Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
63
Hattur í samræmi
við innréttinguna
Sumir álíta aó kona sé ekki fullklædd nema að hatturinn sé kominn á
sinn stað, punkturinn yfir i-ið. David Shilling innanhússarkitekt og
hönnuður er aö minnsta kosti á þessari skoðun og hann hannar hatta á
margar af þekktustu konum heims. Þegar höfuðföt hans eru tekin ofan
skaðar ekki að hafa fengið hann sem innanhússarkitekt því þá hannar hann
hattana eftir útliti híbýla viðkomandi og þá má hengja upp til skrauts þegar
þcir eru ekki í notkun.
Twiggy snýr sér að
poppinu að nýju
Fyrirsætan Twiggy sem á sínum
tíma var meðal vinsælustu fyrir-
sæta í heimi hefur verið að syngja
af og til og ekki er langt síðan hún
lét fara frá sér lagið „Feel Love“.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að
syngja,“ sagði Twiggy, en sjaldan
gefið mér tíma til að sinna þessu
áhugamáli mínu. Eftir að ég var með
í söngleiknum „My One and Only“
á Broadway komst ég á lagið og hef
ekki losnað við bakteríuna síðan.“
Hundurinn bjargaði lífi fuglsungans
Hundurinn Natascha tók ný-
lega í fóstur litla fuglsungann
Spatzl. Og það er ekki til sá staður
í veröldinni sem Spatzl vill frekar
vera á en í hálsakoti hjá voffa
sínum.
Vinskapurinn hófst einn kaldan
eftirmiðdag í haust í Köln, Þýska-
landi, þegar Karin Forstback var
i göngutúr með hundinn og tveggja
ára gamla dóttur sína, Sabinu.
AUt í einu hvarf hundurinn úr
augsýn og Karin kallaði strax á
hann en sér til mikillar undrunar
birtist hundurinn ekki þegar hún
kallaði og það var ekki fyrr en
dálítilli stundu síðar að hann birt-
ist og var þá stoltur á svip með
litla vininn sinn. Fuglinn var þá
beinbrotinn og hálffrosinn. Við
fórum með Spatzl heim og hlúðum
að honum og síðan þetta gerðist
hafa þeir tveir verið óaðskiljanleg-
ir vinir, sagði Karin.
David Belafonte fetar
í fótspor systur sinnar
Shari Belafonte-Harper var fyrst
af börnum Harry Belafonte til
að stíga fram í sviðsljósið sem fyrir-
sæta og leikari í Bandaríkjunum, en
nú hefur David Belafonte, litli bróð-
ir, fetað í fótspor hennar. Nýlega
undirritaði hann samning við Ford
umboðsskrifstofuna og hyggst gera
það gott við sýningarstörf.
COSPER
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
Verslanir
KAYS
pöntunarlistans
Þú finnur góöar jólagjafir og úrval af fatnaöi: jóla
kjóla frá 798 kr., barnapeysur frá 398 kr., jogging-
gallar frá 720 kr., leikföng, skór og fleira.
Síöumúla 8, opiö frá 1-6
Hólshrauni 2 Hafnarfiröi
IMASHUA
Vlí
T'N I
b=i I L
I _T
LZD J
j—ue
D
Við höldum þvíhikloust from, oðNoshuo 4550 Z sé
fullkomnosto Ijósritunorvélin, sem er á boðstólum
ó íslondi í dag.
Við nefnum nokkro kosti:
• Nashua 4550Z Ijósritor sjólfvirkt bóðum megin.
• Noshuo 4550Z gefur kost ó 6 minnkunum. 3 stækkunum
og ..Zoomi'' fró 50% í I4l%.
• Nashuo 4550Z hefur spóssíustiliingu.
• Noshuo 4550Z tekur tvö sjálfstæð Ijósrit of bókaropnum.
• Noshuo 4550Z hefur sjálfvirkt vol ó minnkun/stækkun
(með frumritaramatara).
• Noshuo 4550Z skilor oð sjólfsögðu fyrsto flokks Ijósritum