Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
59
tunnurnar og þá fengu flestir
krakkar vinnu viö að velta þeim
af skipsbryggjunni og á plönin.
Við eignuðumst þá nokkra aura
eða krónur, allt eftir úthaldi og
vorum þá ánægð og rík. Þegar
síldarsöltunin byrjaði, fylltist allt
af aðkomufólki og bæjarbúar týnd-
ust alveg í mannfjöldanum. En
þetta var samt afskaplega
skemmtilegur tími.
Það var afar gott að alast upp
á Siglufirði á þessum árum þegar
mikil gróska var í bæjarfélaginu.
Þar var mikið af glöðum og heil-
brigðum dugnaðarbörnum. Við
vorum félagslynd og samhent í
leik og störfum, enda athafnasam-
ir unglingar. Margir af þessum
unglingum hefur sem fulltíða fólk
unnið og vinnur enn fjölmörg trún-
aðarstörf fyrir þjóðina. Jón Kjart-
ansson var svo sannarlega einn af
þeim. Hann var léttur í lund, orð-
heppinn og sístarfandi. Og kímni-
gáfuna sem hann var svo þekktur
fyrir, þroskaði hann með sér í
uppvextinum.
Þó að leiðir okkar skildu, slitn-
uðu aldrei vinaböndin. Þegar við
töluðum saman síðast ákváðum við
að rífja upp minningar bernsku-
áranna. Það gerum við ekki héðan
af, en svona var æska okkar í stór-
um dráttum.
Hafi hann þökk fyrir trygga
vináttu í gegn um árin. Eiginkonu
og fjölskyldu sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Nanna Þormóðs
Kveðja frá stjórn
Þróunarsamvinnustofnunar
íslands
Jón Kjartansson hafði mörg
járn í eldi um ævina og hamraði
þau af einurð og list í mörgum
smiðjum.
Hann varði miklum tíma til
starfa að velfarnaði annarra, var
m.a. einn brautryðjenda að skipu-
legum stuðningi fslendinga við
fátækari þjóðir heims. Vildi hann
að þeim, eins og íslendingum,
tækist að brjótast úr örbirgð til
bjárgálna — sækja fram til vel-
megunar. Störf hans að þessum
málum áttu sér djúpar rætur í
mannlegri hlýju sem var svo rík i
fari hans og setti raunar einnig
sterkt svipmót á störf hans í þágu
heimabyggðar og þjóðmála. Þörf
náungans var hans þörf og náungi
hans sá sem hjálpar var þurfi —
líka þótt fjarri byggi.
Störf með Jóni — svo traustum
og velviljuðum — voru einkar
ánægjuleg. Þegar í stað fannst
glöggt að þar fór maður mikillar
reynslu og ráðhollustu sem ástæða
var til að leggja eyrun við hvað
fram vildi færa. Þaulvanur fund-
um hafði hann lag á að lífga og
örva umræður með hressileika
sínum, græskulausri kímni og frá-
sögn af atvikum frá litríkum
stjórnmála- og embættisferli. Ná-
vist hans og þátttaka var í senn
til gagns og ánægju. Þess fengu
margir að njóta og þess er og
verður mörgum ljúft að minnast.
Sá fáni sem í dag á kveðjustund
er dreginn í hálfa stöng mun lengi
blakta við hún yfir góðum verkum
þessa mæta manns.
Ólafur Egilsson
Jón Kjartansson var mikill Sigl-
firðingur. Sú taug, sem batt hann
æskustöðvunum, varð ekki að blá-
þræði í tímans rás; miklu fremur
að hún yrði veigameiri með árun-
um. Ekkert var Siglufirði of gott
eða Siglfirðingum heima og heim-
an.
Þeir eðlisþættir, sem standa
mörgum vinum hans skýrast fyrir
hugskotssjónum, eru án efa góð-
vildin og hjálpfýsin. Mér er í
barnsminni að á orði var haft um
hann ungan hversu góður hann
væri móður sinni en hún hafði
orðið að sjá á bak manni sínum á
besta aldri. Slíkur var hann og
vinum sínum ævina alla.
Ég hef líklega verið sex vetra
þegar Jón og Kristján Dýrfjörð
tóku mig inn í tóbaksbindindis-
félagið Gunnar. Oft hafði ég orð á
því við hann að þeir Dýrfjörð,
ásamt frú Þóru Jónsdóttur, hefðu
bundið mig hugsjóninni um „ver-
öld án vímu“ það rammlega að
engar tískusveiflur fengju þar
nokkru um þokað.
Síðar á ævinni varð það hlut-
skipti Jóns Kjartanssonar að stýra
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
Ég hygg hann hafi gert sér ljósa
ábyrgð sína og þann reginmun sem
er á ríkiseinkasölu áfengis og
frjálsum leik gróðaafla með heilsu
og hamingju manna þar sem sala
þessa vímuefnis er með öðrum
hætti. — Hann sagði í ræðu í
samkvæmi starfsmanna fyrsta
árið sem hann gegndi forstjóra-
starfinu að í stofnuninni mætti
helst enginn vinna er þætti áfengi
betra en blek. Og leyfist mér að
bæta við: Enginn ætti að hafa
ábata af því að sala áfengis aukist;
ef eitthvað væri þá hið gagnstæða.
Jón Kjartansson átti mikilhæfa
móður og hann eignaðist einnig
hina ágætustu konu, Þórnýju Tóm-
asdóttur.
Vinir þeirra hjóna, þeir sem
forðum áttu heima að Hlíðarvegi
19, senda henni og ástvinum henn-
ar hugheilar samúðarkveðjur um
leið og þeir minnast góðs drengs
með virðingu og þökk._
Ólafur Haukur Árnason
Jón Kjartansson var einstakur
öðlingur, enda vinmargur og vin-
sæll.
Ungur varð hann athafnasamur
og hygginn bæjarstjóri á Siglu-
firði, síðar ötull baráttumaður
fyrir margvíslegum þjóðþrifamál-
um, er hann fékkst við stjórnmál,
farsæll og traustur forstjóri um-
svifamikillar ríkisstofnunar, at-
kvæðamikill í stjórnum, nefndum
og ráðum á sviði atvinnu-, menn-
ingar- og mannúðarmála.
En minning hans verður ekki
einungis tengd athöfnum hans og
afrekum á opinberum vettvangi
heldur einnig og ekki síður persónu
hans og mannlegum eðliskostum.
Þar ber hæst vingjarnlegt viðmót,
umhyggju og umburðarlyndi, ein-
staklega skemmtilegt skopskyn og
fágæta frásagnargáfu.
Hvar sem hann fór var hann
hrókur alls fagnaðar, kunni ó-
grynni gamansagna sem hann var
óspar á að segja bæði af samferða-
mönnum og sjálfum sér. Mælskur
var hann og rökviss, og ræður
hans rómaðar.
En eitt þótti honum meira virði
en flest annað. Uppruni hans og
æskustöðvar. Jón var Siglfirðing-
ur, fæddur og uppalinn í nyrsta
kaupstað landsins. Við bæinn tók
hann sérstöku ástfóstri og lagði
Sigiufirði og Siglfirðingum allt
það lið sem hann gat.
Brottfluttir bæjarbúar eru mjög
fjölmennir á höfuðborgarsvæðinu.
Eftir að síldin hvarf af miðunum
fyrir norðan land flutti fjöldi
manna sig um set, suður yfir heið-
ar í atvinnuleit og ílentist þar.
Ungt fólk fór brott til framhalds-
náms og skilaði sér ekki aftur í
heimahagana nema að litlu leyti.
Fábreytni í atvinnulífi nyrðra varð
til þess að það haslaði sér völl á
höfuðborgarsvæðinu.
Þar stofnaði Jón ásamt fleirum
Siglfirðingafélagið i Reykjavík og
nágrenni haustið 1961. Hann var
kjörinn fyrsti formaður þess og
gegndi því embætti í fimmtán ár.
Siglfirðingafélagið varð snemma
eitt öflugasta átthagafélag í
Reykjavík og Jón leiðtogi hópsins
jafnt innan félags sem utan og
fylgdist með framgangi mála hjá
Siglfirðingum hér syðra af föður-
legri umhyggju. Félagið hefur í
samræmi við tilgang sinn eflt
kynni og samstarf Siglfirðinga og
annarra velunnara Siglufjarðar í
Reykjavík og nágrenni, unnið að
menningarmálum á Siglufirði og
styrkt tengsl félagsmanna við
Siglufjörð. 1 félaginu er ekkert
kynslóðabil því ungt fólk tekur
ekki síður þátt í starfinu en hinir
eldri. Skráðir félagsmenn eru á
annað þúsund.
Jón var kjörinn fyrsti heiðurs-
félagi Siglfirðingafélagsins og kom
það í minn hlut sem eftirmanns
hans í formannsembætti að af-
henda honum skjal þessu til stað-
festingar í janúarmánuði 1978. Þá
gafst tækifæri til að þakka honum
áhuga hans, elju og giftudrjúg
störf í þágu Siglfirðingafélagsins
og Siglufjarðar um langt árabil.
Við Jón störfuðum saman á fleiri
sviðum og áttum margar ánægju-
stundir allt fram til síðustu sam-
funda okkar.
Svolítið svipleiftur kemur upp í
hugann.
Jón kemur í heimsókn til mín i
nýliðnum nóvembermánuði. Hann
er geislandi af glaðværð og lífs-
krafti sem endranær. Slegið er á
létta strengi, sagðar fréttir og Jón
flytur hamingjuóskir í tilefni af
nýjum áfanga í útgáfurekstrinum.
Hann segir þau Þórnýju vera á
förum til Þýskalands til að heim-
sækja son þeirra, Tómas Óla og
fjölskyldu hans á nýjum starfs-
vettvangi. Tilhlökkunin leynir sér
ekki. Hann ræðir framtíðaráform
sín, segist ætla að hverfa úr for-
stjórastólnum hjá ÁTVR á sumri
komanda og fara að sinna ýmsum
áhugamálum sínum meira en tími
hafi leyft frá önnum, þar á meðal
ættfræðiathugunum og ritstö.rf-
um. Hann er uppfullur af hug-
myndum og horfir fram á veginn.
Nokkrum dögum síðar fer hann
utan. Það varð hans hinsta för.
Litríku lífsskeiði var lokið, stunda-
glasið runnið út.
Samúðarkveðjur eru sendar
Þórnýju og fjölskyldu hennar.
Vinir og kunningjar harma fráfall
góðs drengs og þakka samfylgdina.
Það er lán okkar að hafa fengið
að kynnast Jóni Kjartanssyni.
Hann auðgaði líf þeirra sem um-
gengust hann. Glaðværðin og hlýj-
an mun geymast í minningunni
um svipmikinn samferðamann, —
meistara á sviði mannlegra sam-
skipta.
Ólafur Ragnarsson
Það er gömul og ný reynsla, að
dauðinn gerir ekki alltaf boð á
undan sér. Hann kemur þá okkur
grunar síst og tekur frá okkur ást-
vini og góða samferðamenn,
hvernig sem högum manna kann
að vera háttað.
Þannig var það um andlát Jóns
Kjartanssonar, forstjóra, en hann
lést á heimili sonar síns í Hamborg
þann 21. nóvember sl., þar sem
hann var á ferð ásamt konu sinni.
Án efa hefur marga sett hljóða,
er þeim barst fregnin um hið
óvænta fráfall h^ns, því svo mjög
var hann vinsæll og virtur af vin-
um sínum og samferðamönnum og
svo víða kom hann við sögu í at-
vinnu- og félagslífi þjóðarinnar
um langt skeið, svo trygglyndur
var hann við gamla vini og félaga
frá fyrri árum, og svo sterkum
böndum ræktarsemi og átthaga-
tryggðar var hann bundinn við
æskustöðvar sínar í Siglufirði.
Jón fæddist í Siglufirði 5. júní
1917. Foreldrar hans voru þau
hjónin Kjartan Jónsson, bygginga-
meistari í Siglufirði, en hann var
sonur Jóns Jónssonar, síðast próf-
asts að Hofi í Vopnafirði, en móðir
Jóns Kjartanssonar var Jónína
Tómasdóttir Bjarnarsonar, prests
að Hvanneyri í Siglufirði, en síðast
að Barði í Fljótum. Jón átti til
góðra að telja í báðar ættir. Hann
ólst upp í Siglufirði og kóm þar
mjög við sögu fyrri hluta ævi
sinnar. Hann lauk prófi frá Sam-
vinnuskólanum í Reykjavík 1935.
Að námi loknu hóf hann strax
störf í athafnalífi Siglufjarðar. 18
ára gamall var hann ráðinn verk-
stjóri hjá Síldarverksmiðjum rík-
isins í Siglufirði, og þótti sumum
hann vera nokkuð ungur til þess
að honum væru falin slík störf.
Það var ekki vandalaust að gegna
slíku starfi, en Jón vann sér strax
traust og vinsældir, enda sýndi
hann bæði festu og lipurð í starfi.
Það má segja, að þetta hafi verið
upphafið að opinberri þjónustu
hans í ýmsum vandasömum störf-
um síðar á ævinni. Reyndar byrj-
aði hann ungur sem sendisveinn
hjá Síldarverksmiðjunum. Sann-
aðist hér að mjór er mikils vísir,
því Jón átti síðar eftir að verða í
stjórn Síldarverksmiðjanna um
árabil. í þessum störfum kynntist
hann vel mikilsverðum þáttum í
íslensku atvinnulífi, og um leið
störfum og lífskjörum þeirra
manna, sem unnu daglega hin
nauðsynlegu og þýðingarmiklu
framleiðslustörf.
Það yrði of langt mál að rekja
hér öll þau störf, sem Jón Kjart-
ansson hafði með höndum í lífinu,
mörg þessara starfa voru erfið og
vandasöm. Það var t.d. enginn
leikur að vera bæjarstjóri í Siglu-
firði á árunum 1949—58, þegar
atvinna fór minnkandi og bæjar-
búum tók að fækka ár frá ári.
Þegar Jón svo tók við forstjóra-
starfi við Áfengis- og tóbaksversl-
un ríkisins, var þar engu síður um
vandasöm störf að ræða, þótt öðru-
vísi væru en þau, sem hann hafði
áður haftáhendi.
Þá var Jón alllengi alþingismað-
ur fyrir Framsóknarflokkinn í
Norðurlandskjördæmi vestra og
sat á 9 þingum alls, ýmist sem
varaþingmaður flokksins eða al-
þingismaður. Þá var hann í all-
mörg ár vararæðismaður Finna á
Norðurlandi og aðalræðismaður
Finnlands eftir að hann flutti
hingað suður. Þá var hann formað-
ur í stjórnarnefnd Hjálparstofn-
unar íslensku kirkjunnar í áratug,
1969—79, og einlægur stuðnings-
maður kirkjunnar. Af þessu má
nokkuð ráða, að hinir ólíkustu
menn báru traust til Jóns Kjart-
anssonar og svo um áhugamál
hans, hve fjölþætt þau voru. Það
þótti hverju máli mikill styrkur
að njóta starfskrafta hans og full-
tingis. Hann var óvenju vinsæll
maður. Hann hafði ölí einkenni
ættar sinnar um lipurð og ljúf-
mennsku. Hann var félagslyndur
í besta lagi, tryggur í lund og
hjálpsamur. Hann var hrókur alls
fagnaðar í samkvæmum og á
mannfundum og gestrisinn heim
að sækja, og sló oft á strengi
meinlausrar fyndni og hafði gott
auga fyrir hinu broslega í kringum
sig. Hann var þó innst inni alvöru-
maður, viðkvæmur í lund og trú-
hneigður og var gott að hafa hann
nálægt sér á alvörustundum.
Margir eiga honum skuld að gjalda
fyrir hjálpsemi hans og fyrir-
greiðslu og hann taldi ekki eftir
sér neina fyrirhöfn í þeim efnum.
Siglufjörður og Siglfirðingar áttu
löngum hauk í horni þar sem hann
var. Hann vann trúlega að velferð-
armálum Siglufjarðar bæði á
meðan hann var bæjarstjóri og
meðan hann sat á Alþingi. Hann
var í mörg ár formaður Siglfirð-
ingafélagsins hér í Reykjavík og
átti þvi mikinn þátt í því að auka
ræktarsemi burtfluttra Siglfirð-
inga við heimabyggðinga og halda
sem bestum tengslum við þá. Við
hjónin teljum það mikinn ávinning
að hafa átt vináttu Jóns Kjartans-
sonar, bæði á Siglufjarðarárum
okkar og eftir að við komum hing-
að suður, og vissulega eru þær
gleðistundir margar sem við höf-
um átt með honum og fjölskyldu
hans, og elskulegrar móður hans,
frú Jónínu Tómasdóttur, meðan
hennar naut við. Fyrir þetta erum
við innilega þakklát, þegar litið er
til baka.
Nánustu ástvinir Jóns nutu
kærleika hans og umhyggju í rík-
um mæli, því leitun mun hafa verið
að betri heimilisföður en hann
var. Hann kvæntist 17. júní 1945,
Þornýju Tómasdóttur, ættaðri úr
Skagafirði, og eiga þau 4 börn;
Jónínu Helgu, húsfreyju í Reykja-
vík, Tómas Óla, framkvæmda-
stjóra hjá skipadeild Sambandsins
í Hamborg, Kjartan, deildarstjóra
Norðurflutningadeildar Eimskips
í Reykjavík, og Ólöfu Guðrúnu,
sem er í foreldrahúsum.
Jón Kjartansson mun lengi
verða vinum sínum minnisstæður
sökum ljúfmennsku, hjálpsemi og
glaðværðar meðal vina. En í raun
og veru var þó alvaran veigamikill
þáttur í lífsskoðun hans, og því
studdi hann heilshugar mörg þau
velferðarmál, sem kirkjan hafði
með höndum.
Þegar. Jón Kjartansson er
kvaddur í dag, fylgir honum þakk-
látur hugur frá mörgum vinum og
samferðamönnum á lífsleiðinni.
Við blessum öll minningu hans
og biðjum honum fararheilla, og
ástvinum hans biðjum við huggun-
ar og styrks og vottum þeim
dýpstu samúð í sambandi við hið
óvænta fráfall hans. Vissulega
munum við minnast hans, er við
heyrum góðs manns getið.
Óskar J. Þorláksson
Það er alltaf erfitt að kveðja
góðan vin, sérstaklega þann sem
reynst hefir manni einstaklega vel
á lífsleiðinni. Vin, sem erfitt var
Blömastofa
FriÖjinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytlngar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Legsteinar
Ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14 sími 54034
222 Hafnarfjöröur.
Legsteinar
Framleiðum alfar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um
12 S.HELGASON HF
I STEINSfnlÐJA
■ SKEMMUVEGI 4S SlMI 76877