Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
53
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Hér fjöllum við um hinn
dæmigerða Bogmann. Allt
fólk er hins vegar samsett úr
nokkrum stjörnumerkjum og
því undir áhrifum ffa öðrum
þáttum.
Lifandi athafnamaður
Bogmaðurinn er lifandi at-
hafnamaður, þarf hreyfingu,
líf og fjölbreytileika. Honum
er illa við 9—5 vanastörf, á
erfitt með að sitja kyrr og fær
innilokunarkennd í þröngum
herbergjum. Hann þarf svigr-
úm og frelsi. Bogmaðurinn
tapar lífsorku ef hann er
bundinn niður og þarf að fást
við sömu handtökin, verður
áhugalaus og leiður.
Léttlyndur
í skapi er hann hress og létt-
ur, jákvæður, bjartsýnn og
gamansamur. Eða eins og
einn landskunnur Bogmaður
segir gjarnan: „Verið hress,
ekkert stress, bless, bless.“
Hann erlítill vandamálasmið-
ur og reynir að horfa á já-
kvæðu hliðar lífsins. Bog-
maðurinn er opinn, hreinn og
beinn og vingjarnlegur.
Þekkingarleit
Eitt sterkasta einkenni Bog-
mannsins er frelsisþörf og
fróðleiksþorsti. Hann vill
kynnast heiminum og þráir
þekkingu og yfirsýn. Hann
ann því ferðalögum og al-
mennri hreyfingu. Bogmenn
eru oft lítið fyrir skólanám,
eiga erfitt með að sitja kyrrir
tímunum saman yfir sömu
skruddunum. Athafnir,
hreyfing, útivera og íþróttir
eiga mun betur við þá. Þó eru
þeir fróðleiksfúsir en vilja oft
frekar læra í skóla lifsins.
Ábyrgðarleysi
Öllu ljósi fylgja einhverjir
skuggar. Bogmaðurinn hefur
sínar skuggahliðar, þó hann
kjósi oft að horfa framhjá
þeim. Það er einmitt vanda-
mál hans. Hann vill vera
hress og jákvæður, er illa við
þyngsli og það að velta sér
uppúr því neikvæða. Því
hættir honum til að horfa
framhjá vandamálum og vilja
flýja erfiða ábyrgð. Hann
getur því átt til að vera
ábyrgðarlaus.
Yfirborðið
Bogmaðurinn þarf einnig að
gæta þess að frelsisþörf og
vilji til að fara eigin leiðir
verði ekki að eigingirni og
tillitsleysi. Önnur hætta er
sú að eirðarleysi og þörf fyrir
fjölbreytileika verði að yfir-
borðsmennsku. Þegar farið er
úr einu í annað öðlast hann
smjörþef af mörgu en þekk-
ingu á engu.
Yfirsýn
Ef Bogmanninum tekst vel
upp höfum við mann sem
hefur þekkingu á ólíkum mál-
efnum og getur séð hvernig
ólíkir þættir spila saman,
hefur yfirsýn.
Fjöllyndur
í ástamálum er hinn dæmi-
gerði Bogmaður fjöllyndur.
Hann vill vera frjáls og þolir
ekki að vera bundinn niður.
Vísasti vegurinn til að missa
af Bogmanni er að krefjast
of mikils af honum. Ef honum
finnst frelsi og hreyfanleika
ógnað, lætur hann sig hverfa.
A hinn bóginn er Bogmaður-
inn skemmtilegur félagi.
Hann er lifandi, hressandi og
hugmyndaríkur. Jákvæð við-
horf gera að hann er yfirleitt
elskaður og vel liðinn.
X-9
~Pl4lL - KX/BÞO £#K/
&/Hc.u>e/6# ? //A/r/r
S£6/$r///M 0JA£*/tt>
EiNHeeBssT'ieAi
JdP///6/r /ee>p
þi/M/tT. ÍAó --
O ^
'fls/
€> Klnfl Fcaturet Syndlcate. Inc World r iflhts rcMrvcd
*SpPE//67(/
7/á'P£>/.
DYRAGLENS
J ]Z-/&
TOMMI OG JENNI
P.ST tO.TQ«SPHtSbSiRVK:t..^
LJÓSKA
JTTT* 1. ■'ur— i^ Nirimiiiiiu
FERDINAND
iiiwiiiiiniiiiiniiiiiiiniiiiinnwiiiiMiiiiiiiniinniiimijjijj!j;j}!jj;|||!i;!m;!!!;!|||!!!!j||!!!;;;»»M!!;!!!;!!!H!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
SMÁFÓLK
I5NTTHATTHE JACKET
6RANPMA 6AVE VOU?
IF YOU UNZIP THE SLEEVES,
ITTURN5INT0 A VE5T...
I THINK l*LL JUST
UJEARTHE 5LEEVES..
Er þetta ekki jakkinn sem Ef þú rennir niður lásunum á Þú segir ekki?
ammagafþér? ermunum verður hann
vesti...
Ég held að ég noti bara erm-
arnar...
BRIDS
Umsjón:Guöm. Páll
Arnarson
Dálkahöfundur og Þorgeir
Pétur Eyjólfsson komust sjálf-
krafa í Botnavinafélagið fyrir
frammistöðu sína í þessu spili.
Það kom upp á sunnudaginn,
í síðustu umferð undankeppni
Reykjavíkurmótsins.
Austur gefur; N/S á hættu.
Norður
♦ -
V10654
♦ G7652
♦ KG82
Vestur
♦ DG3
¥ ÁKG93
♦ 9
♦ D1054
Austur
♦ Á876542
V82
♦ D1084
♦ -
Suður
♦ K108
VD7
♦ ÁK3
♦ Á9763
Valgerður Kristjónsdóttir
og Ester Jakobsdóttir voru í
N/S:
Vestur NorAur Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— — 3spaðar 3 Krond
4 spaðar 4 t;rönd Pass Pass
Pass
Þetta eru nokkuð einkenni-
legar sagnir þegar menn sjá
allar hendur, en fjögurra
granda sögn norðurs var meint
sem láglitarsögn, en suður tók
hana sem eðlilega. Því voru
fjögur grönd pössuð þegjandi
og hljóðalaust út.
Vestur lyfti hjartakóngnum
og skipti svo yfir í spaða. Suður
fékk slaginn á kónginn, prófaði
tígulinn, varð fyrir vonbrigð-
um, spilaði laufi á gosann og
varð aftur fyrir vonbrigðum.
Niðurstaðan var óhjá-
kvæmilega: fjórir niður á
hættunni. 400 í A/V.
A/V rifu skorblaðið hlakk-
andi úr bakkanum til þess eins
að sjá súlu af 420 í A/V fyrir
fjóra spaða slétt staðna
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Politiken-skákmótinu í
Kaupmannahöfn í sumar kom
þessi staða upp 1 skák ung-
verska alþjóðameistarans Kar-
olyi og Svíans Johnny Hector,
sem hafði svart og átti leik.
\mtwm
Ui iil
m m m
■ ■ ■ wm
m mwm e.
■nBBAJ
18. — Rxc4! og Karolyi gafst
upp, því 19. bxc4 er svarað með
19. — Hxe3! Svíinn tefldi þessa
skák í skemmtilegum kaffi-
húsastíl: Búdapestarbragð: 1.
d4 - Rf6, 2. c4 — e5!?, 3. dxe5
- Rg4, 4. Rf3 - Rc6, 5. Rc3 -
Bc5, 6. e3 — Rgxeö, 7. Be2 —
0-0, 8. 0-0 - a5, 9. b3 - Rxf3+,
10. Bxf3 - Re5, 11. Be4 —
Ha6, 12. g3 - Hh6, 13. Re4 -
Ba7, 14. Bg2 - d6, 15. De2 -
He8, 16. f3 - Dg5, 17. Rc3 - ■
Dh5, 18. Bhl? og nú er staðan
á stöðumyndinni komin upp.