Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Skammdegis-
birta
w
ABókaþingi rásar 1 síðastlið-
inn laugardag mætti meðal
annarra Þórhallur Vilmundarson
prófessor og las af blöðum föður
síns Vilmundar Jónssonar fyrrum
landlæknis. Sá lestur hreif mig
ekki síst vegna stílsnilldar höfund-
ar og einlægni. Lýsti Vilmundur
kynnum sínum af óbrotnum al-
þýðumanni Sigurði Vigfússyni en
sá var bókabéus hinn mesti og leit
varla upp úr bók þá tóm gafst.
Vilmundur var drenghnokki er
hann kynntist Sigurði og tókst með
þeim svo fögur vinátta að hræra
hlýtur steinhjarta lesandans. Slík
vináttubönd verða trauðla færð í
orð nema af snillingi. En hér má
hvergi auka orði inní frásögnina
er rýfur helgi, þess mannlega
sambands sem lýst er. Vilmundur
sagði það sem segja þurfti og
ekkert þar fram yfir og því snart
alskírt vináttubandið lesandann.
Gildi upplestrar
í útvarpinu er talsvert gert af
því þessa dagana að lesa bók-
menntatexta bæði á Bókaþingi og
í hinum ágæta Sagnaseiði Einars
Karls Haraldssonar á sunnudög-
um. Ég er sannfærður um að slíkir
upplestrar hafa margt sér til ágæt-
is. Sjálfur fæst ég við bókmennta-
kennslu og verð þess var að nem-
endur þyrstir í góðan texta þótt
stundum freisti nú myndbandið.
En það er nú svo að því aðgangs-
harðari er fjölmiðlarnir verða því
kærkomnari verður hinn innhverfi
heimur bókarinnar. Af miklum
myndarskap og stórhug hefir
Sverrir Hermannsson nýskipaður
menntamálaráðherra blásið í her-
lúðra og stefnt áhugamönnum um
varðveislu íslenskrar tungu og
bókmennta til þings í stuðlaberg-
inu við Hverfisgötu. Vonandi berst
sá lúðrahljómur inn í bergið til
þeirra er miðla af öldum ljósvak-
ans því tungutaki er gerir okkur
Islendinga að mönnum. Og þá er
margt óunnið í þessu efni í skólum
landsins, þar verðum við að efla
bókmenntakennslu á sem víðustu
sviði og vænta kennarar hér mikils
af hinum nýskipaða menntamála-
ráðherra. Þó vil ég vara við því sem
kennari að menn hlífist við í bók-
menntakennslu að beita þeim
hjálpargögnum er við ráðum nú
yfir svo sem myndbandstækjum.
Hér verður hið skáldlega innsæi
að ráða ferðinni ekki síður en hin
fræðilega afstaða.
Undir þiljum
í fréttaþættinum: Hér og nú er
Þeir Gissur Sigurðsson, Þorgrímur
Gestsson og Friðrik Páll Jónsson
stýrðu í vikulokin var meðal ann-
ars brugðið á það ráð að fara undir
þilfar á yfirbyggðum smábát er lá
við festar í Reykjavíkurhöfn sök-
um kvótaþurrðar. í lúkarnum var
að finna auk fréttamanns; trillu-
karl, fisksala og nútímatónskáld.
Einkennilegt samansafn manna
sem áttu þó ágætlega saman þegar
á reyndi þannig upplýsti trillu-
karlinn að hann hlustaði mikið á
músík og töluvert á
nútímatónlist.. .Einhvern veginn
verður maður að yfirgnæfa þessa
valdstjórnarmenn í útvarpinu ég
keypti þennan smábát vegna þess
að ég missti heilsuna á stærri bát-
unum og vildi ekki leggjast upp á
samfélagið heldur verða minn
eigin herra en nú lifi ég á víxlum
því ekki get ég gengið í neina sjóði.
Svo mörg voru þau orð veiði-
mannsins er verður að sætta sig
við hæstaréttardóm tölvuútskrift-
arinnar í Sjávarútvegsráðuneyt-
inu.
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Hvað
bíður
okkar?
■■■■i Síðast á dag-
00 35 slirá sjónvarps
LíLí — í kvöld er um-
ræðuþáttur í beinni út-
sendingu undir stjórn
Ingva Hrafns Jónssonar.
Þátturinn ber heitið
„Hvað bíður okkar?
í tilefni þess að ári
æskunnar er að ljúka býð-
ur sjónvarpið nokkrum
hópi æskufólks til óform-
legs fundar með Stein-
grími Hermannssyni for-
sætisráðherra og Sverri
Hermannssyni mennta-
málaráðherra.
Til hinstu hvfldar
■■■■ Fjórði þáttur
01 25 breska saka-
LiV — málamynda-
flokksins „Til hinstu
hvíldar" verður á dagskrá
sjónvarps kl. 21.25 í kvöld.
Þættirnir eru gerðir
eftir sakamálasögu P.D.
James og eru þættirnir
alls sex talsins. I aðal-
hlutverki er Roy Marsden.
Hann leikur rannsóknar-
lögreglumanninn Adam
Dalgliesh, sem rannsakar
dauða manns sem grunað-
ur er um fíkniefnasölu.
Hann rekur slóðina heim
á sveitasetur þar sem ekki
reynist allt með felldu.
f síðasta þætti gerðist
það helst að ungi læknir-
inn tilkynnti öllum að
óvörum að hann hygðist
giftast Sally þótt hann
hefði ekki þekkt hana
nema um tveggja vikna
skeið. Að kvöldi þess dags
finnst Sally látin í her-
bergi þeirra hjúa á sveita-
setrinu og vandast nú
málið enn meira hjá rann-
sóknarlögreglumanninum
þar sem hún var meðal
þeirra grunuðu viðvíkj-
andi þau morð sem áður
höfðu verið framin.
Spjall á síðkvöldi
— jarðskjálftar og varnir
■■■■i Þátturinn
0025 »sPÍa11 á síð-
LaLí — kvöldi", sem var
á dagskrá rásar 1 5. nóv-
ember sl., verður endur-
tekinn í kvöld vegna þess
að hann lenti á sama tíma
og fræðsluþátturinn um
AIDS í sjónvarpinu. Fjall-
að verður um jarðskjálfta
og jarðskjálftavarnir og
eru umsjónarmenn þátt-
arins Einar Þorsteinn Ás-
geirsson og Inga Birna
Dungal.
Fyrst verður spjallað
við Sigríði Guðmunds-
dóttur, sem búsett er í
Mexíkóborg og upplifði
jarðskjálftann mikla sem
varð þar í borg ekki alls
fyrir löngu. Hún segir frá
reynslu sinni og Iýsir
ástandinu í borginni
næstu daga eftir náttúru-
hamfarirnar.
Þá verður talað við Finn
Jónsson, verkfræðing, um
hvernig byggingarmálum
íslendinga sé háttað,
hvaða byggingar séu við-
kvæmastar eða sterkastar
ef komi til stjórjarð-
skjálfta hér á landi álíka
og Suðurlandsskjálftar
undanfarinna alda.
í þættinum verður talað
við Guðjón Pedersen,
framkvæmdastjóra Al-
mannavarna, sem segir
m.a. að orðið hafi mikil
hugarfarsbreyting hjá sér
varðandi almannavarnir
hér á landi eftir að hafa
heimsótt Mexíkóborg eftir
hamfarirnar þar. Hann
segist efast um að varnir
hér séu eins góðar og til
er ætlast ef til stórskjálfta
komi.
Útvarpið verður upp-
töku í þættinum sem náð-
ist fyrir algjöra tilviljun í
stórum jarðskjálfta hér á
landi árið 1976. Upptöku-
tæki var í gangi í einu
íbúðarhúsanna á staðnum
og verður 30 sekúndna
broti útvarpað. Upptakan
lýsir vel þeim mannlegu
sem upp koma í náttúru-
hamförum sem þessum.
Hingað til hafa viðkom-
andi ekki viljað láta birta
upptökuna.
Barnaútvarpið
■i Barnaútvarpið í
00 umsjá Kristín-
— ar Helgadóttur
er á dagskrá rásar 1 í dag
kl. 17.00. Henni til aðstoð-
ar eru þau Pétur Snæland
og Heiðveig Helgadóttir.
Fjallað verður um jóla-
föstuna og aðventuna í
þættinum í dag. Séra
Bernharður Guðmunds-
son skýrir út hvað það í
raun sé og Sigríður Sig-
urðardóttir les pistil um
þetta efni.
Að öðru leyti verður
fjallað um lestina eða
eimreiðina, sem einu sinni
var til staðar í Reykjavík.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
3. desember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„ Elvis, Elvis" eftir Mariu
Gripe
Torfey Steinsdóttir þýddi.
Sigurlaug M. Jónasdóttir les
(5).
9.45 Þingfréttir.
10.10 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá kvöld-
inu áöur sem Margrét Jóns-
dóttir flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesiö'úr forustugrein-
um dagblaðanna.
10.40 .Egmanþátlö"
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.10 Úr atvinnullfinu — lönað-
arrásin
Umsjón: Gunnar B. Hinz,
Hjörtur Hjartar og Páll Kr.
Pálsson.
11J0 Ur söguskjóðunni —
Þegar Reykjavikurbær gekk
I Brunabótafélag danskra
kaupstaöa. Umsjón: Ingvar
Gunnarsson. Lesari: Ólöf
Rafnsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Heilsu-
vernd
Umsjón: Jónlna Benedikts-
dóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Sögur
úr llfi minu" eftir Sven B.F.
Jansson
Þorleifur Hauksson lýkur
lestri þýðingar sinnar (7).
14.30 Miðdegistónleikar
a. Divertimentó I Es-dúr eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Hollenska blásarasveitin
leikur. Edo de Wart stjórnar.
b. Oktett I Es-dúr op. 20
eftir Felix Mendelssohn.
Brandis- og Wetphal-kvart-
ettarnir leika.
15.15 Bariðaðdyrum
Inga Rósa Þóröardóttir sér
um þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér
— Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri).
17.00 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Kristln Helga-
dóttir.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.45 Daglegtmál
Sigurður G. Tómasson flytur
þáttinn.
19.50 Lestur úr nýjum barna-
og unglingabókum
Umsjón: Gunnvör Braga.
Kynnir: Sigurlaug M. Jónas-
dóttir.
20.30 Aðdragandi sprengjunn-
ar — Slðari hluti
Flosi Ólafsson les slðarl hluta
erindis eftir Margaret Gow-
ing um ástæður þess að
kjarnorkusprengjum var
varpað á japðnsku borgirnar
Hlróslma og Nagasakl 1945.
Þýöandi: Haraldur Jóhann-
esson hagfræðingur.
20.55 Konan
Þórunn Elfa Magnúsdóttir les
frumort Ijóð.
21.05 Islensk tónlist
a. Trompetsónata op. 23
eftir Karl O. Runólfsson.
Björn Guðjónsson og Gísli
Magnússon leika.
b. „Unglingurinn I skógin-
um“ eftir Ragnar Björnsson.
Eygló Viktorsdóttir, Erlingur
Vigfússon og Karlakórinn
Fóstbræður syngja. Gunnar
Egilson, Averil Williams og
Carl Billich leika með á klar-
inettu, flautu og planó. Höf-
undurinn stjórnar.
21.30 Utvarp>ssagan: „Saga
Borgarættarinnar" eftir
Gunnar Gunnarsson. Helga
Þ. Stephensen les (23).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veöurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.25 Spjall á slðkvöldi — Um
jaröskjálfta
SJÓNVARP
19.00 Aftanstund. Endursýndur
þáttur frá 25. nóvember.
19.25 Ævintýri Olivers bangsa.
Fjórtándi þáttur.
Franskur brúöu- og teikni-
myndaflokkur um vlðförlan
bangsa og vini hans. Þýð-
andi Guöni Kolbeinsson,
lesari með honum Bergdls
Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáll.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingarogdagskrá.
20.45 Halastjarna Halleys
Ný bresk heimildamynd um
EdmondHalley (1656-1742)
og halastjörnuna sem kennd
er við hann. Hún sést með
berum augum á 76 ára fresti
ÞRIÐJUDAGUR
3. desember
og stefnir nú óðfluga I átt til
jarðar. I myndinni eru m.a.
leiðbeiningar um hvernig
helst megi fylgjast með ferð-
um halastjörnunnar er hún
nálgast.
Þýðandi og þulur Ari Trausti
Guðmundsson.
21.25 Til hinstu hvíldar
(Cover Her Face)
Fjórði þáttur.
Breskur sakamálamynda-
flokkur l sex þáttum, gerður
eftir sakamálasðgu eftir P.D.
James.
Aöalhlutverk: Roy Marsden.
Adam Dalgliesh rannsakar
dauða manns sem grunaður
er um flkniefnasölu. Hann
rekur slóðina heim á sveita-
setur þar sem ekki reynist
allt með felldu.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
22.35 Hvað blður okkar?
Umræðuþáttur I beinni út-
sendingu. ( tilefni þess aö
ári æskunnar er að Ijúka
býöur sjónvarþið nokkrum
hópi æskufólks til óformlegs
fundar með Steingrlmi Her-
mannssyni, forsætisráð-
herra, og Sverri Hermanns-
syni, menntamálaráðherra.
Umræðum stýrlr Ingvi Hrafn
Jónsson.
23.45 Fréttir I dagskrárlok.
Umsjón: Einar Þorsteinn As-
geirsson og Inga Birna
Dungal.
Aður útvarpað 5. þ.m.
23.05 Kvöldstund I dúr og moll
með Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
3. desember
10.00—10.30 Ekki á morgun,
heldur hinn
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna frá barna- og ungl-
ingadeild útvarpsins.
Stjórnendur: Kolbrún Hall-
dórsdóttir og Valdls Óskars-
dóttir.
10.30—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Hlé.
14.00—16.00 Blöndun á staðn-
um
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00—17.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
17.00—18.00 Sögur af sviðinu
Stjórnandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11.00. 15.00,
16.00 og 17.00.
17.00—18.00 Rlkisútvarpið á
Akureyri — Svæöisútvarp.