Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
NMísundi:
Bryndís og
Ragnar á
verðlaunapall
— Bryndís setti íslands-
met í200 m skriðsundi
Frá Jóni Óttarri Karluyni, Iráttaritar* Morgunblaóaina í Noraai.
RAGNAR Guömundsson og
Bryndís Ólafsdóttir komust á
verölaunapall á Noróurlandamót-
inu í sundi sem fram fór í Noregi
um helgina. Ragnar varð þriðji í
400 metra og 1500 metra skrið-
sundi. Bryndís Ólafsdóttir varð
þriðja í 100 metra skriðsundi.
Bryndís setti einnig íslandsmet í
200 m skriösundi. Hugrún systir
hennar, setti tvö telpnamet og
Ragnar Guömundsson setti pilta-
met í 200 m skriðsundi.
80 keppendur frá öllum noröur-
löndunum tóku þátt í þessu móti,
þar af 9 keppendur frá íslandi. Svíar
uröu mjög sigursælir á mótinu og
unnu flestar greinar. Keppnin fór
fram á íþróttasvæöi íþróttaháskól-
ans í Osló í Noregi, viö góöar aö-
stæöur. Norðmönnum hefur farið
mikiö fram og komu sterkir út úr
þessu móti.
„Þaö hefur veriö mjög góö skipu-
lagning á þessu móti og hefur þaö
fariö vel fram,“ sagði Guömundur
Haröarson, landsliösþjálfari í sam-
tali viö fréttaritara Morgunblaöisns
eftir mótiö. „Þaö er mikill munur á
því fyrir íslensku unglingana aö
keppa á svona sterku móti. Heima
eru þessir krakkar aö berjast um
fyrsta sætiö, en hér eru þau aö
berjast um síöustu sætin. Þetta er
mjög góö reynsla fyrir þau," sagöi
Guömundur, sem nýlega hefur ver-
iö ráöinn landsliösþjálfari í sundi
fyrir bæöi unglinga- og A-landsliö-
iö.
Bryndís setti islandsmet í 200
metra skriðsundi, synti á 2.08,61
mínútu og er þetta jafnframt
stúlknamet. Hugrún setti telpna-
met í sama sundi, synti á 2.09,31
mínútu. Hún setti einnig telpnamet
í 200 metra fjórsundi, synti á
2.35,26 mínútum. Ragnar Guö-
mundsson setti piltamet í 200
metra skriösundi, synti á 1.57,92
mínútum.
Stavanger
efst í Noregi
- Jakob geröi sjö og Sveinn fimm
Frá Bjarna Jóhannaayni, fréttaritara Morgunblaósina í Norogi.
ÍSLENDINGALIDIN í Noregi, Stav-
anger og Fredensborg/ski, unnu
sína leiki í norsku 1. deildinni um
helgina. Fredensborg, sem Gunn-
ar Einarsson þjálfar, sígraðí Kol-
botn, 30-17, og Stavanger, sem
Helgi Ragnarsson þjálfar og þeir
Jakob Jónsson og Svienn Braga-
son leika með, sigraöi Fjell-
hammer, 29-20.
islendingarnir í liöi Stavanger
fengu mikiö hól fyrir leik sinn. Jak-
ob skoraöi 7 mörk og Sveinn
Bragason geröi 5. Stavanger er enn
í efsta sæti deildarinnar með 20 stig
eftir 11 leiki. Uredd er í ööru sæti
meö 18 stig eftir 11 leiki og liö
Gunnars Einarssonar, Fredens-
borg/ski, er í þriöja sæti með 17
stig eftir 10 leiki. Þessi þrjú liö skera
sig nokkuö úr í deildinni því næsta
liö er Rapp og hefur þaö aöeins 11
stig.
Stavanger er einnig komiö í úrslit
í norsku bikarkeppninni. Úrslita-
leikurinn fer fram í Stavanger 14.
desember og eru mótherjarnir,
Rapp. Stavanger veröur aö teljast
sigurstranglegri, þar sem þeir hafa
ekki tapaö leik á heimavelli sínum
ívetur.
Morgunblaðið/Sigurgeir
, aM Jj | 1É^ Á
Ársþing KSÍ:
Ellert endurkjörinn
— Tillaga um fjölgun í 1. deild
og deildarkeppni var felld
ELLERT B. Schram var endurkjör-
inn formaöur Knattspyrnusam-
bands íslands til næstu tveggja
ára á 40. ársþingi KSÍ í Vest-
mannaeyjum um helgina. Á þing-
inu var samþykkt aö lengja kjðr-
tímabil formanns um eitt ár og
auk þess ákveðiö aö fjölga í aðal-
stjórn, úr 7 í 9.
Mikill málafjöldi lá fyrir þinginu
en segja má að talsverðrar íhalds-
semi hafi gætt meðal þingfulltrúa
því flest öll veigameiri mál voru
felld, s.s. tillaga um fjölgun í 1.
deild og stofnun deíldarbikar-
keppni. Kom það fram í máli Ell-
erts B. Schram við þingslit að
hann taldi þetta ekki hafa verið
byltingarþing en engu að síöur
gott þing og starfsamt. „Það er
jafn og stígandi vöxtur í samtök-
um okkar og KSÍ eru nú sterk
samtök“, sagöi Ellert þegar hann
sleit þinginu síödegis á sunnu-
dag.
Reikningur sambandsins sýndu
rekstrartekjur upp á 20,1 miiljón kr.
og hagnaöur ársins nam rösklega
1,2 milljónum kr. Fjárhagsáætlun
fyrir næsta starfsár hljóöar upp á
25,1 milljón kr. Vel yfir 40 tillögur
voru lagöar fram á þinginu, flestar
um lagfæringar og breytingar á
lögum og reglugeröum sambands-
ins. Miklar umræöur uröu um til-
lögu Þróttar og Víkings um fjölgun
liöa í 1. deild úr 10 í 12 en Ijóst varö
strax á fyrri þingdegi aö þessi til-
laga átti lítinn hljómgrunn meöal
þingfulltrúa. Sumir geröu jafnvel
grin aö málinu og fulltrúi Augna-
bliks í Kópavogi lagöi til aö deilda-
keppni yröi afnumin meö öllu en i
þess staö yröi framvegis keppt um
íslandsmeistaratitilinn eftir Mon-
rad-kerfinu líkt og skákmenn gera.
Þessi gríntillaga var síöar dregin til
baka. Viö atkvæöagreiöslu var
fjölgunartillagan felld meö yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæöa.
Sömu örlög hlaut tillaga um stofnun
deildarbikarkeppni og tillaga um
fjölgun liöa í 3. deild var einnig felld.
Þá spunnust miklar umræöur á
þinginu um þá tillögu aö heimila
B-liöum þátttöku í 3. og 4. deild og
var sú tillaga felld. Hinsvegar var
samþykkt aö setja á stofn sérstaka
keppni fyrir B-liö.
Starfsreglur aganefndar komu til
umræöu í kjölfar Jónsmálsins
margfræga en enginn hiti komst í
máliö á þinginu. Víötæk samstaða
náöist um breytingar á reglunum
sem m.a. færa alla áhættu af mis-
tökum viö afhendingu skeyta meö
úrskuröum aganefndar yfir á hend-
ur móttakanda. Þá var ákveöið aö
úrskurðir aganefndar taki fram-
vegis gildi kl. 12 á hádegi næsta
föstudag.
Á þinginu voru Drago-stytturnar
afhentar prúöustu liðunum í 1. og
2. deild, þeim liöum sem voru meö
fæst refsistig á keppnistímabilinu.
Voru þaö Valur i 1. deild og ÍBÍ i 2.
deild sem þessar viöurkenningar
hlutu. Þá voru afhentir bikarar til
markahæstu leikmanna í 1. og 2.
deild og 1. deild kvenna.
Viö stjórnarkjör var Ellert B.
Schram endurkjörinn formaöur
meö lófaklappi. Ellert hefur stýrt
þessu stærsta sérsambandi innan
íþróttahreyfingarinnar síöan á árinu
1973. Skriflega atkvæöagreiöslu
þurfti viö kjör í aöalstjórn. Kosið var
milli fimm manna um fjögur sæti í
stjórn til tveggja ára. Helgi Þor-
valdsson (157), Gylfi Þórðarson
(151), Garðar Oddgeirsson (146) og
Gunnar Sigurösson (104) voru
endurkjörnir í stjórnina en Ingvi
Guömundsson (86) náöi ekki kjöri
en hann var áöur í varastjórn.
Vegna fjölgunar í stjórninni var
kosið um einn stjórnarmann til eins
árs og hlaut Aöalsteinn Steinþórs-
son kosningu meö 95 atkvæðum
en Svanfríöur Guðjónsdóttir fékk
66 atkvæöi. í varastjórn voru kjörnir
Ásgeir Ármannsson, Steinn Helga-
son og Svanfríöur Guöjónsdóttir.
Þeir Aöalsteinn, Ásgeir, og Steinn
eru nýir menn í yfirstjórn KSÍ. Full-
trúar landshluta í stjórninni voru
allir endurkjörnir, Kristján Jónas-
son, Vesturlandi, Rafn Hjaltalín,
Noröurlandi, Guömundur Bjarna-
son, Austurlandi, Jóhann Ólafsson,
Suöurlandi.
126 fulltrúar sátu þingiö, þar af
fjórar konur. Þingforseti var Guö-
mundur Þ. B. Ólafsson formaöur
ÍBV og þingritari Katrín Gunnars-
dóttirúr Kópavogi.
— hkj.
• Júgóslavinn, Poc Petrovic, skíöar hér niður svigbrautina í Sestrieres
Heimsbikarinn í alpagreinum:
Ungur Júgóslavi
sigraði í sviginu
NÝ skíðastjarna í alpagreinum,
Rok Petrovic, frá Júgóslavíu, sigr-
aði mjög óvænt í fyrstu grein
heimsbikarsins á skíðum.
Petrovic, sem er 19 ára, sigraöi
nokkuö örugglega í svigkeppn-
inni á sunnudaginn sem fram fór
í Sestriere á ítalíu. Landi hans,
Bojan Krizaj, varö annar, tæpri
sekúndu á eftir. Marc Girardelli
og Pirmin Zurbriggen féllu báðir
úr keppni. Ingemar Stenmark
varö í sjötta sæti.
Petrovic, sem veröur 20 ára í
febrúar, vann þarna sinn fyrsta sig-
ur í heimsbikarkeppninni. Svo
skemmtilega vildi til aö hann vann
svigkeppnina í heimsmeistaramóti
unglinga á sama staö 1983. Hann á
því góöar minningar frá þessum
ítalska skíöastaö. Ungi Júgóslavinn
var meö næstbesta tímann í báöum
umferöum og vann samanlagt á
1.40,79 mínútum.
Bojan Krizaj, sem nú er 28 ára
og er öllu þekktari skíöamaður og
hefur veriö í fremstu víglínu í nokkur
ár, varö annar á 1.41,98 mín. Hann
var sjöundi eftir fyrri ferö, en í seinni
feröinni náöi hann besta tíma allra
og skaust upp í annaö sætiö. Það
var því tvöfaldur sigur Júgóslava í
fyrsta svigmóti vetrarins.
ítalinn, Ivano Eadlini, náöi sínum
besta árangri í heimsbikarkeppn-
inni til þessa og hafnaöi í þriðja
sæti á 1.41,69 mínútum. Sænski
skíöamaöurinn, Jonas Nilsson,
varö fjóröi á 1.41,90 mínútum og
fimmti var Dietmar Kohelþichler frá
Austurríki aöeins sex hundruöustu
á eftir Nilsson. Ingemar Stenmark
varö síðan í sjötta sæti, var 1,22
sekúndum á eftir fyrsta manni.
Thomas Buergler frá Sviss haföi
besta brautartímann í fyrri umferö,
en honum hlekktist á í þeirri seinni
og missti þá annan skíöastafinn
ofarlega í brautinni og lauk hann
þannig keppni og hafnaöi í sjöunda
sæti.