Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
51
Eigendaskipti urðu um síðustu mánaðamót á tískuverzluninni Bóbó sem
er á Laugavegi 61. Nýju eigendurnir eru tveir, Jóhanna Guðnadóttir
og Guðrún Björnsdóttir. Tískuverslunin Bóbó mun eins og áður vera
með herra- og kvenfatnað á boðstólum. Á myndinni frá vinstri eru
Fríða Methúsalemsdóttir afgreiðslustúlka og nýju eigendurnir, Jóhanna
Guðnadóttir og Guðrún Björnsdóttir.
Aðalfundur Félags
íslenzkra rithöfunda
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
rithöfunda var haldinn 23. nóvem-
ber á Hótel Esju, Reykjavík. Vara-
formaður félagsins, Baldur Óskars-
son, setti fundinn. Fundarstjóri var
Indriði G. Þorsteinsson og fundar-
ritari Indriði Indriðason.
Áður en gengið var til dagskrár
minntist varaformaður fjögurra
félaga sem létust frá því síðasti
aðalfundur var haldinn. Þeir eru
Axel Thorsteinsson, Guðmundur
G. Hagalín, Haraldur Á. Sigurðs-
son og Jónas Guðmundsson, sem
var formaður félagins. Fundar-
menn vottuðu hinum látnu virð-
ingu.
Að loknum aðalfundarstörfum
ræddu fundarmenn málefni fé-
lagsins og rithöfunda og tóku
margir til máls. Félag fslenskra
rithöfunda er stéttarfélag rithöf-
unda og er samningsaðili fyrir fé-
lagsmenn. Undanfarið hafa all-
margir rithöfundar gengið í félag-
ið og nú eru í því rúmlega 80 starf-
andi rithöfundar.
í stjórn Félags íslenskra rit-
höfunda voru kosnir: Sveinn
Sæmundsson formaður, Baldur
Óskarsson varaformaður, Ármann
Kr. Einarsson gjaldkeri, Indriði
Indriðason ritari, Gunnar Dal,
Ingimar Erlendur Sigurðsson og
Indriði G. Þorsteinsson. Varamenn
Jón Björnsson og Steingrímur
Sigurðsson. Endurskoðendur
Magni Guðmundsson og Stefán
Ágúst Kristjánsson.
Félag íslenskra rithöfunda mun
að vanda halda uppi öflugu félags-
starfi yfir veturinn og verður
fyrsta bókmenntakynning félags-
ins 12. desember nk. á Hótel Esju.
(FrétUtilkynniiig)
Kirk aðmiráll (William Shatner) og dyggir fórunautar hans berjast
fyrir sál doktors Spock í Star Trek III.
Bullað í geimnum
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Regnboginn: Geimstríð III: Leitin
að Spock — Star Trek III: The
Search For Spock irk
Bandarísk. Árgerð 1985. Hand-
rit: Harve Bennett. Leikstjóri:
Leonard Nimoy. Aðalhlutverk:
William Shatner, DeForest Kelley,
James Doohan, Robin Curtis.
Þá er gamla skrapatólinu,
geimskipinu Enterprise ýtt úr
vör rétt einu sinni og aldurhnigin
áhöfn þess reyrð í þrönga geim-
farabúningana; hún sýgur bumb-
urnar inn og tjaslar andlitsfarða
í sprungurnar. Og svo hefst
mælaborðahasarinn á ný með
tilheyrandi blossum og veltingi.
Þessi Star Trek-ævintýri, sem
áður voru sögð hundruðum sam-
an í amerísku sjónvarpi og nú
tróna þriðja sinni á hvíta tjald-
inu, eru öll eins. Þreytumerkin
voru mikil í annarri myndinni
sem sýnd var í Háskólabíói um
8vipað leyti í fyrra. En þótt efnis-
lega sé ekki farið inn á nýjar
brautir í þessari mynd hefur
tekist að blása í lífsneistann svo
kviknar dramatískt bál hér og
hvar. Það er aðallega að þakka
leikstjóranum, Leonard Nimoy
sem farið hefur með annað hlut-
verkið í þessum myndum, geim-
kanínunnar doktors Spock.
Nimoy nær upp all tignarlegum
epískum blæ á þessu ævintýri í
samvinnu við myndatökustjóra
sinn og tónskáldið James Horner
sem stælir viðamiklar geimsin-
fóníur Johns William af tölu-
verðri tilfinningu. Sjónræn og
hljóðræn áhrifabrögö eru einatt
ágætlega af hendi leyst.
Eins og titill myndarinnar
gefur til kynna segir hér frá því
hvernig Kirk aðmíráll á Enter-
prise og áhöfn hans leita að sál
doktors Spock um víðáttur
geimsins: í síðustu mynd lést
Spock en sálin flakkar óhindrað
og dagar uppi á nýfæddri reiki-
stjörnu Genesis að nafni. Á leið
Enterprise til Genesis og í vegi
tilrauna til að veiða sál Spocks
verður sveit ófélegs skítapakks
sem Klingonar kallast.
Semsagt algjört bull. En það
er betur bullað en áður.
SIEMENS - örbylgju - plús - ofninn
getur allt!
bakar — steikir — glóðar — sýður
bæði fljótt og vel með:
• örbylgjum eingöngu
• yfir- og undirhita
• yfir- og undirhita ásamt örbylgjum
• glóðarhitandi með samtímis örbylgjunotkun
Orku- og tímasparnaður allt að 80°/o!
>microwelle plus<
SIEMENS — einkaumboð:
SMITH & NORLAND H/F
Nóatuni 4
sími 28300
ER EINHVERJUM KALT?
Sterkbyggðir rafmagnsofnar til notkunar (
t.d. skipum, bílskúrum og útihúsum.
Stærð 575-1150 W.
Geislaofn til notkunar f iðnaðartiúsnæði
samhliða almennri upphitun. Stærð 4.5 kw.
Flytjanlegur hitablásari
með rofab. — stillanlegu
loftmagni. Stærð 9 kw.
Hitablásari með innb.
rofabúnaði fyrir fasta
staðsetningu og einnig
flytjanlegur.
Stærð 3-5 og 9kw.
Hitablásari fyrir alhliða
notkun án rofabúnaðar,
ekki flytjanlegur.
Stærð 5-30 kw.
-4—
L „Thermozone" hitablásarar sem hindra kælingu, dragsúg og raka, fyrir ofan dyr eða afgreiðsluop. Vifta til notkunar í iðnað- l arhúsnæði sem dreifir \ heitu lofti niður á við. \ Stórkostlegur sparnað- S ur f upphitun. Orkunotk- 4 un 120 W. 1
.JTRÖNNINi