Morgunblaðið - 03.12.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1986
15
Borgarbragur, söng-
leikur um Reykjavík
Hljómplötur
ÁrniJohnsen
Borgarbragur Gunnars Þórðar-
sonar er hugljúfur söngleikur um
Reykjavík, með þeirri breidd sem
borgin býður upp á og aldrei hefur
tónlist Gunnars verið þéttari,
margslungnari, þótt hann leggi
fyrst og fremst áherslu á meló-
díuna í lögum Borgarbrags. Það
er þrumustemmning í Borgarbrag
og það er eins og Gunnar hafi
virkjað nið borgarinnar, umferð-
arþungann og mannmergðina.
Þannig er eins og tónlist Gunnars
rími við undiröldu borgarinnar og
þess vegna minna sum lögin frem-
ur á eitthvað sem er hluti af lengra
tónverki. Borgarbragur ber þess
merki hve Gunnar Þórðarson er
orðinn þroskaður tónlistarmaður
og tónskáld, því þótt hann sé búinn
að semja nær 300 lög fer hann
sífellt ótroðnar slóðir í útsetning-
um og uppbyggingu laga sinna.
Ég elska þig er upphafslag plöt-
unnar, skemmtilegt lag og lífs-
glaður texti, góður texti sem Pálmi
Gunnarsson syngur af alkunnri
snilld. Gull er spegilmynd af leit-
inni að gullinu sem hver og einn
sér sínum augum, þrumandi mús-
íkk. Þá er Sjóferðabaen, fyrsta sjó-
mannalag Gunna Þórðar og var
þó kominn tími til frá sjálfum
Keflvíkingnum. Sjóferðabænin er
gullfallegt lag sem Gunnar sækir
í minningu á síldarbát fyrir norð-
an land, þegar himinn og haf
runnu saman í eina sæng, þegar
tíminn stöðvaðist í kyrrð við eilífð-
ar útsæ og eina hreyfingin var
vaðandi síld um allan sjó. Góður
texti hjá ólafi. Við Reykjavíkur-
tjörn heitir eini textinn sem ekki
er eftir Ólaf Hauk, en það er Davíð
borgarstjóri sem samdi þann texta
að beiðni Gunnars. Það var
skemmtilegt uppátæki hjá Gunn-
ari og ekki bregst Davíð bogalistin
fremur en fyrri daginn, hann skil-
ar hrífandi texta, sem andi Tómas-
ar býr í en með sérsniði Davíðs
eins og honum er lagið. Það væri
skemmtilegt ef tækist að lokka
fram meira af ljóðum hjá Davíð.
Æskan, ástin og vonin er það sem
Davíð leggur áherslu á í farteski
lags Gunnars Þórðarsonar. Á hlið
A er Borgarblúsinn á endasprett-
inum þar sem borgarbúi fer með
eintal sálarinnar, blúsar eigin
hugarheim.
Á hlið B er Vesturbæjar-
stemmning ríkjandi, enda heita
lögin Steini strætó, mikið stuðlag,
fullt af takti og haldgóðri laglínu,
Gaggó Vest sem er ofsa rokklag
og hugsunina á bak við textann
kannast ugglaust margir við. Þá
bregður Olafur Haukur sér á
Melavöllinn og það er stór dagur,
því það er úrslitaleikur milli Akra-
ness og KR. Vesturgatan kemur
síðan í rólegheitum á móti manni
i ljúfri og fallegri melódíu með
fiðluþil í bakgrunni og gítar undir
veggnum.
Það er einvala lið söngvara sem
tekur á í Borgarbrag, Björgvin
Halldórsson sem syngur fjögur
lög, Egill Ólafsson sem syngur
þrjú lög, Pálmi Gunnarsson syng-
ur tvö lög og Eiríkur Hauksson
syngur tvö lög. Bakraddir eru
Sverrir Guðjónsson og Jóhann
Helgason.
Textar ólafs Hauks eru margir
góðir, en misjafnir. Þar sem hann
fjallar á eðlilegan hátt um það
jákvæða er hann bestur eins og í
lögunum Ég elska þig, Sjóferða-
bæn, Steini strætó og Vesturgata.
Borgarbragur er strax heillandi
fyrir vönduð vinnubrögð, en samt
vinnur hún á við nánari kynni,
menn þurfa að læra á hana því
hún er fremur fljót en lækur. Satt
að segja er ekki laust við að Gunn-
ar Þórðarson sé á þessari plötu að
brjótast úr böndum, brjóta sér leið
til stærri tónverka sem hann tekst
vonandi á við, því hann hefur allt
til brunns að bera í þeim efnum.
Engin vettlinga-
tök hjá Elton John
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Elton John
Ice on fire
Rocket/Fálkinn
Svei mér ef hann Elton John
_besnar“ bara ekki með árunum?
I fyrra sendi hann frá sér hina
mjög svo áheyrilegu Breaking
Hearts og núna er það Ice on
Fire, einkar áheyrilegur gripur
eins og Eltons var von og vísa
enda þótt um talsverða breytingu
sé að ræða frá því á Breaking
Hearts.
Breytingin í tónlistinni liggur
einkum og sér í lagi í því að Elton
nýtur aðstoðar góðra blásara í
nokkrum laganna og þeir gefa
viðkomandi lögum dálítinn
soul/fönk blæ og ekki dregur sá
gamli úr því með breyttum takti
og viðeigandi bassaleik. Fyrsta
lag plötunnar er einkar gott
dæmi um þetta, This Town, svo
og lagið Soul Glove og Wrap Her
Up. Þess á milli heldur Elton sig
við gamla stílinn og nýtur að-
stoðar góðra manna hér og þar.
Það lag, sem þegar hefur orðið
vinsælast af Ice on Fire, er hið
gullfallega og rólega Nikita.
Fyrir þá, sem ekki hafa heyrt
plötuna enn en kannast við eldri
verk knattspyrnuliðseigandans,
sakar ekki að geta þess að Nikita
er að uppbyggingu svipað laginu
Daniel frá ca. 1971—’72.
Önnur lög plötunnar eru flest
í „millitempói" ef undan eru
skilin Candy by the Pound (ísl.
þýð. Súkkulaði í sekkjavís) sem
er ekta rokklag í anda Eltons,
sem og Tell Me What the Papers
Say, sem er jafnvel enn dæmi-
gerðara fyrir Elton.
Eins og að framan greinir eru
Elton John.
margir góðir popparar, sem
leggja Elton lið á plötunni. Má
þar nefna Nik Kershaw, George
hinn eina og sanna Michael, John
Deacon og Roger Taylor úr
Queen, söngkonuna Kiki Dee og
Sister Sledge.
Tónlist Rush hefur á undan-
förnum árum verið að breytast
hægt og bítandi frá því að vera
kröftugt, einfalt en vel spilað
rokk í það að vera kraftminna,
flóknara og enn vandaðra. Há-
marki náði þessi þróun á plöt-
unni Grace Under Pressure, sem
kom út í fyrra. Þar var — þrátt
fyrir óumdeilanlega fagmannleg
vinnubrögð — orðið harla lítið
eftir af þeirri Rush sem yljaði
aðdáendum þyngra rokks á árun-
um fram undir og í kringum 1980.
Power windows er á vissan
hátt afturhvarf til 1980 er Per-
manent waves kom út. Ekki get
ég sagt að ég harmi þessa breyt-
ingu.
Þrátt fyrir augljóst afturhvarf
fer því fjarri að hægt sé að leggja
t.d. Power Windows og Perman-
ent Waves að jöfnu. Sú fyrr-
nefnda er öll miklu mun fágaðri
og um leið kraftminni en hin
síðarnefnda og sér í lagi sakna ég
þess hversu mjög gítarleikur
Lifeson hefur horfið í skugga
hljómborða á seinni árum. Það
er miður því Lifeson er firnagóð-
ur gítarleikari.
Gersamlega meó-
vitunarlaus
Russ Ballard
The Fire Still Burns
EMI America/Fálkinn
Merkilegt nokk en þrátt fyrir
að hafa átt gnægð góðra laga á
liðnum árum hefur Russ Ballard
aldrei tekist að afla sér þeirrar
frægðar, sem hann virðist að
flestra áliti hafa átt skilið. Mörg
laga hans hafa hins vegar orðið
afar vinsæl í flutningi annarra
hverju sem um er að kenna.-
Sjálfur er Ballard hinn fram-
bærilegasti, þ.e. þegar hann er í
sínum besta ham. Hér er hann
hins vegar fjarri því að vera
sannfærandi.
Samsetning plötunnar er ákaf-
lega hefðbundin, þ.e. blanda
rokkaðri laga og rólegri í góðu
jafnvægi. Þrátt fyrir einstaka
spretti nær Ballard aldrei að
hefja sig til flugs heldur geysist
fram af flugbrautarendanum og
beint út í mýri. Þar er ég hrædd-
ur um að hann fái að sitja þar
til hann kemur fram með eitt-
hvað betra en þetta. Ég veit hann
getur betur og Ballard veit það
eflaust líka.
Spor afturábak
en í rétta átt
Rush
Power Windows
Mercury/Fálkinn
Verzlunarráð íslands auglýsir eftir umsækjendum
um starfsnám hjá fyrirtækjum innan ráðsins, sem
fram fer 15. janúar til 15. mars 1986.
Hvað er starfsnám?
Starfsnám er kynning á starfssviði og einstökum
þáttum í starfsemi fyrirtækisins. Nemendur fá
yfirsýn yfir starfsemina og verða þannig betur í
stakk búnir að velja sér starf við hæfi eða ákveða
frekara nám. Ekki er veitt þjálfun í neinu einu
starfi.
Markmið
Markmið með starfsemi Verzlunarráðs Islands
er að auka tengsl atvinnulífs og skóla með því
að bjóða hagnýtt nám innan veggja fyrirtækja.
Framkvæmd
Starfsnámið tekur 3 mánuði. Unnið er eftir
námsáætlun sem liggur fyrir áður en nám hefst.
Á námstímanum fá nemar styrk sem samsvarar
rúmum hálfum lágmarkslaunum.
Fyrir hverja?
Starfsnámið er einkum ætlað ungu fólki sem er
að velja sér framtíðarstarf eða ákveða námsleiðir.
Fyrirtækin
Fyrirtækin sem bjóða starfsnám eru úr ýmsum
greinum atvinnulífsins, tryggingum, tölvuþjón-
ustu, iðnaði, innflutningsverslun, samgöngum o.fl.
Þau eiga það sammerkt að vera með umfangs-
mikla og fjölbreytta starfsemi.
Umsókn
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunar-
ráðs íslands ásamt öllum nánari upplýsingum.
Umsóknum þarf að skila inn fyrir 20. desember nk.
éá VERZLUNARRÁÐ
ISLANDS
Hús verslunarinnar
108 Reykjavik. simi 83088
MetsöluHad á hverjum degi!
Laugavegi 62 — 101 Reykjavík — Sími 23577 Póstsendum