Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Drög að stefnuatriðum um rekstrarskilyrði og innra skipulag fiskyinnsliumar:
Markaðsskráning á gengi
Frjáls verðmyndun á afla
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu afhentu fulltrúar
fiskvinnslunnar sjávarútvegsráð-
herra fyrir hönd ríkisstjórnarinn-
ar tillögur og kröfur sínar til
lausnar á þeim vanda sem fisk-
vinnslan stendur frammi fyrir.
Samtök fiskvinnslunnar telja að
frysting sé nú rekin með 8 til 9%
halla og saltfiskframleiðsla á ár-
inu verði gerð upp með verulegum
halla. Auk þessara tillagna um
allra brýnustu málin voru ríkis-
stjórninni afhent drög í 10 köflum
að stefnuatriðum er varða rekstr-
arskilyrði fiskvinnslunnar og
innra skipulag hennar. Þessi drög
fara hér á eftir en þau eru unnin
af nefnd skipaðri fulltrúm frá
Sambandi fiskvinnslustöðvanna
og Félagi Sambandsfrystihúsa. Er
þetta í fyrsta sinn sem fiskvinnsl-
an leggur fram sameiginlegar
kröfur.
1.0. Almenn efnahags-
stjórn
1.1. Beita verður ströngu aðhaldi
í peningamálum til þess að koma
í veg fyrir þenslu, launaskrið og
umframeftirspurn eftir vinnuafli.
1.2. Við frágang lánsfjárlaga og
gerð efnahagsáætlana fyrir árið
1986 — ár útflutningsins — verði
utanríkisviðskipti hallalaus og
skuldasöfnun erlendis stöðvuð.
Lántökur opinberra aðila verði
m.a. lækkaðar til að ná þessum
markmiðum.
1.3. Fylgst verði náið með því
að bankakerfið hagi erlendum lán-
tökum þannig að nettó skuldastaða
þjóðarbúsins aukíst ekki. Heimild-
ir til erlendra vörukaupalána verði
takmarkaðar. Tryggt verði að við
framkvæmd nýrra bankalaga
verði ábyrgðaveitingar ríkisbank-
anna takmarkaðar.
1.4. Athugun fari fram á því,
hver sé uppruni lánsfjármagns í
sjávarútvegi. f samræmi við niður-
stöður þeirrar athugunar verði
ákveðið hver skuli vera kjör á láns-
fjármagni til sjávarútvegsins.
Sjávarútvegurinn á ekki að standa
undir gengis- og verðtryggingu
fyrir aðra atvinnustarfsemi í
landinu.
1.5. Nú þegar verði hafinn undir-
búningur við að koma á markaðs-
skráningu á gengi, þannig að verð
á erlendum gjaldmiðlum miðist við
að jafna það magn sem boðið er
fram og spurt er eftir. Tryggja
þarf að framboð af erlendum
gjaldmiðlum sé sem næst því sem
útflutningsgreinarnar framleiða
fyrir erlendan markað. Með hlið-
sjón af því þarf að endurskilgreina
hlutverk Seðlabankans. Skipaður
verði starfshópur aðila atvinnu-
lífsins og ríkisins er móti reglur
um framkvæmd málsins. Starfs-
hópurinn hefji störf fyrir áramót
og skili frumdrögum fyrir 15. jan-
úar 1986.
2.0. Fjármögnun fisk-
vinnslunnar
2.1. Gera þarf fyrirtækjum eða
samtökum þeirra kleift að snúa sér
beint til erlendra banka með af-
urðalánaviðskiptin. Til þess þarf
lagasetningu.
2.2. Lækka þarf vaxtaálag við-
skiptabankanna sem er enn of hátt
miðað við þá áhættu og kostnað
sem viðskiptunum er samfara.
2.3. Fiskvinnslan mun freista
þess að koma á bættum samskipta-
reglum milli viðskiptabankanna
og fiskvinnslufyrirtækja eða hags-
munasamtaka þeirra, sérstaklega
í þeim tilvikum þegar verulegar
breytingar eru fyrirhugaðar á út-
lánastefnu bankanna. Sértök til-
vísun er gerð til þess trúnaðar-
brests er myndaðist er viðskipta-
bankarnir settu afturvirka gengis-
tryggingu á viðbótarlán fisk-
vinnslunnar í október 1984. Fisk-
vinnslan lítur svo á að því máli sé
ekki lokið.
2.4. Þess er óskað að nú þegar
fari fram athugun á greiðslustöðu
fiskvinnslunnar, þar sem við gerð
afkomuáætlana Þjóðhagsstofnun-
ar er ekki tekið tillit til áhrifa
tapreksturs undanfarinna ára á
afkomumöguleika fyrirtækja í
fiskvinnslu.
2.5. Stuðlað verði að því að út-
lánareglum fjárfestingasjóða
verði breytt svo og öðrum nauðsyn-
legum reglum, þannig að heimilt
verði að ráðast út í fjárfestingu á
vélum og tækjum í formi leigu-
kaupasamnings.
3.0. Orkuverð
Orkuverð til fiskvinnslu verði
samræmt. Við ákvörðun á orku-
verði verði tekið mið af orkuverði
til fiskvinnslu í samkeppnislönd-
unum. Þá verði einnig litið á fisk-
vinnslu sem stóriðju m.t.t. orku-
verðs. Fiskvinnslufyrirtæki eru
yfirleitt mjög stórir viðskiptavinir
rafveitnanna og jafn mikilvæg
þeim sem tekjulind og rafveiturn-
ar eru fiskvinnslufyrirtækjunum
sem orkuútvegendur.
4.0. Frjáls verömyndun
á sjávarada
4.1. Fiskvinnslan er reiðubúin
að vinna að útfærslu hugmynda
um uppboðsmarkað í samvinnu við
stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila.
4.2. ftrekað er að oddamaður í
yfirnefnd verðlagsráðs verði ekki
lögskipaður heldur valinn skv.
samkomulagi aðila.
4.3. ftrekað er að heimildir verð-
lagsráðs sjávarútvegsins verði
rýmkaðar til að ákveða að fiskverð
verði frjálst. Til þessa skuli þurfa
aukinn meirihluta en ekki alls-
herjar samkomulag. í því sam-
bandi er tekið undir orð sjávarút-
vegsráðherra í ræðu er hann flutti
við upphaf Fiskiþings, en þar
mælir hann með heimild til
frjálsrar verðmyndunar á þann
hátt að ef ekki næst samkomulag
í verðlagsráði geti yfirnefnd gefið
verðið frjálst, enda þótt einróma
samþykki sé ekki í nefndinni.
5.0. Ferskfiskmat —
samræming veiöa
og vinnslu
5.1. Núverandi verðlagningar-
kerfi á ferskum fiski gerir ráð fyrir
öflugu gæðamati sjávarafla. Með-
an ekki er horfið frá núverandi
verðkerfi nema að takmörkuðu
leyti eru fyrri óskir ítrekaðar um
að matsreglur endurspegli nýtingu
og ástand þess hráefnis sem berst
til vinnslunnar, s.s. eftir orma-
fjölda, innvolsi og geymsluþoli.
5.2. Fiskvinnslan og aðrir hags-
munaaðilar í sjávarútvegi þurfa
stöðugt að huga að því að hve
miklu leyti tæknibreytingar og
framfarir geta bætt hráefnið. í því
sambandi er sérstök athygli vakin
á þeim möguleikum, sem heilfryst-
ing á sjó og endurvinnsla í landi
hefur fyrir fiskvinnsluna.
5.3. Fiskvinnslan hefur haldið
uppi áróðri fyrir því að nauðsyn-
legt sé að vinna stöðugt að því að
samræma betur veiðar og vinnslu,
þannig að ekki sé komið með meiri
afla að landi en hægt er að vinna
á sem hagkvæmastan hátt í við-
komandi löndunarstöð. Fisk-
vinnslan mun halda þessu starfi
áfram m.a. með sérstöku samráði
við þá aðila eða samtök, sem hags-
muna hafa að gæta. ítrekað er að
stöðugt þarf að huga að hvort
einhverjar aðrar leiðir en kvóta-
kerfi, skrapdagakerfi eða breytt
verðlagning geti stuðlað að auk-
inni samræmingu veiða og vinnslu.
Einnig að hve miklu leyti útflutn-
ingur á ferskum fiski í gámum og
miðlun hráefnis á milli húsa geti
stuðlað að þessu markmiði.
6.0. Sjóöakerfiö
6.1. Sjóðakerfi sjávarútvegsins
verði lagt niður eða stórlega dregið
saman. Skorað er á sjávarútvegs-
ráðherra að óska eftir því að nefnd
sem vinnur að málinu flýti störf-
um, þannig að hægt sé að fara að
ræða þessi mál á raunhæfan hátt
sem allra fyrst. Fiskvinnslan mun
beita sér fyrir því að leita sam-
komulags í þessu máli í samvinnu
við aðra aðila. Sérstök áhersla er
lögö á að verðjöfnunarsjóður verði
lagður niður. Þess í stað verði
opnaðar heimildir í skattalögum
fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig til
að leggja fjármagn í sérstakan
sveiflujöfnunarsjóð.
6.2. Utflutningsgjald og gengis-
munagjald á skreið og skreiðar-
birgðum verði þegar í stað fellt
niður. Einnig komi til endur-
greiðslna til þeirra aðila, sem hafa
að undanförnu fengið greiðslur
frá Nígeríu vegna eldri skreiðar-
skulda Nígeríustjórnar.
7.0. Nýsköpun —
tæknivæöing
ítrekað er að opinberir aðilar
og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
haldi vöku sinni og tryggi að eðli-
legur hluti af því fjármagni sem
varið er til nýsköpunar í atvinnu-
lífinu renni til sjávarútvegsins.
Sérstöks áhersla er lögð á vinnu-
sparandi aðgerðir og að tæknivæða
þau störf þar sem handavinna er
mest þ.e. í snyrtingu og pökkun.
Tollar af aðföngum til rannsókna
og þróunarstarfsemi verði felldir
niður. Hugmyndum sjávarútvegs-
ráðuneytis um skipun sérstakrar
samstarfsnefndar í þessu skyni er
fagnað.
8.0. Hringormavandinn
— stórfækkun sels
Lög verði sett um selveiðar sem
auðveldi þær. Hringormavandinn
er orðinn geigvænlegur og kostn-
aður við hreinsun hringorms tal-
inn skipta hundruðum milljóna á
ári fyrir fiskvinnsluna.
í framhaldi af Iagasetningu
þurfa að koma til beinar aðgerðir
til stórfækkunar á sel.
9.0. Málefnifisk-
vinnslufólks
9.1. Atvinnuöryggismál: Aðilar
vinnumarkaðarins eru að vinna að
tilögum um breytingar á ráðning-
arfyrirkomulagi starfsfólks í fisk-
vinnslu, sem að megin efni miðast
við það að fiskvinnslufyrirtækin
standa sjálf straum af launakostn-
aði á tímum vinnslustöðvunar
«
„Bók um mann-
leg samskipti
- segir Páll H. Jónsson um bók sína Blindaálfar
„BLINDÁLFAR" heitir nýútkomin skáldsaga Páls H. Jónssonar rit-
höfundar og er þetta fyrsta bók höfundar, sem sérstaklega er ætluð
fullorðnum iesendum. I frétt frá útgefanda bókarinnar, Vöku-Helgafelli,
segir að Blindálfar sé saga um örvæntingarfulla leit að lífsfyllingu —
einmanaleika og einangrun. Áður hefur Páll sent frá sér Ijóðabækur,
leikrit, ævisögur og þrjár barnabækur, en fyrir tvær þeirra hefur hann
hlotið verðlaun frá Fræðsluráði Reykjavíkur.
Aðspurður kvað Páll töluverð-
an mun á því að skrifa fyrir börn
annars vegar og þá fullorðnu
hins vegar. „Annars er alltaf
erfitt að skipta fólki í hópa eftir
þeim árafjölda sem það hefur að
baki. „Blindálfar" er vissulega
ekki bók bönnuð börnum, en hún
gerir þéttingsmiklar kröfur til
þroska lesandans. Engu að síður
ættu þó unglingar margir hverjir
að geta haft bæði gagn af henni
og gaman," sagði Páll.
„f bókinni eru nánast aðeins
tvær sögupersónur — rösklega
miðaldra rithöfundur, sem orð-
inn er blindur, en er þó að flestu
leyti sjálfbjarga. Hann hefur
samt aldrei lært vélritun og
ræður því til sín 18 ára stúlku
til að vélrita upp verk sín,“ upp-
lýsti Páll. „Sagan fjallar svo um
samlíf þessa fólks og samstarf.
Bókin er að mestu leyti byggð
upp á samtölum — vangaveltum
og rökræðum. Hún fjallar mn
mannleg samskipti, vandamál
lífsins og viðbrögð okkar við
Ráll H. Jónsson rithöfundur.
þeim,“ bætti hann við. „Hér er
þó ekki um neina predikun að
ræða,“ sagði Páll, „en boðskapur-
inn hefur bókin engu að síður —
boðskap sem best verður lýst með
orðunum góðvild og vinátta.
Nokkurs konar hvatning til okk-
ar um að rétta hvert öðru hjálp-
arhönd."