Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 67
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
VT
íþróttir —
Knattspyrnuáhugamaöur skrifar:
Nýverið réð knattspyrnudeild
KR til sín tvo erlenda þjálfara.
Framtak KR-inga er lofsvert og
verður örugglega til að bæta knatt-
spyrnu félagsins. Það verður hins
vegar að teljast nokkuð vafasamt
að lög KSÍ skuli leyfa erlendum
leikmönnum að spila með íslensk-
um félagsliðum eftir aðeins 3 mán-
aða dvöl á landinu. Það er vitað
mál að erlendis eru margir knatt-
spyrnumenn sem glaðir myndu
spila á Islandi gegn borgun. Gildir
þá einu hvort þjálfun fylgir með í
kaupunum. Með þessu er verið að
leggja drög að atvinnumennsku á
íslandi. Sýnist einsýnt að efnuð-
ustu félögin geti ráðið til sín út-
lendinga sem eru yfirburðamenn á
íslenskan mælikvarða og þannig í
raun keypt sér Íslandsmeistaratit-
ilinn. Hvað er þá orðið af áhuga-
mennsku Islendinga? Augljóslega
þarf að setja einhverjar takmark-
anir á þátttöku útlendinga í íþrótt-
um innanlands.
Atvinnumennska eins og að ofan
atvinna eða áhugamál
Knattspyrnufélag Reykjavíkur í leik gegn Vfði í Garði.
greinir var reynd í körfunni um
árið og setti félögin nær því á
hausinn auk þess sem spurningin
var ekki hver væri með besta liðið
heldur hver hafði efni á að kaupa
besta leikmanninnn."
Virðingarfyllst
Steinþór Skúlason
Símaframkvæmdir
víða á undan áætlun
Svava S. Guðmundsdóttir, Görð-
um í Staðarsveit á Snæfellsnesi,
skrifar Velvakanda bréf um síma-
mál 23. nóvember sl. og beinir
nokkrum spurningum í því sam-
bandi til póst- og símamálastjóra.
Bréfritari segist ekki hafa verið
sáttur við að bíða á þriðja mánuð
eftir fjölsímatæki þegar allt annað
var tilbúið og símtækin sjálf
komin. „Þurfa framkvæmdirnar
að ganga svona fyrir sig?“ spyr
hann.
Þessu er til að svara að sjálfvirk
símstöð að Gröf í Miklaholtshreppi
var tekin í notkun 18. apríl í fyrra
og þjónar hún íbúum í Kolbeins-
staðahreppi, Miklaholtshreppi,
Staðarsveit og í Breiðuvíkur-
hreppi. Á áætlun um sjálfvirkan
síma í sveitum var stefnt að því
að ljúka framkvæmdum á árinu
1985.
Framkvæmdir við lagningu
sjálfvirks síma í sveitir landsins
hafa gengið vel. Víða eru þær á
undan áætlun eins og fyrrnefnt
dæmi sýnir.
Þegar ákveðið var að flýta fram-
kvæmdum um eitt ár miðað við
fyrri áætlun sem gerð var 1981,
þá var ekki unnt að hraða öllum
þáttum verksins jafnt, t.d. var ekki
hægt að fá afgreiðslutíma styttan
hvað varðaði tækja- og vöruinn-
kaup. Hagkvæmt er að vinna við
jarðsímalagnir á sumrin, en teng-
ingar og innilagnir á vetrum. Oft
annast sömu starfsmenn báða
verkþætti.
Bréfritari segir að ekki sé allt
fengið þótt kominn sé sjálfvirkur
sími á heimilið, kvartar yfir því
að ekkert betra sé að ná sambandi
nú en áður fyrr og segir það von-
laust á mestu annatímum.
Það er staðreynd að langlínu-
kerfi milli stöðva og landshluta
hefur ekki nægjanlega afkastagetu
á aðalálagstímum. Víða er þörf á
fjölgun lína í langlínukerfi. Þess
Unnið við að plægja símastrengi
niður.
skal getið að nýlega var fjölgað
vallínum um 10 milli Borgarness
og Reykjavíkur.
Einnig nefnir bréfritari í bréfi
sínu til Velvakanda svokallað vit-
laust val, þ.e.a.s. fólk fær annað
númer en það hefur hringt í þótt
rétt hafi verið valið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kristjáni Helgasyni umdæmis-
stjóra Pósts og síma í Umdæmi
1, hafa stöðvarnar á sunnanverðu
Snæfellsnesi, í Borgarfirði og
Borgarnesi verið sérstaklega próf-
aðar vegna kvartana um skakkt
val. Engin bilun hefur fundist í
stöðvunum.
Að lokukm talar bréfritari um
hve bagalegt sé að símum skuli
vera lokað 10. þess mánaðar sem
reikningar eru sendir út. Sím-
reikningar eru sendir út um mán-
aðamót og eindagi er 10. byrjaðs
mánaðar. Miðað er við að það taki
einhvern tíma að senda greiðslu
til símstöðvanna, ekki síst frá þeim
stöðum þar sem póstsamgöngur
eru ekki jafn tíðar og annars stað-
ar. í Staðarsveit eru þrjár póst-
ferðir í viku. Þar sem landpóstar
sjá um dreifingu pósts eins og
tíðkast í strjálbýli taka þeir við
greiðslum á símreikningum eins
og um gjaldkera á póst- og síma-
stöð væri að ræða, enda annast
þeir alla almenna póstþjónustu.
Greiðslan á því að komast fljótt
og örugglega til skila.
Eins og bréfritari bendir rétti-
lega á er síminn öryggistæki og
er óhætt að fullvissa hann og aðra
símnotendur um það að Póst- og
símamálastofnunin vinnur sífellt
að því að bæta þjónustu sína of
er eins og fyrr var drepið á síðu
en svo á eftir áætlun í því efni.
Jóhann Hjálmarsson,
blaðafulltrúi Pósts og síma.
Vendi úlpan frá NORTHLAND, sem hæqt er að breyta á sex
mismunandi vegu. Ur 100% bómull og fóðruð með gæsadúni.
Litir: Blár/hvítur blár/grár rauður/grár.
Stærðir: 140 cm. (9 ára) 176 cm. S XL.
Verð frá 3.995 kr. Róstsendum samdægurs!
EUROVISA *5% STADGR.AFSL.
HUMMELSPORTBUOIN ARMULA 38 SIMI: 83555
1
AUGLST BJARNA D