Morgunblaðið - 12.12.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
25
Sjávar-
afurðir
fyrir 21
milljarð
fluttar út
Aukning í magni frá
síðasta ári 38,6%
ÚTFLUTNINGUR sjávarafurda
fyrstu 10 mánuöi þessa árs nam
524.112 lestum aö verðmæti um 21
milljaröur króna. Á sama tíma síð-
asta árs var útflutningurinn 378.071
lest að verðmæti rúmir 12 milljarðar
króna á verðlagi hvors árs. Hlutfall
sjávarvöru miðað við heildarverð-
mæti vöruútflutnings landsmanna
er nú 77,1% en var á sama tíma í
fyrra 70,6%. í magni talið er aukn-
ing útflutningsins um 38,6% og
aukning er á útflutningi allra helztu
vöruflokka. Mest er aukingin í út-
flutningi ferskfisks eða yfir 100%
Fryst flök hafa skilað mestum verð-
mætum, 8,7 milljörðum króna og
óverkaður saltfiskur skilar 3 millj-
örðum.
Af einstökum vöruflokkum var
útflutningur þetta tímabil bæði
árin sem hér segir. Fyrst magn í
iestum og verðmæti þessa árs og
innan sviga sambærilegar tölur
fyrra árs: Frystar afurðir 133.306
lestir, 11.854.121.000 krónur
(111.606 lestir, 6.798.465.000 krón-
ur), saltaðar afurðir 65.682 lestir,
4.203.621.000 krónur (56.192 lestir,
2.480.592.000 krónur), ísaðar og
nýjar afurðir 122.000 lestir,
1.820.589.000 krónur (55.423 lestir,
746.171.000 krónúr), hertar afurðir
676 lestir, 136.310.000 krónur (176
lestir, 30.402.000 krónur), mjöl og
lýsi 194.943 lestir, 2.365.147.000
krónur (146.500 lestir,
1.702.917.000 krónur), niðurlagn-
ing og niðursuða 3.095 lestir,
574.705.000 krónur (2.424 lestir,
346.133.000 krónur), aðrar afurðir
4.410 lestir, 22.081.000 krónur
(5.750 Iestir, 76.148.000 krónur).
Helztu viðskiptalönd okkar eru
Bandaríkin, sem keyptu vörur
fyrir 7,1 milljarð, Bretland keypti
fyrir 4 milljarða, Portúgal fyrir
1,9, Sovétríkin fyrir 1,7 milljarða
og Vestur-Þýzkaland fyrir 1,2
milljarða. Asíulönd keyptu sam-
tals fyrir 1 milljarð króna.
Breytingar
á Stúdenta-
kjallaranum
Stúdentakjallarinn hefur nú verið
opnaður eftir gagngerar breytingar
og verða þar á boðstólum ýmsir létt-
ir réttir s.s. pizzur og grænmeti
ásamt léttum vínum, kaffl og te á
suðræna vísu.
Vorið 1984 var gamla Stúdenta-
kjallaranum breytt í kjölfar „bjór-
bylgjunnar" svokölluðu og hefur
hann gengið undir nafninu Skálka-
skjól tvö síðan. Nú hefur nafninu
verið breytt aftur í sitt uppruna-
lega nafn „Stúdentakjallarinn".
Ný húsgögn voru keypt og staður-
inn hólfaður að hluta til.
Margvísleg nýbreytni er á döf-
inni í starfsemi Stúdentakjallar-
ans á menningarsviðinu og mætti
nefna ljóða- og bókaupplestur ís-
lenskra skálda, tónlistarviðburði,
myndlistasýningar og fleira. Stúd-
entakjallarinn verður opinn virka
daga kl. 15.00 til 24.00 og um helgar
kl. 18.00 til 24.00.
Bráðum
koma jólin.
Gefum lifinu lit!
Viö eigum ekki endilega viö, að þú eigir
að mála bæinn rauðan, en bendum þér
á að þú getur gjörbreytt umhverfi þínu
með smávegis málningu.
Þú málar auðvitað með HÖRPUSILKI.
Með HÖRPUSILKI má mála
bæði úti og inni.
í HÖRPUSILKI fara saman kostir sem
birtast í frábæru slit- og veðrunarþoli.
HÖRPUSILKI er viðurkennd afburða
málning.
HÖRPUSILKI er ódýr miðað við gæði.
HÖRPUSILKI er fáanlegt í 28 staðal-
litum, þar með töldum öllum tískulitun-
um, síðan er hæqt að fá blandaða liti að
vild.
Með því að bæta HÖRPUSILKI HERÐI
út í málninguna má auka gljástig hennar
úr 3% í 10% og þá jafnframt auka slitþol
hennar til muna.
Nú .. . Hægt er að fá nánari upplýsingar
um HÖRPUSILKI í málningarvöruversl-
unum, hjá málarameisturum, Bygginga-
þjónustunni, sölumönnum okkar eða á
rannsóknarstofu, í HÖRPU-handbókinni
eða hjá öllum þeim fjölda ánægðra
viðskiptavina sem fyrir eru, - vonandi
verður þú einn þeirra.
Skúlagötu 42 125 Reykjavík
Pósthólf 5056, S (91 )11547
HARPA gefur lífinu Ivt!
f&mgmMábib
Áskriftarsíminn er 83033