Morgunblaðið - 12.12.1985, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, FIJIMTUDAGUR12. DESEMBER1985
20 stykkja snyrtivörusett frá
-Aliss Mary of Sweden; 8 augnskuggar,
4 kinnalitir, 4 varalitir, augnháralitur,
kinnalitapensill, varalitapensill og
augnskuggapensill.
GRATTAN-VÖRULISTAUMBOWf)
Pósthólf 205 — 222 Hafnarfjörður. Sími 91-651100.
Til afgreiðslu strax. Pöntunarsími 91-651100.
Fangar
mánað-
arins
Desember 1985
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli
almennings á máli eftirfarandi sam-
viskufanga í desember. Jafnframt
vonast samtökin til að fólk sjái sér
fært að skrifa bréf til hjálpar þess-
um föngum og sýna þannig í verki
andstöðu sína við að slík mannrétt-
indabrot séu framin.
fslandsdeild Amnesty hefur nú
byrjað útgáfu póstkorta vegna fanga
mánaðarins. Á kortunum er prentuð
áskorun til stuðnings fanganum, og
heimilisfang hlutaðeigandi stjórn-
valda. Kortin verða seld í áskrift,
og það eina sem.áskrifendur þurfa
að gera er að undirrita kortin og
koma þeim í póst. Þeir sem hafa
áhuga á áskrift eða nánari upplýs-
ingum hafi samband við skrifstofu
samtakanna.
TÚNIS: Beshir Essid er 42 ára
gamall lögfræðingur sem er í haldi
vegna tveggja greina sem hann rit-
aði og sendi dagblöðum í Túnis í
janúar 1984. Tilefni greinanna var
óeirðir sem brotist höfðu út í kjölfar
verðhækkana, en stjórnvöld höfðu
þá nýverið lækkað niðurgreiðslur á
brauði og öðrum brýnum nauðsynja-
vörum. f greinum sínum gagnrýnir
Essid stjórnvöld fyrir það með hvaða
hætti tekið var á óeirðunum, og
einnig gagnrýnir hann stjórnar-
stefnuna sem hann telur orsök upp-
þotanna. Essid var gert að mæta
fyrir dómi 22. marz sama ár, og var
þar borinn margvíslegum sökum,
s.8. að hafa talað illa um forsetann
og aðra úr ríkisstjórn, og hvatt til
manndrápa, íkveikjustarfsemi og
þjófnaðar. Einu sönnunargögnin
sem lögð voru fram þessu til stuðn-
ings eru greinarnar tvær, en í þeim
er hvergi hvatt til ofbeldis. Þrátt
fyrir það var Essid dæmdur sekur,
og hlaut tveggja ára fangelsisvist,
en dómnum var breytt í eitt ár við
áfryjun til hæstaréttar.
KÍNA: Xu Wenli ritstýrði til
skamms tíma vinsælasta óháða
dagblaðinu sem gefið var út í norður-
hluta Kína, April Fifth Tribune, en
það hætti útgáfu vorið 1980 vegna
þrýstings frá stjórnvöldum. Xu
Wenli hélt þó áfram ritstjórn
tveggja lítilla blaða, og aðstoðaði við
dreifingu fréttabréfs, Study Bullett-
in. Hann var dæmdur í 15 ára fang-
elsi 1 júní 1982 fyrir „andbyltingar-
sinnuð“ lögbrot sem tengjast starf-
semi hans við útgáfu og sambandi
hans við ritstjóra annarra óháðra
tfmarita. Xu Wenli var um margra
mánaða skeið haldið langdvölum í
klefa sínum, og sá dagsljós aðeins
einu sinni til tvisvar á mánuði. Eftir
að hann var dæmdur er hann einn
í klefa sem er aðeins 2 m2. Að eigin
sögn er hann vel hraustur, en óttast
að bíða andlegt tjón af langvarandi
einangrun. Xu Wenli er meðlimur í
„lýðræðishreyfingunni", og undir-
strikaði í viðtölum sem erlendir
fréttamenn áttu við hann árið 1980
þörfina á lýðræði og umbótum undir
stjórn Kommúnistaflokksins.
BÍlFIT
BilHT 5«NFIT
stNFii -saumasniöiö slær í gegn, nákvæmt
og ódýrt og svo einfalt.
Hundruö mismunandi pappírssniö mundu þurfa til þess aö sníöa allar þær gerðir og stæröir sem þú
getur búiö til meö aöeins einu S#'NTIT
Jólagjöfin hennar í ár!
Fyrsta og eina stillanlega endurnotaöa saumasniöið í veröldinni.
Umboðsmenn óskast víða úti á landi.
Heildsölubirgöir: RRnnp/TRPi
Suðurgötu 14, 124 Reykjavík.
pósthólf 4230, Sími 622415.