Morgunblaðið - 03.10.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985
51
•m
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ny
Nú er rætt um fleiri háskóla á tslandi. Vonandi verda næg bflastæði við þær stofnanir, til að örþreyttir nema skél-
ans þurfí ekki að leggja ökutækjum sínum upp á gangstéttum.
Fleiri háskóla
HUSB YGGJENDUR
GERIÐ GÓD KAUP
Vegna breytinga seljum vid á tiibodsverdi
■tr sýningareldhús
tr badinnréttingar
tr fataskápa
tr innréttingu í þvottahús
tr innréttingu í unglingaherbergi
tr staka skápa
tr eldhúsvaska
tr Blomberg heimilistæki
tr og ýmislegt fleira
Kalmar
Skeifan 8 Reykjavík
Sími 82011
Eyþór Þórðarson skrifar:
Ýmsum þykja menntamálin
orðin óhóflega dýr, og þörf sé á
að draga þar nokkuð úr kostnaði.
Norðlendingar virðast þó vera þar
á annarri skoðun.
Undir forystu þeirra bræðra,
Ingvars alþingismanns og Tryggva
skólameistara samþykkti Fjórð-
ungsþing þeirra Norðlendinga —
haldið að Laugum í haust — ein-
róma að nauðsynlegt væri að fá
háskóla, eða a.m.k. útibú frá Há-
skóla íslands til Akureyrar sem
allra fyrst, ef ekki í haust þá næsta
haust.
Skiptir þá ekki máli, þótt þjóðin
stynji undir rekstri eins háskóla,
né heldur hitt, að þegar er orðin
nokkur „offramleiðsla" á fólki með
háskólapróf. Þó er sífellt heimtað
háskólapróf til æ fleiri starfa, sem
áður voru unnin sæmilega af
minna lærðu fólki. „Hvað varðar
mig um þjóðarhag", var haft eftir
þekktum Siglfirðingi forðum.
Finnast enn Norðlendingar, sem
undir þau orð geta tekið?
Þegar fréttist um samþykkt
Norðlendinganna, sáu Vestmann-
eyingar að þeim kæmi vel, að fá
háskólaútibú til sín í Eyjarnar.
Vestfirðingar og Austfirðingar
hafa ekki enn gert kröfur um að
fá slík útibú til ísafjarðar og
Egilsstaða, en að því hlýtur að
koma innan tíðar. Þeir hljóta að
hafa sömu þarfir og hinir og sama
rétt.
Mikið hljóta íslendingar að
verða sælir, þegar Háskóli fslands
verður kominn með kálf í hverjum
landsfjórðungi. Þá getur hver og
einn lokið sínu háskólanámi á
heimaslóð. Annar hver eða a.m.k.
fjórði hver fslendingur getur þá
hampað háskólaprófi og hvergi
finnst lengur heimskt heimaalið
barn á landinu!
Endurtakið „Guðað á gluggann“
Kæri Velvakandi.
Sunnudaginn 22. september sl.
var ágætur þáttur í Ríkisútvarp-
inu, Guðað á gluggann, sem vakti
óskipta athygli mína. Hann var
hinsvegar það síðla kvölds, hófst
ekki fyrr en klukkan 11.30, að fjöl-
margir, sem ég hefrætt við, misstu
af honum.
Efni þáttarins tengdist minni
heimabyggð, Siglufirði; stutt
skemmtileg viðtöl við Elínu Páls-
dóttur, prestsfrú á staðnum, og
Sigurjón Sæmundsson, prent-
smiðjustjóra og fyrrverandi bæj-
arstjóra. Ekki skemmdi það þenn-
an ánægjulega þátt að karlakórinn
Vísir tengdi efnisþætti saman með
ágætum söng.
Þáttur þessi fór fram hjá fjöl-
mörgum, fyrst og fremst vegna
þess hve síðla kvölds hann var á
dagskrá. Það eru því tilmæli mín
til forsjármanna þessa efnis í RÚV
að þátturinn verði endurtekinn.
Eg vil svo nota tækifærið til að
þakka sér Vigfúsi Þór Árnasyni,
sóknarpresti Siglfirðinga, fyrir vel
fluttar morgunbænir í útvarpinu
fyrr í þessum mánuði. Siglfírðingur
Hvar er aðdáendaklúbbur Duran Duran?
Hrútur skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég er mikill aðdáandi hljóm-
sveitarinnar Duran Duran, sem
reyndar er ekki í frásögur færandi.
Vegna þessa áhuga míns er ég fé-
lagi í íslenska Duran Duran-
klúbbnum og hef greitt félags-
gjaldið sem krafist var við inn-
göngu í hann.
En þrátt fyrir gjaldið hef ég
ekki fengið send nein gögn frá
klúbbnum eða heyrt frá þeim hósta
né stunu, síðan að stofnfundur var
haldinn með pomp og pragt.
Reyndar hef ég verið erlendis í
Ása Björg, 9 ára skrifar:
Ég las það í blöðunum að nú
ætti að láta prestinn í Fríkirkjunni
hætta, hann Gunnar Björnsson. Ég
skil lítið í þessu en eitt er víst að
ég vil að hann haldi áfram.
Ég og bræður mínir förum í
barnamessur hjá honum og okkur
finnst það mjög gaman. Hann er
nokkurn tíma en ég skil ekki að
það ætti að hindra því að ég fengi
sent sem mér ber frá félaginu.
Nú skora ég á aðdáendaklúbbinn
að standa við fögur orð sín á stofn-
fundinum og nýta féð sem rann
Enn
Háttvirti Velvakandi.
Þulur má víða finna skráðar svo
sem í kverinu „Raula ég við rokk-
inn minn“, í safni Ófeigs J. Ófeigs-
sonar, í gömlum lesbókum barna
alltaf svo hress og kátur og ekki
háfleygur eða stífur eins og sumir
prestar. Það er svo erfitt að skilja
hvað þeir eru að meina, sumir
hverjir. Ég vil hafa Gunnar áfram
svo við systkinin getum farið í
barnamessur áfram.
Takk fyrir,
Ása.
til hans á þann hátt að félagar
geti notið góðs af. Siðast en ekki
síst vantar félagið opinbert heimil-
isfang, alla vega hefur félögum (
klúbbnum enn ekki verið skýrt frá
hvert það sé.
og ekki má gleyma þulum frú
Theodóru Thoroddsen. Allt er
skráð og ætti því ekki að geta
glatast.
En þulan, sem amma þín eða
móðir kenndi þér, þuluunnandi
góður, er ef til vill lítið eitt öðru-
vísi en hið skráða. En gerðu þér
grein fyrir því að sú breyting gefur
henni gildi.
Gera má ráð fyrir að lesendur
Velvakanda séu orðnir leiðir á
þulukvabbinu og mál sé að linni.
En ég vil hvetja fólk sem kann
þulur eða parta úr þulum til að
skrá þær á blað og geyma. Hver
og einn skrái þær óbreyttar eins
og þeir lærðu þær sem börn. Með
þessu má varðveita merk menn-
ingarverðmæti.
Meðkveðju,
Gaman í barnamess-
um hjá sr. Gunnari
um þulur
EMPUR
NYJIIN
ENDURNÝJUN INNANFRÁ er nómskeið fyrir
stjórnendur, sem vilja bœra rekstrarafkomu
fyrirtœkja sinna með eigin frumkvœöi og aö-
sfoö reyndra rekstrarráögjafa.
NÆSTA NÁMSKEIÐ fer fram 12. október og 31.
október til 2. nóvember n.k.
LEIÐBEINENDUR veröa rekstrarráögjafarnir:
Brynjar Haraldsson, Hvata s.f.
Davíö Guömundsson, Ráögaröi h.f.
Reynir Kristinsson, Hagvangi h.f.
ENDURNÝJUNINNANFRÁ er eftirsótt námskeiö
í Danmörku fyrir stjórnendur fyrirtœkja, sem
nota vilja eigin hugmyndir og vinnu til aö
bœta stjórnun og rekstur fyrirtœkisins undir
eftirliti rekstrarráögjafa. S.l. vetur hélt VSÍ þrjú
námskeið meö stjórnendum 18 fyrirtœkja og
árangur nú þegar kominn í Ijós.
UPPLÝSJNGAR gefur Esther Guömundsdóttir
hjá VSÍ í síma 91 25455.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST í SÍÐASTA LAGI
FIMMTUDAGINN 3. OKTÓBER N.K.
ixp vinnuveitendasamband íslands.
frú Eiríksson