Morgunblaðið - 03.12.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
45
Rauði krossinn og Umferð-
arráð dreifa 100.000 endur-
skinsmerkjum ókeypis
— aðeins 10% nota merkin hér á landi samkvæmt nýrri könnun
RAUÐI kross Íslands hefur í sam-
vinnu við Umferðarráð keypt
100.000 endurskinsmerki af hæsta
gæðaflokki til dreifingar ókeypis, en
í nýlegri könnun, sem gerð var á
höfuðborgarsvæðinu á vegum
í dag er til moldar borinn Kon-
ráð Davíð Jóhannesson, sem lést
hinn 21. nóvember sl. á Sjúkrahúsi
Sauðárkróks, en þar var hann
staddur á söluferðalagi. Fráfall
hans bar brátt að og kom okkur
starfsmönnum hans hjá Sóló sf.
mjög á óvart. Þó hafði hann um
árabil verið heilsuveill, en hann
kvartaði aldrei, og var jafnan
glaðlyndur og hress I viðmóti.
Okkur starfsmönnum sínum var
hann einstaklega góður og eigum
við dýrmætar minningar um sam-
skipti við hann fyrr og síðar, sem
við viljum þakka honum að leiðar-
lokum. Fjölskyldu hans og ástvin-
um öllum sendum við okkar ein-
lægustu samúðarkveðjur, við viss-
um vel hve vænt honum þótti um
þau öll.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
þau í hörmumþeirra.
Óli Geir og Óli Þór.
Við óvænt fráfall Konráðs Dav-
íðs Jóhannessonar forstjóra verða
ásæknar margar hugljúfar minn-
ingar liðinna ára. Veraldargengi
hans var svipult og oft storma-
samt, en góðvildin ætíð hin sama.
Um fjölda ára mun engin sú jóla-
hátið hafa farið í hönd án þess að
Konráð birtist á sjúkrahúsum og
öðrum stofnunum með góðgæti
það, sem hann verzlaði með, til
þess að gefa og gleðja eins marga
og hann frekast megnaði. Taldi
hann þetta beztu fjárskiptin fyrir
sjálfan sig, og vonandi hefur hon-
um orðið eða verður að þeirri trú
sinni.
Vinum sínum var Konráð
traustur og trúr. Hann var þeim
mikill gleðigjafi. Þegar í nauðir
rak, var hjálp hans og hlýhugur
einstök. Verða margir til að sakna
vinar í stað.
Nokkru áður en Konráð féll frá,
hafði hann á orði, hversu vænt
honum þætti um þá ástúð, sem
hans nánustu sýndu honum og
gleðina, sem hann hefði af barna-
y\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
beggja aðila, kom í Ijós að aðeins
10% notuðu endurskinsmerki á
meðan 30% Norðmanna nota merk-
in samkvæmt könnun sem gerð var
þar í landi og þykir þátttaka þar
lítil.
börnum sínum. Þeim eru öllum
sendar hugheilar samúðarkveðjur
úr Garðabæ. pÁS
Ungmennahreyfing Rauða
krossins gerði könnunina fyrir
stuttu. Taldir voru þeir sem báru
á sér merkin og um leið var aldur
notenda kannaður og hvar helst
menn báru merkin á sér. Talningin
náði til 2.507 manna og af þeim
notuðu 253 endurskinsmerki. Af
þeim sem báru merkin voru börn
49% sem staðfestir að erfitt reyn-
ist að fá fullorðið fólk til að bera
merkin á sér, að sögn óla H. Þórð-
arsonar framkvæmdastjóra Um-
ferðarráðs. Tæplega helmingur
þess fólks, sem bar merkin, hafði
þau á röngum stað á klæðum sín-
um, en talið er að rétt staðsett
endurskinsmerki fjór- eða fimm-
faldi sjónlengd ökumanns. Æski-
legast er að notendur hafi merkin
hangandi á báðum hliðum.
Björn M. Björgvinsson fulltrúi
hjá Umferðarráði sagði að á mark-
aðinum i dag væri til fjöldinn allur
af merkjum m.a. hangandi merki,
lím- og saummerki, skokkbelti og
endurskinsmerki á hross og hunda.
Þá hafa margir fataframleiðendur
sett endurskinsefni á utanyfir-
fatnað og á stígvél.
Neytendasamtökin gerðu könn-
un á endurskinsmerkjum þeim
sem voru í notkun sl. vetur og
reyndist aðeins ein gerð þeirra
fullnægja ströngustu gæðakröfum.
Rauði krossinn keypti endurskins-
merkin frá Noregi og hafa þau
helmingi meira endurskin en lág-
markskröfur ségja til um í ná-
grannalöndunum, að sögn Jóns
Asgeirssonar framkvæmdastjóra
Rauða krossins.
Heildarkostnaður við kaup
merkjanna nemur einni milljón
króna og verður þeim dreift á
næstu dögum. Deildir félagsins,
48 að tölu um landið allt, munu
annast dreifinguna auk ung-
mennahreyfingarinnar og lögreglu
í Reykjavík. Einnig verður merkj-
um dreift gegnum Félagsstarf
aldraðra hjá Reykjavíkurþorg og
safnaðarstarf í Reykjavíkurpróf-
astdæmi. Önnur merki fást nú í
flestum apótekum um allt land og
einnig í nokkrum matvörubúðum
og ritfangaverslunum.
Jón Ásgeirsson sagði að ánægja
væri með samstarf þetta við
Umferðarráð á þessu sviði. „Ef við
sameiginlega getum komið því
áleiðis að fleiri taki upp notkun
endurskinsmerkja, er takmarkinu
náð. Undanfarin ár höfum við
talað fyrir daufum eyrum varð-
andi notkun endurskinsmerkja.
Að meðaltali deyja tveir í um-
ferðinni í mánuði og hefur mörg-
um mannslífunum mátt bjarga
með því einu að bera endurskins-
merki.“
VeröáSurkr. 11.250,- Jólatilboö kr. 9.950,-
ÁRMÚLA11 SlMI 81500
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: Þór hf„ Ármúla 11
HAFNARFJÖRÐUR:
KEFLAVlK:
VESTMANNAEYJAR:
SELFOSS:
HVOLSVÖLLUR:
Bókabúð Braga við Hlemm
Kf. Hafnfirðinga
Stapafell hf.
Kjarni sf.
Radio & Sjónvarpsstofan
Kf. Rangæinga
HÖFN:
EGILSSTAÐIR:
REYÐARFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
HÚSAVlK:
Kf. Austur-
Skaftfellinga
Kf. Héraðsbúa
Kf. Héraðsbúa
Stélbúðln
Bókav. Þórarins
Stefánssonar
AKUREYRI:
SAUÐÁRKRÓKUR:
BLÖNDUÓS:
ISAFJÖRÐUR:
BOLUNGARVlK:
BORGARNES:
AKRANES:
KEA - Hljómdeild
Kf. Skagfirðinga
Kf. Húnvetninga
Pólllnn
Ljósvakinn
Kf. Borgfirðinga
Bókaskemman
Minning — Konráð
Davíð Jóhannesson