Morgunblaðið - 03.12.1985, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
48
Ráðstefna um alnæmi í Mið-Afríku:
Alnæmi er kynsjúkdómur og smit-
ast ekki við daglega umgengni
Frá vinstri Jórunn Vidar, Guðrún A. Kristinsdóttir, Hólmfríður Sigurðardótt-
ir, Ingibjörg Marteinsdóttir, Þorgeir J. Andrésson og Matthildur Matthías-
dóttir.
Tónleikar í
Norræna húsinu
Utbreiðslan í Kinshasa svarar til þess að
220 íslendingar væru með alnæmi
ÚTBREIÐSLA alnæmis í sumum borgum Mið-Afríku er mun meiri en á
nokkrum öðrum stöðum í heiminum. I Kinshasa, höfuðborg Zaire, greinist
alnæmi á hæsta stigi hjá 90 manns af hverjum 100 þúsund íbúum á árí.
Tíðnin er svipuð í Kigali, höfuðborg Ruanda. Þetta samsvarar því að á
íslandi greindust um 220 tilfelli árlega. Nýgengi í Bandaríkjunum eru 4-5
alnæmissjúklingar á hverja 100 þúsund íbúa á ári.
Þessar upplýsingar fengust hjá hugaðar hafa verið í Ruanda, og í
SÖNGSKÓLINN í Reykjavík efnir
nú á næstunni til þrennra opinberra
tónleika í Norræna húsinu í Reykja-
vík þar sem nemendur úr fram-
haldsstigum skólans koma fram.
Fyrstu tónleikarnir í þessari
tónleikaröð verða í kvöld 3. des-
ember kl. 20.30. Þar koma fram
söngvararnir Ingibjörg Marteins-
dóttir sópran, Matthildur Matt-
híasdóttir alt, Þorgeir J. Andrés-
son tenór og píanóleikararnir
Guðrún A. Kristinsdóttir, Hólm-
fríður Sigurðardóttir og Jórunn
Viðar.
Flutt verða lög eftir Jón Þórar-
insson og Pál ísólfsson, ljóð eftir
Schubert, Brahms og Beethoven
og ljóðaflokkurinn Sea-pictures
eftir E. Elgar. Ennfremur verða
fluttar aríur úr Cavalleria Rustic-
ana og La Gioconda.
Kaffistofa Norræna hússins
verður opin að tónleikum loknum.
(FrétUlilkynaínf)
smitsjúkdómalæknunum Sigurði
B. Þorsteinssyni, Landspítala, og
Haraldi Briem, Borgarspítala, en
þeir sátu nýlega alþjóðlega ráð-
stefnu í Brussel um alnæmi í
Afríku.
„Alnæmi er ekki skráninga-
skyldur sjúkdómur í Afríku og það
er mjög erfitt að fá upplýsingar
um útbreiðslu hans þar. Það er því
hæpið að alhæfa út frá þessum
tölum að útbreiðslan sé alls staðar
í Afríku af þessari stærðargráðu,
en hún er sennilega allmikil," sagði
Sigurður.
Alnæmi er mjög útbreitt meðal
vændiskvenna í Afríku. Mótefni
alnæmisveirunnar hefur fundist í
blóði 88% vændiskvenna sem at-
tæplega 60% vændiskvenna í Nair-
obi, höfuðborg Kenýa. Árið 1980
greindust mótefni veirunnar að-
eins í 7% vændiskvenna í Nairobi.
Alnæmi leggst nokkurn veginn
jafnt á karla og konur í Afríku,
þótt karlar séu þar í litlum meiri-
hluta. Þá eru börn stór hópur
alnæmissjúklinga, um 20%. Skýr-
ingin er sú að mikið af konum eru
sýktar og börnin smitast af þeim,
ýmist í móðurkviði eða með
brjóstamjólk.
Sigurður sagði að á ráðstefnunni
hefðu menn dregið í efa þá kenn-
ingu að alnæmisveiran hafi fyrst
komið upp í Afríku og breiðst
þaðan til Vesturlanda. Rannsóknir
á gömlum blóðsýnum virtust gefa
SKIPSTJÓRNARMENN ATHUGIÐ!
Það getur valdið mörgum hugarangri og kvíða þegar skip heimilisföðurins er beðið að tilkynna sig strax
til næstu strandstöðvar Landssíma íslands.
til kynna að veiran hefði náð fót-
festu þar í kringum 1970, en frek-
ari athuganir benda til að svo sé
ekki. „Sú kenning að alnæmisveir-
an sé stökkbreytt afbrigði af veiru
sem finnst í grænum öpum í Afr-
íku er þó ekki þar með hrakin, en
allar athuganir á útbreiðslu veik-
innar benda til að hún hafi komið
nánast samtímis upp í Afríku og
Bandaríkjunum," sagði Sigurður.
„Þá eru menn sífellt að sann-
færast betur og betur um það að
alnæmi er fyrst og fremst kynsjúk-
dómur,“ sagði Haraldur. „Faralds-
fræðilegar athuganir sýna að veir-
an berst ekki með moskító eða
skordýrum. Svo virðist sem menn
smitist aðeins við kynmök eða ef
um beina blóðblöndun er að ræða.
Það hefur ekki fundist ótvírætt
dæmi þess að maður hafi sýkst
vegna daglegrar umgengni við
alnæmissjúkling. Allviðamikil
bandarísk könnun á fjöldskyldum
35 alnæmissjúklinga, samtals 88
manns, sem fylgst hefur verið með
í 35 mánuði að meðaltali, sýnir
ekki eitt einasta dæmi um smit.
Þó hafa heilbrigðir fjöldskyldu-
meðlimir notað sömu búsáhöld,
jafnvel sömu tannbursta og rak-
vélar og hinir sýktu.
Að sögn Haraldar er nú um
tugur íslendinga sem vitað er með
vissu að hefur sýkst af veirunni,
og þar af eru fjórir með forstigs-
einkenni veikinnar. Fyrir u.þ.b.
tveimur vikum var byrjað að
skima allt blóð sem Blóðbankanum
berst, og verður það gert í framtíð-
inni. Fyrst um sinn annast Borg-
arspítalinn þessa skimun, en
stefnt er að því að Blóðbankinn fái
fljótlega nauðsynlegan búnað og
annist þá mótefnamælinguna
sjálfur.
Fundurum
starfsemi
Siglingamála-
stofnunar
HIÐ ÍSLENSKA sjórétUrfélag
gengst fyrir fræðslufundi í Lögbergi,
húsi Lagadeildar Háskóla fslands, í
dag, þriðjudag. Fundurinn verður
haldinn í stofu 102 eg hefst kl. 17.
Magnús Jóhannesson, siglinga-
málastjóri, flytur erindi er hann
nefnir Starfsemi Siglingamála-
stofnunar ríkisins. Að loknum
erindum verða fyrirspurnir og
umræður. Fundurinn er öllum
opinn og eru félagsmenn og aðrir
áhugamenn um sjórétt og siglinga-
málefni hvattir til að mæta.
Fréttatilkynning
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR ( VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMÁLANEFND SJÓMANNA
Er þörf fyrir
sálgæslu á
sjúkrahús-
um?
SAMTÖK presU og lækna gangast
fyrir fundi um efnið: Er þörf fyrir
sálgæslu á sjúkrahúsum?
Fundurinn verður haldinn í
matsal Landspítalans í dag,
þriðjudaginn 3. desember, kl. 20.30.
Framsögumenn eru Árni Björns-
son yfirlæknir og séra Sigfinnur
Þorleifsson sjúkrahúsprestur.
Fundurinn er opinn læknum og
læknanemum, svo og prestum og
guðfræðinemum og deildarhjúkr-
unarfræðingum.
midas
(Kréttatilkynning)