Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Philip Larkin, eitt besta
ljóðskáld Breta, látinn
London, 2. deoember. AP.
PHILIP Larkin, eitt besta Ijód-
skáld Breta, lést á spítala í Hull
í dag 63 ára að aldri, eftir nokk-
urra mánaða veikindi.
Þrátt fyrir að vera mjög af-
kastalítið ljóðskáld, var Larkin
talinn af mörgum öðrum skáld-
um, vera eitt besta ljóðskáld
Bretlands. Þegar embætti lár-
viðarskálds losnaði í maí 1984,
hlaut hann flest atkvæði í at-
kvæðaoreiðslu 120 breskra
skálda til embættisins. Það kom
síðar í ljós að honum hafði verið
boðið embættið en hafnað því
vegna þess að hann hefði ekki
gefið út nein ljóð síðastliðin tíu
ár. Síðari helming ævi sinnar
orti Larkin að meðaltali tvö ljóð
á ári. Um það sagði hann: „Ég
gafst ekki upp á ljóðlistinni, hún
gafst upp á mér.“
Philip Larkin var fæddur 9.
ágúst 1922 í Coventry, sonur
borgargjaldkerans þar. Hann
ISLENSK
ALMANÖK
stundaði nám í Oxford og fyrsta
ljóð sitt birti hann í tímariti árið
1940. Fyrsta ljóðabók hans hét
„The North Ship“ og kom út árið
1945. Meðal annarra ljóðabóka
hans má nefna: „The Less Dec-
eived" (1955), „The Whitsun
Weddings" (1964), „High
Windows" (1964). Þá komu einn-
ig út eftir hann tvær skáldsögur,
þegar hann var ungur maður.
Larkin starfaði mest alla ævi
sem bókavörður í Hull. Hann
var ógiftur aila ævi og lifði mjög
einangruðu lífi.
Ljóð Larkins voru raunsæ,
laus við dulúð og fjölluðu að
miklum hluta um venjulegt fólk
og líf þess.
ERLENT
Valið úr skóm
Lítil stúlka velur sér skó í flóttamannbúðum við Leridu í Cólombíu.
Hún var ein af fáum sem björgudust úr aurflóðinu er varð um 25 þús-
und manns að bana.
Vöndud islensk almanök til vina
og vidskiptanianna um jól
og áramót.
Útsölustaðir: KammagerAin
og bókaverslanirnar.
SENDUM í PÓSTKRÖrU
_________ Pósthólf 20 - 270 Varmá -
Simi 91-666620 -
fMfrtgmtftfaftifr
Melsölublad á hverjum degi!
lestu þessa...
C-VIMIN er C-vítamín í sykurlausum
freyðitöflum sem þú kaupir
með appelsínu- eða sítrónubragði.
Sláðu tvær. . . og fáðu þér
ferskan svalandi drykk í fyrramálið.
-þú leysir bara eina C-VIMIN
töflu í ísköldu vatni
og færð eitt gramm af C-vítamíni,
- ekkert mál!
APOTEKINU