Morgunblaðið - 03.12.1985, Side 72
_/\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Ht MGIEGRA NOm
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Stýrði í land á
toghlerunum
TVEIR siglfirzkir togarar urðu fyrir
skakkaTóllum um helgina af völdum
brotsjóa og sjógangs. Sveinborg SI
70 fékk i sig brot og skemmdust
siglingatKki í brú. Siglfirðingur SI
150 missti stýrið, en stýrði til lands
i toghlerunum. Engin slys urðu i
mönnum.
Sæmundur Árelíusson, útgerð-
armaður Sveinborgar, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að skip-
Ársgamalt
barn er í
lífshættu
ÁRSGAMALT barn liggur lífshættu-
lega slasað í sjúkrahúsi eftir að hafa
fallið þrjir hæðir niður af stigapalli
í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Slysið
varð i laugardag og hefur barnið
ekki komist til meðvitundar. Það
niði að skríða fram i stigapallinn
in þess að eftir ferðum þess væri
tekið.
Handrið á stigapallinum í fjöl-
býlishúsinu er fullfrágengið.
ið hefði verið á leið til Englands
með afla. Um 120 mílur suðaustur
af Eyjum hefði brotsjór lent á
skipinu, brotið 6 glugga í brúnni
og skemmt siglingatæki. Skipinu
hefði orðið að snúa til hafnar í
Eyjum til viðgerðar. Ekki væri
ljóst hve tjón væri mikið, en það
væri talsvert og tilfinnanlegt. Til
dæmis væri óliklegt að skipið
kæmist í fyrirhugaða siglingu og
munaði það miklu á verði fyrir
fiskinn. „Þetta er heilmikið tjón,“
sagði Sæmundur.
Ragnar ólafsson, útgerðarmað-
ur Siglfirðings, sagði, að skipið
hefði verið statt á norðaustur
horni Sléttugrunns, er það hefði
misst stýrið úr sambandi og lík-
lega hefði það farið alveg. Skipið
skipið væri væntanlegt til Siglu-
fjarðar aðfaranótt þriðjudags og
hefði fengið leyfi til að hafa hler-
ana og trollið úti til að stýra eftir.
Skemmdir yrðu kannaðar í Siglu-
firði og líklega yrði að taka það í
slipp. Því væri óvíst hvort skipið
kæmist á veiðar að nýju fyrir jól.
Þetta væri vissulega tilfinnanlegt,
því skipið hefði verið að klára
síðasta bolfisktúrinn á árinu og
hefði átt að fara einn rækjutúr
fyrir áramót.
„GAMLI MIÐBÆRINN“ er nú að fá á sig jólasvip. Um helgina voru settar upp jólaskreytingar í Austur-
stræti. Það var gert að næturlagi, svo að ekki truflaðist umferð. Myndina tók Júlíus Sigurjónsson Ijósmynd-
ari, þegar fyrst var kveikt á skreytingunum.
Birtir yfir í skammdeginu
Hafskip/lslenska skipafélagið:
Tilboð Eimskips nem-
ur 400 milljónimi kr.
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips segir Eimskips ekki
hafa krafist gjaldþrotaskipta Hafskips
FASTLEGA er búist við að samn-
ingur milli Eimskipafélags íslands
og Útvegsbanka íslands um kaup
Eimskips á eignum íslenska skipa-
félagsins hf. verði undirritaður síð-
degis í dag eða á morgun. Eftir því
sem Morgunbiaðið kemst næst mun
Eimskip kaupa eignir íslenska
skipafélagsins fyrir upphæð sem er
á milli 9 og 10 milljónir dollara, eða
um 400 milljónir króna. Er þá ein-
ungis verið að kaupa það sem eru
fastafjármunir fslenska skipafélags-
ins, en engin viðskiptavild er inni í
kaupunum.
Reiknað hafði verið með að það
tækist að ganga frá samningi yfir
helgina, en alla helgina voru mikil
fundahöld samningsaðila. Það
tókst ekki, og það sem einkum
vefst fyrir mönnum, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, er
hvaða form haft verður á samn-
ingnum, þ.e. hvort Eimskip kaupir
eignirnar af íslenzka skipafélag-
inu, eða hvort Hafskip verður lýst
gjaldþrota og Eimskip kaupir
eignirnar af þrotabúi Hafskips,
eða Útvegsbankanum. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins
munu aðilar málsins hafa af því
nokkrar áhyggjur að fari kaupin
fram milli Eimskipafélagsins og
íslenska skipafélagsins geti það
leitt til málaferla af hálfu ein-
hverra kröfuhafa Hafskips, sem
muni véfengja lögmæti þess gern-
ings. óski Utvegsbankinn hinsveg-
ar eftir gjaldþrotaskiptum verði
siður um slík eftirmál að ræða.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélagsins var í gær
spurður hvort Eimskip hefði gert
kröfu um að Hafskip yrði lýst
gjaldþrota: „Það er fjarri lagi.
Eimskip á engar kröfur á Hafskip.
Varðandi samningsgerð Eimskips
við Útvegsbankann þá hvorki hef-
MEGINKRÖFUR launamálaráðs
ríkisstarfsmanna í BHM í komandi
samningum eru sambærilegar við
kröfurnar sem settar voru fram í
síðustu samningagerð, að sögn Þor-
steins Jónssonar, formanns ráösins,
þ.e. að ríkisstarfsmenn f BHM skuli
njóta sambærilegra launa og laun-
þegar á almennum markaði með
svipaða menntun, sérhæfni og
ábyrgð í starfi. „Þessi raunur var
45—60% þegar við gerðum okkar
útreikninga við siðustu samnings-
gerð og hann er síst minni núna,“
sagði Þorsteinn í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins. Fjármála-
ur Eimskip, né mun gera kröfu um
að Hafskip verði lýst gjaldþrota,"
sagði Hörður. Eimskip hefur þegar
fengið eitthvað af þeim viðskiptum
sem Hafskip hafði og hyggjast
forráðamenn félagsins gera hvað
þeir geta til þess að ná til sín enn
stærri hluta þeirra. Ekki er afráðið
með hvaða hætti Eimskip mun
nýta sér þau fjögur skip, sem félag-
ið kaupir að líkindum úr þrotabúi
ráðherra ber samkvæmt lögum að
gefa skriflegt svar við kröfum
BHMR innan þriggja vikna, þannig
að vænta má svars hans fyrir jól.
Kjaradómur úrskurðaði á laug-
ardaginn að ríkisstarfsmenn í
Bandalagi háskólamanna skyldu
fá 3% launahækkun frá 1. nóvem-
ber sl. til samræmis við aðra laun-
þega í landinu. Krafa launamála-
ráðs bandalagsins (BHMR) var um
5,5% hækkun.
Þorsteinn A. Jónsson sagðist
vera sáttur við forsendur niður-
stöðu Kjaradóms, enda hefði kröf-
unni um 2,5 prósentustiga við-
Hafskips. Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips, sagði, að ef
samningar tækjust, þá myndi
Eimskip leita verkefna fyrir skip-
in, en nú færi í hönd erfiðasti árs-
tíminn hvað varðar verkefni fyrir
flutningaskip, þannig að allt eins
gæti farið svo að leggja þyrfti
einhverjum skipanna. Hann sagði
jafnframt að ef samningar tækjust
á milli Útvegsbankans og Eim-
skips, þá þyrfti Eimskip að bæta
við sig 20 til 30 manns í landi, þar
af einhverjum verkamönnum.
bótarhækkun verið vísað ,frá á
þeirri forsendu, að niðurstaða
dómsins í sumar hefði verið fulln-
aðarúrskurður í því endurskoðun-
armáli, sem þá var fyrir dómnum.
„Það má því segja að þessari kröfu
hafi verið vísað til gerðar nýs
aðalkjarasamnings, sem nú er
framundan, en ekkert sagt um að
hún sé ekki réttmæt," sagði hann.
Allir samningar ríkisstarfs-
manna í BHM eru lausir frá og
með enduðum febrúar eftir að
samningunum var sagt upp í fyrri
viku, eins og fram kom í blaðinu
á laugardaginn.
Rainbow-málið:
Beiðni um
frestun
synjað
Ákveðið að
flýta málinu
fyrir Hæstarétti
BEIÐNI bandaríska dómsmálaráðu-
neytisins um frestun á því að úr-
skurður undirréttar í Rainbow-
málinu taki gildi á meðan áfrýjunar-
dómstóllinn fjallar um málið var
synjað seinnihluta nóvembermánað-
ar. Af útboði á varnarliðsflutningun-
um getur því ekki orðið á meðan
dómari fjallar um áfrýjun Banda-
ríkjastjórnar.
Að sögn Helga Ágústssonar i
íslenska sendiráðinu í Bandaríkj-
unum er óljóst hvenær úrskurðar
áfrýjunardómstólsins er að vænta,
en þó hefur verið ákveðið að málið
sé þannig vaxið að það réttlæti að
því sé flýtt eftir því sem kostur
er á.
Rfldsstarfsmenn í BHM fá 3% hækkun frá L nóvember:
BHMR krefst 45-60 %
hækkunar á samningum