Morgunblaðið - 20.12.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
15
Yiktoríutíminn og við
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
John Fowles:
Ástkona franska lautinantsins.
Magnús Rafnsson þýddi
Þýðendur Ijóða: Ingimundur Ingi-
mundarsson, Helgi Hálfdanarson og
Sverrir Hólmarsson. Mál og Menn-
ing 1985
Ástkona franska lautinantsins
eftir John Fowles er vægast sagt
einkennileg skáldsaga, í senn
gamaldags og nútímaleg. Sögusvið
skáldsögunnar er England Viktór-
íutimans, en við erum oftar en einu
sinni minnt á að samtíminn er líka
í sögunni.
Strax í fyrsta kafla er brimgarð-
inum í Lyme flóa líkt við högg
mynd eftir Henry Moore. Charles
Smithson sem í skáldsögunni læt-
ur heillast af hinni óvenjlegu Söru
Woodruff, tregafullu andliti henn-
ar, er þannig lýst í þriðja kafla:
„Charles kaus að líta á sjálfan
sig sem vísindalega þenkjandi
ungan mann og hann hefði sjálf-
sagt ekki orðið neitt forviða ef
honum hefðu borist fréttir úr
framtíðinni um flugvélar, þrýsti-
loftshreyfla, sjónvarp og ratsjá:
það sem hefði komið honum á
óvart er hið breytta viðhorf til
tímans. Það er almenn skoðun að
harmleikur okkar aldar sé tíma-
skortur; og einmitt hann en ekki
óeigingjörn ást á vísindum, og
örugglega ekki viska, er ástæða
þess að við eyðum svo miklu af
lendra þjóðhöfðingja sem erfa
ríki, og heiti páfa. Heiti slofn-
ana, hljómsveita, listaverka og
þess háttar er rétt að íslenska
þegar fært þykir, og gæta þá
samræmis eftir því sem unnt er.
12. Skammstafanir sem engum
beygingum taka, fara illa i
mæltu máli í stað nafna á
samtökum, fyrirtækjum og
stofnunum. Þær skal forðast.
Rétt er að nota óstytt heiti f
upphafi frásagnar en síðan
stytt heiti sem lýtur lögmálum
tungunnar fremur en skamm-
stöfun, svo sem Sambandið
fyrir SÍS, Alþýðusambandið
fyrir ASÍ, Bandalagið fyrir
BSRB og svo framvegis.
13. Útvarpsráð vekur athygli á
einhliða áhrifum enskrar tungu
á íslenskt mál um þessar mund-
ir og telur að bregðast verði við
með markvissum hætti, meðal
annars í starfsemi Ríkisút-
varpsins.
Útvarpsráð samþykkti að vísa
ályktuninni til umsagnar íslenskr-
ar málefndar áður en birt yrði.
Nefndin tók málið fyrir á næsta
fundi sínum, 8. okt., og samþykkti
þessa ályktun:
íslensk málnefnd fagnar sam-
þykkt útvarpsráðs um málstefnu
Ríkisútvarpsins og getur fallist á
hana í öllum aðalatriðum. Nefndin
vill þó vekja athygli á því, að er-
lendum tungumálum hefur að
hennar dómi verið gert of hátt
undir höfði í auglýsingum, fréttum
og íþróttaþáttum sjónvarps.
Nefndin telur ekki koma nægilega
skýrt fram í samþykktinni, að
breytt skuli um stefnu í þessu efni
(sjá einkum 5. og 8. tl.). Að öðru
leyti telur málnefndin mikils um
vert, að hinni nýju stefnu Ríkisút-
varpsins verði framfylgt og heitir
stuðningi við framkvæmd hennar.
Ríkisútvarpið vekur í þessu
sambandi athygli á því að stefnt
er að mjög auknu aðhaldi í þessum
efnum í stofnuninni, svo sem
ályktun útvarpsráðs um málstefnu
ber með sér. Einnig er bent á að
málfarsráðunautur þess, Árni
Böðvarsson, er sem fyrr tilbúinn
að veita auglýsendum og öðrum
viðskiptamönnum stofnunarinnar
aðstoð í málfarsefnum. Fyrst um
sinn verður aðgengilegast að ná
til hans i síma Ríkisútvarpsins,
Skúlagötu 4, 22260, kl. 16-17 alla
virka daga.“
hugviti og tekjum þjóðfélaga okk-
ar til að finna fljótfarnari leiðir
til framkvæmda — líkt og hið
endanlega markmið mannkyns sé
ekki að nálgast mannlega full-
komnun heldur fullkominn elding-
arhraða. En hvað Charles varðaði
og næstum alla samtímamenn
hans af sömu stétt var hraði tilver-
unnar allt annar en nú þekkist.
Vandamálið var ekki að komast
yfir allt sem hugurinn girntist,
heldur að spinna eitthvað upp til
að fylla þessi hrikalegu ómælis-
djúp tómstunda sem mönnum
stóðu til boða.“
John Fowles spornar gegn tím-
anum og sameinar tímana í Ást-
konu franska lautinantsins, en
ekki er minna um vert að í skáld-
sögunni birtist hugmynd existens-
íalismans um frelsið, hið ótak-
markaða frelsi sem eitthvað skelfi-
legt.
John Fowles hefur lagt á það
áherslu i viðtali að lesandinn eigi
að vera gagntekinn af því sem
hann les, en höfundurinn rifji það
upp fyrir honum á stöku stað að
það sem hann er að lesa sé texti,
ekki raunveruleiki.
Það mætti segja með nokkrum
rétti að John Fowles hafi með
Ástkonu franska lautinantsins
skrifaði gamaldags skáldsögu með
miklu söguefni, rómantík, spennu,
John Fowles
en það er hálfsögð saga því að um
leið og hann hafnar módernískum
aðferðum í sagnagerð notfærir
hann sér sömu lærdóma. Og hann
gleymir ekki heldur ritgerðar-
forminu. Það er því ráðlegast að
lesa skáldsögu hans með vissum
fyrirvara, en óhætt að fullyrða að
lesandanum er boðið til veislu.
Og fyrir þá sem hafa ekki á móti
því að lesa um kynlíf er í skáldsög-
unni vikið að því, bæði með eftir-
tektarverðu dæmi og ýmsum hug-
leiðingum höfundar. Niðurstaða
hans um kynlíf Viktóríutímans er
um leið áminning til samtíma-
manna.
Þessi umsögn verður að nægja
að sinni um stórmerka bók. En það
sem er ekki síst jákvætt við hana
er að þýðingin hefur tekist vonum
framar, er í senn nútímaleg og
mátulega gamaldags.
Undir merki
stetngeitar
eftir Snjólaugu Bragadóttur
frá Skáldalæk
Spennandi bók um unga stúlku sem fer til Los Angeles
í Bandaríkjunum og verður þar heimilisvinur
heimsfrægra poppsyarna og leikara. Þar kynnist hún
ótrúlegum fjölskylduflækjum, eiturlyQaneyslu og
miskunnarleysi samkeppninnar í háborg músíklífsins.
Unga stúlkan fékk tækifæri lífs síns, hún sneri heim
reynslunni ríkari, en hjartað varð eftir hjá manni sem
kunni ekki með það að fara.
íslenskur
Stríðsvindar
eftir Pulitzerverðlaunahöfundinn horman Wouk
Saga úr síðari heimsstyrjöldinni sem hefur verið kvikmynduð og verður senn sýnd í
íslenska sjónvarpinu í mörgum þáttum.
Þættirnir taka um 18 klukkustundir í sýningu og eru þeir dýrustu sinnar tegundar sem
enn hafa verið framleiddir.
Sá sem hefur lesið bækurnar áður en þættirnir hefjast munu njóta þeirra mun betur.
Stríðssaga — ástarsaga — örlagasaga
Eldvígslan
söguleg skáldaga eftir dr. Jónas
Krisyánsson
Saga mtkllla átaka og hrlkalegra
örlaga
Eldvígslan er saga mikilla átaka og
hrikalegra örlaga, rituð á fögru og
kjarnmiklu máli sem ber hæfilegan svip
af stíl fornsagnanna. Saga sem mun veita
ungum og öldnum bæði skemmtun og
fróðleik.
Spennandi saga sem menn leggja ekki
frá sér fyrr en þeir hafa lesið síðustu
setninguna.
bókaútgafan öm & örlygur
Síðumúla 11, sími 84866