þórsmörk á Útivist ein-
mitt góðan gistiskála með svefn-
plássi fyrir 90—100 manns.
Um þessar mundir er far-
þegafjöldi í Útivistarferðum árs-
ins að nálgast 5.000 í um 170
ferðum. Um næstu helgi (4.-6.
okt.) er búist við að fimm þús-
undasti farþeginn komi í ein-
hverja af þeim Útivistarferðum,
sem þá eru á dagskránni, og
munu honum verða veitt sérstök
ferðaverðlaun. Allt árið í fyrra
voru 4.490 þátttakendur svo nú
stefnir í talsverða aukningu. Um
helgina verða farnar helgarferð-
ir í Jökulheima, Veiðivötn og
Þórsmörk, en það verður síðasta
einsdagsferðin í Þórsmörkr'Tíl.
10.30 verður gengin ný gönguleið
á Reykjanesskaga. Gengið verður
frá Þórðarfelli um Haugsvörð-
ugjá að Reykjanesi. Kl. 13 verður
gengið um fjölbreytta strand-
lengju frá Háleygjabungu að
Reykjanesi. Á Reykjanestá verð-
ur m.a. skoðuð Valborgargjá og
Valborgarvilpa, sérstæð volg
sundlaug frá náttúrunnar hendi.
Á næstkomandi þriðjudags-
kvöld verður fyrsta myndakvöld
vetrarins haldið hjá Útivist í
Fóstbræðraheimilinu og hefst
það kl. 20.30.
(FrétUtilkynning)
Snoturlega gert
Hljómplötur
SiguröurSverrisson
The Seventy Sevens
All fall down
Exit/Jata
Fyrir nokkrum vikum fjallaði
ég ítarlega um plötur Resurrec-
tion/Rez Band hér í Morgun-
blaðinu. Það vakti nokkra athygli
að fjallað skyldi um trúarlega
rokktónlist í blaðinu en þar sem
mikið úrval er af góðri popp- og
rokktónlist af þeim meiði er
ætlunin að reyna að gera henni
betri skil. Það er útbreiddur
misskilningur að trúarleg tónlist
sé ekkert nema eitt allsherjar
halelúja og Jesús lifir. Það sanna
t.d. bæði Rez Band, The Seventy
Sevens, Servant og fleiri slíkar
sveitir.
Seventy Sevens er skipuð fjór-
um ungum tónlistarmönnum
sem hafa — þrátt fyrir ungan
aldur — afbragðsgott vald á því
sem þeir eru að gera. Tónlist
þeira er að uppistöðu það sem
kalla mætti hefðbundið nútíma-
rokk en þó sækja fjórmenning-
arnir áhrif til nokkurra sveita,
sem þekktar eru fyrir góða tón-
list þótt ekki sé hún trúarleg.
Nefni ég hér aðeins Police og
Ultravox. Áhrifa þeirra síðar-
nefndu gætir talsvert finnst mér
á þessari plötu og er ekki leiðum
að líkjast.
Þessi plata Seventy Sevens,
sem hér er fjallað um, kom út í
fyrra og umfjöllunin því nokkuð
sein á ferðinni. Það breytir þó
ekki þeirri staðreynd, að sjálfir
hafa Seventy Sevens-menn verið
nokkuð seinir að nýta sér þær
nýjungar sem fram komu í kring-
um 1979—80. Tónlistin er þó alls
ekki verri fyrir vikið en óneitan-
lega laus við nýjungar.
Þótt tónlist Seventy Sevens
flokkist undir rokk trúarlegs
eðlis eru textar þeirra ekki svo
mjög trúarlegir. Margir þó vel
samsettir en ekki kannski bein-
skeyttir. Besta lag plötunnar er
að mínu viti Ba-ba-ba-ba.
HVER SEM ER GETUR RAÐAÐ UPP RAÐVEGGJUM
Margir húsbyggjendur reyna að vinna sem mest sjálfir í húsum sínum,
og hafa Raðveggir ótvíræða kosti fyrir þessa aðila.
Hin hárrétta hönnun á plötutengjunum gerir þad að verkum að einingarnar eru algjörlega
lausar vid innri spennu og veggirnir verða því alltaf sléttir og beinir,
sama hver setur þá upp.
Sóustaðir
Qeykiavif
lnnréttingarmðs1<*)ðin
Ármúla 17a
Simor 91-64586. 64461
Akranes
^udlaugur Magnusson
Skardsbrout 19
Simt
Sigjfjó'do-
Bi/ur n*
Pónorgótj 16
Srrrv 96- 7 »633
Akureyi
Bynor
Gierórgótu 30
Simi 96-26449
Egilsstadir
Trésmidja Fljótsdólshéraðs
Feiiabœ
Sím. 97-4 700
Neskaupstaður
7aimi hf
B-gótu 3
Simt 9v-7ó05 ■
Ves tmannae/jar
Brimn0$
Stroravegi 54
- Sim*-98-.220
Seifoss
■> t* BóðvarSSO'-
Austurvegi ' 5
Simi 99-335
Kefiavik
B/ggmgavai
'ða/ÓMun
• Sirrw 92-4500.
FJALAR h/f
Húsavík
Sími 96-41346