Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
7
Sveinn Kinarsson
Almenna bókafélagið:
Barnabók
eftir Svein
Einarsson
ALMENNA bókafélagið hefur gefið út
bókina Gabríella íPortúgal eftir Svein
Einarsson, fyrrverandi Þjóðleikhús-
stjóra. Þetta er barnabók, sem Baltas-
ar hefur myndskreytt.
Sveinn Einarsson sagði á fundi
með blaðamönnum, þegar bókin var
kynnt, að fyrstu drög að henni hefðu
orðið til í fjölskylduferð til Portú-
gals fyrir nokkrum árum. „Ég skrif-
aði hana á morgnana, áður en aðrir
vöknuðu," sagði hann. Söguhetjan,
Gabríella, er 7-8 ára gömul stúlka,
sem fer með foreldrum sinum í
skemmtiferðalag til Portúgal. Bókin
greinir frá því sem þar hendir.
Bach-hátíð
í Skálholti
Skálholti, 20. nóvember.
Á sunnudag, 24. nóvember, sem er
síðasti sunnudagur kirkjuársins, verða
haldnir Bach-tónleikar í Skálholts-
kirkju og hefjast þeir klukkan 16.00.
EfnÍ88krá verður fjölbreytt og flytj-
endur margir.
Helga Ingólfsdóttir, semballeik-
ari, mun meðal annars flytja
franska svítu í G-dúr og Glúmur
Gylfason, organleikari, prelúdiu og
fúgu í C-dúr og prelúdíu f C-dúr.
Þá leika þær Helga Sighvatsdóttir
og Helga Ingólfsdóttir saman á
blokkflautu og sembal-þætti úr
verkum Bachs. Halldór Vilhelmsson
og Marta Halldórsdóttir syngja
söngva eftir Bach. Sigurður Hall-
dórsson og Hildigunnur Halldórs-
dóttir leika á celló og fiðlu þætti úr
einleiksverkum og Skálholtskórinn
syngur sálma úr jólaóratoríu Bachs.
—■ Björn.
Prófkjör Sjálfstœðisflokksins 24. og 25 nóv. 1985 - Stuðningsmenn
Styðjum Jiílíus
til áframhaldandi starfa
fyrir Reykvíkinga
Við, sem studdum Júlíus Hafstein í síðasta
prófkjöri fyrir fjórum árum,
endurnýjum nú þann stuðning
með mikilli ánægju.
Reynslan hefur svo sannarlega sýnt,
að okkar maður uppfyllti allar
þœr vonir sem við bundum
við hann.
Júlíus Hafstein er mikilvœgur styrkur sam-
hentum borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstœðis
flokksins
Júlíus
,5.
sæti
Vinsamleg tilmæli til verzlunareigenda
í gamla miðbænum
Opið til kl. 16 .
V erzlunareigendur!
Við biðjum ykkur vinsamlega að hafa verzlanir ykkar opnar til kl.
16.00 á morgun, laugardag. Það er mjög áríðandi að við samræmum
opnunartíma verzlana okkar við opnunartíma stórmarkaðanna. Sýnum
samstöðu.
STJÓRN FÉLAGS UM GAMLA MIÐBÆINN
\mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm