Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985 30 Leitar- og eftir- litssveit einka- flugmanna í burðarliðnum Um þessar mundir er unnið af fullum krafti að stofnun Leitar- og eftirlits- sveitar sem starfrækt verður af einkaflugmönnum. Vélflugfélag íslands, sem gengst fyrir stonfun sveitarinnar, fékk nýlega nauðsynleg leyfi Samgöngu- ráðuneytisins til starfseminnar. Síðan hafa staðið yfir viðræður við ýmsa opinbera aðila sem gætu notað þjónustu þessarar sérþjálfuöu Leitar- og eftirlitssveitar. Morgunblaðið/Ólafur Bragason DeHavilland Dash 7-skrúfuþota grænlenska flugfélagsins Grönlandsfly. Félagið á tver slíkar vélar og áformar áætlunarflug milli Nuuk og Reykjavíkur um hverja helgi í vetur. Grönlandsfiy flýgur til íslands — félagið nýlega 25 ára ___________Flug Gunnar Þorsteinsson FLUGFÉLAGIÐ Grönlandsny hef- ur frá því í október sl. flogið leigu- flug milli Nuuk, höfuðstaðar Græn- lands, og Reykjavíkur. Flogið er í samvinnu við Flugleiðir og áform eru uppi um reglubundið áætlunar- Hug. I nóvember sl. varð Grönlandsfly 25ára. Grönlandsfly flýgur til Reykjavíkur á föstudögum og til baka til Nuuk á sunnudögum. Félagið notar fjögurra hreyfla skrúfuþotur af gerðinni deHavil- land Dash 7 og eru þær rúmar 3 klst. á leiðinni. Flutningar hafa ekki verið mjög miklir og er ljóst að mörg ár tekur að byggja upp þessa flugleið. A milli Nuuk-ferðanna er Dash 7-vélin notuð í leiguflug milli Reykjavíkur og Jamesons- lands á austurströnd Grænlands fyrir bandarískt olíufélag sem stundar þar olíuleit. Flugrekstur við erfiðar aðstæður Grönlandsfly er í eigu fjögurra aðila: SAS-flugfélagsins, græn- lensku heimastjórnarinnar, KGH konunglegu Grænlands- verslunarinnar og námafélagsins Kryolit. Allir eiga sinn fjórðung- inn hver en um næstu áramót tekur heimastjórnin yfir rekstur konunglegu Grænlandsverslun- arinnar og eignast þar með helm- ing í Grönlandsfly. Sl. ár flutti Grönlandsfly um 100 þúsund farþega og 1838 tonn af frakt og pósti. Félagið á 16 þyrlur og 7 flugvélar og hjá því starfa 360 manns. Flug á Grænlandi er rekið við ákaflega erfiðar aðstæður eins og gefur að skilja. Veðurguðirnir leika flugið grátt og af þeim sökum verður oft ófært í marga daga í röð til sumra áfangastað- anna. Annað vandamál sem hrjá- ir Grönlandsfly eru gífurlegar árstíðasveiflur í flutningunum. Á sumrin er mikið um leiguflug til austur- og norðurstrandarinnar sem leggst nánast alveg niður yfir vetrartímann. Til að jafna þessar sveiflur hefur Grönlands- fly leigt flugvélar frá öðrum flugfélögum til að fljúga í sínu nafni. Ef ekki hefði verið gripið til þess ráðs hefði félagið sjálft þurft að eiga miklu fleiri flugvél- ar sem væru einungis nýttar á sumrin en ekkert á veturna. T.d. hafa Flugleiðir og Flugfélag Norðurlands flogið svona leigu- flug. Grönlandsfly heldur uppi áætlunarflugi til 21 ákvörðunar- staðar innanlands og þar af eru flugvellir við aðeins 6 þeirra. Til hinna 15 eru eingöngu flogið í þyrlum. Auk þess er millilanda- flug til Frobisher-flóa i Kanada og íslands. Nánast allir flugmenn Grön- landsfly eru útlendingar og eru Svíar og Norðmenn fjölmennast- ir. Samkv. heimildum Mbl. star- far nú aðeins einn fslendingur hjá félaginu, Erling Jóhannes- son, sem er flugmaður á Twin Otter- og Dash 7-vélum. Með tíð og tíma er stefnt að því að inn- fæddir setjist í flugmannasætin og fleiri sérhæfð störf. Nú þegar hafa margir Grænlendingar hlo- tið flugvirkjaþjálfun. Morgunblaðið/Jólíus Sigurjónsson Ólafur Bertelsson, sem ráðinn hefur verið stöðvarstjóri Grönlandsfly frá 1. janúar 1986. 25 ára afmælistölur í tilefni 25 ára afmælis Grön- landsfly eru hér nokkrar af- mælistölur. Félagið hefur flogið 45.055.000 km = 1126 hnattferðir við mið- baug. Flugtímarnir eru samtals orðnir 191.000 = 21 ár og7 mánuð- ir. Farþegafjöldinn er orðinn 1.485.000 = 28-föld íbúatala Grænlands. Og samtals hefur félagið átt 37 flugvélar — hver flugvél með 1,2 milljón km að meðaltali. Svæðisstjóri ráðinn á íslandi Ólafur Bertelsson flugumsjón- armaður hefur verið ráðinn svæðisstjóri Grönlandsfly á ís- landi frá 1. janúar 1986. Ólafur er þekktur úr fluginu enda starf- að við það í 23 ár, fyrst hjá Flugfélagi íslands og síðan Flug- leiðum, SAS og Arnarflugi. Hjörleifur Jóhannesson, varafor- maður Flugklúbbsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þeim hefði fundist vel við hæfi að byrja starfið með því að heiðra þennan braut- ryðjanda flugmannastéttarinnar. í fallega skrautrituðu skjali frá þeim Flugklúbbsmönnum segir orðrétt: „Flugklúbbur Reykjavíkur hefur í dag kjörið Sigurð Jónsson — Sigga flug — handhafa flugskírteinis nr. 1. heiðursfélaga og stofnfélaga klúbbsins nr. 1. fyrir brautryðj- andastarf að flugmálum á Islandi." Flugferill braut- ryðjandans Um þessar mundir eru liðin 57 ár frá því að Siggi flug flaug sjálfur flugvél í fyrsta skipti. Það var 14. nóvember 1928 í Þýskalandi og eftir að hafa flogið aðeins 2 klst. 41 mín. með kennara hélt hann einsamall i loftið. Fyrsta flugvélin var af gerðinni Klemm — sem margir íslenskir flugáhugamenn þekkja. Sigurður lauk einkaflugprófinu í mars 1929 en þá var teikð að líða á þann tíma sem honum hafði verið gefinn til námsins. Tímatakmarkið var sett við Alþingishátíðina árið 1930 því stefnt var að því að Sigurð- ur hæfi störf sem flugmaður hjá Flugfélagi íslands (nr. 2) rétt áður en sjálf hátíðin hæfist. Það tókst þrátt fyrir ýmsar tafir ytra. Fyrsta íslenska flugvélin með alíslenskri áhöfn hóf sig á loft 27. júní 1930 og var Siggi flug við stjórnvölinn en vélamaður var Gunnar Jónasson. Svo skemmtilega vildi til að þetta fyrsta alíslenska flug, ef svo má að orði komast, var á sjálfu þúsund ára afmæli AI- þingis. Flugvélin hét Veiðibjallan og var þýsk af gerðinni Junkers Ju FR-13. Flugið tók 30 mín. og voru æfð flugtök og lendingar á ytri höfninni í Reykjavík. Sjálfur segir Samstarf við Civil Air Patrol í Bandaríkjunum „Það er rúmt ár síðan stjórn Vélflugfélagsins ákvað að beita sér fyrir stofnun þessarar sveitar," sagði Sigurjón Ásbjörnsson, for- maður Vélflugfélags íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Eig- endur einkaflugvéla hafa árum saman lagt fram flugvélar og mannskap til leitar úr lofti og borið þann kostnað óskiptan þar sem leitarsjóður fyrir þessa starf- semi hefur ekki verið til. Það er geysilega dýrt að reka flugvélar svo brýn nauðsyn er á að stofna slíkan sjóð sem mundi greiða út- lagðan reksturskostnað. Einnig skortir nauðsynlega þjálfun fyrir þá flugmenn sem taka þátt í skipu- lögðu leitarstarfi, þjálfun í sam- ræmi við þær framfarir og endur- skipulagningu sem orðið hefur undanfarin ár við yfirstjórn leitar- og björgunarmála hér á landi. Það er einmitt í ljósi þessara atriða sem við teljum nauðsynlegt að skapa traustari grunn fyrir þátt- Sigurður að þessi flugferð með Gunnari hafi verið endanleg pró- fraun áður en hann var talinn full- fær um að flytja farþega. Síðar þennan sama dag flugu þeir félag- arnir sjö ferðir milli Reykjavíkur og Þingvalla með gesti á Alþingis- hátíðina og þann næsta fóru þeir fimm ferðir. Strax eftir þessa tvo fyrstu anna- daga lagði Sigurður upp í sitt fyrsta langflug og var farið frá Reykjavík til ísafjarðar og til baka. Flug- tíminn aðra leiðina var 2 klst. 5 mín. f dag fara Fokker F 27-vélar þarna á milli á 40 mín. Flugfélag íslands lognaðist út af árið 1931 svo flugmennskan var skammgóður vermir hjá Sigurði því hann varð auðvitað að leita sér að annarri atvinnu og lauk þar með afskiptum hans af flugmálum í bili. Eftir 9 ára hlé, eða árið 1940, gerðist Sigurður atvinnuflugmaður á ný og hóf störf hjá Flugfélagi íslands (nú hluti Flugleiða). Eftir tvö ár lenti hann í alvarlegu flug- slysi á einni vél félagsins á Reykja- víkurflugvelli. Hann var að leggja upp í Akureyrarflug með 3 farþega þegar hreyfillinn stöðvaðist skömmu eftir flugtak með þeim afleiðingum að vélin hrapaði niður á flugvélastæði. Eftir þetta hörmu- lega slys flaug Sigurður ekki aftur sem atvinnuflugmaður. Síðar var hann skipaður skrifstofustjóri Flugmálastjórnar og forstjóri Loft- ferðaeftirlitsins og starfaði því að flugmálum á vegum hins opinbera þangað til að hann komst á eftir- laun árið 1975. Þegar blm. og ljósmyndari glugg- uðu í flugdagbækur Sigurðar gat á að líta nöfn ýmissa manna sem þá voru að stíga sín fyrstu spor í flug- inu undir leiðsögn Sigurðar og hafa flestir þessarra manna síðan haslað sér völl sem flugstjórar hjá stóru töku einkaflugmanna í leitarflug- inu.“ Vélflugfélag íslands hefur þegar notið aðstoðar Civil Air Patrol í Bandaríkjunum vegna undirbún- ingsins að stofnun íslensku sveit- arinnar og verður væntanlega áframhaldandi samstarf vegna skipulagsmála og sérþjálfunar flugmanna. Starfsemi Civil Air Patrol má rekja aftur til síðari heimsstyrj- aldarinnar þegar hún hóf leitar- flug við strendur Bandaríkjanna. Flugmennirnir unnu í sjálfboða- vinnu en yfirvöld greiddu rekst- urskostnað flugvélanna. Eftir styrjöldina rann starfsemin í annan farveg og í dag annast sveit- in leitar- og eftirlitsflug í nær öllum fylkjum Bandaríkjanna. Civil Air Patrol nýtur tæknilegrar aðstoðar bandaríska flughersins auk ýmissar annarrar aðstoðar. Civil Air Patrol-sveitin á sjálf rúmlega 500 flugvélar og tímabilið 1983-4 flugu meðlimir hennar um 30.200 klst. í sjálfboðavinnu en sá flugstundafjöldi er svipaður og íslensku flugfélögunum. Þeir Sig- urður og Ólafur K. ljósmyndari flettu upp á flugferðum sem þeir fóru í saman fyrir Morgunblaðið fyrir fjórum áratugum og rifjuðu upp einstaka atburði úr þessum ferðum eins og þær hefðu verið farnar í gær eða fyrradag. Á atvinnuflugmannsferli sínum flaug Sigurður nálægt 2 þúsund stundir, en víst er að allar ferðirnar hafa ekki verið færðar í dagbókina því þar eru skráðar nákvæmlega 1776 klst. ogömín. Sendillinn sem varö atvinnuflugmaöur Fyrsti ísleriski flugmaðurinn er ekki „gamall" í beinum skilningi þess orð og þó að hann sé ekki alveg heill heilsu hefur hann litlu tapað af sinni alkunnu kímnigáfu. í því ljósi og vegna þess að um þessar mundir er einmitt verið að auglýsa eftir atvinnuflugmönnum til starfa hjá Flugleiðum hf. báðum við Sigga flug að lokum að segja frá því hvernig ráðningu hans hafi borið að fyrir 58 árum. „Eg var sendill í íslandsbanka þegar samgöngumálaráðuneytið auglýsti í blöðunum eftir manni til að læra flug og bauð átta þúsund króna styrk úr ríkissjóði sem voru miklir peningar þá. Eg var einn af 26 sem sóttu um en margir heltust strax úr lestinni vegna aldurs. Lengi vel fékk ég engar fréttir af því hvað hefði orðið af umsókn- inni og vonirnar um að ég kæmi til greina fóru að dofna og ekki jókst bjartsýnin þegar ég frétti að ein- hverjir umsækjendur hefðu þegar verið kallaðir í viðtal. Loks kom þó að því að ég var beðinn um að koma til viðtals við dr. Alexander Jó- hannesson sem var þá aðaldriffjöð- urin í Fiugfélagi íslands. Þegar ég kom heim til dr. Alex- anders voru þar fyrir fimm keppi- nautar mínir auk þeirra sem áður höfðu verið teknir til viðtals. Þarna Siggi flug heiöraður Fyrsta verk félaganna í nýstofnuðum Flugklúbbi Reykjavíkur var að heiðra hinn aldna flugkappa, Sigurð Jónsson — Sigga flug — fyrsta íslenska atvinnuflugmanninn. Sigurður er 75 ára og hefur undanfarið átt við van- heilsu að stríða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.