Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 57
T
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
57
skipta til að koma bílnum á
venjulegan umferðarhraða.
Mazda 323 l,6i er framhjóla-
drifinn einsog aðrir í hans ætt
en þess gætir lítið í venjulegum
akstri. Þó ná dekkin ekki að
koma kraftinum til skila niður á
veginn þegar gefið er í í lágum
gír og og beygt um leið. Þá hrist-
ist bíllinn og skelfur að framan
og dekkin fleyta kerlingar á
malbikinu.
Vökvastýrið er mjög gott, ekki
of létt, og svörunin eins og best
verður á kosið. Mazda 323 l,6i
er ekki eins þýður og aflminni
bílar af sömu gerð, en þó væri
synd að segja að hann væri
hastur. Ökumaður og farþegar
verða varir við ójöfnur í vegi en
þó ekki svo að valdi óþægindum.
Þessi bíll er enginn nýrnaskekir
og fyrir utan hávaðann af vélinni
þegar henni er snúið hátt í gírun-
um er hann hljóðlátur, vind- og
dekkjadynur hverfandi lítill og
hvergi skrölt að heyra.
Það verður ekki af japönskum
bílaframleiðendum skafið að þeir
bjóða í bílum sínum ýmiss konar
þægindi fyrir ökumenn og far-
þega sem kaupendur flestra evr-
ópskra bifreiða verða að panta
sem aukahluti dýru verði. Mazda
323 l,6i er þar engin undantekn-
ing. Ljós kvikna í hurðum þegar
bíllinn er opnaður og ljósgeisli
vísar veginn að inntakinu fyrir
lykilinn bæði í hurðinni og fyrir
startið. Hægt er að stilla stýris-
hæðina eftir hentugleikum, og
sömuleiðis bílstjórasætið á ýmsa
vegu.
Sætin eru góð, áklæðið virðist
vandað. Allur frágangur á bíln-
um virtist góður. Farþegarými
aftur í er furðu gott miðað við
stærð bílsins, en heldur eru aft-
ari dyrnar þröngar. Miðstöðin er
fljótvirk og ekki hávær. Hægt
er að velja um fjórar stillingar
á henni.
í hnotskurn
Mazda 323 l,6i er fernra dyra
smábíll með kraftmikilli vél.
Hann er yfirlætislaus og vandað-
ur að allri gerð. Þessi bifreið
liggur vel á vegi án þess að vera
höst og vel er búið að farþegum.
Mazda 323 l,6i er á góðu verði.
Manneldisfélag íslands:
Félagsfundur um
hjartasjúkdóma
Manneldisfélag íslands boðar til
félagsfundar í stofu 101 í Odda,
hinu nýja hugvísindahúsi Háskóla
íslands, á morgun, miðvikudag, og
hefst hann kl. 20.30.
Á fundinum verða flutt tvö er-
indi um efni er tengjast hjarta-
sjúkdómum. Fyrst mun dr. Gunn-
ar Sigurðsson, yfirlæknir á Borg-
arspítalanum, sérfræðingur í
innkirtla- og efnaskiptasjúkdóm-
um, tala um „kolesteról efna-
skipti". Síðan mun Gestur Þor-
geirsson, sérfræðingur í almenn-
um lyflækningum og hjartasjúk-
dómum, fjalla um spurninguna
„Dregur fiskneysla úr kransæða-
sjúkdómum?"
(Fréttatilkynning)
Ný deild opnar í Gráfeldi
GRÁFELDUR í Bankastræti hefur
hafið sölu á dönskum gler- og krist-
alvörum frá Holmengaard of Copen-
hagen. Hefur verið opnuð ný deild á
2. hæð Gráfeldar-hússins við Banka-
stræti fyrir kristalvörurnar.
Á neðri hæð hússins er sem fyrr
deild meeð gjafa- og nytjavörur
ásamt deild með Lundia-furuhill-
um, járn-geymsluhillum, húsgögn- .
um og teppaflísum.
((Jr rrítutilkjaninpi)