Morgunblaðið - 03.12.1985, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
13
Bolli Gústavsson.
En að gefa það í skyn, eins og
Kristján gerir, að Steini hafi þótt
lítið koma til allra íslenskra
skálda nema eins, er að mínum
dómi hneyksli að setja á prent.
Bolli Gústavsson gerir sér að
sjálfsögðu grein fyrir því hve
markvert skáld Steinn Steinarr
var, en ég vil benda honum á að
það er tómur misskilningur að
túlka það sem Steinn sagði um
Davíð þegar hann talaði um „bil-
legan og forheimskandi áslátt"
þannig að Steinn hafi átt við
einlægan trúartón Davíðs „sem
sífellt varð sterkari og hreinni".
Steinn átti við annað. Hann gat
vel unnt Davíð að herma frá trú-
arreynslu. En honum þótti eins
og fleirum nóg um endurtekning-
ar hins merka skálds, ljóð sem
voru fremur vel orðaðar yfirlýs-
ingar en skáldskapur.
Skemmtilegt þótti mér að lesa
það sem Bolli Gústavsson skrifar
um frænda sinn, Karl ísfeld. En
þó verð ég að mótmæla matinu
á Svörtum morgunfrúm, einu
ljóðabók Karls. „Virðist svo sem
þetta ljóðakver hafi ekki orðið
láta Alþýðublaðið nægja. En mál-
efnin gátu líka verið minni, t.a.m.
hvort rita skyldi vírus, víra eða
veira. Vilmundur barðist eins og
ljón fyrir veirunni, hjó á báðar
hendur og hlífði ekki einu sinni
alúðarvinum. Og eins og oftar fór
hann með sigur af hólmi.
Eins og að líkum lætur lét Vil-
mundur landlæknir heilbrigðismál
allmjög til sín taka, þó að engan
veginn væri hann sá skörungur,
sem fyrirrennarar hans sumir
voru, enda til mikils að jafna.
Hann samdi, átti þátt í að semja
og flutti meðan hann sat á alþingi
mörg lagafrumvörp, t.a.m. lækn-
ingaleyfislögin 1932, lög um heilsu-
verndarstöðvar. Þá samdi hann
frumvarp „um að heimila í viðeig-
andi tilfellum aðgerðir á fólki, er
koma í veg fyrir að það auki kyn
sitt". Hér birtast nokkrar þing-
ræður hans í tengslum við þessi
mál. Þá er hér hluti frumvarps-
greinargerðarinnar „Afkynjanir
og vananir" og hinn víðkunni rit-
gerðabálkur hans „Straumur og
skjálfti og lögin í landinu". Hið
fyrrnefnda er einstaklega vel
samin og vel hugsuð ritgerð. Hið
síðarnefnda er hvasst og hnit-
rniðað deilurit, þar sem hann átti
í höggi við ritsnjalla mótherja. Þá
dróst Vilmundur inn í Kleppsmálið
fræga á sínum tíma og háði þá
grimmilega orrahríð við kollega
sína. Fjárveitinganefnd alþingis
lét hann eitt sinn í té langa umsögn
um tillögu þingmanns eins um „að
veita þingeyskum gullsmið, vél-
stjóra og hlaupalækni" laun úr
ríkissjóði í viðurkenningarskyni
fyrir það að hafa fundið upp iyf
við sjúkdómi einum. Umsögn Vil-
honum til vegs og valdið honum
nokkrum vonbrigðum," skrifar
Bolli. Ég vil ráðleggja Bolla að
lesa Svartar morgunfrúr á ný og
íhuga gildi bókarinnar. Það eru
fleiri ljóð í frúnum en það sem
ort er í orðastað ritdómara. Bók-
in er á margan hátt betri en
menn hafa viðurkennt. Ég er
þeirrar skoðunar að hún sé veru-
lega góð. Ekki mega menn
gleyma því að Karl lsfeld var
einn af okkar bestu þýðendum.
Það gerir Bolli vitanlega ekki.
Þýðingar Karls á Kalevala eru
afrek og ekki spillir viðbót konu
hans, Sigríðar Einarsdóttur frá
Munaðarnesi.
Liðin tíð við Laxagötu nefnist
kafli í Litið út um ljóra. I þessum
kafla ræðir Bolli Gústavsson við
Hafliða Hallgrímsson tónlistar-
mann. Efnið er einkum bernska
Hafliða á Akureyri. í viðtali af
þessu tagi er einkum stefnt að
því að lesandi fái innsýn í það
sem mótar listamann og situr í
honum. Þetta kemur ekki nægi-
lega vel fram hjá Bolla, ekki síst
vegna þess að hann gerir Björg-
vin Guðmundsson og ýmsa aðra
Akureyringa of fyrirferðarmikla
í viðtalinu. Sá sem vill fræðast
um Hafliða Hallgrímsson (undir-
ritaður meðal þeirra) fær mest
að vita um aðra menn.
Best tekst Bolla að draga upp
mynd manns á borð við Bjarna
Jónsson frá Gröf og í stuttum
hugvekjum um menningarmál:
Helgisetur og Orð eru alltaf til
reiðu.
Sem prestur leggur Bolli Gúst-
afsson sitt af mörkum í Litið út
um ljóra. í þætti um Pétur Sigur-
geirsson biskup er til dæmis birt
þýðing biskupsins á norskum
höfundi, Sven Ellingsen að nafni.
Þýðingin sýnir að orðhagir menn
sitja enn á biskupsstóli og er það
vel.
Ég held að ég hafi áður farið
lofsamlegum orðum um teikn-
ingar Bolla Gústavssonar. En um
teikningarnar í Litið út um ljóra
hæfir að gerast ekki margorður.
Því miður eru þær flestar stirð-
legar og ekki til vitnis um að
myndlistarmanninum hafi farið
fram. Ég undanskil þó teikningu
af Stephani G. Stephanssyni.
Hún er afbragðsgóð. Skáldið og
bóndinn talar beint til okkar í
dráttum Bolla Gústavssonar.
mundar er bráðsnjallt ritverk og
er þar fínt og beitt háð ekki sparað.
A síðari æviárum virðist hugur
Vilmundar hafa beinst meir og
meir að málrækt og nýyrðasmíð.
Og þar stóð hann framarlega i
flokki. Er enginn efi á að hann
hafði mjög mikil áhrif til hins
betra á ritmál lækna og gaf lækn-
isfræðinni og skyldum greinum
mikinn fjölda góðra nýyrða, sem
festst hafa í málinu. Svo var raun-
ar orðið fyrir lokin að margir litu
á Vilmund sem eins konar hæsta-
rétt í þeim málum. í þessum bók-
um eru góð sýnishorn þessarar
merku starfsemi.
Línum þessum lýk ég með að
þakka fyrir að hafa fengið tæki-
færi til að kynnast Vilmundi Jóns-
syni landlækni á þennan hátt.
Hann var vissulega eftirminnileg-
ur maður. Maður mikillar gerðar.
Fjarri fer því að maður geti alltaf
verið honum sammála, og stundum
finnst manni hann jafnvel vera
ótuktarlega ósánngjarn. Og það
hefur svo sannarlega ekki verið
notalegt að eiga hann að andstæð-
ingi. En samt er ekki hægt annað
en virða hann og að vissu leyti dá
fyrir ritsnilli hans, einurð og fjöl-
hæfar gáfur.
Mjög vel eru þessar ritsmíðar úr
garði gerðar af hálfu útgefenda.
Hverri grein og greinaflokki fylgja
fáein gagnleg inngangsorð og skýr-
ingar eru þar sem þess þarf með.
Allmargar myndir prýða bækurn-
ar. Prófarkalestur er með ágætum.
Prófessor Þórhallur, sonur höf-
undar, hefur annast þetta verk af
alkunnri vandvirkni sinni og
smekkvísi. Útlit bókanna er fagurt
JÓLASKEIÐIN 1985
/ tilefni af 300 ára ártíð Bachs
Hándels og Scarlattis er jólaskeiðin frá
GUÐLAUGI í ár tileinkuð þessum
meisturum kirkju- og orgeltónlistar.
Við minnum á að upplag jólaskeiðar-
innar er mjög takmarkað.
Guðlaugur A. Magnússon
Laugavegi 22 a
Sími 1 52 72
KOMDU
KRÖKKCJNUM Á ÓVART!
Farðu til þeirra um jólin
Mömmur, pabbar, systur, bræður, afar, ömmur, frændur,
frænkur, synir, dætur og vinir geta nú brugðið undir sig betri
fætinum og farið sjálf með jólapakkana og hangikjötið til
útlanda.
Ástæðan er auðvitað hin hagstæðu jólafargjöld sem Flugleiðir
bjóða til Morðurlandanna.
Fargjöld báðar leiðir eru sem hér segir:
Kaupmannahöfn kr. 13.230.-
Gautaborg kr. 13.350.-
Stokkhólmur
Osló
London
Luxemborg
kr. 15.400.-
kr. 12.320.-
kr. 11.760.-
kr. 11.620.-
Barnaafsláttur er 50%.
Fargjöldin taka gildi 1. des.
Cpplýsingar um skilmála og ferðamöguleika veita söluskrif-
stofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar.
FLUGLEIDIR
MHMMi