Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FOStUDAGUft 20. DESEMBER1985
fTiBORGARBLÓMIÐ
\±y SKÍPMOLTÍ 35 SIMI 3Z2I3
Meðal íslenskra náms-
manna í Danmörku
eftir Ólaf
Björnsson
Þegar haustveður íslands
gengur í garð er sumar að byrja
hjá námsmönnum. Sumar að því
leyti að skólar hefjast og margur
byrjar sitt nám. Fólk er alltaf
að byrja í náemi. 6 ára byrja
menn í skóla, 16 ára byrja menn
í menntaskóla og 20 ára byrja
menn í háskóla. Sumir byrja í
framhaldsnámi og svo mætti
lengi telja.
Háskóli íslands er orðinn
gamalgróin stofnun og flestir
sem hefja háskólanám freista
gæfunnar þar, þó valkostir innan
hans séu alltof fáir.
Áður fyrr var siglt til Kaup-
mannahafnar til að hefja há-
skólanám og margur frægur
landinn drakk þar í sig fræðin.
Nú árið 1985 er enn siglt til
kóngsins Kaupinhafnar í há-
skóla. Enn er þar numið það sem
ekki er kennt hér á landi og
kannski sitthvað fleira.
Undirritaður brá sér á dögun-
um til Danmerkur til að kynna
sér aðstöðu námsmanna og til
að heilsa uppá gamla kunningja.
Loftleiðin var valin að þessu
sinni enda gerast nú siglingar
ferðamanna fátíðar, Gullfoss
gamli fyrir löngu horfinn af sjón-
arsviðinu.
Engu að síður er oft talað um
að sigla þó farið sé með flugvél,
a.m.k. talar eldra fólk þannig.
íslenskir námsmenn eru því enn
sigldir menn.
Danmörk tók á móti með 15
stiga hita og fallegu veðri þrátt
fyrir að mánaðardagurinn væri
15. október og heima á ísiandi
væri kuldaslagveður.
Allt gekk þetta nú stórslysa-
Anna Kr. Ásmundsdóttir með dóttur sína, Nönnu Rún.
skötuhjúin vera nokkuð ánægð
með aðstöðu námsmanna.
Auðunn Hermannsson hefur
orðið: Ég er á 3ja ári í mjólkur-
verkfræðinni núna og líkar ágæt-
lega. Þetta erins og hvert annað
verkfræðinám heima, nema ég
ræð meira hvernig ég tek þetta
og áherslan liggur á efnafræð-
inni í staðinn fyrir stærðfræð-
inni. Við Begga erum bæði í
Landbúnaðarháskólanum og það
eru um 10 km þangað, héðan. Jú,
auðvitað hefur þetta stundum
verið erfitt, sérstaklega fyrst,
þegar maður var ekki búinn að
ná málinu og var að vinna úti á
Jótlandi á mjólkurbúi, það er svo
mikið verklegt í þessu, skilurðu.
Hvaó ég ætla að verða, ja, það
kemur margt til greina, t.d. Sigurður Ingi Jóhannsson.
Talið frá vinstri: Ragnar Jónsson, Helgi Jóhannesson, Finnur Kristinsson, Bergþóra Þorkelsdóttir og Auðunn
Hermannsson.
laust og fyrr en varði sat ég í
íbúð námsmanna frá íslandi,
nánar tiltekið á Amagerkollegi,
en það eru stúdentagarðar sem
eru eins og nafnið bendir til úti
á Amager, ekki langt frá Kast-
rup-flugvelli. Þetta eru einstakl-
ingsíbúðir, litlar en snotrar og
virðist plássið nýtast ótrúlega
vel. Gestgjafar mínir voru Auð-
unn Hermannsson frá Selfossi
og Bergþóra Þorkelsdóttir frá
Reykjavík. »Víst er nokkuð
þröngt um okkur," segir Berg-
þóra hress í bragði en bætir við:
„En við erum nú með tvær
svona," og á þar við að þau hafa
tvær íbúðir til umráða, búa í
annarri en læra í hinni.
„Þú kemur á heppilegum
tíma,“ segir Auðunn, „við erum
einmitt í haustfríi núna, svo þú
getur fengið aðra íbúðina, ætli
maður verði nokkuð að stressa
sig við nám.“ Já, það var vel tekið
á móti manni og virtist mér
stjórnunarstöður innan mjólkur-
búa, rannsóknar- og vísindastörf
við matvælaiðnað yfirleitt. Eða
stofna eigið ostabú þar sem dýr-
asti snobbostur í heimi yrði
framleiddur." Jú, hann er hress
kallinn. En Bergþóra, hvað segir
þú?
„Ég er á 2. ári í dýralækning-
um og líkar bara vel. Nei, það
verður ekki atvinnuleysi meðal
dýralækna þó 13 séu að læra
þetta hérna og svo víðar, vegna
þess að það á eftir að stokka
dýralæknakerfið alveg upp. í dag
eru þetta stærðar svæði sem
dýralæknirinn geysist yfir. Nei,
sko, praxis er það sem kemur og
þá verður maður með nokkra
góða kúnna, sinnir þeim vel og
öllum kröfum er fullnægt, svo
kröfurnar eru alltaf að aukast."
Daginn eftir er farið í sam-
kvæmi hjá Helga Jóhannessyni
og Ingibjörgu Bjarney Baldurs-
dóttur, en þau búa ásamt 4 mán-
aða gömlum syni, Jóhannesi, í
þriggja herbergja íbúð á 0re-
sundkollegiinu. Tilefni sam-
kvæmisins er landsleikur Dana
og Norðmanna í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar i
knattspyrnu. Auk húsráðanda
eru mætt, Sigurður I. Jóhanns-
son og Anna K. Ásmundsdóttir
ásamt Nönnu Rún, tveggja ára
dóttur þeirra, Finnur Kristins-
son, Ragnar ... og svo Auðunn,
Bergþóra og ég.
Áður en leikurinn hefst gefst
tækifæri á að yfirheyra liðið.
Sigurður og Anna búa á Sól-
bakkanum sem þykir með fínni
stúdentagörðum. Sigurður hefur
orðið: „Mér líkar alveg þrælvel
hérna úti, er að vísu að fara í
gífurleg próf núna eftir jólin en
það er gaman að þessu. Ég er á
þriðja ári í dýralækningum og
er farinn að þekkja Danina vel.
Mórallinn er góður hjá þessu
fólki.“
Anna sótti um í landslagsarki-
tektúr í haust en komst ekki inn
Ingibjörg B. Baldursdóttir.
núna. „Maður reynir aftur næst,“
segir hún hress, „þetta er búið
að vera nokkuð erfitt að vera
með ungbarn hér úti en skemmti-
legt engu að siður."
Þið eruð öll í Landbúnaðar-
háskólanum? Helgi verður fyrir
svörum:
„Jú, í honum eru 28 íslending-
ar en í Kaupmannahöfn eru um
3.500 íslendingar svo landbúnað-
ur er ekki með hátt hlutfall.
Greinarnar sem íslendingarnir
eru að læra eru dýralækningar,
matvælafræði, landbúnaðarhag-
fræði, landbúnaðarfræði, mjólk-
urverkfræði, landslagsarkitekt-
úr og garðyrkjufræði, en ég er
einn í henni. Þetta er garðyrkju-
nám á háskólastigi, og plönturn-
ar eru krufnar til mergjar, allt
til hinna minnstu frumna. Þetta
er 4—5 ára nám og möguleikarn-
ir eru miklir að því loknu. T.d.
ráðunautarstarf, tilraunir og
rannsóknir, og eigin praxis auð-
vitað.“
Ingibjörg er sjúkraliði að
mennt og var að vinna við það
hérna úti í fyrra. „Það er ekki
mikill munur á þessu og heima
finnst mér, þetta hefði alveg eins
getað verið íslenskur spítali,"
segir hún og heldur áfram: „Sum-
ir Islendingarnir verða ótrúlegir
Danir í sér, það eru þeir sem
giftast Dönum eða búa með þeim,
umgangast þá mikið, þeir verða
bara Danir.“
Finnur Kristinsson er í lands-
lagsarkitektsnámi og býr úti á
Amager eins og Auðunn og
Begga. „Þetta er auðvitað svolítið
öðruvísi en í Kópavoginum að
vera hérna en vissulega
skemmtilegt." „Maður er ekkert
að fara heim,“ segir Ragnar fé-
lagi hans í landslagsarkitektúrn-
um. Hvað gera landslagsarki-
tektar? Finnur verður fyrir svör-
um: „Það er nú einkum að skipu-
leggja garða og ýmis önnur úti-
vistarsvæði bæði fyrir einstakl-
inga og stofnanir. Það eru nokkr-
ar stofur heima í þessu og nóg
að gera.“
Á hverju lifið þið? „Ja, Lána-
sjóðurinn stendur sig þokkalega,
lánin eru góð þegar þau loksins
koma, en stundum er afgreiðslan
alltof stirð, alltaf verið að heimta
einhver gögn aftur og aftur eins
og þau hreinlega týnist, þessi
sem eru send,“ segir Sigurður og
hin taka undir þetta.
Landsleikurinn er nú f al-
gleymingi. Greinilegt að félagar
mínir eru ákafir stuðningsmenn
Dana en kvenfólkið heldur með
Norðmönnum til að jafnvægi
skapist. „Nú verður bara töluð
danska," öskrar einhver þegar
Danir komust í 3—1. Lokatölur
5—1 og þá er haldið á vit öldur-
húsa Kaupmannahafnar til að
samgleðjast Dönum og til að
athuga hvort Jón Hreggviðsson
og Jónas Hallgrímsson fylgja
íslendingum á Hvidsvinstue,
þeirri gömlu krá við Kóngsins
Nýtorg.
Hvort svo er skal ósagt látið
en ljóst er að íslenskir náms-
menn í Koben eru landi og þjóð
til sóma og eflaust eigum við
eftir að njóta starfskrafta þeirra
síðar.
Höfundur stundar lögfræöinám
við Háskóla fslands.