Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 55

Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985 55 Jarðfræðileg myndabók um ísland — eftir Sigurð Steinþórsson Þýzka bókaforlagið Atlantis hefur gefið út jarðfræðilega myndabók um ísland eftir Þjóð- verjann Ulrich Munzer. Bókin heitir ísland — eldfjöll, jöklar, hverir, og er prentuð bæði á þýzku og ensku. Barst mér enska þýðing- in í hendur, en hana gerði Ellen Sallet; þýðingin er yfirleitt lipur- leg, eftir því sem hægt er að búast við um texta af því tagi sem ein- kennir myndabækur sem þessa, en þar ægir saman lýsingarorðum í hástigi, tölum og örnefnum. Ulrich Múnzer mun vera mæl- ingaverkfræðingur að mennt, en frá mælingum er skömm leið í fjarkönnun og þaðan áfram til jarðfræði. Tildrög bókarinnar voru þau, að Múnzer kom hingað til lands í fyrsta sinn fyrir 15 árum og fékk þá „Íslandsbakteríuna" illræmdu, sem margir útlendingar, en þó einkum Þjóðverjar, virðast hafa lítinn mótstöðukraft gegn. Var hann þá þátttakandi í jarð- fræðileiðangri stúdenta frá Múnc- hen undir stjórn Klaus heitins Schmidt, prófessors þar, og er bók- in tileiknuð honum. Síðan hefur Múnzer komið hingað óteljandi sinnum, ferðazt um allt land og tekið myndir, og stundað einhverj- ar rannsóknir á vegum Rann- sóknastofnunar Gísla Sigur- björnssonar í Ási í Hveragerði. Er bókin ávöxtur þeirrar iðju. Gylfi Þ. Gíslason skrifar inn- gang um þjóðina sem byggir þetta land. Þar segir að ísland sé óvenju- legt land og íslendingar óvenjuleg þjóð, bókmenntamenn miklir og áhugasamir um menningarmál, auk þess sem þeir hafi tæknivæðzt á skömmum tíma. Eru þarna heil- miklar upplýsingar í stuttu máli, enda hefur dr. Gylfi allra manna mesta yfirsýn og æfingu á þessu sviði. Bókin skiptist í sjö kafla, og er þannig niður raðað, að fyrst er texti uppá fáeinar síður um tiltekið efni — efnisflokkarnir eru sjö — en síðan fylgja margar myndasíð- ur með allítarlegum skýringum. í fyrsta kaflanum er gerð grein fyrir fjarkönnun, sem er helzta áhuga- mál höfundar, og sýndar mismun- andi gervitunglamyndir af hluta af íslandi. Er sá kafli fróðlegur fyrir ókunnuga, en þó skín í gegn sú undarlega staðreynd að yfirleitt sjá menn ekkert á þessum mynd- um sem þeir vissu ekki um áður. Myndgreiningin snýst þess vegna um það hvers vegna jökulárnar eru svartar á einni tegund af gervi- tunglamynd, hvítar á annarri en bláar á hinni þriðju o.s.frv. Þarna er fallg syrpa loftmynda af svæð- inu umhverfis Grábrók í Norður- árdal, ein mynd í lit og önnur tekin á innrauða filmu. Næsti kafli fjallar um tengsl íslands við Mið-Átlantshafshrygg- inn og áhrif þeirra jarðskorpu- hreyfinga á jarðfræði landsins. Þótt bókin kæmi út á þessu ári (1985) eru þær hugmyndir, sem þarna er lýst, frá 1974, frá 1974, en hafa þróazt mikið síðan. Kafl- anum flygja myndir af gossprung- um og misgengjum: Eldgjá, Al- mannagjá, Langasjó o.fl. Þriðji kaflinn fjallar um eld- stöðvar á íslandi og fylgir kort þar sem dyngjur, stapar, eldkeilur, megineldstöðvar og gossprungur eru merktar hver með sínu tákni og nöfnin talin upp í myndatexta. Er kort þetta mjög skilmerkilegt, en ljósmyndir fylgja af ýsmum eldstöðvum og hraunmyndunum. Fjórði kafli lýsir jöklum og jök- ulmyndunum, og kort sýnir út- breiðslu jökla undir lok ísaldar. Þarna eru ýmsar glæsimyndir af skriðjöklum og jökullónum. í fimmta kafla segir frá hverfum og jarðhita, og í hinum sjötta frá ám, stöðuvötnum og söndum. í sjöunda og síðasta kafla er svo rætt stuttlega um ýmsar bergteg- undir og steintegundir sem hér finnast, með ljósmyndum frá landshlutum þar sem hraunbelti einkenna landslagið. Aftast er skrá jarðfræðiorða (á ensku) með skýringum, heimildaskrá og loks yfirlitskort yfir þá staði þar sem ljósmyndirnar voru teknar. Margir gerast nú svartsýnir mjög um framtíð orðsins sem upplýsingamiðils; myndir skipa æ hærri sess, en textinn gerist fá- tæklegri sem því nemur. Jarð- fræðilegar myndabækur um ís- land hafa allmargar verið gefnar út áður, t.d. um eldgos í Heklu, Öskju, Surtsey og Heimaey, svo og um Vatnajökul. Bók Ulrichs Múnzers um ísland er myndarleg viðbót við það safn, en að vissu leyti þeim mun yfirborðslegri sem hún tekur stærra viðfangsefni til meðferðar, enda skýrir höfundur eingöngu frá annarra athugunum. Myndirnar eru margar mjög góðar og sumar sérlega fallegar, en það „ísland — eldfjöll, jöklar, hverir er engin fræðibók, né þykist vera það, en hún er vel- viljuð landi og þjóð og full af margskonar upp- lýsingum og fallegum myndum.“ sem óvenjulegt má teljast við bók- ina eru hinar mörgu loftmyndir sem þar birtast. Þar naut Múnzer aðstoðar Elíesers Jónssonar, flug- mannsins snjalla. Myndefnið er sýnilega upphaf og tilgangur bókar þessarar, og þörfin á að koma því á framfæri hefur knúð höfundinn til að semja textakaflana sjö. Þeir eru fróðleg- ir, svo langt sem þeir ná, en auðvit- að ekki sérlega skammtilegir af- lestrar. Engar beinar villur rakst ég á, en sumt mætti misskilja, t.d. textann við 72. mynd (tölusettar myndir eru 131), sem sýnir ösku- lagamynztur á Síðujökli. Þar segir, að með tímanum hverfi öskulögin smám saman undir nýfallinn snjó og grafist í jökulinn. Þau komi ekki aftur 1 ljós fyrr en fremst í skriðjöklinum, þegar bráðnun afhjúpi þau. Hér er klaufalega að orði komizt, með tilvísun til 72. myndar, því misskilja má textann þannig að öskulögin á myndinni muni grafast smám saman í snjó o.s. frv., en myndin sýnir einmitt öskulög sem komin eru upp á yfir- borðið. Smávægilegar prentvillur fann ég. en þó fáar, enda mun Atlantis vera heldra forlag og vant að virðingu sinni. Nú um tíðir þykir hlýða að meta allt til peninga: Vigdís Finnboga- dóttir var sögð jafnoki 15% gengis- fellingar fyrir útflutningsatvinnu- vegina, Hólmfríður Karlsdóttir og sjónvarpsþættir Magnúsar Magn- ússonar munu örva sölu íslenzkra afurða og auk ferðamannastreymi til íslands — og væntanlega gerir þessi bók hið sama. ísland — eld- fjöll, jöklar, hverir er engin fræði- bók, né þykist hún vera það, en hún er velviljuð landi og þjóð og full af margs konar upplýsingum og fallegum myndum. Bók sem þessi væri vafalaust kærkomin jólagjöf útlendingum sem áhuga hafa á íslenzkri náttúru og nátt- úrufræði, og sömuleiðis gagnlegur inngangur að frekari kynnum af íslandi. Höfundur er jardfrædingur. Sigurður Steinþórsson á Kástle skíðum, Marker bindingum og Dynafit skíðaskóm. Við bjóðum upp á skíðapakka með skíðum og bindingum á ótrúlega lágu verði. Fullorðinspakki Kástle skíði, lengd 160-195 cm Marker bindingar Verð kr. Attfö.- Jólatilboð kr. 8^990^- Barna- og unglingapakki Kástle skíði, lengd 120-140 cm Marker bindingar Verð kr. .£4-30- Jólatilboð kr. 4^990.- Gönguskíði Kástle gönguskíði, lengd 180-215 cm Marker bindingar Verð kr.-0^73.- Jólatilboð kr. 2.990,- Dynafit skíðaskór Super Shadow Stærðir 5-12 Verð kr. &&&.- Jólatilboð kr. 206(1- Dynafit skíðaskór Hot Racer Stærðir 5-12 Verð kr. 4.960.- Jólatilboð kr. 3.720.- SKATABUÐIN Snorrabraut 60 sími 12045

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.