Morgunblaðið - 12.12.1985, Síða 88
V7S4
ómissandi
E
TIL DAGLEGRA NOIA
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Carlo Mathias, flugmálastjóri í Lúxemborg:
Erfitt að neita
People Express
ENN hefur engin beiðni borist til
yfirvalda í Lúxemborg fri banda-
ríska flugfélaginu Peopel Express
þess efnis að félagið fái leyfi til
ástlunarflugs þangað, að sögn
Carlo Mathias, flugmálastjóra í
Lúxemborg. „En ef til þess kemur
að þeir sækja um, verður erfitt fyrir
okkur að neita þeim um slíkt leyfi,
þar eð Cargolux hefur mjög góða
samninga við yfirvöld í Bandaríkj-
unum um fiug þangað,“ sagði Mat-
hias.
Mathias sagðist þó halda að
forráðamenn People Express
hefðu ekki áhuga á flugi til Lúxem-
borgar sem stæði; þeir vildu fyrst
sjá hver reynslan yrði af flugi fé-
lagsins til Brussel. Davíð Vil-
helmsson, skrifstofustjóri Flug-
leiða í Frankfurt í Þýskalandi er
á sama máli. „Ég held að þeir hafi
sótt um Lúxemborg sem vara-
skeifu, ef annað brygðist,“ sagði
Davíð.
Davíð er þeirrar skoðunar að
flug People Express hafi enn sem
komið er ekki haft teljandi áhrif
á sölu Flugleiða út úr Evrópu.
„Þeir hafa ekki það sölukerfi í
Evrópu sem þarf til að ná tökum
á markaðinum og ferðaskrifstofur
hafa ekki verið spenntar fyrir að
selja ferðir þeirra," sagði Davíð
Vilhelmsson.
Sjá nánar á bls. 2: “Flug til Bruss-
el...“ og á bls. B4 “Ógnvaldurinn
People Express".
Jólalömbin á mark-
aðinn í næstu viku
— Slátrað á Hvammstanga, Selfossi og Blönduósi
ÞRÍR sláturleyfishafar að minnsta
kosti verða með ferskt lambakjöt á
boðstólum nú fyrir jólin. Eru það
Verslun Sigurðar Pálmasonar hf. á
ttvammstanga, Sláturfélag Suður-
lands og Kaupfélag Húnvetninga á
Blönduósi.
Stjórnendur óttast afleið-
ingar neikvæðrar umræðu
— Ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar á Alþingi valda reiði og óróa
"^TJÓRNENDUR þeirra fyrirtækja, sem Ólafur Ragnar Grímsson varaþing-
maður Alþýðubandalagsins sagði í umræðum um Hafskips/Útvegsbanka-
málið á Alþingi í fyrradag að ættu í erfiðleikum, væru „í biðsal dauðans“
eins og hann orðaði það, óttast afleiðingar þessara ummæla og annarra
svipaðra fyrir traust og rekstur fyrirtækjanna. Gremst þeim sérstaklega að
þingmaðurinn skuli viðhafa þessi orð á Alþingi í skjóli þinghelgi þannig að
ekki sé hægt að draga hann til ábyrgðar vegna þeirra. Virðast ummæli
þingmannsins hafa valdið reiði og óróa í þeim fyrirtækjum sem nefnd voru.
1 yfirlýsingu Þórðar Ásgeirsson-
ar forstjóra OLÍS sem birt er i
blaðinu í dag spyr hann m.a. hvort
öðrum þingmönnum þætti ekkert
athugavert við það að því sé „slegið
fram algerlega út í bláinn að
ákveðin nafngreind fyrirtæki séu
að verða gjaldþrota? Gera menn
sér enga grein fyrir þeim afleiðing-
utn sem þetta getur haft fyrir
viðkomandi fyrirtæki?" Þórður
benti einnig á það að OLÍS væri
eitt af sterkari fyrirtækjum lands-
ins og ætti sannarlega „eignir
langt umfram skuldir". Þórður
boðaði starfsfólk OLÍS til fundar
í fyrradag í tilefni umræðna um
veika stöðu fyrirtækisins til að róa
starfsfólkið með því að kynna því
raunverulega stöðu fyrirtækisins,
eins og hann orðaði það í samtali
við Morgunblaðið.
Jóhann Bergþórsson forstjóri
verktakafyrirtækisins Hagvirkis
sagði í gær að þessi ummæli væru
afar neikvæð fyrir fyrirtækið, það
er að segja ef einhver tæki mark
á ólafi Ragnari. Það væri hvim-
leitt að menn færu með svona rugl
á Alþingi þegar rekstur fyrirtæk-
isins væri á viðkvæmu stigi. Þing-
maðurinn hefði ekki haft fyrir því
að kynna sér raunverulega stöðu
Hagvirkis hjá stjórnendum eða
viðskiptabanka. Hann tók það
fram að viðskiptabankinn ætti
ekki i neinum vandræðum vegna
viðskiptanna og hefði margföld veð
fyrir skuldum.
Jóhann sagði að eiginfjárstaða
Hagvirkis væri mjög góð, eignir
væru um 250 milljónir umfram
skuldir. Lausafjárstaðan væri
hinsvegar erfið. Hagvirki væri enn
stærsta verktakafyrirtæki lands-
ins, með 160 menn i vinnu og mikil
verkefni, og væri bjart framundan
hjá fyrirtækinu eftir erfiðleika-
tímabil.
Árni Þór Árnason varaformaður
BYGGUNG, Byggingasamvinnu-
félags ungs fólks í Reykjavík, sagði
að umrædd ummæli væru níð og
gætu eins og allt níð eyðilagt tölu-
vert fyrir félaginu sem notið hefði
trausts fyrir að byggja ódýrt.
Hann óttaðist að þessi umræða
gæti orðið til að kaupendur færu
að halda að sér höndum með
greiðslur. Félagið virtist enn hafa
tiltrú kaupendanna, en þessi nei-
kvæða umræða væri stórvarasöm.
Árni sagði að starfsemi BYGG-
UNG byggðist á tvennu: Innborg-
unum íbúðakaupenda og lánum
Húsnæðisstofnunar. Vanskil
kaupenda hefðu aukist oggreiðslur
Húsnæðisstofnunar væru á eftir
áætlun og hefði það leitt til þess
að félagið hefði þurft að fá fyrir-
greiðslu hjá viðskiptabanka sin-
um, Utvegsbankanum. Hún hefði
verið veitt í formi 10 milljóna kr
yfirdráttarheimildar á hlaupa-
reikningi. Félagið skuldaði einnig
25 milljónir í erlendum lánum sem
tekin hefðu verið til tækja- og
efniskaupa fyrir milligöngu Út-
vegsbankans. Hann sagði að velta
félagsins í ár væri 250 milljónir
kr. og gætu menn svo dæmt sjálfir
hvort þetta væri óeðlileg fyrir-
greiðsla.
Sjá nánar fréttir á bls. 2 og 4,
rseðu Alberts Guðmundssonar bls.
3S, þingsíöu bls. 48, yfirlýsingu Þórð-
ar Asgeirssonar á bls. 49.
Slátrun jólagimbra hófst í slát-
urhúsi SS á Selfossi í gær, og
verður þeim dreift í verslanir á
mánudag. Að sögn Steinþórs
Skúlasonar framleiðslustjóra SS
virðist vera þó nokkur áhugi á
kjötinu, því þegar væri búið að
selja 80 skrokka af um 130 sem
slátrað verður. Jólaslátrunin á
Hvammstanga verður í næstu viku
og verður slátrað 100-150 lömbum,
að sögn Karls Sigurgeirssonar
framkvæmdastjóra Sigurður
Pálmasonar hf. Kjötið verður flutt
suður i kælibíl og dreift í nokkrar
verslanir. Fyrirtækið hefur verið
með jólalömb undanfarin ár, en
Karl sagði ekki vitað hvað mikill
áhugi væri fyrir þeim nú, þegar
markaðurinn væri yfirfullar af
kjöti, m.a. eftir kindakjöts- og
kjúklingaútsölurnar. Flest eru
lömbin frá einum bæ, Félagsbúinu
Syðsta-Ósi í Miðfirði.
Jólalömbin verða seld eitthvað
yfir skráðu kindakjötsverði. Stein-
þór sagði að SS greiddi bændum
20% hærra verð fyrir jólalömbin,
sem þýddi að heildsöluverðið yrði
15% yfir skráðu verði. Karl sagði
ekki búið að ákveða hvað bændum
yrði greitt, í fyrra hefðu þeir feng-
ið 10% umfram skráð verð. Bæði
Sláturfélagið og Verslun Sigurðar
Pálmasonar búast við að verða
með ferskt kjöt á boðstólum fyrir
páskana, og jafnvel oftar.
Skrifstofur Hafskips erlendis:
Hluti starfsfólksins
skráður atvinnulaus
ADEINS hluti af sUrfsfólki Hafskips erlendis hefur fengió nýja atvinnu
samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær. I Bandaríkjunum
hefur þó hluti starfsfólks Hafskips farið á atvinnuleysisskrá og í Danmörku
er erfitt með atvinnu á þessum árstíma. íslendingar, sem störfuðu hjá fyrirtæk-
inu þar, höfðu fjárfest ytra og eru erfiðleikar þeirra því meiri en ella. Skrif-
stofa fyrirtækisins í Rotterdam hefur verið lýst gjaldþrota, sótt hefur verið
um greiðslustöðvun fyrir fyrirtækið í Danmörku og skrifstofum Hafskips í
New York og Hamborg verður lokað á næstu dögum.
Pétur Már Helgason hjá Hafskip
í Kaupmannahöfn sagði að þrír
íslendingar og þrír Danir hefðu
starfað hjá fyrirtækinu og ekkert
af þessu fólki hefði orðið sér úti
um nýja vinnu. Þetta fólk ætti ekki
rétt á atvinnuleysisbótum þar sem
það ætti of miklar eignir að mati
yfirvalda og væri ekki í stéttarfé-
lögum. Bragi Ragnarsson hjá Haf-
skip í Rotterdam sagði að flestir
hinna niu hollensku starfsmanna
fyrirtækisins hefðu fundið sér aðra
vinnu. Fimm af sjö þýzkum starfs-
mönnum Hafskips í Hamborg hafa
byrjað störf annars staðar og fjórir
starfsmenn fyrirtækisins, tveir ls-
lendingar, væru að ganga frá sinum
málum.
1 Bandaríkjunum störfuðu 14
manns hjá Hafskip, þar af þrír
Islendingar. Fjórir Bandaríkja-
mannanna hafa orðið sér úti um
aðra vinnu, en hinir eru komnir á
atvinnuleysisskrá. óráðið er hvað
íslendingarnir taka sér fyrir hend-
ur, að sögn Baldvins Berndsen.