Morgunblaðið - 03.12.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Stálhúsgögn — ný og
endurbætt verslun
Gunnar Jónsson (sitjandi) forstjóri
Stálhúsgagna og Björn Gunnarsson,
framkvaemdastjóri.
FYRIRTÆKIð Stálhúsgögn hef-
ur nú opnað nýja og endurbætta
verslun í húsakynnum sínum að
Skúlagötu 61, Reykjavík. Þar
verður eigin framleiðsla fyrir-
tækisins seld auk þess sem haf-
inn er innflutningur og samsetn-
ing á Comforto-skrifstofustólun-
um frá V-Þýskalandi, auk hús-
gagna frá Hollandi, Noregi,
Sviss.
Frá því að Stálhúsgögn var
stofnað 1933 hefur fyrirtækið
framleitt húsgögn fyrir heimili,
skóla, kvikmyndahús, félags-
heimili, kirkjur og hótel um allt
land og að auki hjálpartæki og'
búnað fyrir sjúkrahús. Forstjóri
Stálhúsgagna hefur verið frá
upphafi Gunnar Jónsson, en
framkvæmdastjóri er Björn
Gunnarsson.
< F rétutilkynning.)
íjölmiöli íramtíöarinnar.
Islenska útvarpsfélagið hí.
er almenningshlutafélag
með yfir 300 hluthaía.
Markmið félagsins er að
standa að útvarpsrekstri,
jaínt hljóðvarps sem
sjónvarps. Steínt er að því
að heíja hljóðvarpsútsend-
ingar strax á vormdnuðum
1986 að fengnu leyíi út-
varpsréttarnefndar. íbúar
á öllu Suðvesturlandi munu
ná útsendingum íslenska út-
varpsíélagsins.
Nú hyggst íslenska út-
▼arpsíélaglð auka
hlutalé sitt um 10 milljónir
króna.
Með því verður hlutafé fé-
lagsins 15 milljónir króna.
Við bjóðum þér hlut í félag-
inu. Þannig verður þú þátt-
takandi í byltingu fjölmiðl-
unar á íslandi. Hlutur þinn
rœóst af því hversu mikið
þú vilt og getur lagt fram.
Hlutabréíin eru geíin út í
stœrðum 1000, 10.000 og
100.000 krónur. Eitt atkvœði
lylgir hverjum 1000 króna
hlut. Hœgt er að greiða
hlutaíéð með 6 mánaða
skuldabréíi.
Um leið og þú leggur þitt
af mörkum tryggir þú
arðsemi peninga þinna.
í rekstraráœtlun íslenska út-
varpsfélagsins* er gert ráð
fyrir 22,24% arðsemi hluta-
fjár. Þetta þýðir með öðrum
orðum það að fjárfesting
þín gœti skilað 22,24%
ávöxtun umfram verðbólgu
á fyrsta ári!
• Rekstraráœtlunin er unnin al
Endurskoðunarmiðstöðinni hi. - N.
Manscher.
r
F1ÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSLANDS HF
V
Haínarstrœti 7 -
101 Rvtk. s. 28566 og 28466
y
Fjáríesting þín í Í.Ú. er
líka frádráttarbœr frá
skattskyldum tekjum*
Hún skilar því arði strax.
Einstaklingur getur dregið
allt að 25.000 krónum frá
skattskyldum tekjum. Hjón
mega draga allt að 50.000
krónum írá tekjum sínum. * *
* sbr. 1. no. 9/1984 og samþykktir
Ríkisskattstjóra.
*■ Þessar tölur giltu árið 1984. Ekki
er ólíklegt að þœr hœkki um u.þ.b.
30% á þessu ári.
Bréfin eru seld hjá Fjár-
festingarfélagi íslands
hí. Hafnarstrœti 7. Sölutími
er írá 14. nóvember - 31,
desember 1985.
Allar nánari upplýsingar
um þetta útboð fást hjá
Fjárfestingaríélagi íslands.
ÍO milljón króna
hlutaflárútboð
<
Ný bók eftir
Robert Ludlum
Komin er út hjá Setbergi bókin
„Scarlatti-arfurinn" eftir Robert
Ludlum. Þýðandi er Gissur Ó. Erl-
ingsson.
I fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir um söguþráðinn. „Þó
að Ulster Stewart Scarletts yngri
sonur auðkýfingsins Scarlatti erfði
óhemju auðæfi eftir föður sinn er
valdafíkn hans ófullnægt. Hann
lætur því sig og auðæfin hverfa
af sjónarsviðinu og tekur sér nafn
þýsks undirforingja. Sem Heinrick
Kroger beitir hann krafti auðs síns
til þess að koma nasistaflokki
Þýskalands og sér til áhrifa og
valda. Við hvarf Ulsters og hinna
gífurlegu fjármuna riðar Scarl-
attifjármálaveldið til falls. Móðir
hans fær Matthews Canfield til
þess að hjálpa sér að rannsaka
hvarf sonarins og fjármagnsins.
Canfield hefur sterka aðila að
baki. Hann starfar hjá bandarískri
stjórnarstofnun sem annast rann-
sókn fjársvikamála. En andstæð-
ingarnir eru öfl sem þekktust eru
fyrir að svífast einskis. Öll Scarl-
atti fjölskyldan, jafnvel fyrrver-
andi eiginkona og sonur Ulsters
eiga eftir að komast að því.“
„Scarlatti-arfurinn" er 230 blað-
síður, unnin í Prentbergi og Fé-
lagsbókbandinu, en hlífðarkápu
gerði GBB-auglýsingastofa.
Margt býr í
þokunni í Mý-
vatnssveit
BJörk, Mývatiuwreit, 29. nóvember.
NÆSHPKOMANDI fimmtudag 5.
desember, frumsýnir Ungmennafé-
lagið Mývetningur í Mývatnssveit
leikritið „Margt býr í þokunni" ,
eftir William Dinner og William
Morum.
Þetta er gamanleikur með saka-
málaívafi sem gerist nú á tímum.
Leikstjóri er Jónína Kristjáns-
dóttir úr Keflavík, en hún hefur
fengist við leikstjórn um árabil.
Hlutverk eru átta. Áður en æf-
ingar á leikritinu hófust hélt
Ungmennafélagið leiknámskeið og
var Jónína einnig leiðbeinandi á
því. Fyrirhugað er að fara með
leikritið, ef færð og veður leyfa,
þannig er stefnt að því að sýna á
Egilsstöðum á föstudag, 6. desem-
ber, á Reyðarfirði 7. desember og
á Vopnafirði sunnudaginn 8. des-
ember. Sem fyrr segir verður
frumsýning 5. desember í Skjól-
brekku í Mývatnssveit.
— Kristján
Heimsreisu-
farar komnir
til Nýja
Sjálands
Frá Ástu R. Jóhanne.sdóttur, Auckland, Nýja
Sjálandi, 29. nóvember.
NU ERU heimsreisufarar Útsýnar
komnir eins langt að heiman og
mögulegt er. Eftir dvöl í Sydney,
ferðir til Canberra, Melbourne og
inn að hjarta Ástralíu, Ayers Rock,
og önnur fjölbrtytileg ferðalög um
Astralíu, erum við komin til Auck-
land á Nýja Sjálandi. Auckland
vekur mikla hrifningu manna fyrir
fegurð. Hér skoðum við hverasvæði,
eldfjöll og heillandi landslag og
kynnumst menningu Maori-manna.
Þetta er fyrsta hópferð Islend-
inga til Ástralíu og Nýja Sjálands
og vekur koma okkar hingað hvar-
vetna athygli. Veðrið leikur við
okkur. Hér er vorið á enda. Fyrsti
sumardagur er á sunnudaginn, 1.
desember. Ferðin hefur gengið
skínandi vel og heimsreisufararnir
senda bestu kveðjur.