Morgunblaðið - 03.12.1985, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 3. DESEMBER1985
ÍllLtLlJ
L , . L
Ut'LLlU
erflutt
í nýja húsið
Fjölbreyttari og betri þjónusta
en áður var.
Næturhólf — geymsluhólf.
Öll innlend og erlend
bankaviðskipti.
MELAÚTIBÚ
HÓTEL SÖGU V/HAGATORG
SÍMI 18140
fHittgtiiiMiifrlfr
Áskriftarsíminn er 83033
Lokaverkið um
Andra Haraldsson
Bókaúlgáfan Punktar sendir frá
sér nýja skáldsögu eftir Pétur Gunn-
arsson sem heitir Sagan öll.
í fréttatilkynningu frá Punktum
segir:
„Sagan öll er lokaverk í bálkin-
um sem hófst með Punktur punkt-
ur komma strik. í Sagan öll segir
af tilraunum Andra Haraldssonar
til að fóta sig í nútímanum og
örvæntingarfullri leit hans að
sjálfum sér. Leikurinn berst frá
Kaupmannahöfn til Konstantinóp-
el þar sem örlögin grípa í taumana.
En jafnhliða því sem saga Andra
er rakin áfram, er hún rakin upp.
í ljós kemur að Andri Haraldsson
er ekki allur þar sem hann er séð-
ur, á bak við hann leynist fyrir-
mynd: Guðmundur Andri Haralds-
son, kallaður Manni. Hann er
heimilisfaðir og sagnfræðingur
sem þjáist af minnisleysi og á í
brösum með að koma veröldinni
heim og saman. Með vasabók að
vopni reynir hann að fá dagana
til að nema staðar og fortíðina til
að enduróma í ritvélinni..."
Sagan öll er fimmta bók Péturs
Gunnarssonar, 273 bls. og fæst
bæði innbundin og í kilju.
Bók um
furðufugla
Frjálst framtak hf. hefur sent frá
sér bókina Heimsins mestu furðu-
fuglar eftir Mike Parker í íslenskri
þýðingu Karls Birgissonar.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir ennfremur: Heimsins
mestu furðufuglar fjallar um fólk
sem hefur á einhvern hátt skorið
sig rækilega úr fjöldanum. Af
einstökum frásögnum bókarinnar
má geta kafla um John Merricks,
sem þekktur var undir nafninu
Fílamaðurinn, en um hann og ævi
hans var gerð kvikmynd, og kafla
um Síamstvíburana Eng og
Chang og sagt frá fólki sem hafði
afbrigðilegt tölvuminni og gat
leyst flóknustu þrautir á svip-
stundu og getið um sterkasta fólk,
sem sögur fara af, feitasta fólkið,
hávaxnasta fólkið, minnstu
dvergana, hár- og skeggprúðasta
fólkið, úlfabörn og uppvakninga
svo að nokkur dæmi séu nefnd.
Heimsins mestu furðufuglar er
sett, umbrotin, filmuunnin og
prentuð í Prentstofu G. Bene-
diktssonar en bundin hjá Bókfelli.
Kápu gerði Sigurður Valur.
Heimsins mestu
FURÐUFUGLAR
Bernharður Guðmundsson í hinni nýju verslun sinni, Blómahorni í Garðabæ.
Garðabær:
Blómahornið, ný blóma-
og gjafavöruverslun
Ný blóma- og gjafavöruverslun hefur verið opnuð í Garðabæ, sem ber
heitið Blómahornið. Kigendur Blómahornsins eru hjónin Guðrún H. Jóns-
dóttir og Bernharður Guðmundsson.
Verslunin er í miðbæjarkjarna Verslunin er opin mánudaga til
Garðabæjar við Garðatorg 3 og er föstudaga frá kl. 9.00 til 21.00 og
í sama húsnæði og ljósritunaratof- um helgar frá kl. 11.00 til 21.00.
an Ljósrún. Sími verslunarinnar er 651722.