Morgunblaðið - 03.12.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Ég fagna þessari
ákvörðun Þorsteins
— segir Alexander Stefánsson um
fyrirhugaða niður fellingu lánskjara-
vísitölu af skammtímaskuldum
„ÉG FAGNA þessari ákvörðun fjármálaráðherra. Þetta er nú eitt af því sem
ég hef verið að puða við að fá rfkisstjórnina til að gera, en verið heldur
þungur róður, ekki síst vegna þess að bankakerfiö er þversum á móti
þessu,“ sagði Alexander Stefánsson um þá tillögu fjármálaráðherra, sem
hann hyggst flytja á ríkisstjómarfundi í dag, að ríkisstjórnin ákveði að
afnema lánskjaravísitölu á skammtímalánum og gefi bönkura fyrirmæli um
að skuldbreyta styttri lánum til lengri tíma.
„Ég tel löngu tímabært og nauð- stefnu næsta árs,“ sagði Alexand-
Nýr lögreglustjóri í Reykjavík
Morftunblaði/Júlfus.
synlegt að afnema verðtryggingu
af styttri lánum og jafnframt að
gefa einstaklingum kost á því að
skuldbreyta erfiðum lánum til
lengri tíma,“ sagði Alexander.
Hann var spurður hvað liði tillög-
um milliþinganefndar í húsnæðis-
málum, sem skipuð var í sumar:
„Mér er sagt að nefndin muni skila
áliti í þessari viku,“ sagði Alexand-
er, „og á von á því að þar komi
fram hugmyndir um hvernig best
sé að verja þeim aukatekjum,
6—700 milljónum, sem samþykkt
var í vor að skyldu renna til hús-
næðismála á næsta ári, auk ann-
arra tillagna um húsnæðismála-
BÖÐVAR Bragason tók formlega við embætti lögreglustjórans í Reykjavík á fundi með yfirmönnum í lögregl-
unni á sunnudagsmorgunninn.
Böðvar sagði í samtali við Morgunblaðið að það leggðist ágætlega í hann að taka við þessu embætti, „það
verður svo að koma í Ijós hvernig maður dugar í þessu starfi“ sagði hann.
Hér afhendir Sigurjón Sigurðsson fráfarandi lögreglustjóri Böðvari Bragasyni lyklana að húsnæði lögreglu-
stjóraembættisins að viðstöddum þeim Óskari Ólasyni, Bjarka Elíassyni, Árna Sigurjónssyni, Stefáni Hirst,
Guðmundi Hermannssyni og Hjalta Zóphóníassyni.
Samningur við Mikla norræna símafélagið rennur út um áramót:
Ekki búist við gjaldskrárlækkun-
um vegna krafna frá stjórnvöldum
— segir Jóhann Hjálmarsson blaðafulltrúi Pósts og síma
POSTUR og sími losnar úr sam-
starfí við Mikla norræna símafélag-
ið um áramót, en samningi við það
var sagt upp fyrir tveimur árum.
Talsambönd við útlönd verða nú
eingöngu í gegnum jarðstöðina
Skyggni, sem stofnunin er nú eig-
andi að, og getur hún því sjálf ráðið
verðlagningu á símaþjónustu við út-
lönd.
Jóhann Hjálmarsson blaðafull-
trúi Pósts og Síma sagði í samtali
við blaðamann að hann byggist
ekki við að símagjöld til útlanda
færu lækkandi í bráðina eins og
Breytir engu um gildi
uppsagna Hafskips
— segir Þórarinn V. Þórarinsson um áhrif
ákvæðis Ólafslaga á uppsagnir starfsfólks
ÞÓRARINN V. Þórarinsson lög-
fræðingur og aðstoðarframkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands ís-
lands segir að ekki sé hægt að ve-
fengja lagalegt gildi uppsagna Haf-
skips á starfsfólki með vísan til
Ólafslaga eins og stjórn Dagsbrúnar
gerir.
Umrætt lagagildi er á þá leið
að tveim mánuðum fyrir ráðgerð-
an samdrátt sem leiða mun til
uppsagna fjögurra eða fleiri
starfsmanna þurfi fyrirtæki að
tilkynna uppsagnirnar til félags-
málaráðuneytisins og viðkomandi
verkalýðsfélaga. Þórarinn sagði að
áhrif þessa lagaákvæðis hefði
verið kannað hjá VSÍ fyrir nokkr-
um árum. Niðurstaðan hefði orðið
sú að það breytti engu um gildi
uppsagna starfsfólks, enda gætu
slík lagaákvæði því miður ekki
haft áhrif á það hvort það kæmi
til samdráttur í rekstri fyrirtækja
eða ekki. Hann sagði að það eina
kæmi til skoðunar í þessu sam-
bandi væri hvort viðkomandi fyr-
irtæki gerðust brotleg með því að
tilkynna uppsagnirnar ekki, en
engin viðurlög virtust vera í lögun-
um.
„Menn verða að gá að því hver
tilgangur þessa lagaákvæðis var,“
sagði Þórarinn, „en hann var sá
að gefa stjórnvöldum og verkalýðs-
félögum kost á því að fylgjast með
atvinnurekstrinum almennt og
hugsanlegum samdrætti. Rekstr-
arerfiðleikar Hafskips hafa verið
mikið til umfjöllunar í fjölmiðlun
og hefur alþjóð fylgst með, þannig
að þessar uppsagnir ættu ekki að
koma þessum aðilum á óvart.“
fólk kannski ætti von á þar sem
stjórnvöld hafa uppi hugmyndir
um að rukka stofnunina um 250
milljónir króna á næsta ári. „í
fyrsta lagi er fyrirhugað að taka
150 ínilljónir króna af stofnuninni
og í öðru lagi er farið fram á að
Póstur og sími hraði afborgunum
sínum af langtímaskuldum sem
nema 100 milljónum króna. Því er
lítið svigrúm til gjaldskrárlækk-
ana úr því sem komið er, vegna
lakari fjárhagsstöðu stofnunar-
innar nú miðað við það sem áður
var fyrr á árinu. Greiðslubyrði
stofnunarinnar eykst því um 250
milljónir króna miðað við það sem
áætlað var í haust."
Póstur og sími þarf að greiða
hlutdeild Mikla norræna símafé-
lagsins í jarðstöðinni Skyggni nú
um áramót. Hún nemur 31 milljón
króna og eru þær á fjárlögum fyrir
árið 1986. Þá á stofnunin ógreiddar
viðskiptaskuldir vegna ársins 1985
og er gert ráð fyrir að það taki
eitt ár að greiða þær að fullu.
Stofnunin hættir því endanlega
samstarfi við símafélagið um ára-
mót samkvæmt gamla samningn-
um, en leigðar verða 12 varalínur
í Scottice sæsímanum, sem er eign
Mikla norræna símafélagsins, og
verða þær til taks ef Skyggnir
bilar. Varalínurnar kosta 3 til 4
milljónir á ári.
Símafélagið hefur fengið
greiðslu fyrir 48 rásir til Evrópu
og ákveðna símaumferð á þeim.
Skipta þær upphæðir nokkrum
tugum milljóna sem Póstur og sími
hefur þurft að greiða á ári.
Hvatning
til leng-
ingar lána
— segir Halldór
Blöndal alþingismaður
„ÉG ER algerlega sammála
Þorsteini Pálssyni fjármálaráð-
herra með að leggja til að lán-
skjaravísitölubinding skamm-
tímalána verði felld niður. Þetta
er nauðsynlegt eins og á stendur
og mun hafa góð áhrif út í þjóð-
félagið," sagði Halldór Blöndal
alþingismaður þegar leitað var
álits hans á þessum fyrirætlun-
um.
Halldór sagði að það væri
óeðlilegt að lán til skamms
tíma væru bundin við lán-
skjaravísitölu vegna þess að
hún mældi skyndisveiflur mjög
nákvæmlega. Um gagnrýni
bankastjóra á þessa fyrirætlan
sagði Halldór að íslenskir
bankar yrðu eins og erlendir
að geta búist við að vextir færu
niður fyrir verðbólgu í skamm-
an tíma þegar stuttar sveiflur
gengju yfir. Engin leið væri að
tryggja þá frekar en aðra fyrir
öllum áföllum.
Hann sagði að nú væri búið
að tryggja hag sparifjáreig-
enda vel og nú væri kominn
tími til að bæta stöðu skuldara
eitthvað og gerðist það með
þessu. Hann sagði að breyting
sem þessi myndi verða hvatn-
ing til lengingar lána þar sem
bankarnir myndu vafalaust
minnka meðallöng lán, lán sem
hvorki væru stutt né löng, eins
og tíðkast hefði svo mjög hjá
þeim.
Lögfræðingur Útvegsbankans kominn til Antwerpen:
Kröfum á Skaftána fjölgar enn
Biitasel, 2. desember. Frá Önnu Bjnrnadótt »r, fréturiura Mbl.
LÖGFRÆÐINGUR Útvegsbankans, Sveinn Snorrason, kom til Ant-
werpen í dag til að afgreiða mál Skaftárinnar, sera hefur legið kyrrsett
full af vörum og með 13 manna áhöfn í Antwerpen síðan 22. nóvember.
Hann vildi engar upplýsingar veita þegar það náðist í hann seint í eftir-
miðdag.
Beigískur lögfræðingur, sem
hefur annast mál Skaftárinnar,
sagðist hafa heyrt að það ætti
að leysa skipið út og það myndi
sigla um miðja vikuna. Ákveðið
var að losa skipið ekki í dag og
koma farminum ekki fyrir í skip
Eimskips, sem siglir frá Ant-
werpen á morgun, eins og jafnvel
stóð til.
Belgíska fyrirtækið Antigoon,
sem lestar og losar skip, lét
kyrrsetja Skaftána, en nú hafa
tvö þýsk fyrirtæki einnig krafist
kyrrsetningar skipsins. Annað
vann störf fyrir Hafskip í febrú-
ar og á um 1 millj. belg. franka
inni hjá fyrirtækinu, en hitt er
eigandi húsa og krefur Hafskip
um 6 millj. belg. franska skulda-
greiðslu. Skuldakröfurnar sem
nú hvíla á skipinu eru orðnar
hærri en verð skipsins á frjálsum
markaði samkvæmt heimildum
Mbl.
Belgíski lögfræðingurinn sagði
að hann hefði ráðlagt íslenska
skipafélaginu að semja við Ant-
igoon og fá bankatryggingu fyrir
skuldunum svo að skipið yrði
látið laust fyrir helgina. Hafskip
skuldar Antigoon 26 millj. belg.
franka. Lögfræðingurinn taldi
bókhaldsdeild fyrirtækisins hafa
varað stjórnendur Antigoon
nokkuð lengi við skuldaupphæð-
inni en þeir hefðu talið að um
skammtímavandamál væri að
ræða hjá Hafskip. „Það var til-
tölulega gamalt og stórt fyrir-
tæki og Antigoon hafði góð og
stöðug viðskipti við það. Stjórn-
endur hafa líklega borið traust
til fyrirtækisins og þess vegna
leyft skuldunum að hækka svona
mikið.“ Lögfræðingur Antigoon
sagði að viðskipti i skipasigling-
um væru ekki alltaf eins og best
væri á kosið: „Menn treysta
hverjum öðrum og taka og gefa
lofoð svo að hreyfing sé á hlutun-
um. En oft ganga hlutirnir ekki
upp og menn ganga á bak orða
sinna."
Guðmundur Halldórsson,
framkvæmdastjóri Eimskips-
skrifstofunnar í Rotterdam,
sagði að erfiðleikar Hafskips
væru farnir að hafa nokkur áhrif
á starf skrifstofunnar. „Það hef-
ur orðið einhver aukning á vörum
til íslands hjá okkur en við vitum
ekki fyrir víst hvort þær hefðu
annars farið með Hafskip," sagði
Guðmundur. „Við finnum hins
vegar að erfiðleikar Hafskips
hafa haft neikvæð áhrif á okkar
starf á Norður-Atlantshafsleið-
inni til Ameríku. Keppinautar
okkar setja samnefnara á milli
fyrirtækjanna og tala um „ís-
lendingana" eins og við séum
allir eins. Við stöndum í ströggli
við að sannfæra viðskiptavini
okkar um að Eimskip sé við bestu
heilsu. Þeir hugsa sig tvisvar um
áður enn þeir senda með okkur,
þó sérstaklega eftir að Dalsáin
var látin snúa til baka frá Banda-
ríkjunum full af vörum.“ Eigend-
ur hennar í Hamborg kröfðust
þess svo að hún yrði ekki kyrrsett
í New York. „Skipið sem fór frá
okkur til Bandaríkjanna í síðustu
viku var fullt," sagði Guðmund-
ur. „Og ég vona að Bakkafoss
verði fullur í næstu viku en við
þurfum að hafa meira fyrir því
og verðum að tala við alla við-
skiptavini okkar og segja þeim
að Hafskip og Eimskip hafi verið
tvö aðskilin fyrirtæki.“
Bragi Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Hafskipsskrifstof-
unnar í Rotterdam, sagði, að þeir
væru hættir að geta sagt fyrri
viðskiptavinum nokkurn hlut.
„Við fáum engar upplýsingar að
heiman," sagði hann. „Bankar og
lögfræðingar hafa tekið völdin í
sínar hendur og öll formfesta í
viðskiptum er rokin út í veður
og vind. Það er ekki verið að
hugsa um hvað er þægilegast
fyrir viðskiptavininn. Við erum
orðin ansi þreytt á þessu og
vinnum að þvi að loka skrifstof-
unni.“ Umboðsmaður Hafskips í
Antwerpen tók í sama streng og
sagðist engar upplýsingar fá,
ekki einu sinni upplýsingar um
að hlutirnir væru enn óráðnir.